Morgunblaðið - 22.06.1991, Side 11
oll
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1991
Norma E. Samúlesdóttir
Ný skáldsaga
komin út
ÚT ER komin fimmta bók Normu
E. Samúelsdóttur, skáldsagan
Oþol, undirtitill „bók fyrir hús-
mæður sem vilja vera skáld og
þá sem hafa áhuga á svoleiðis
fólki“, prentuð hjá Stensli, útgef-
in af höfundi í 100 eintökum.
Sögupersónur eru að mestu þær
sömu og í fyrri skáldsögu Normu,
Næstsíðasta degi ársins (1979), og
lýsir þróun mála þar á bæ, aðallega
lífi Betu sem segir söguna að mestu.
Nokkur eintök bókarinnar verða
seld hjá Eymundsson og Máli og
menningu og auk þess hjá höfundi.
Auk Næstsíðasta dags ársins og
nú Óþols (1991) hefur Norma sent
frá sér þijár ljóðabækur; Tréð fyrir
utan gluggann minn 1982, Mar-
blettir í regnbogans litum 1987 og
Gangan langa 1991.
(Fréttatilkynning.)
Willy Brandt
fyrruni kansl-
ari heimsæk-
ir Island
HINN kunni þýski stjórnmála-
maður og fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, Willy
Brandt, kemur til íslands dagana
27. til 30. júní nk. í boði Germ-
aníu. Meðan á dvöl hans stendur
hérlendis heldur Brandt fyrir-
lestur í Háskólabíói á ensku, á
vegum Germaníu og Alþjóða-
málastofnunar Háskóla íslands,
um Evrópumálefni, sem hann
nefnir „European Challenges".
Hann mun m.a. fjalla um samein-
ingu Þýskalands, breytingarnar
í Evrópu frá 1989 og framtíð
Evrópu í hinu alþjóðlega samfé-
lagi. Willy Brandt verður einnig
gestur Germaníu í hátíðarkvöld-
verði sem haldinn verður honum
til heiðurs í Viðey.
Willy Brandt er íslendingum vel
kunnugur, enda hefur hann áður
heimsótt landið meðan hann var í
fremstu víglínu þýskra stjórnmála-
manna. Hann var formaður þýska
Jafnaðarmannaflokksins 1964 til
1987 og kanslari V-Þýskalands
1969 til 1974. Willy Brandt varð
heimsfrægur stjórmálamaður sem
borgarstjóri Vestur-Berlínar á ár-
unum 1957 til 1966. Árið 1971
hlaut hann Friðarverðlaun Nóbels
fyrir hina svonefndu „Ostpolitik“
sína.
Meðan Brandt dvelur á íslandi
ásamt eiginkonu sinni, situr hann
boð forseta Islands, forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra, auk
þess sem hann fer í skoðunarferðir
um borgina og næsta nágrenni
hennar. Fyrirlestur Willy Brandts
verður í Háskólabíói föstudaginn
28. júní nk. kl. 19.00. Það er Ger-
manía sem séð hefur um skipulag
heimsóknarinnar, en formaður fé-
lagsins er Þorvarður Alfonsson.
(Fréttatilkynning)
Við opnum nýjan, glæsilegan sýningarsal
í húsakynnum okkar að Skúlagötu 59.
Sýnum meðal annars:
MAZDA 323:
í fjölmörgum útgáfum, 3ja, 4ra og 5 dyra
fólks- og skutbíla MEÐ EÐA AN AL-
DRIFS. Allar gerðir eru með aflstýri og
16 ventla vél. GLX gerðir eru ríkulega
búnar með rafknúnum rúðuvindum, sam-
læsingu, rafhituðum framsætum, raf-
stýrðum útispeglum og mörgu öðru.
MAZDA 626:
5 dyra skutbíll með 2200 cc vél með beinni
innspýtingu, ALDRIFI og öllum lúxus-
búnaði.
MAZDA B 2600:
Pallbíl með aflmikilli 2600 cc vél með
beinni innspýtingu, lengdu húsi og AL-
DRIFI.
___________.Verið velkomin !_________
BH
SKULAGOTU 59, REYKJAVIK S.61 95 50
.
BIIASYNING
I nýjum glæsilegum
sýningarsal!
Opið laugardag og
sunnudag frá kl.10 -15