Morgunblaðið - 22.06.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1991
3
Skeiðarárj ökull;
Framskrið-
ið 3 metr-
ar á dag
SKEIÐARÁRJÖKULL skríður
fram um 2-3 metra á dag, að
sögfn Guðjóns Benediktssonar,
bónda á Freysnesi, sem hefur
annast mælingar á framskriði
jökulsins fyrir Orkustofnun.
„Það er eitthvað um tveir til
þrír metrar á dag sem jökullinn
hefur skriðið fram. Ég tel að hann
hafi skriðið fram um 120-130
metra á þeim stað sem við höfum
verið að mæla, beint upp af miðj-
um Skeiðarársandi, frá því að
framskriðið hófst,“ sagði Guðjón.
Hann sagði að sér virtist jökull-
inn allur hafa hækkað, en það
kæmi betur í ljós um helgina þeg-
ar hann færi ti! mælinga aftur.
Töluverðar breytingar hefðu orðið
'á jöklinum þessa daga.
Rennsli í Skeiðará hefur ekkert
aukist, að sögn Guðjóns.
Hæstiréttur:
Sýknuð af
ákæru um
auðgunarbrot
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Sakadóms Reykjavíkur
í máli ákæruvaldsins gegn hjón-
unum, sem ákærð voru fyrir að
gefa út og nota innstæðulausan
tékka að fjárhæð rúmar 32
milljónir króna í staðgreiðslu-
viðskiptum í Seðlabanka Is-
lands. Tékkinn var notaður til
greiðslu fyrir ríkisvíxla sem eig-
inmaðurinn fékk í hendur.
Morgunblaðið/RAX
Jón Sigurðsson við garðyrkjustörfin ásamt tveimur ungum félögum sínum bræðrunum Andra og Matthíasi Sigurðssonum.
Ungt o g gamalt á mjög vel saman
- segir Jón Sigurðsson, 72 ára, sem er með garð í Skólagörðum Reykjavíkur
„UNGT og gamalt á mjög vel
saman,“ sagði Jón Sigurðsson,
72 ára, eldri borgari þegar
blaðamaður Morgunblaðsins
heimsótti hann í Skólagarða
Reykjavíkur í Laugardal þar
sem hann var að setja niður
kartöflur, kálplöntur og fræ
ásamt fjöida barna á aldrinum
átta til tólf ára. í skólagörðun-
um í Laugardal eru i sumar 188
börn fædd 1979 til 1983 og Jón
sem fæddur er 1918. Jón byij-
aði í skólagörðunum í vikunni
og líkar vel. Krakkarnir eru
að hans sögn skemmtilegir og
útiveran góð. Hann hvetur fólk
á sínum aldri til að slást i hóp-
inn.
„Hugmyndina fékk ég í fyrra-
vor og sótti þá um að fá garð í
Árbænum. Starfsstúlkurnar þar
sáu því ekkert til fyrirstöðu í upp-
hafi en svo kom í ljós að engin
samþykkt var fyrir því að svona
gamlingjar tækju þátt í starfi
skólagarðanna svo af þessu gat
ekki orðið það sumarið,“ sagði
Jón. Eftir að hafa talað við for-
svarsmenn Félags eldri borgara í
vor komst hreyfing á málið og Jón
fékk garð í Laugardalnum.
Jón segist sannfærður um að
margt eldra fólk hefði gaman af
því taka þátt í starfinu í skóla-
görðunum. „Ég kann afskaplega
vel við mig héma. Það er gaman
að vinna með krökkunum og ég
held að þetta geti verið skemmti-
leg tilbreyting fyrir fjölmargt
eldra fólk en margir búa einir og
hafa enga til að tala við. Hér iðar
hins vegar allt af lífi og unga
fólkið er alltaf tilbúið að gefa sér
tíma til að tala við mann,“ sagði
Jón.
„Útiveran er auk þess mjög góð
og ég fæ tækifæri til að reyna
aðeins á mig við garðyrkjustörfin.
Þar að auki fæ ég góðar kartöflur
og ýmis konar kál upp úr krafs-
inu,“ sagði Jón að lokum.
í dómi Hæstaréttar segir að
fram hafi komið að eiginmaðurinn
hefði þegar hafist handa um að
viðskiptin gengu til baka þegar
honum varð ljóst að ekki var til
innistæða fyrir tékkanum. Daginn
eftir innlausn samdi hann við inn-
lausnarbankann og reiknings-
bankann og greiddi innistæðu-
lausa tékkann. í niðurstöðum
dómsins segir að fallast beri á það
með héraðsdómara að ósannað sé
að ákærðu hafi ætlað að auðgast
á útgáfu tékkans.
Ákærðu voru sýknuð í kröfum
ákæruvaldsins og áfrýjunarkostn-
aður greiðist allur úr ríkissjóði.
Fargjöld Flugleiða til Evrópu:
O
INNLENT
Hækkunin 12,8-14% meðan fram
færsluvísitala hækkaði um 5,8%
HALLDÓR Kristjánsson, deild-
arstjóri í samgöngumálaráðu-
neytinu, segir að Flugeftirlits-
nefnd muni fara i saumana á
fargjaldahækkunum Flugleiða á
millilandaflugleiðum á fundi
sinum sem boðað hefur verið til
á þriðjudaginn kemur. Hann
segir að ef til vill kunni að vera
ástæða til frekari lækkana á
fargjöldum en um þau 4% sem
fargjöldin lækkuðu frá og með
10. júní. Þegar Flugeftirlits-
nefnd hafi heimilað hækkanir á
fargjöldum vegna mikillar
hækkunar á flugvélaeldsneyti
síðastliðinn vetur vegna Persa-
flóastríðsins, hafi það verið með
fyrirvara um að fargjöldin
lækkuðu aftur þegar eldsneytis-
verð lækkaði.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
leiða hækkaði Apex-fargjald frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
frá júlí í fyrra fram til maí í vor
úr 29.610 í 35.150 kr. eða um
18,7%. Eftir lækkunina 10. júní
er fargjaldið án flugvallarskatts
33.750 krónur eða 14% hærra en
það var í fyrra. Normalfargjald á
sömu flugleið, þ.e. opinn miði fram
Bruninn á Höfn í Hornafirði:
Rannsókn bendir til íkveikju
RANNSÓKN á eldsvoðanum í Húsgagnaverslun JSG á Álaugarey
á Höfn bendir til þess að um íkveikju sé að ræða, að sögn Páls
Björnssonar sýslumanns. Sýslumannsembættið óskar eftir aðstoð
heimamanna við rannsóknina og biður alla sem hafa orðið varir
við mannaferðir aðfaranótt fimmtudagsins 19. júní að hafa sam-
band við lögreglu.
Gísli Þorvaldsson, eigandi versl-
unarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði strax
talið miklar líkur á því að um
íkveikju hefði verið að ræða. „Kon-
an mín veitti því athygli um leið
og hún kom út eftir að þar voru
hlutir sem voru ekki á þeim stað
sem þeir áttu að vera,“ sagði Gísli.
Gísli sagði að tjónið skipti millj-
ónum króna, en von væri á mats-
manni til Hafnar í dag. Hann sagði
að húsið væri ágætlega tryggt en
innbúið ekki að sama skapi. „Inn-
búið var tryggt fyrir þijár og hálfa
milljón kr., það er lager og innan-
stokksmunir. Verðmæti lagersins
er nokkrar milljónir kr. Þetta var
dýr gjafavörubúð og húsgagna-
verslun sem hleypur á stóru,“
sagði Gísli.
Páll Björnsson sýslumaður
sagði að það væri ekki forsvaran-
legt að hafa nokkra starfsemi á
þessum stað þar sem bensín- og
olíutankar væru í næsta nágrenni
og mikil hætta á stórbruna. Gísli
kvaðst ekki vita hvort hann fengi
að byggja húsið upp aftur á sama
stað þar sem staðið hefði styr um
það vegna nálægðar við olíutank-
ana.
og til baka án skilyrða, hækkaði
frájúlí 1990 til maí 1991 úr 71.340
í 83.860 eða um 17,5%.
Apex-fargjald til Lúxemborgar
hækkaði úr 27.880 í júlí í fyrra-
sumar í 32.770 krónur í maí eða
um 17,5%. Eftir lækkunina nú í
júní er fargjaldið 31.460 kr. eða
12,8% hærra en í fýrra. Normalfar-
gjald til Lúxemborgar hækkaði úr
69.960 í 80.680 krónur eða um
15,32% frájúlí í fyrratil maí í vor.
Apex-fargjaldið til Lundúna var
28.300 í fyrrasumar en var í maí
33.270 eða 17,5% hærra en í fyrra.
Normalfargjaldið hækkaði einnig
um 17,5% sama tímabil, úr 68.700
í 80.760 krónur. Apex-fargjaldið
eftir lækkun er 31.940 eða 12,9%
hærra en í fyrra. Segja má að
samsvarandi prósentuhækkanir
hafi orðið á fargjöldum til annarra
viðkomustaða á meginlandi Evr-
ópu, svo sem til Frankfurt, Parísar
og Ámsterdam. Fargjöld vestur um
haf til New York hækkuðu minna,
eða Apex-fargjaldið um 13,1% frá
júlí 1990 fram til maí í vor og um
8% eftir lækkunina 10. júní. Nor-
malfargjaldið hækkaði heldur
meira eða um 14,68% áður en
lækkunin kom til.
Á sama tíma, eða frá því í maí
í fyrra fram til maí í ár, hafa far-
gjöld Flugleiða innanlands hækkað
um 10%, um 3,5% í júní í fyrra
og 6% í október. Framfærsluvísi-
tala sama tímabils, þ.e. frá júlí í
fyrra til júní í ár, hefur hækkað
um 5,8% og hækkunin frá maí í
fyrra til maí í ár er einnig 5,8%.
í júlí í fyrra var tonnið áf þotu-
eldsneytinu á 160 dollara í Rotter-
dam. Það var komið í 200 dollara
í lok mánaðarins en hækkaði síðan
ört og komst hæst í tæpa 500
dali tonnið í byijun október. Það
var sveiflukennt yfir háveturinn
en lækkaði síðan hægt og sígandi
og var komið aftur í 200 dollara
tonnið í byijun mars og hefur ver-
ið um það bil síðan. Síðustu dag-
ana hefur það farið lækkandi og
var 17. júní í 186,5 dollurum tonn-
ið.
Dollarinn var í 59,38 kr. í byijun
júlí í fyrra. Gengi hans var sveiflu-
kennt en lækkaði hægt og sígandi
og varð lægst í febrúar 53,79 kr.
Gengi hans hefur síðan farið hækk-
andi og var komið yfir 61 krónu
seinnihlutann í apríl. Það lækkaði
aftur niður fyrir 61 kr. í maí en
hefur farið hækkandi síðan og var
17. júní í 63 krónum.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
leiða fljúga um 88% farþega þeirra
á afsláttarfargjöldum. Áður en
endurnýjun flugflotans á milli-
landaleiðum átti sér stað var elds-
neytiskostnaðurinn 17-18% af
rekstrargjöldum, en lækkaði í 10%
með tilkomu nýju vélanna. í kjölfar
hækkunar eldsneytisins vegna
Persaflóastríðsins í vetur hækkaði
þessi tilkostnaður í 12-13% af
rekstrargjöldum. Þá má reikna
með að um þriðjungur af tilkostn-
aði félagsins sé í dollurum.