Morgunblaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐÍÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1991
37
Lára Hlöðversdóttir,
Akureyri - Minning,
Fædd 12. júní 1925
Dáin 16. apríl 1991
„Þú Drottinn átt það allt, sem
öðlumst vér á jörð.“
Þannig byrjar sálmurinn sem
Lára frænka var búin að velja fyrir
útförina sína og segir mikið um
hana og viðhorf hennar til lífsins,
ekki síst þessi orð. „að létta bróður
böl og bæta raunir hanS..., sé gleði
kristins manns":
Umhyggja fyrir velferð nánustu
ættingja sinna og hjálpsemi voru
lífsfylling Láru og gleði. Okkar
hamingju bar hún fyrir brjósti öðru
fremur og setti sínar þarfir aldrei
framar annarra. Lára var alltaf glöð
og gamansöm, stundum stríðin við
smáfólkið, á skemmtilegan hátt, án
þess að særa. Hún var skoðanaföst
og alltaf tilbúin að vetja þann sem
minna mátti sín. Aldrei kvartaði
hún undan hlutskipti sínu í lífinu
og virtist alltaf geta miðlað gleði,
jafnvel þegar veikindin höfðu gagn-
tekið hana alla. Æðruleysi hennar
virtist engin takmörk sett í því stríði
sem hún háði. Mikinn lærdóm meg-
um við draga af hennar kross-
burði, börnin öll sem áttum afa,
ömmu og Láru frænku á Djúpa-
vogi. Nú er hún Lara okkar komin
til hans, sem allt á og allt gefur.
Eftir stöndum við í þakklæti fyrir
gjafírnar og fyrir hana.
Blessuð sé minning Láru frænku.
Fyrir hönd systkinanna
í Þingvallastræti 34.
H.Á.
Eins og verk þín elsku sýna
augað hvar, sem líta má
allt ber vott um visku þína
veröld öll þar skýrir frá.
(Ur sálmi)
Á þeirri stundu, sem andláts-
fregn góðs vinar berst, gleymist oft
líkn dauðans. Sársaukinn, sem
kreppist um vitund þeirra, sem eft-
ir lifa, er því oft tilfinning, sem á
ekkert skylt við rökrétta hugsun.
Minning:
Fædd 11. júlí 1920
Dáin 5. apríl 1991
Guðbjörg Guðmundsdóttir Cottr-
ell — Ubba systir okkar, er látin.
Hún lést á sjúkrahúsi í heimabyggð
sinni í New Jersey í Bandaríkjunum,
þar sem útförin fór einnig fram.
Hún var dóttir hjónanna Ólafar
Sigurðardóttur og Guðmundar Ól-
afssonar, kennara, sem lengst af
bjuggu á Laugarvatni. Hún fæddist
á Skógum í Fnjóskárdal og fluttist
kornung með foreldrunum til Akra-
ness, en síðan að Laugarvatni, níu
ára. Á Laugarvatni átti hún síðan
heima og stundaði þar nám í hér-
aðsskólanum á vetrum og ýmis störf
á sumrum. Gefur augaleið, að
Laugaivatn og það mikla skóla-
starf, sem þar var unnið, setti sinn
sterka svip á mótun hennar og líf-
sviðhorf. Það var mjög þroskandi
að taka virkan þátt í leik og störfum
með mörgu ungu fólki og var það
góður undirbúningur fyrir lífið, sem
hennar beið.
Rúmlega tvítug fluttist hún til
Reykjavíkur og vann þar við ýmis
störf, aðallega við sauma í fatagerð.
Ubba fluttist til Bandaríkjanna
árið 1947, og giftist Arvil Earl
Cottrell, efnafræðingi, sem hún
kynntist á stríðsárunum. Þau eign-
uðust indælt heimili í eigin húsi í
smábæ við ána Delaware í New
Jersey. Þau áttu tvo syni, Earl land-
mælingamann og Paul lögfræðing,
sem eru báðir kvæntir og eiga börn.
Þeir settust að í nágrenni við for-
eldra sína og varð það mikill stuðn-
ingur og gleðigjafi, ekki síst eftir
Þessi tilfinning er þó sjaldnast
sprottin af ósætti við að dauðinn
hafi lagt líkn með þraut, heldur
vegna hins algjöra vanmáttar, sem
við finnum frammi fyrir gátunni
miklu. En frammi fyrir þessari
óræðu gátu stöndum við öll í ein-
semd. Hversu velkominn sem dauð-
inn kann að vera þeim sem þjást,
kallar hann alltaf fram frumstæðar
og eigingjarnar tilfínningar hjá
okkur, sem eftir stöndum.
Kær vinkona mín og barna
minna, Lára Hlöðversdóttir, lést á
Sjúkrahúsi Akureyrar sautjánda
þessa mánaðar, fyrir aldur fram en
hún var sextíu og fimm ára gömul,
er hún dó.
Lára kom fyrst á heimili okkar
árið 1955 þegar hún var ráðin ráðs-
kona í Fiskiðjuna hf. í Vestmanna-
eyjum á yfirstandandi vertíð. Þijár
aðrar konur voru ráðnar um leið
og hún, þær Lilla, Gógó og Ásta,
en með þessum konum svo og
Kristýju, verkstjóra, myndaðist
strax góð eining, sem aldrei rofn-
aði. Allar hafa þær fylgst með veik-
indum Láru síðastliðin þijú ár.
Á heimili okkar í Sólhlíð 7, Vest-
mannaeyjum, dvaldi Lára ár eftir
ár, og varð því eins og ein af fjöl-
skyldunni. Lára var vel gefin og
yndislegur félagi, listhneigð og
skemmtileg. Hún elskaði að lesa
góðar bækur og ljóð, syngja og
hlusta á fagra tónlist. Þá var eins
og hún færi í annan heim. Hún var
líka einstaklega barngóð og hænd-
ust.börn að henni eins og ósjálfrátt
og máttu svo ekki af henni sjá.
Enda var það svo að þegar við hjón-
in fórum í frí, var hringt í Láru og
hún beðin um að gæta barnanna
okkar, sem eru fimm að tölu. Og
þegar von var á Láru, þá vissum
við að allt myndi verða í lagi. Því
Lára hugsaði um börnin eins og
væru þau hennar eigin.
Síðastliðin þijú ár hefur Lára
barist við sjúkdóm, sem ekki reynd-
ist unnt að lækna. Og hefur þurft
að fara í læknismeðferð á Kvenna-
að faðir þeirra veiktist og lamaðist.
Hann átti þá enga aðra nákomna
ættingja nærri sér og var það syst-
ur okkar ómetanlegt að geta með
góðri hjálp annast hann, þar til
yfir lauk. Hún átti sjálf við alvarleg
veikindi að stríða um tíma, en fékk
þá bænheyrslu að geta staðið sig í
sínu hlutverki allt til enda. Arvil,
maður hennar, lést fyrir nokkrum
árum, eftir að hafa verið lengi veru-
lega fatlaður. Þegar hann var far-
inn, var léttara að taka veikindun-
um og horfa fram á eigin dauða.
Hún var að upplagi sterk og
hraust, og í öllu þessu reyndist hún
hughraust og æðrulaus, og horfði
með lifandi von fram í veginn. I
ljósi boðskapar páskanna eru um-
skiptin léttbærari og auðveldara að
halda vonglöð áfram, í lífi og dauða.
Þótt Ubba flytist til Bandaríkj-
anna til að eignast þar fjölskyldu
og heimili, rofnuðu tengslin aldrei
við fjölskyldu og vini hér á landi.
Kom hún hingað þrisvar og við, fjöl-
deild Landspítalans og hefur þá
haft viðdvöl á heimili mínu. Einnig
héldum við hvor annarri félagsskap
í sumarbústað mínum í Öxarfirðin-
um síðastliðið sumar, sem var okk-
ur báðum til ánægju.
Þrátt fyrir veikindin bar Lára sig
alltaf vel, var hress og brosandi.
Ég verð að segja að ég hef sjaldan
orðið vitni að annarri eins stillingu
og þreki, og hún sýndi á þessum
erfiðleikatímum. Þannig gekk hún
reyndar allan sinn æviveg.
Það stóra skarð, sem höggvið
hefur verið með andláti Láru verður
vandfyllt. Sá tómleiki, sem lagst
hefur yfir verður lengi að hverfa.
En við vitum, að nú þegar Lára er
farin, gefur Guð henni betra líf og
hamingju á ókunnum slóðum.
Guð blessi minningu hennar. Sig-
urbjörgu, Eiríki og öðrum ástvinum
hennar vottum við dýpstu samúð.
Á síðasta andartakinu
hættir sólin að hníga
og flýtur í lausu lofti
eins og brennandi skip
í fjarlægum skýjum.
Gullin rák brúar öldumar
ogéggeng
inn í endalaust sólarlagið
og kem aldrei
til baka.
(Sigvaldi Hjálmarsson)
Sigurbjörg Benediktsdóttir
skylda hennar, heimsóttum hana
og mann hennar nokkrum sinnum,
m.a. átti Björn traust athvarf hjá
þeim, er hann var við nám í ná-
grenni við þau.
Við systkinin og fjölskyldur okk-
ar minnumst systur okkar með
þakklæti og virðingu og sendum
öðrum ástvinum hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Systkinin
t
Alúðarþakkir flytum við öllum þeim fjölmörgu ættingjum og vinum
sem heiðruðu minningu
HELGA GUÐLAUGSSONAR
sjómanns í Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki deildar B-2 á Hrafnistu
fyrir einstaka umönnun.
Ingigerður Eýjólfsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Guðbjörg Guðmunds-
dóttir Cottrell
t
Útför
HARÐAR JENS HARALDSSONAR,
Laugarnesvegi 112,
Reykjavík,
fer fram frá Áskirkju í dag, miðvikudaginn 24. apríl,
kl. 15.00.
Þeim serrfvildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á Slysa-
varnafélag íslands.
Brynhildur Ögmundsdóttir,
Brynja Harðardóttir,
Haraldur Harðarson,
Maríanna Halldórsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
STEFÁNS ÞORVARÐSSONAR
skipasmiðs,
Hrauntungu 63,
Kópavogi.
Ragna Skúladóttir,
Þorvarður Skúli Stefánsson, Súsanna Stefánsson,
María Skúladóttir,
Sigríður Stefánsdóttir,
Stefán Ragnar Magnússon, Jóhanna Magnúsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓHANNS LÁRUSSONAR,
Jörundarholti 224, Akranesi.
Svanheiður Friðþjófsdóttir,
Erlingur Jóhannsson, Lára Hreinsdóttir,
Margrét Jóhannsdóttir, Magnús Gunnarsson,
Friðgerður Jóhannsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför,
JÓNS SIGURÐAR HALLDÓRSSONAR,
Austurströnd 10,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavik föstudag 26. apríl kl. 13.30.
Louise Dahl,
Caroline Dahl Jónsdóttir,
Anna Einarsdóttir, Halldór Jónsson,
Hildur Jónsdóttir, Sandra Jónsdóttir,
Einar Halldórsson, Gunnar Þorsteinn Halldórsson,
Fríður M. Halldórsdóttir, Ása S. Halldórsdóttir.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
LILJU ODDSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar- og starfsfólki á hjúkruna-
rdeild Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Hrafnhildur Sveinsdóttir, Hjördís Ragnarsdóttir,
Valur Ragnarsson, Örn Ragnarsson,
Brynja Ragnarsdóttir, Oddur Ragnarsson,
Ragnar Ragnarsson, Hrafn Ragnarsson,
Ingibjörg Ragnarsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURRÓS TORFADÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áðurtil heimilis i Meðalholti 10,
lést í Landspítalanum þann 22. apríl.
Björn Þorsteinsson,
Torfi Þorsteinsson,
Páll Þorsteinsson,
Þorsteinn Þorsteinsson,
Ingigerður Þorsteinsdóttir,
Gunnlaugur Þorsteinsson,
Þorgeir Þorsteinsson,
Guðmundur Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Edda Svavarsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir,
Guðrún K. Þórsdóttir,
Hildigunnur Þórsdóttir,
Hilmar F. Thorarensen,
Ingibjörg Ó. Hafberg,
Bergþóra Skarphéðinsdóttir,