Morgunblaðið - 22.06.1991, Blaðsíða 13
MORQUNBLAÐIP LAUGARÐAOUR 32. JUNI 1991
*3
Eigum
fyrirliggjandi
Heilbrigðar kon-
ur árið 2000
KVENNAHLAUP
eftir Katrínu
Pálsdóttur
Alþjóða heilbrigðisstofnunin setti
aðildarþjóðum sínum markmiðið
heilbrigði fyrir alla árið 2000. Nú
eru aðeins níu ár til stefnu, svo það
er eins gott að hver og einn fari
að íhuga hvernig hann getur lagt
sitt lóð á vogarskál heilbrigðis og
hreysti.
Konur hafa ávallt tekið ábyrgð
á heilbrigði sinna nánustu. For-
mæður okkar hugsuðu sennilega
lítið um líkamsrækt, en þó má ætla
að þær hafi ekki skort hreyfingu
og líkamlega áreynslu. Það er kon-
um í blóð borið að sjá til þess að
börnin fái holla fæðu og að fræða
þau um hollustuhætti. Þess vegna
er það mjög mikilvægt að við konur
stöndum vörð um eigin heilsu og
þekkjum þær leiðir sem heppileg-
astar eru til þess að viðhalda heil-
brigði.
Við nútíma konur lifum marg-
slunginni tilveru. Við eigum flestar
börn og bú, auk þess sem við vinn-
um margar fullan vinnudag úti á
vinnumarkaðnum. Það gefur auga-
leið að til þess að standa undir þessu
álagi verðum við að vera hraustar
á sál og líkama.
Skokk er ein leið til að viðhalda
heilbrigði. Hægt er að stunda skofck
hvenær sem er og hvar sem er.
Skokk má aðlaga að getu hvers og
eins, ennfremur er sama hvort
pyngjan er létt eða þung, skokk
kostar ekki neitt.
Það er ekki ólíklegt að konur sem
þurfa að gegna mörgum hlutverk-
um eigi við streituvandamál að
stríða. Því miður er oft brugðist
alltof seint við, einkenni svo sem
stöðug þreyta, svefntruflanir, hrað-
ur hjartsláttur, höfuðverkur sem
líkist hettu á höfðinu gera vart við
sig. Þessi einkenni hafa oft verið í
langan tíma áður en leitað er að-
stoðar. Jafnvel eru komin svo mikil
líkamlega einkenni að nauðsynleg
' er dvöl á sjúkrahúsi.
Láttu þetta ekki henda þig, gerðu
það sem þér er unnt til þess að
forðast að lenda í vítahring streitu
og vanlíðunar. Eitt af því sem þú
getur gert er að fara út að skokka,
þó ekki sé nema 15-20 mínútur í
hvert sinn.
Skokk er hollt konum á öllum
aldri, ekki síst þeim sem komnar
eru á miðjan aldur. Skokkið dregur
úr beinúrkölkun, hamlar offitu,
konan fær betri tilfínningu fyrir lík-
amanum sem leiðir til þess að betur
er hægt að njóta lystisemda holds-
ins.
Vegna sérstöðu konunnar innan
fjölskyldunnar þurfa heilbrigðisyfir-
völd og stjórnmálamenn að gera sér
grein fyrir að með því að fræða
konur um heilbrigði er hægt að
draga úr kostnaði við heilbrigðis-
GARÐABÆR
1991
„Markmiðið er að fara
út og hreyfa sig og von-
andi sýna konum fram
á hvað það getur verið
skemmtilegt.“
kerfið. Það er því mjög ánægjulegt
að bæjarstjórn Garðarbæjar skuli
hafa ákveðið að veija hluta af því
fé sem er til ráðstöfuar í bænum
til þess að efla íþróttaiðkun kvenna.
Liður í þeirri viðleitni er kvenna-
hlaupið sem haldið verður í dag
kl.14.00. Þar er kjörið tækifæri til
þess að byija að skokka. Það er
engin keppni í kvennahlaupinu, það
er ætlast til að allar konur geti
verið með í hvaða ásigkomulagi sem
þær eru. Við munum ganga,
skokka, hlaupa, dansa eða fara í
hjólastól allt eftir því sem hentar
hverri konu best. Markmiðið er að
fara út og hreyfa sig og vonandi
sýna konum fram á hvað það getur
verið skemmtilegt. Konur, höldum
áfram að verða allra kerlinga elstar
þrátt fyrir breytt lífsskilyrði sem
geta dregið úr hinum langa lífs-
aldri okkar. Það getur verið gaman
að eldast ef líkami og sál eru heil-
brigð.
Myndlistar-
menn mótmæla
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
myndlistarmanna, sem haldinn
var nýlega, mótmælir innheimtu
virðisaukaskatts við sölu lista-
verka í umboðssölu í sýningarsöl-
um og galleríum, þar sem mynd-
listarmenn eru undanþegnir
virðisaukaskatti af sölu verka
sinna.
Vill fundurinn minna á, að við
sölu á bókum, sem einnig eru und-
anþegnar virðisaukaskatti, tíðkast
ekki innheimta af skatti af umboðs-
launum.
Alvarlegast er þó að innheimtan
lækkar verð til myndlistarmanna
og dregur þannig úr tekjumöguleik-
um þeirra, segir í ályktuninni.
PASLODE
loftverkfæri
KAMBS AUMSBYSSUR
NAGLABYSSUR
DÚKKS AUMSBYSSUR
HEFTIBYSSUR
GASBYSSUR
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
Pallar hf.
DALVEG116,
200 KÓPAVOGI.
SÍMAR 641020 -42322
Velkomin íMörkim
Hraustar og fallegar plöntur eru aðalsmerki okkar:
Tré, runnar, fjölærar plöntur og sumarblóm
í blómstrandi og spennandi úrvali
15»**
Gerum ræktunarsamning við smærri
og stærri aðila
• Sendum plöntur hvert á land sem er
• Veitum ráðgjöf um plöntuval
• Opiðlaugardagogsunnudag
frá kl. 9-18:00.
Sumarið er hjú okkur
GRÓDRARSTÖÐIN
STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 814288
(INNST I FOSSVOGI, EKIÐ FRÁ BÚSTAÐAVEG )
viOisvo\r$Aionv fiNtíjH