Morgunblaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐlÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1991 Samtök fiskvinnslustöðva: Allt að 20% munur á afkomu stöðvanna RÚMLEGA helmingur fisk- vinnslustöðva í landinu er rekinn með tapi að mati Samtaka fisk- vinnslustöðva. Sumar eru reknar með hagnaði en allt að 20% mun- ur er á afkomu stöðvanna. Breiðdalsvík: Uppsagnir sjómanna ÁHÖFNIN á Hafnarey SU sagði upp störfum fyrir helgi og taka uppsagnirnar gildi 2. maí. Að sögn Svavars Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss Breiðdælinga, lögðu sjómennimir fram kröfur í síðustu viku sem frystihúsið sá sér ekki fært að ganga að. í framhaldi af því sagði áhöfnin upp. „Sumar fiskvinnslustöðvarnar eru að gera það gott en aðrar eru reknar með miklu tapi. Saltfísk- verkunin kemur verst út um þessar mundir og munurinn á afkomu fisk- vinnslustöðva getur numið allt að 20%,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva. Samtök fiskvinnslustöðva (SF) gerði nýlega könnun á afkomu físk- vinnslustöðva í landinu og niður- staðan var að bolfískvinnslan væri rekin með 3,7% halla að meðaltali. Innan vébanda SF eru flest frysti- hús landsins og allir stærri saltfísk- verkendur. Einnig er fjöldi smærri saltfiskverkenda, sem ekki eru í neinum samtökum, tekinn með í útreikningum SF. Arnar sagði að 3,7% halli, sem þeir reiknuðu með, væri meðaltals- tap. Saltfískverkunin og frystingin eru vegin saman þannig að saltfísk- urinn væri metinn 30% á móti fryst- ingunni sem væri metin 70%. Húseign ÁTVR við Lindargötu. Borgin kaupir húseign ÁTVR við Lindargötu BORGARRÁÐ samþykkti í gær að kaupa húseign ÁTVR við Lindargötu 46 til 48 fyrir 41 milljón króna. I samningnum er gert ráð fyrir 18,5 milljóna króna útborgun og að eftirstöðvar verði greiddar á tíu árum, fyrst árið 1992. Eignirn- ar afhendast borgarsjóði 1. febrú- ar 1992. Tilboðið var gert með fyrirvara um samþykki borgarráðs og að samningar tækjust um kaup ÁTVR á kjallara og fyrstu og annarri hæð húseignarinnar Aust- urstræti 10A, en þangað er fyrir- hugað að flytja verslun ÁTVR, sem nú er við Lindargötu. Mjög harð- ur árekstur á Sauðár- króksbraut Sauðárkróki. KONA slasaðist alvarlega í mjög hörðum árekstri tveggja fólksbíla, sem varð á Sauðár- króksbraut rétt við Brenni- gerði um miðjan dag í gær. Tveir fólksbílar, Mercedes Benz á norðurleið og Toyota á suðurleið, rákust saman, og samkvæmt að- stæðum á slysstað virðist ljóst að Benz-bifreiðin hafi verið komin á rangan vegarhelming þegar bílarn- ir skullu saman. Konan, sem var ökumaður Toy- ota-bifreiðarinnar, hlaut mikla áverka á höfði og reyndist hún meðal annars vera kinnbeinsbrotin. Hún var fyrst flutt á sjúkrahúsið^ á Sauðárkróki þar sem meiðsl hennar voru könnuð, en þaðan var hún síðan flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. _ VEÐURHORFUR í DAG, 24. APRÍL YFIRLIT: Yfir Vestur-íslandi er 988 mb allvíðáttumikil lægð sem þokast austsuðaustur og fer heldur minnkandi. Veður fer heldur kólnandi. SPÁ: Norðan- og norðaustanstinningskaldi eða allhvasst og víða él vestanlands í fyrstu en sunnan- og suðvestangola eða kaldi og smá slydduél eða skúrir í öðrum landshlutum. í nótt gengur norð- an- og norðaustanáttin inn á landið með éljum en áfram verður sunnangola eða hægviðri með smá skúrum eða slydduéljum ann- ars staðar. Austan- og suðaustanlands verður hiti 2-5 stig en 1-2 stiga frost vestan til á landinu. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðaustan-og austan- átt um allt land, strekkingur norðvestanlands en hægari annars staðar. Éljagangur um norðanvert landið, skúrir austanlands en léttskýjað suðvestanlands. Fremur kalt norðanlands og vestan en hiti víða 3-6 stig á Suður- og Austurlandi. TAKN: Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir Él — Þoka = Þokumóða / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma ’, ’ Súld CO Mistur —j- Skafrenningur j"7 Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 skýjað Reykjavík 1 alskýjað Bergen 8 hálfskýjað Helsinki 5 snjóél Kaupmannahöfn 5 rigning Narssarssuaq 4-3 léttskýjað Nuuk +5 léttskýjað Ósló 11 úrkoma Stokkhólmur 9 léttskýjað Þórshöfn 8 rigning Algarve 18 léttskýjað Amsterdam 5 skúrir Barcelona 15 mistur Berlín 7 skýjað Chicago vantar Feneyjar 8 alskýjað Frankfurt 8 úrkoma Glasgow 11 súld Hamborg vantar Las Palmas vantar London 11 skýjað Los Angeles vantar Lúxemborg 6 snjóél Madrfd 16 léttskýjað Malaga 11 skýjað Mallorca 16 hálfskýjað Montreal vantar NewYork vantar Orlando vantar Paris 11 skýjað Róm 12 skýjað Vín 12 alskýjað Washington vantar Winnipeg vantar Snarpir jarðskjálfta- kippir í Holtunum TVEIR nokkuð snarpir jarð- skjálftakippir fundust austur í Holtum í gærmorgun. Fyrri kipp- urinn mældist 3,2 stig á Richter og sá síðari 3,6 stig. Allmyndarlegur skjálfti fannst klukkan 8.13 og mældist hann 3,2 stig á Richter. Síðan kom annar stærri skjálfti kl. 10.26 og mældist hann 3,6 stig á Richter. Upptök skjálftanna voru 1-2 kílómetra norðaustur af Saurbæ í Holtum. Nokkrar jarðhræringar hafa verið á þessu svæði frá því um miðjan dag á mánudag og í gærdag mæld- ist mikill fiöldi smáskjálfta. Að sögn Barða Þorkelssonar, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu ís- lands, eru þetta mestu skjálftar á þessum slóðum frá því í ágúst 1986, en þá mældist öllu snarpari jarð- skjálftahrina en sú er varð í gær. Stærsti skjálftinn þá mældist 4,4 stig á Richter. Barði sagði að ekki væri hægt að setja þessa skjálfta í beint sam- band við Heklu þó svo gosið í fjall- inu hefði breytt spennuástandi jarð- laga á svæðinu talsvert. Skjálftarnir í gær fundust allvíða á bæjum í Holtum og Landsveit og eins á Rangárvöllum. Fyrri skjálft- inn fannst einnig vestur fyrir Þjórsá, í Villingaholti, og sá síðari fanns einnig í Gnúpveijahreppi. Bæjarráð Hafnar- fjarðar: Sótt um einka- rétt á vatni úr Kaldárbotnum FÉLAGIÐ Vatnarr í Keflavík hef- ur óskað eftir því við bæjaryfir- völd í Hafnarfirði, að því verði veitt vatnsréttindi til 25 ára með einkarétt á vatni úr Kaldárbotn- um. í bréfí til bæjarráðs eru kynntar hugmyndir félagsins um að koma upp átöppunarverksmiðju fyrir vatn- ið í Hafnarfirði með útflutning í huga. Er farið fram á einkarétt á vatni úr Kaldárbotnum til fram- leiðslu á „Kaldar Spring Water“ í neytendaumbúðum. Bæjarráð samþykkti að vísa mál- inu til athugunar og almennrar umfjöllunar hjá bæjarverkfræðingi og bæjarlögmanni. Gunnar A. Páls- son hrl. látinn LÁTINN er i Reykjavík á 82. aldursári Gunnar A. Pálsson hæstaréttarlögmaður. Hann fæddist á Eskifirði 31. ágúst 1909, sonur hjónanna Páls Bóas- sonar, síðar starfsmanns fjár- málaráðuneytisins, og Vilborgar Einarsdóttur. Gunnar lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1930 og embættisþrófi í lögfræði frá Háskóla íslands 1935. Hann var formaður Heimdallar F.U.S. árið 1929. Frá 1945-1947 var Gunnar A. Pálsson skipaður bæjarfógeti í Neskaupstað en lengst af ævinni stundaði hann lögfræði- og við- skiptastörf í Reykjavík og rak þar lögmannsstofu. Gunnar A. Pálsson lætur eftir sig son, Kjartan, framkvæmda- stjóra Sjálfstæðisflokksins. Jarðs- ungið verður í Dómkirkjunni föstu- daginn 26. apríl klukkan 10.30. Gunnar A. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.