Morgunblaðið - 22.06.1991, Síða 4
: 'íbliéÍÍNBLAM' LAtJÓARibÁGlÍíí Ú'. ’ÍtíNí'íöy91
f,4
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkar
hjá tveimur verðbréfamörkuðum
KAUPÞING hf. og Verðbréfa- bréfa í 8,75%. Hjá öðrum verð-
viðskipti Samvinnubankans hafa bréfamörkuðum var ávöxtunar-
lækkað ávöxtunarkröfu hús- krafan við kaup áfram 8,8% í
Ölfus:
Jarðskjálftar finn-
ast áfram I Hveragerði
Jarðskjálftakippur er mæld-
ist 2 stig á Richter-kvarða
fannst í Hveragerði um klukkan
eitt í gær. Að sögn Ragnars
Stefánssonar hjá Veðurstofu
Islands átti þessi jarðskjálfti
upptök sín á svæði er nefnist
Forir.
Þessi jarðskjálfti í Ölfusi er hluti
af jarðskjálftshrinu er hefur staðið
VEÐUR
síðan 16. júní sl. Tvær stærstu
skjálftar hrinunnar mældust í
kringum 4 stig á Richter-kvarða
að morgni 19. júní en á milli klukk-
an 9 og 10 að kvöldi sama dags
mældust nokkrir jarðskjálftar um
1,5 stig á Richter-kvarðanum. íbú-
ar Hvergerðis fundu síðan fyrir
þessum skjálftakipp í gær er
mældist 2 stig á Richter-kvarða.
gær. Talsmenn verðbréfamark-
aða sögðu, að rífandi sala væri
í húsbréfum og mun minna
framboð en verið hefur. Að sögn
Jóns Snorra Snorrasonar hjá
Kaupþingi mun þetta vera í
fyrsta sinn sem ávöxtunarkrafa
húsbréfa á verðbréfamörkuðum
hefur lækkað.
Jón Snorri sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þessi lækk-
un hefði skilað tilætluðum ár-
angri, töluvert hafi borist inn af
húsbréfum. Hann sagði að eftir.
að ávöxtunarkrafan virtist hafa
stöðvast í 8,8% eftir örar hækkan-
ir hafi orðið umskipti á markaðn-
um.
Framboð hafi dregist mikið
saman og eftirspum stórra kaup-
enda eins og lífeyrissjóða aukist.
Kaupþing hafi haft kaupendur að
húsbréfum og því lækkað ávöxtun-
VEÐURHORFUR I DAG, 22. JUNI
YFIRLIT: Við Norðausturströnd landsins er aðgerðarlítil lægð en
lægðardrag milli Islands og austurstrandar Grænlands. Við vestur-
strönd írlands er allvíðáttumikil lægð á norðurleið.
SPÁ: Norðnorðvestan gola eða kaldi. Síðdegis mun líklega mynd-
ast hitalægð yfir landinu sem dregur loft af hafi. Hiti breytist lítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg breytileg
eða vestlæg átt, skýjað með köflum víð norður- og vesturströndina
en víðast léttskýjað annars staðar. Hlýtt verður í veðri að degínum
en fremur svalt að næturlagí.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
N: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- j() Hitastig:
10 gráður á Cels
stefnu og fjaðrirnar y Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * f # 5, 5 Súld
Skýjað f * f # Slydda / * / OO Mistur
* * * —Skafrenningur
Alskýjað # # # # Snjókoma * * * Þrumuveður
m / VEÐUR VÍÐAUMHEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hitl veður Akureyri 12 skýjað Reykjavik 11 léttskýjað
Bergen 8 skýjað
Helsinki 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 hálfskýjað
Narssarssuaq 6 þokaígrennd
NuUk 2 þoka/grennd
Ósló 16 skúrásíð.klsL
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 28 heiðskirt
Amsterdam 19 skýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Berlín 19 hálfsfyjað
Chicago 23 þokumóða
Feneyjar 23 þokumóða
Frankfurt vantar
Glasgow vantar
Hamborg vantar
London 18 skýjað
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madrid 31 léttskýjað
Malaga 24 heiðskírt
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal 20 léttskýjað
NewYork 25 heiðskírt
Orlando vantar
Paris 17 skýjað
Madeira 20 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
V/n 19 skúr á síð.klst.
Washíngton 26 mistur
Winnipeg 11 léttskýjað
arkröfuna, sem hafði í för með sér
að seljendur bréfa fái meira fyrir
þau. Hann sagði að í gær hefði'
gengið mjög vel að fá bréf, líklega
væri um að ræða seljendur sem
hefðu átt bréf fremur en að um
nýútgefin bréf hafi verið að ræða.
Jón Snorri sagðist ekki búast
við að þessi lækkun væri upphafið
að örri lækkun ávöxtunarkröfunn-
ar, hins vegar mætti búast við að
krafan fari hægt og sígandi niður
á við.
Að sögn Sigurbjöms Gunnars-
sonar deildarstjóra hjá Landsbréf-
um hf., viðskiptavaka húsbréfa,
hefur sala húsbréfa verið mikil
þennan mánuð og framboð lítið.
Sala bréfanna það sem af er þess-
um mánuði er þegar orðin 85%
meiri en allan maímánuð, en þá
hafði orðið 30% söluaukning frá
aprílmánuði. Framboð hefur sömu-
leiðis verið minna, í gær var það
45% minna en í maí.
Sigurbjörn sagði að skýringar á
minna framboði væra að líkindum
þríþættar, í fyrsta lagi há afföll
vegna ávöxtunarkröfunnar, í öðra
lagi að von væri á útgáfu nýs
flokks húsbréfa í dag, föstudag,
og loks að á þessum árstíma væra
íbúðaviðskipti almennt í lágmarki.
Ari Edwald.
Dóms- og kirkju-
málaráðuneyti:
Ari Edwald
deildarstjóri
ARI Edwald hefur verið ráðinn
deildarstjóri í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu til að sinna sér-
verkefnum fyrir Þorstein Pálsson
ráðherra.
Ari er fæddur 11. júlí 1964 og
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Sund 1983, lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1988 og meist-
araprófi í rekstrarhagfræði frá há-
skóla í San Francisco 1991.
Ari starfaði sem lögfræðingur' í
fjármálaráðuneytinu, tekju- og laga-
sviði, 1988-’89. Hann er kvæntur
Þórunni Pálsdóttur byggingaverk-
fræðingi.
Skáksamband
íslands:
Hannes Hlífar
sigraði á úti-
skákmótinu
Hannes HQífar Stefánsson bar
signr úr býtum á útiskákmóti
Skáksambands Islands sem
fram fór í gær. Hann keppti
fyrir hönd Smíðajárns Guð-
mundar Arasonar.
Alls sendu fjöratíu fyrirtæki
keppendur á mótið. Tefldar voru
sjö umferðir og hlaut Hannes
Hlífar 6 1/2 vinning. Sigurður
Daði Sigfússon tefldi fyrir Hótel
Loftleiðir og varð í öðra sæti með
6 vinninga. í 3. - 4. sæti urðu
þeir Helgi Ass Grétarsson sem
tefldi fyrir Eimskipafélag íslands
og Þröstur Þórhallsson sem tefldi
fyrir Visa - ísland. Þeir hlutu 5
1/2 vinning hvor.
Þrír sækja um
embætti hæsta-
réttardómara
ÞRÍR sóttu um embætti hæsta-
réttardómara sem auglýst var
laus til umsóknar.
Þeir sem sóttu um embættið
vora Auður Þorbergsdóttir borg-
ardómari, Gunnar M. Guðmunds-
son hæstaréttarlögmaður og
Sveinn Snorrason hæstaréttarlög-
maður. Umsóknirnar hafa lögum
samkvæmt verið sendar Hæsta-
rétti til umsagnar.
Strokufanginn
gengur enn laus
FANGARNIR fimm sem struku
úr Hegningarhúsinu á Skóla-
vörðustíg í síðustu viku eru all-
ir í einangrun í Síðumúlafang-
elsinu en þeir eru grunaðir um
aðild að innbrotum og þjófnuð-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Enn er sjötta fangans leitað en
samkvæmt upplýsingum frá RLR
er ekkert vitað um ferðir hans.
Talsmaður RLR vildi ekki heldur
staðfesta að fréttir þess efnis að
strokufangamir hefðu verið að
verki í innbroti í Baader-þjón-
ustuna í Kópavogi. Þaðan var stol-
ið peningaskáp með talsverðum
fjármunum í en hann fannst á
sumarbústaðalóð við Elliðavatn
sl. miðvikudag.
Strokufangarnir sex eru
síbrotamenn og hafa hlotið dóma
fyrir ýmiss auðgunarbrot. Há-
marksrefsing fyrir að sammælast
um strok er þriggja ára fangelsi
samkvæmt lögum.
B.M. Yallá
opnar
Fornalund
B.M. Vallá opnaði í gær nýtt
sýningarsvæði í tijálundi á at-
hafnasvæði sínu við Breið-
höfða. Sýningarsvæðið er í
raun lítill Iystigarður í fornum
evrópskum anda. Þetta sýning-
arsvæði ber nafnið Fornilund-
ur.
í fjögurra síðna upplýsingablaði
sem fylgir Morgunblaðinu í dag
kynnir B.M. Vallá Fomalund og
ýmsar nýjungar honum tengdar.
Sérstök sýning verður um helg-
ina, laugardag frá kl. 10-16 og
sunnudag frá kl. 12-16, fyrir al-
menning.
Akstursþjón-
usta aldraðra
til reynslu
FÉLAGSMÁLARÁÐ hefur
samþykkt tillögu um að koma
á akstursþjónustu fyrir aldraða
til reynslu í einu hverfi borgar-
innar. Gert er ráð fyrir að þjón-
ustan verði veitt frá 1. ágúst
næstkomandi.
í tillögunni er gert ráð fyrir að
þjónustan verði eingöngu veitt til
að aka fólki milli heimilis og þjón-
ustumiðstöðvar og er hún einkum
ætluð þeim, sem að öðram kosti
þyrftu heimilisþjónustu.