Morgunblaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 21
20
26f iIIíMA .7:1 Jf IflACJlMI /GIM U13AJH#4UOHOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 17. APRÍL 1991
N G
'S K O S
N G A R
Afleiðing' af sfcefnuleysi stj óni-
valda í fiskvinnslu og iðnaði
eftir Kristin
Pétursson
Á undanfömum dögum hafa
stjórnarflokkamir keppst um að
hæla sér þannig að halda mætti að
á ferðinni væm ofurmenni, einskonar
„súper“ Denni, Óli, JÓn og allir hinir
ráðherrarnir. Ekki er þó minnst á
það að það sem áunnist hefur er
yfirleitt ekki stjómvöldum að þakka
heldur þvert á móti. Þannig er lækk-
un verðbólgunnar að þakka aðilum
vinnumarkaðarins, o.s.frv. Veruleg
hætta er þó á að verðbólgan fari á
fulla ferð vegna yfirdráttar í Seðla-
banka vegna fjárlagahalla og gengd-
arlausra skulda og útþenslu ríkisins.
Þegar einstök mál em hinsvegar
skoðuð af raunsæi, kemur hinn kaldi
raunvemleiki í ljós. Lítum nánar á
tvö dæmi. Þróun í fiskvinnslu og iðn-
aði.
Þróunin í fiskvinnsiu
Stefnuleysi stjómvalda í sjávarút-
vegsmálum hefur t.d. einkennst af
fádæma sinnuleysi gagnvart málefn-
um fiskvinnslunnar, enda blasir af-
leiðing þess hvarvetna við. Sífellt
minni umsvif fískvinnslu hér á landi,
fækkun starfa, minni vinna fyrir það
fólk sem þó er eftir og minni verð-
mætasköpun fyrir þjóðina í heild með
afleiðingum lakari lífskjara en ella.
Umtalsverð fækkun starfa hefur átt
sér stað í fiystingu, söltun og herslu
frá 1987-1990 um tæp 2.200 árs-
verk. Úr 9.276 1987 í 7.085 ársverk
1990. Sjá meðfylgjandi mynd.
Hin raunvemlega stefna núver-
andi stjómvalda í málum fiskvinnsl-
Hg Ársverkum í
frystingu söltun
og herslu
fækkaði um
2191
1987-1990
H[ 7.897
1987 1988 1989 1990
£129 7.085
IH
unnar í framkvæmd er því að flytja
fiskvinnslu til Efnahagsbandalagsins
í stómm stíl s.s. Grimsby og Hull
eða á haf út, samanber fækkun
starfa hér á landi í fískvinnslu. Ef
núverandi þróun og stefna stjórn-
valda verður látin viðgangast tekur
það einungis 5-8 ár til viðbótar að
leggja fískvinnslu hér á landi alger-
lega niður, með afleiðingum stórkost-
legs tjóns fyrir verðmætasköpun 1
þessu landi. Þetta er hinn kaldi raun-
veraleiki um aðgerðir núverandi
stjómvalda í málefnum fískvinnsl-
unnar. Stefna Sjálfstæðisflokksins
er skýr í þessum málum, séu menn
læsir og hafí fyrir því að kynna sér
hana á annað borð. Ennfremur skal
minnt á ítarlega þingsályktun í
mörgum liðum, sem greinarhöfundur
ásamt fleiri þingmönnum Sjálfstæð-
isflokksins flutti á seinasta þingi um
mótun fiskvinnslustefnu og gerð hef-
ur verið grein fyrir hér í Morgunblað-
inu fyrir fáeinum dögum (3. apríl
sl.) Þar var m.a. komið með tillögur
varðandi samkeppnismismunun inn-
lendrar fiskvinnslu gagnvart EB,
ijarskipta- og uppboðsmarkað - „ís-
landsmarkað“, verðlagningu fersk-
físks og fullvinnslu. Auk þess vom
m.a. tillögur um sérstaka úttekt á
áhrifum tollastefnu EB á íslenska
fískvinnslu til framtíðar, markaðs-
könnun ferskfísks í Evrópu, áhrifum
kvótastefnunnar á fiskvinnsluna og
byggðaþróun, margfeldisáhrifum
fiskvinnslu á aðrar greinar og mögu-
leikum á tækniframförum og aukinni
framleiðni í fískvinnslu. Þessi þings-
ályktunartillaga fékkst auðvitað ekki
rædd á Alþingi vegna hrossakaupa
.stjómarflokkanna.
Ársverkum í
iðnaði (fyrir utan
■ stóriðju) fækkaði
um 3.336
B 16.205 1 987-1990
I.
1987 1988 1989 1990
15.200
14.288
IH
Minni umsvif í framleiðslugreinum
eins og fískvinnslu. þýða ekki aðeins
minni umsvif verðmætasköpun í
þeirri grein heldur einnig þeim at-
vinnugreinum sem þjónustað hafa
þá grein, beint eða óbeint. Slík þróun
kemur hvað harðast niður á lands-
byggðinni þar sem mörg iðnaðar- og
þjónustufyrirtæki geta ekki fengið
önnur verkefni á þeim stöðum sem
fiskvinnslan minnkar sín umsvif. Slík
þróun er nú í gangi víða um land,
þar sem iðnaður og þjónusta hefur
dregist vemiega saman í samræmi
við minnkandi umsvif í fískvinnslu.
Þróunin í iðnaði
Enn er þá ástandið eitthvað skárra
í iðnaði eða þjónustu almennt? Ef
trúa ætti öllum fagurgala stjórnvalda
um iðnað gæti fólk haldið að allt
„Kjósendur hafa val-
kost um það að halda
núverandi stefnu í þess-
um málum áfram, eða
styðja Sjálfstæðisflokk-
inn til raunhæfrar
lausnar á þeim vanda
sem núverandi sljórn-
völdum hefur hvar-
vetna tekist að skapa.“
væri þar í besta lagi. En hver er
raunveruleikinn? Raunvemleikinn er
sá að sungnir em svanasöngvar um
stóriðju með miklum fjölmiðlasýning-
Kristinn Pétursson
um, þó árangur sé enn lítill sem
enginn. Einstök byggðariög á lands-
byggðinni s.s. á Austurlandi vom
dregin á asnaeymnum um hugsan-
lega staðsetningu stóriðju í viðkom-
andi byggðarlagi — allt í plati. En
hver er þá árangurinn í öðrum iðn-
aði. Sannleikurinn um almennan iðn-
Framsóknardraum-
urínn sem brást
eftir Davíð
Stefánsson
Enn á ný gengur Framsóknar-
flokkurinn til kosninga undir merkj-
um byggðastefnu. Nú í vor boðaði
Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, ti! sögulegs blaðamanna-
fundar þar sem hann kynnti niður-
stöður einhverrar nefndar á vegum
hans sem setið hafði með sveittan
skalla og skrifað enn eina skýrsluna
um byggðavandann og byggðastefnu
framtíðarinnar. „Byggðastefna síð-
asta áratugar hefur bmgðist," sagði
forsætisráðherrann og horfði stómm
saklausum augum á þjóðina rétt eins
og það væru einhverjir vondir menn
úti í bæ sem bæm ábyrgð á því og
hann sjálfur væri einungis þolandi
sem reyndi þó að bjarga því sem
bjargað yrði í stöðunni.
Hvað er Steingrímur Hermanns-
son eiginlega að segja þjóðinni þegar
hann segir byggðastefnu síðasta ára-
tugar hafa bmgðist? Jú, hann er ein-
faldlega að fella þann harðasta áfell-
isdóm sem hægt er að fella yfír
stefnu eigin flokks. Hann hefði alit
eins getað sagt: „Framsóknarstefna
síðustu ára hefur bmgðist." Merk-
ingin hefði verið sú sama.
Á svipuðum nótum var sú yfirlýs-
ing framsóknarþingmanns af Norð-
urlandi að allt hefði verið í kaldakoli
í íslenskum sjávarútvegi þegar ríkis-
stjóm Steingríms Hermannssonar
tók við völdum á haustdögum 1988.
Þá fyrst hefði verið hægt að hefja
björgunaraðgerðir í sjávarútvegs-
málum um hinar dreifðu byggðir
landsins, eftir óstjórn íhaldsins.
Sennilega er minnisleysi algengur
kvilli á framsóknarheimilinu, a.m.k.
virtist þessi þingmaður ekki hafa
hugmynd um hvaða dóm hann var
að kveða upp yfir Halldóri Ásgríms-
syni, sem verið hefur sjávarútvegs-
ráðherra í hartnær áratug!
Að firra sig ábyrgð
Enn einu sinni ætlar Framsóknar-
flokkurinn að fírra sig allri ábyrgð
á eigin gerðum. Flokkurinn ætlar að
heyja enn eina kosningabaráttu und-
ir þeim formerkjum að öll óreiðan
sé einhveijum öðmm að kenna. Það
næsta sem Framsóknarflokkurinn
hefur komist því að viðurkenna að
hann beri ábyrgð á einhveiju er þeg-
ar formaðurinn sagðist hafa verið
„plataður" héma um árið. Við skul-
um aftur á móti hafa það hugfast
„Byggðastefna síðasta
áratugar hefur brugð-
ist,“ sagði forsætisráð-
herrann og horfði stór-
um saklausum augum á
þjóðina rétt eins og það
væru einhverjir vondir
menn úti í bæ sem bæru
ábyrgð á því...“
að beri einhver ábyrgð á því hvernig
ástand mála er í þjóðfélaginu í dag
þá er það Framsóknarflokkurinn —
flokkurinn sem hefur verið nær sam-
fleytt í ríkisstjórn síðustu tvo ára-
tugi. Og ekki nóg með það. í þessa
tvo áratugi hefur Framsóknarflokk-
urinn talið sér það helst til hróss að
vera ólíkt öðrum flokkum málsvari
byggðastefnu — þeirrar byggða-
stefnu sem formaður flokksins segir
nú að hafi brugðist.
Kjósum ekki byggð
gegn byggð
Auðvitað brást byggðastefna
Framsóknarflokksins. Stefna sem
Um námsefni í valgreinum
í 8.-10. bekk grunnskóla
eftir Ásgeir
Guðmundsson
Flestir skólamenn og margir for-
eldrar muna vel eftir skýrslu umboðs-
manns Alþings sem kom fram sl.
haust rétt í þann mund er skólar
vom að hefja störf. Þar var komist
að þeirri niðurstöðu að óheimilt væri
að krefja nemendur eða foreldra
þeirra um greiðslu fyrir námsefni.
Skoðun sína byggði hann á lögum
og reglugerðum um skólastarf.
Menntamálaráðherra óskaði þegar
eftir áliti ýmissa stofnana og félaga
á niðurstöðum umboðsmanns. Er
skemmst frá að segja að flest álit
hnigu í sömu átt og umboðsmanng,
þ.e. að ekki væri heimilt að láta nem-
endur greiða fyrir námsefni í skyld-
unámi. Á sama tíma gerði mennta-
málaráðuneytið könnun á því hve
mikið nemendur hefðu þurft að
greiða fyrir námsefni í valgreinum í
10. bekk á síðasta ári. í ljós kom
að nemendur höfðu lagt út 25-30
milljónir króna einvörðungu til kaupa
á námsefni í valgreinum í þessum
bekk.
Dreifibréf menntamála-
ráðuneytisins 13. nóvember
í dreifibréfí þessu var skýrt frá
því að ríkisstjórnin hefði samþykkt
tillögu menntamálaráðherra um að
farið skyldi að áliti umboðsmanns.
Fallist var á að Námsgagnastofnun
eigi að láta nemendum í skyldúnámi
í té ókeypis nánsefni. í dreifíbréfínu
segir einnig að gerðar verði ráðstaf-
anir til að efla Námsgagnastofnun
þannig að hún geti betur uppfyllt
þá lagaskyldu sem á henni hvflir.
Þá verði skipuð nefnd til að setja
reglur um valgreinar.
Auknar fjárveitingar
í kjölfar þessa bréfs var þrýst á
um fjárveitingu að upphæð 25-30
milljóna til kaupa á efni í valgreinum
og við síðustu umræðu um fjárlög
var ákveðið að auka fjárveitingar til
Námsgagnastofnunar um 10 milljón-
ir í þessu skyní.
Nefndin um valgreinar hefur lokið
störfum og skýrsla hennar verið send
skólum. I skýrslunni er lagt til að
rífcið leggi fram þær 15-20 milljónir
sem á vantar til kaupa á efni í val-
greinum. Það hefur ekki verið gert.
Haft er eftir menntamálaráðherra á
fundi á Hótel Sögu 16. mars sl. sem
kennarafélögin í Reykjavík boðuðu
til með fulltrúum stjórnmálaflokk-
anna að hann myndi beita sér fyrir
auknu fjárframlagi við afgreiðslu
aukaljárlaga. Ef aukafjárlög verða
ekki afgreidd fyrr en í nóvember eins
„í Námsgagnastofnun
er verið að ganga frá
kyniiingarskráog pönt-
unarlistum. Námsefni
frá stofnuninni er yfir-
leitt sent skólum í júní-
mánuði. Pantanir á
námsefni frá öðrum
aðilum og samningar
um þau kaup taka sinn
tíma.
og gerðist á síðasta ári kemur það
sér illa fyrir skólana.
Undirbúningur skólastarfs
Þessa dagana eru skólar að und-
irbúa skólastarf á næsta hausti og
Ásgeir Guðmundsson
þar með hvaða valgreinar verða í
boði.
í Námsgagnastofnun er verið að
ganga frá kynningarskrá og pöntun-
arlistum. Námsefni frá stofnuninni
er yfirleitt sent skólum í júnimánuði.
Pantanir á námsefni frá öðrum aðil-
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1991
t
miTSUSHIBR
T/u' /nmge ot Pcrtcction ©GOLF
Glæsilegir
golfpokar
ífallegum
9“ POKI
AÐEINS
kr. 8.900,
Í|.A
7“ POKI
AÐEINS
kr. 6.900,-
HHl ÚTILÍF ",
Glæsibæ - Sími 82922
Höfundur er forstjóri
Námsgagnastofnunnr.
1/1 SETT
3 AAÁLM/KYLFUR
9 JÁRN
fyrir dömur og herra
aðeins kr. 26.500,-
UNGLINGASETT
2 MÁLM/KYLFUR
4 JÁRN + PUTTER
aðeins kr. 15.900,
G0LFKERRUR
kl. 6.800,-
um og samningar um þau kaup taka
sinn tíma. En það er um þessar
mundir sem allir þessir aðilar þurfa
að vita hvaða námsefni verður í boði,
þar með talið námsefni í valgreinum.
Það er núna sem peningana
vantar
Það er nú sem ákvörðun þarf að
taka um áðurgreinda aukafjárveit-
ingu að upphæð 15—20 milljónir-
króna sem á vantar á þessu ári til
að hægt sé að útvega það efni ókeyp-
is sem nemendur hafa hingað til
greitt fyrir. Að öðrum kosti verður
ekki annað séð en flestir ef ekki all-
ir skólar neyðist til að skerða val-
kosti nemenda miðað við síðasta ár.
Hafa ber í huga að samkvæmt ný-
samþykktum grunnskólalögum er
heimilt að veija allt að helmingi
námstíma nemenda í 8.—10. bekk
til valgreina.
Námsgagnastofnun og skólar
landsins sinna 42 þúsund gmnnskól-
anemum sem treysta á þjónustu og
starfsemi þessara stofnana. Þegar
löggjöfin og framkvæmdavaldið
breyta reglum verða þeir að sjá svo
urn að þessum aðilum sé gert kleift
að sinna skyldum sínum.
að (fyrir utan stóriðju) er sá að hann
hefur verið Iátinn sitja á hakanum
eins og fískvinnslan og afleiðingin
er stórfelld fækkun starfa í iðnaði?
Frá 1987-1990 hefur störfum í al-
mennum iðnaði fækkað um 3.336
ársverk, eða tæp 3.400 ársverk, —
þökk sé stefnu stjórnvalda í atvinnu-
málum.
Niðurstaða
Þessi þróun í fiskvinnslu og iðnaði
er dæmigerð fyrir stefnu núverandi
stjómvalda í atvinnumálum þar sem
stefnan í framkvæmd er að leggja
niður og flytja úr landi atvinnutæki-
færi í fiskvinnslu og almennum iðn-
aði. Mikilvægara virðist vera hjá
stjórnvöldum að vera í sífelldum fjöl-
miðlaauglýsingum með blekkingar,
en að sinna raunhæfum verkefnum
í aðalatvinnugreinum landsmanna.
Samanlagt hefur því ársverkum í
fískvinnslu og iðnaði fækkað um
5.527 frá 1987-1990. Ef reiknað er
með missi starfa í þjónustugreinum
sem sinnt hafa þjónustu við þessar
greinar má bæta við a.m.k. 50% þ.e.
2.763 ársverki. Samanlögð fækkun
starfa vegna þessara greina er því
um 8.290 ársverk. Ef reynt er að
fínna hversu margir einstaklingar
hafa unnið þessi 8.290 ársverk má
bæta við a.m.k. 20% þ.e. 1.658 ein-
staklingum, þar sem margir vinna
hlutastörf. Samanlagt hafa því um
10.000 einstaklingar misst vinnuna
í fiskvinnslu og iðnaði og þeim at-
vinnugreinum sem þjónusta þær
greinar beint eða óbeint á árunum
1987-1990. Þessi mikli fjöldi, 10.000
manns, jafngildir því 75% áf öllum
íbúafjölda á Austurlandi sem er
13.337 íbúar. Þessi atvinnufjand-
samlega stefna stjórnvalda hefur því
þurrkað út störf í fískvinnslu, iðnaði
og þjónustu sem nemur 75% af íbúa-
fjölda Austurlands eða meirihluta
alls íbúaíjölda Austurlands. Þetta er
raunveraleikinn um stefnu núverandi
stjórnvalda í fískvinnslu og iðnaðar-
málum.
Kjósendur hafa valkost um það
að halda núverandi stefnu í þessum
málum áfram, eða styðja Sjálfstæðis-
flokkinn til raunhæfrar lausnar á
þeim vanda sem núverandi stjórn-
völdum hefur hvarvetna tekist að
skapa.
Höfundur er alþingmaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Austurlandskjördæmi.
og.beri einhver ábyrgð á því, þá er
það Framsóknarflokkurinn.
Nú stendur þessi flokkur hins veg-
ar frammi fyrir alþjóð og fer fram á
áframhaldandi umboð til að halda
sukkinu áfram. Byggðastefna Fram-
sóknar hafði engin skýr markmið
fyrir tíu árum, og svo er heldur ekki
nú. Eftir að hafa haldið um stjórnar-
taumana í nær tvo áratugi með ónýta
byggðastefnu sem hefur valdið mikl-
um flótta frá landsbyggðinni, fara
þessir menn fram á endurnýjað
traust. Ætlum við að veita þeim
það? Rétt eins og Framsóknarflokkn-
um hefur tekist að eyðileggja sam-
vinnuhreyfinguna hefur honum tek-
ist að koma óorði á hugtakið byggða-
stefnu. Stuðningur við afturhaldsöfl
í Framsóknarflokknum er að kjósa
byggð gegn byggð í stað byggð með
byggð. Framsóknardraumurinn —
draumurinn um ofstjórn og óstjóm
í byggðamálum — brást. Það hefur
sjálfur forsætisráðherrann viður-
kennt. Hvílum Framsóknarflokkinn
í þessum kosningum. Þreyttur og
forneskjulegur flokkur á það skilið —
eftir öll sín óþurftarstörf. Framsókn
í frí fyrír fólkið!
Höfundur er formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
byggir að mestu á miðstýringu og
hagsmunapoti er dæmd til að tortíma
sjálfri sér að lokum. Stefna er bygg-
ir á því að draga sífellt meir af sjálfs-
aflafé fólksins af landsbyggðinni í
hina pólitísku sjóði sem allir em jú
samankomnir á einum stað, sunnan
heiða. Framsóknarmenn hafa ekki
haft hagsmuni fólksins í landinu að
leiðarljósi við framkvæmd byggða-
stefnu sinnar heldur einhverra óskil-
greindra aðila og fyrirtækja sem set-
ið hafa við kjötkatla kommissaranna
á kostnað annarra. Þá vita þeir sem
lesið hafa Tímann, stórlega ríkis-
styrkt málgagn þeirra, að eitt helsta
einkenni stefnu framsóknarmanna
er að ala á úlfúð miili þéttbýlis og
dreifbýlis. Þeir hafa sagt að það búi
tvær þjóðir í landinu, ein á höfuð-
borgarsvæðinu og önnur utan þess.
Kaldhæðnin er sú að sé þetta rétt
MKStUr
ákiördag
Davíð Stefánsson
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík vantar sjálfboðaliða með bíla til
aksturs á kjördag, laugardaginn 20. apríl.
Upplýsingar og skráning á skrifstofu flokksins í Valhöll,
Háaleitisbraut I, eða í síma 82900
frá kl. 9:00 til 22:00.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík.
FRELSI OG
MANNÚÐ