Morgunblaðið - 14.03.1991, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1991
Sýning verður haldin á
rsestingaefnum og áhöldum
i nóvember 1991.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á aÖ
kynna vörur sínar hafið sambandi við
effirtaldar fyrir 15. apríl:
Huldu í síma 687600
Jónínu í síma 604343
Sesselju í síma 696516
SESF J
SKÚFFUR - KASSAR - BOX
SORTIMO framleiðir eiít það vandaðasta skúffukerfi fyrir fag-
manninn sem völ er á.
SORTIMO SKÚFFUR með borðplötu, lokun og læsingu fyrir
verkfæri o.fl.
SORTMO KASSAR með mis stórum boxum á einni eða tveimur
hæðum. Kassarnir geta verið stakir eða verið í skúffueiningu
með eða án loks, öryggis lokun og læsingu.
SORTIMO BOX eru í fjórum stærðum. Hver stærð er samsett áf
tveim mislöngum hillueiningum.
SORTIMO SKÚFFUM — KÖSSUM OG BOXUM er hægt að
raða saman hvernig sem er og setja undir þau hjól.
SORTIMO býður upp á fjölmarga möguleika fyrir lagerinn-
bílinn - skipin - verkstðin - geymsluna o.fl.
Sölu- og þjónustuaðilar
Geisli - Vestmannaeyjum, Glitnir - Borgarnesi
Póllinn - ísafirði, Snarvirki hf. - Djúpavogi
RAFLAGNIR - TÖLVULAGNIR - MÓTORVINDINGAR
VERZLUN - ÞJÓNUSTA
RAFVERHF
SlMI 91-82415-82117 • TELEFAX 1 -680215
SKEIFAN 3E-F, BOX 8433. 128 REYKJAVlK
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í rauðri áskriftarröð:
íslensk — amerísk
og rússnesk tónlist
eftir Rafn Jónsson
Hlutur einleikarans er í kastljósi
í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í rauðri áskriftarröð. Næstu
tónleikar í þessari röð verða í Há-
skólabíói fimmtudaginn 14. mars og
hefjast kl. 20.00. A efnisskrá verða
þrjú verk: Sónans eftir Karólínu Ei-
ríksdóttur, Sinfónía nr. 2 eftir Char-
les Ives og Fiðlukonsert eftir Tsjaj-
kovskíj. Einleikari verður Victor
Tretjakoff og hljómsveitarstjóri
Murry Sidlin.
Karólína Eiríksdóttir samdi Són-
ans 1980-1981 og var það fyrst flutt
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar 15. október, 1981. Karólína lauk
píanókennaraprófí frá Tónlistarskó-
lanum í Reykjavík 1974 og stundaði
tónlistarnám í Bandaríkjunum til
1978, þaðan sem hún lauk meist-
aragráðu í tónfræðum og tónsmíð-
um. Helstu tónsmíðakennarar henn-
ar voru Þorkell Sigurbjömsson, Be-
orge B. Wilson og George Albright.
Sónans er í tveimur allhröðum meg-
inköflum, sem eru aðskildir með
stuttu og hægu millispili.
Bandaríska tónskáldið Charles
Ives lést 1954. Hann stundaði tónlist-
arnám við Yale-háskólann. Samhliða
tónsmíðum var hann athafnamaður
í viðskiptalífinu og fékk allar sínar
tekjur af því og gekkst upp í því að
hafna vinnulaunum, flutningsgreiðsl-
um og verðlaunum fyrir tónlist sína.
Hann sagðist gera þetta til að geta
viðhaldið hinu fullkomna frelsi lista-
mannsins til að skrifa þá tónlist sem
hann vildi sjálfur. Sinfóníu nr. 2
skrifaði Charles Ives um síðustu ald-
amót.
Tsjajkovskíj samdi fiðlukonsertinn
í D dúr 1879. Konsertinn, sem er
samkvæmt klassískri hefð í þremur
Victor Tretjakoff, fiðluleikari.
þáttum, fékk hroðalega dóma, þegar
hann var frumfluttur í Vínarborg
1881. Verkið var tileinkað Leopold
Auer, sem oft hefur verið kallaður
faðir rússneska fiðluskólans. Auer
var ekki hrifinn af verkinu og neit-
aði m.a. að frumflytja það. Gagnrýn-
endur sögðu að það væri óhugnan-
lega ruddalegt og af því væri skepnu-
legur fnykur. í dag telja margir að
fiðlukonsertinn sé eitt fegursta verk
sinnar tegundar, sem skrifað hafi
verið.
Einleikari á tónleikunum á
fimmtudaginn er síberíski fiðluleik-
arinn Victor Tretjakoff. Hann á ætt-
ir að rekja tii tónlistarmanna. Átta
ára að aldri flutti hann frá fæðing-
arbæ sínum, Krasnojarsk í Síberíu,
til Moskvu og stundaði síðar tónlist-
amám við Tónlistarháskóla Moskvu.
Hann hlaut fyrstu verðlaun í Tsjaj-
kovskíj-fiðlukeppninni 1966. Síðan
hefur hann leikið einleik með hljóm-
sveitum víða um heim. Hann er nú
Murry Sidlin, hljómsveitarstjóri.
tónlistarstjóri Kammersveitar
Moskvu.
Hljómsveitarstjórinn er Bandaríkj-
amaðurinn Murry Sidlin. Hann hefur
undanfarin tvö ár stjórnað á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitarinnar. Sidlin
er af rússnesku bergi brotinn og er
tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveita
New Haven og Long Beach. Hann
hefur hlotið lof fyrir listrænan metn-
að þessara hljómsveita og góðan
árangur. Hann hefur stjórnað flest-
um þekktustu hljómsveitum Banda-
ríkjanna og Evrópu og hvarvetna
hlotið góðar viðtökur. Þá hefur hann
einnig stundað kennslu og haldið
fyrirlestra í háskólum í Bandaríkjun-
um og hlotið margháttaða viðurkenn-
ingu fyrir störf sín að tónlistarmálum
og eflingu bandarískrar sinfónískrar
tónlistar.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Leitið til okkar:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 ■ SÍMI 28300