Morgunblaðið - 17.04.1991, Page 39

Morgunblaðið - 17.04.1991, Page 39
MOTIG UNÍUlAÖIÐi M1 fXV'JKÚiVÁlSíWk(' í í. APRflúfðW - Stórleikur á Hlíðarenda Valur FH miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.00 Mætum öll og styðjum okkar menn. TEPPABDÐIN gólfefnamarkaður, Suðurlandsbraut 26. POIAR RAFGEYMAR c ..JC Skipholti 37 A1IKUG4RDUR v/Sund ÍLA- bANKINN HF. Bíldshöfða 12. Valur er ÍbísíaI liöið. Anna Ólafsdóttir Björnsson á fundi Kvennalistans: Forsætis- ráðherra hefur látið glepjast ; Sjómannafélag Reykjavíkur undrast unmiæli Steigríms Her- mannssonar forsætisráðherra varðandi hvalyeiðar og scgir að Islendingum sé óhætt að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. í samþykkt stjórnar Sjómannafé- lagsins segir að forsætisráðherra hafi augljóslega látið glepjast af öfgakenndum áróðri þar sem reynt er að blanda saman eðlilegri um- hverfisvernd og nýtingu Islendinga á sjávarspendýrastofnum við íslandi^ Slíkur málflutningur erlendra öfga-' sinna á lítið skylt við vernd á lífríki jai-ðarinnar og byggir á annarlegum forsendum ýmissa samtaka sem kenna sig við umhverfisvernd. Sjómannafélagið lýsir yfír áhyggj- um sínum og furðu á framferði for- sætisráðherra íslands og vill undir- strika að á heimssýningunni á Spáni megi ekki undir neinum kringum- stæðum eyðileggja aðra mikilvæga hagsmuni þjóðarinnar. Þá krefst fé- lagið skýringa á hugmyndum ráð- herra og ráðgjofum hans á því hvaða nýja „ímynd“ þeir hyggjast búa til af íslendingum til kynningar um- heiminum. Wterkurog k-/ hagkvæmur auglýsmgamiðill! « Jltofgtiitlribtfeife Við viljum fara í ríkissfjórn Ófrávíkjanlegt skilyrði að bæta úr launamálum kvenna stjórn eins og margir eru að hvetja okkur til núna.“ Þá kom fram í svörum við fyrÍK.* spurnum, að Kvennalistinn vill setja' samninginn við BHMR í gildi aftur og setja lög sem banna slíkar bráða- birgðalagasetningar, að Kvennalist- inn vill að ríkið greiði 6% framlag í lífeyrissjóð heimavinnandi hús- mæðra og sveitarfélög 4%, Kvenna- listinn vill lækka eða afnema virðis- aukaskatt á matvæli og taka upp skatt á munaðarvarning, tvö þrep í tekjuskatti, en margoft kom fram að mál málanna er að hækka lægstu launin. Sjómannafélag- Reykjavíkur: „VIÐ viljum fara í ríkisstjórn, vegna þess að við höfum ekki náð fram þeim málum sem við viljum utan stjórnar,“ sagði Anna Olafsdóttir Björnsson þingkona Kvennalistans á stjórnmálafundi Kvennalistans á veitingahúsinu A. Hansen í Hafnarfirði á mánu- dagskvöld. Anna sagði að stjórn- arþátttaka Kvennalistans væri þó bundinn einu ófrávíkjanlegu skilyrði, að frá því verði tryggi- lega gengið fyrirfram að launa- málum kvenna verði komið í lag þar sem mest áhersla yrði lögð á hækkun lægstu launa. „Við erum með launamálin sem for- gangsmál og þar með fjölskyldu- málin,“ sagði Anna. Ragnhildur Eggertsdóttir hóf fundinn og sagði Kvennalistann vilja breyta samfélaginu og setja virðingu fyrir lífi og samábyrgð í öndvegi, Kvennalistinn taki mið af að konur eru mismunandi, verka- konan kynnist öðrum erfíðleikum sem hefti frelsi hennar en bónda- konan, fóstran, heimavinnandi hús- móðirin, aðstæður meðal kvenna séu breytilegar eftir búsetu, aldri, menntun og hjúskaparstöðu. „Kvennalistinn er hvorki á hægri né vinstri væng stjómmálanna, heldur kvennapólitísk stjómmála- hreyfíng. Kvennalistinn er því ný vídd í íslenskum stjórnmálum,“ sagði Ragnhildur. Kristín Sigurðardóttir ræddi um Morgunblaði/KGA Kristín Einarsdóttir og Magdalena Schram mættu í mötuneyti Landspitalans í gær og kynntu stefnu Kvennalistans. Á myndinni áritar Magdalena boðskapinn fyrir einn starfsmanna. konur og fjármagnsmarkaðinn. Hún varaði við því viðhorfi að pen- ingar væru lagðir til grundvallar gildismats á lífshamingjunni eins og á hveijum öðrum hlutum. Með samanburði við aðra dragi menn ályktanir um verðgildi starfanna, eftir launum. „Því er oft haldið fram að það sé þetta mat sem ráði því að hluti launafólks fái ekki lífvæn- leg laun. Allar leiðréttingar til þeirra séu jafnaðar út og gamla bilinu viðhaldið." Anna Ó. Björnsson sagði fyrst og fremst vera kosið um launamál nú. Finnist kjósendum skipta máli að kosið sé um fjölskylduna og hag hennar, þá „geta þeir kosið Kvenna- listann og treyst því að launamálin og þar með hagur fjölskyldnanna í landinu og líðan þeirra eru aðalmál- in í þessum kosningum." Hún varaði .við stóriðjustefnu stjórnvalda og aðild að EB. „Fjöl- breytt atvinna gefur fólki val um vinnu og vinnutíma. Verðmæt störf er hjá flestum þjóðum síst að finna í stóriðnaði, nema þá með mjög löngum vinnutíma og oftast við mjög erfiðan aðbúnað. Við erum dálítið hræddar við svona atvinnustefnu." Hún minnti á könnun sem gerð var fyrir um tveimur árum þar sem í ljós kom að 18% karla höfðu laun innan við tiltekin láglaunamörk, en 66% kvenna hafi verið innan við þau sömu mörk. „Þessi launamunur var staðfestur með þjóðarsáttinni, því er nú ver og miður, og eftir tíma þjóðarsáttar eru það fyrst og fremst konur sem eru með minni kaup- mátt launa heldur en áður.“ Launamálin forsenda stj órnaraðildar í svari við fyrirspurn um stjórnar- þátttöku, sagði Anna að Kvennalist- inn mundi aldrei ljá máls á að fara i ríkisstjórn öðru vísi en að gengið yrði frá því fyrirfram hvernig launa- málunum yrði þokað áfram. Hún sagði Kvennalistann vera til við- ræðu um ýmsar leiðir til þess, með- al annars um lögbindingu lág- markslauna og endurmat á störfum kvenna. „Við erum til viðræðu um hvaða leið sem er, svo framarlega sem hún virkar, en við erum ekki til í að fara upp á von og óvon í ■ SÝNING Kristjáns Guð- mundssonar í Slunkaríki á ísafirði hefst laugardaginn 20. apríl kl. 16.00. Kristján var einn af stofnendum Gallerí SÚM og fyrsti forstöðumaður þess. Hann dvaldi um tíma á Spáni, en bjó síðan í Amster- dam í 9 ár. Menningarmála- nefnd Reykjavíkurborgar bauð Kristjáni að sýna verk sín á Kjarvalsstöðum 1988 og valdi hann að sýna yfirlitsteikningar frá 1978 til 1988. Slunkaríki er opið frá miðvikudegi til sunnudags frá kl. 16.00-18.00. ■ FRANSKA sendiráðið býður þremur frönskumælandi íslendingum á aldrinum 18-25 ára styrk til að sækja leiklistar- hátíðina í Avignon dagana 11.-20. júlí 1991 og 22.-30. júlí 1991. Leiklistarhátíðin í Avignon býður ungum leik- listarunnendum frá ýmsum löndum að dvelja í 10 daga í Avignon og kynnast starfi leik- ara og leikstjóra og hinna ýmsu leikhópa. Uppihald er þátttak- endum að kostnaðarlausu en ferðakostnaður greiða þeir sjálfir. Nánari upplýsingar fást hjá Menningardeild franska sendiráðsins, Túngötu 22, 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.