Morgunblaðið - 17.04.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 1991
!29
Búkovskíj í Moskvu
Sovéski andófsmaðurinn Vladímír Búkovskíj, sem fékk að fara úr
landi fyrir 15 árum gegn því að kommúnistaleiðtoga í Chile yrði
sleppt úr fangelsi, kom til Moskvu á mánudag í heimsókn. Búkovskíj
er meðal þekktustu liðsmanna í baráttu sovéskra lýðræðissinna gegn
valdakerfi kommúnista og hefur flutt fyrirlestra hér á landi.
Júgóslavía:
Mestu verkföll frá síð-
ari heimstyriöldinni
Belgrad. Reuter.
RÚMLEGA 700.000 verkamenn í júgóslavneska lýðveldinu Serbíu lögðu
niður vinnu í gær og er þetta mesta vinnustöðvun í landinu frá síðari
heimsstyrjöldinni. Um 10.000 námamenn í lýðveldinu Bosníu-Herzego-
vínu og kennarar í Slóveníu og Vojvodina-héraði efndu einnig til verk-
falla. Þá hefur flugféiag Júgóslavíu ekki getað sinnt áætlunarflugi í
fimm daga vegna verkfalls flugvirkja.
Verkföllin í Serbíu hafa orðið til
þess að rekstur fjölmargra vefnað-
ar-, málm- og leðurverksmiðja hefur
stöðvast. Flestir verkamannanna
kreíjast þess að lágmarkslaun, sem
eru um 3.000 dinarar (18.000 ÍSK)
á mánuði, verði greidd á tilsettum
tíma. Þúsundir fyrirtækja í lýðveld-
inu rámba á barmi gjaldþrots og
hafa ekki getað greitt þessi laun.
Verkamenn sögðu embættis-
mönnum serbneska þingsins að þeir
myndu stofna fjölmennustu
stjórnarandstöðuhreyfingu Iýðveld-
isins ef ekki yrði gengið að kröfum
þeirra. Serbía og Svartfjallaland eru
einu lýðveldi Júgóslavíu sem eru enn
undir stjóm kommúnista.
„Hér er mikil alvara á ferðum,"
sagði vestrænn stjórnarerindreki í
Belgrad. „Verkamenn hafa ekki tek-
ið þátt í mótmælaaðgerðum í Serbíu
þar til nú.“
Ekki var ljóst í gær hversu lengi
verkföllin myndu standa.
Ante Markovic, forsætisráðherra
Júgóslavíu, hefur staðið í ströngu
við að leysa gífurlegan efnahags-
vanda landsins. Efnahagsumbætur
hans urðu til þess að verðbólgan
mælist nú innan við 100% á ári en
var hæst rúmlega 3.000%. Ofan á
þennan vanda bætast átök og deilur
milli þjóða og lýðvelda sem að
margra mati gætu leitt til
borgarastyrj aldar.
Borís Jeltsín í Strassborg:
Vill aðild Rússlands að
SÞ og öðrum stofnwium
Strassborg. Reuter.
RÚSSLAND, sem er langstærst
sovétlýðveldanna 15, vill sækja
um aðild að Sameinuðu þjóðun-
um og öðrum alþjóðastofnunum.
Borís Jeltsín, leiðtogi Rússlands,
Heimsókn Gorbatsjovs eykur vonir Sovétmanna:
Heillaðir af ríkidæminu í Japan
Tókíó. Reuter, Daily Telegraph.
SOVETMENN er fara til Vesturlanda eru smám saman orðnir van-
ir því að horfast í augu við þá staðreynd að lífskjör séu þar betri en
í Sovétríkjunum á öllum sviðum, munurinn er ekki lengur nein tíð-
indi eða menningarlegt áfail. Margir í fylgdarliði Míkhaíls S. Gor-
batsjovs forseta í Japan verða fyrir nýju áfalli er þeir kynnast auðæf-
um landsmanna og ekki síst því sem nánast er óþekkt fyrirbæri í
hcimalandinu: Góðri þjónustu.
Er Sovétmennirnir koma á hótel
sín taka þeir lyftuna þar sem smá-
vaxnar stúlkur halda dyrum opnum
fyrir gestina, hneigja sig og varpa
kurteisisorðum á þá. Á slíkum stöð-
um eru Sovétmenn vanari rosknum
karlhlunkum er skella á þá dyrun-
um eftir að hafa hreytt út úr sér:
„Hvað viltu?“ eða „Það er fullt“
og „Hypjaðu þig!“ Þegar sest er inn
í leigubíl, hafí gestirnuir efni á að
eyða dýrmætum gjaldeyri í slíkan
munað, lokar bílstjórinn, klæddur
hvítum hönskum, dyrum á eftir
farþeganum. Aðeins eitt virkar
kunnuglegt; alls staðar er mannafl-
inn við þjónustustörfín meira en
nógur. En munurinn er sá að fólk-
ið virðist alltaf geta fundið sér eitt-
hvað að gera til að aðstoða við-
skiptavinina, er allt önnum kafið.
Í-Sovétríkjunum dundar þjónninn
sér við að hreinsa undan nöglunum
þótt gestimir mæni á hann og af-
greiðslufólk lítur oftast undan ef
örvæntingarfullum viðskiptavin
tekst að ná athygli þess.
Leysa Japanar vandann?
Þótt fæstir í fylgdarliðinu hafi
nóg af gjaldeyri sáust margir halda
heim á hótelið í gær með plast-
poka, fulla af hvers skyns rafeinda-
tækjum. Vöruskorturinn heima fyr-
ir er slíkur að Sovétmönnum fínnst
sem þeir séu komnir í paradís er
þeir kynnast framboðinu í Tókíó.
Og munurinn staðfestir enn hrak-
farir þjóðfélagstilraunarinnar í
Sovétríkjunum síðustu 7.0 árin.
Margir Sovétmenn gera sér von-
ir um að hægt verði að snúa taflinu
við með japanskri aðstoð og ljár-
festingu. Þess ber þó að gæta að
Japanar hafa síðustu áratugina
einbeitt sér að framleiðslu hátækni-
vöru er ekki krefst gnægðar hrá-
efna eins og þungaiðnaður. Þess
vegna er það hald sumra sérfræð-
inga að hráefnaauðlegð Síberíu
freisti Japana ekki jafn mikið og
Sovétmenn halda. Viðskipti ríkj-
anna eru afar lítil og minnkuðu enn
á síðasta ári. Fulltrúar japanskra
fyrirtækja í Sovétríkjunum kvarta
undan því að erfiðlega gangi að fá
ótvíræð svör við einföldustu hlutum
og skortur sé á hæfu fólki til ýmissa
starfa í landinu. Þar að auki er enn
margt á huldu um réttindi eriendra
fyrirtækja er efna til samstarfs við
sovésk fyrirtæki, t.d. ekki ljóst
hvort þau fá að flytja haghað af
fjárfestingum úr landi.
Gjaldfallnar skuldir Sovétmanna
hjá japönskum fyrirtækjum eru
samanlagt um 400 milljónir Banda-
ríkjadollara (um 24 milljarðar ÍSK)
og bætir það ekki úr skák. Embætt-
ismenn i fylgdarliði Gorbatsjovs
viðurkenndu í gær að mörgu væri
áfátt. „Það er tekist á um fullveldi
[einstakra lýðvelda gagnvart
Moskvustjóminni], rígur er milli
leiðtoga. Við vitum ekki hvert vald-
svið ráðamanna á hveijum stað er
og enginn veit hver veit það,“ sagði
Arkadíj Volskíj, forseti sovéskra
samtaka í vísindum og iðnaði. Hann
ráðlagði Japönum að tala ekki við
skriffínna kerfisins heldur við
stjórnendur einstakra fyrirtækja
sem væru orðnir áhrifamiklir.
„Fólkið okkar veit ekki hvað fram-
boð og eftirspurn eru, veit ekki
hvað kauphallarviðskipti eða hluta-
bréf era. Það er búið að gleyma
öllu sem við kemur markaðsbú-
skap. í 70 ár var almenningi kennt
að einkaeign væri slæm og kapítal-
ismi helvíti á jörðu.“
lýsti þessu yfir í gær en hann
er nú í einkaheimsókn í Vestur-
Evrópu þar sem hann hefur
kynnt sér starfsemi ýmissa stofn-
ana. Sagði hann óeðlilegt, að
Úkraína og Hvíta Rússland ættu
aðild að Sameinuðu þjóðunum en
ekki Rússland með sínar 150
inilljónir íbúa.
„Rússland vill eiga aðild að ýms-
um alþjóðasamtökum, til dæmis
Evrópuráðinu, Evrópuþinginu og
Sameinuðu þjóðunum," sagði Jelts-
ín á fundi með þingmönnum fijáls-
lyndra flokka á Evrópuþinginu en
evrópskir frammámenn, sem hafa
áhyggjur af ástandinu í Sovétríkj-
unum og deilunum milli Jeltsíns og
Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sov-
étríkjanna, hafa sagt honum, að
aðeins fullvalda ríki geti átt aðild
að Evrópustofnununum.
í ræðum sínum hefur Jeltsín lagt
áherslu á, að Rússar stefni ekki að
fullu sjálfstæði. Þeir vilji viðhalda
sovétsambandinu en láta einstökum
lýðveldum eftir að ákveða hvort þau
vilji vera innan þess eða utan. Seg-
ir hann, að varnarmál, orkumál og
járnbrautarsamgöngur eigi að
heyra undir alríkisstjórnina en öll
önnur málefni Rússlands, þar á
meðal efnahagsmál, eigi að vera í
þess höndum. Þá sagði Jeltsín, að
hann vildi gefa útlægum Rússum
og útflytjendum kost á að flytjast
aftur heim eða að endurheimta sinn
rússneska ríkisborgararétt þótt þeir
byggju áfram erlendis. Væri nú
verið að vinna að lagaframvarpi,
sem heimilaði tvöfaldan ríkisborg-
ararétt.
HÓTEL LjsLMD
Pólskur hlutafjármarkaður
Mikil einkavæðing stendur fyrir dyrum 1 Póllandi og 1 gær voru 1
fyrsta sinn frá lokum síðari heimsstyijaldar seld hlutabréf í einkafyr-
irtækjum, fimm að tölu. Stóð salan yfír í tvo tíma og verður endur-
tekin vikulega þar til pólska kauphöllin tekur til starfa í júní í fyrr-
um höfuðstöðvum kommúnistaflokksins. Pólska stjórnin ætlar að
vera búin að koma helmingi allra iðnfyrirtækja í landinu í hendur
einkaaðila innan þriggja ára.
70 ógleymanleg stuOlög fná gullöld pokksíns
Laugordagskvöld í rokkuóu kosningastuði
lÉrá Þríréttadur glæsilegur kvöldverður.
Snyptílegup klæðnaður — Geymum gallaíatnaðinn hi
tjómin
Miðasáta og bonðapantantr
ísíma 687111.