Morgunblaðið - 14.02.1991, Síða 34

Morgunblaðið - 14.02.1991, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1991 MYNDLIST Tveir ungir myndlistamenn opna sýningar SKEMMTANIR Lýðræðissinnar skemmta sér Þetta tókst frábærlega vel og það komu alls um 300 manns. Troðfullt, og félagslífið í Vöku hefur heldur betur staðið í blóma það sem af er vetri,“ sagði Einar Sigurðsson formaður skemmtinefndar Vöku, félags lý_ð- ræðissinnaðra stúdenta við HÍ í samtali við Morgunblaðið. Þetta var mælt í tilefni af 56 ára afmæl- isfagnaði samtakanna sem hald- inn var hátíðlegur í Vökuheimilinu á Hverfisgötu fyrir skömmu. Við birtum nokkrar myndir úr fagnað- inum og látum þær um að tala ... Stríðstíska .... TISKA Gasgrímu- tíska Fyrir kemur að kvenfatatískan tekur mið af tíðarandanum og hræringum þó algengara sé að kenjar og tilfínning hönnuða ráði þar mestu. Dæmi um hið fyrrnefnda var að sjá er nokkur minni nöfn meðal hönnuða í New York héldu götusýningu fyrir skömmu. Þar kenndi ýmissa grasa, en átökin við Persaflóa svifu vængjum þöndum yfir vötnunum eins og sjá má af meðfylgjandi „flík“ sem var meðal annarra til sýnis. Síðbuxur í felulit- um, grænbrúnn bolur og grænar og brúnar flygsur í ljósum frakka. Og til að kóróna allt saman: Gas- gríma! Einn af mikilvirkari myndlista- mönnum landsins úr flokki hinna yngri Daði Guðbjörnsson, opnaði sína 19. einkasýningu í Galleríjnu Nýhöfn um síðustu helgi. Á sýningunni sýnir Daði olíu- málverk og myndastyttur unnar með blandaðri tækni, en verkin hefur hann gert síðustu tvö árin. Daði, í miðjunni, tekur við heillaóskum og blómvendi. Daði er aðeins 36 ára að aldri, en á langan feril að baki, því auk 19 einkasýninga hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga bæði á heimaslóð og erlendis. Hann stund- aði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlista- og hand- íðaskóla íslands á árunum 1969 til 1980 og árin 1983 Og 1984 var hann í Hollandi, í framhaldsnámi við Rijksakademi van Beldende Kunsten í Amsterdam. Þá hefur Daði kennt við Myndlista- og hand- íðaskólann, verið formaður Félags íslenskra myndlistarmanna og se- tið í safnráði Listasafns íslands. í Galleríi Sævars Karls klæðskera í Bankastræti var aftur á móti Birgir Björnsson á ferðinni. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann frá 1981 til 1985 og næstu tvö árin í Listaháskólan- um í Björgvin í Noregi. Seinni vet- urinn þar var hann styrkþegi norska utanríkisráðuneytisins og Forening Norden. Þetta er fyrsta einkasýning Birgis á íslandi, en hann hefur áður haldið þijár einka- sýningar í Noregi og tekið þátt í samsýningum á Islandi og erlendis. Þess má geta í lokin, að sýning Daða stendur til 27. febrúar, en sýning Birgis stendur til 8. mars. Morgunblaðið/Þorkell Birgir Björnsson l.t.v. ásamt gestum í Galleríi Sævars Karls. Sævar er l.t.h. SIEMENS-gæð/ ÁREIÐANLEG OG HAGKVÆM ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS SIEMENS þvottavélar eru traustar, endingargóðar og þægilegar í notkun. Það sannar áratuga reynsla. WV2852 ■ Vinduhraði 600 og 850 snún./mín. ■ Sparnaðarhnappur og hagkvæmnihnappur ■ Frjálst hitaval og mörg þvottakerfi ■ Þægilegt og aðgengilegt stjórnborð. aVerð kr. 70.900,- Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið. SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMI 28300 „HOT FUDGE BROWNIE“ ís á brúnköku Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.