Morgunblaðið - 14.03.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1991
23
Meðal helstu innri aðgerða má
nefna eftirfarandi: Efla skilning og
áhuga stjórnenda og starfsmanna
á aukinni framleiðni. Stöðug og góð
þjálfun starfsfólks. Hagnýtar rann-
sóknir og vöruþróun. Fjárfestingar
í tækjabúnaði og starfsaðferðum,
sem skila aukinni framleiðni. Ábyrg
fjármálastjórn og öflug upplýsinga-
kerfi. Gæðastjórnun og gæðaeftir-
lit. Öflug markaðsstarfsemi. Launa-
kerfi tengt afkomu fyrirtækisins og
árangur starfsfólks. Virkt og reglu-
legt eftirlit með þróun framleiðni á
sem flestum sviðum innan fyrirtæk-
isins.
Varðandi helstu ytri aðgerðir má
nefna eftirfarandi: Stöðugleika í
efnahagsmálum. Samkeppni á
markaðnum sé fyrir hendi. Álmenn
þjóðfélagsviðhorf séu jákvæð gagn-
vart breytingum, framförum og
nýrri tækni. Hömlur á markaði, svo
sem kvótar, séu ekki fyrir hendi í
framleiðslu eða sölu. Starfsskilyrð-
um atvinnulífsins séu ekki lakari
en í nágrannalöndunum og á helstu
samkeppissvæðum. Viðhorf stjórn-
valda séu jákvæð gagnvart aukinni
framleiðni. Öflugt samstarf
menntakerfis og atvinnulífs.
Framleiðni skiptir okkur |slend-
inga gríðarlega miklu máli. Á með-
an framleiðni er lægri hér en ann-
ars staðar er ólíklegt að íslenskur
varningur geti keppt við erlendar
vörur. Ástæðan er sú að hærri
framleiðni erlendis gerir erlendum
fyrirtækjum kleift að selja sínar
vörur á lægra verði en íslensk fyrir-
tæki geta boðið. Af þessu er Ijóst
að atvinnuöryggi þúsunda Islend-
inga er í hættu ef ekki reynist unnt
að viðhalda sambærilegri framleiðni
hér á landi og í helstu samkeppnis-
löndum okkar.
Verulegrar stöðnunar gætir nú í
uppbyggingu nýrra fyrirtækja.
Orkufrekur iðnaður er einnig val-
kostur, en þar virðast erlendir aðil-
ar fara sér hægt um þessar mund-
ir. Þá er mikilvægt að við gætum
þess að verða þjóðhagslega ekki of
háð einni afurð. Vonandi tekst þó
að ná samningum um álver á Keilis-
nesi. Hins vegar er það spurning
hversu mörg álver því til viðbótar
við þolum á næstunni. Af þessu
má sjá að aukin framleiðni í starf-
andi fyrirtækjum er ein veigamesta
forsenda hagvaxtar á næstu árum.
Lífskjör á íslandi, mæld í kaup-
mætti hafa versnað töluvert á
síðustu þremur árum. Ólíklegt er
að launafólk sætti sig við áfram-
haldandi lífskjaraskerðingu. Af-
koma og samkeppnisstaða atvinnu-
lífsins. hefur hins vegar ekki boðið
upp á hækkun kaupmáttar. Fram
til þessa hefur lítið verið um mark-
vissar aðgerðir af hálfu stjórnvalda
og fyrirtækja til að auka fram-
leiðni. Áberandi er þó sú vakning
sem nú gætir meðal fyrirtækja á
framleiðniaukandi aðgerðum.
Vænlegasta leiðin til að auka
atvinnuöryggi, bæta kaupmáttinn
og tryggja til lengri tíma lífskjörin
felst í því að auka framleiðnina.
Aukin framleiðni er einnig forsenda
þess að við getum greitt til baka
þau lán sem við höfum tekið erfend-
is, því aukin framleiðni er forsenda
hagvaxtar, en án hagvaxtar endur-
greiðum við ekki erlendar skuldir
okkar nema með því að skerða
lífskjörin.
Höfundur erforstjóri
Iðntæknistofnunnr.
★ Pitney Bowes-
póstpökkun
Mjög hentug fyrirtækjum,
bæjarfélögum, stofnunum
Brýtur blaðiö, setur I umslag
og lokar þvf
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33-105 Reykjavlk
Slmar 624631 / 624699
■
T|
■
:
V.V.V/-/V
;-V ;;..Á
■
■
■
Tulip DC 386SX - 20MHz,
VGA, 40MB harður diskur
Hewlett Packard
LaserJet IIP
-------I
As T
Pantanir berist í síðasta lagi 15. mars til
Agnesar Vilhelmsdóttur hjá
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, s: 91-26844
Tölvukaup M. Skeifunni 17 sími 687220 fax 687260