Morgunblaðið - 22.06.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JUNI 1991
Fer refsiaðgerðum gegn
Suður-Afríku að linna?
Washington, Tókýó. Reuter.
AÐ SÖGN háttsettra embættis-
manna er George Bush Banda-
ríkjaforseti reiðubúinn að aflétta
viðskiptabanni af Suður-Afriku í
■ JOHANNESARBORG
Neðra kjálkabein skepnu sem
gæti hugsanlega verið „týndi
hlekkurinn" í þróunarstiginu á
milli apa og manns fannst fyrir
skömmu í Namibíu í sunnanverðri
Afríku. Hinir bresku, frönsku og
bandarísku vísindamenn sem fundu
kjálkabeinið voru bæði undrandi og
glaðir. „Svo gæti farið að þetta eina
bein fyllti upp í ýmsar gloppur í
þróunarsögu mannsins,“ sögðu
þeir. Einn þeirra, Glenn Conroy,
prósfessor í líffærafræði, sagði að
allt benti til þess að beinið væri um
10 til 15 milljón ára gamalt, „frá
því tímabili sem fornleifafræðingar
vita hvað minnst um“.
■ SEOUL - Fijálslyndi lýðræðis-
flokkurinn, flokkur Roh Tae-woo,
forseta Suður-Kóreu, vann stærri
sigur en spáð hafði verið í sveita-
stjórnakosningum sem haldnar voru
á fimmtudag. Hann fékk um 65%
þeirra 866 sæta sem kosið var um,
en fyrir kosningarnar var talið
líklegt að hann hlyti um 55%. Úrsiit-
in eru mikill sigur fyrir ríkisstjórn-
ina, en litið var á kosningarnar sem
óopinbera þjóðaratkvæðagreiðslu
um störf hennar.
næsta mánuði ef stjórnin þar
bindur enda á deilu við Banda-
ríkjastjórn um pólitíska fanga.
Stjórnin í Japan hefur ákveðið
að láta af refsiaðgerðum í garð
Suður-Afríku sem snúa að mann-
legum samskiptum og menningu.
Leiðtogar suður-afrískra blökku-
manna hafa haldið því fram að allt
að 1.000 fangar séu í fangelsum
sökum stjórnmálaskoðana sinna og
Bandaríkjastjórn er sömu skoðunar.
Suður-afríska stjórnin hefur aftur
á móti sagt að allir pólitískir fangar
hafi verið látnir lausir og þeir fang-
ar sem um ræðir falli ekki undir
þá skilgreiningu.
Talið er að Bush hyggist auka
þrýstinginn á Suður-Afríkustjórn
með því að gefa í skyn að viðskipta-
banninu, sem staðið hefur yfir síðan
1986, verði aflétt fljótlega. Þessi
ágreiningur er nú hið eina sem
stendur í vegi fyrir því að ríkin
geti tekið upp eðlileg samskipti, því
önnur skilyrði Bandaríkjamanna
voru uppfyllt fyrir skömmu.
Stjórnin í Japan ákvað í gær að
aflétta ýmsum höftum í samskipt-
um við Suður-Afríku, en sagði að
viðskiptabannið skyldi standa þang-
aði til stjórn Suður-Afríku hefði
varpað aðskilnaðarstefnunni endan-
lega fyrir róða.
Taro Nakajama, utanríkisráð-
herra Japan, sagði í tilkynningu
eftir stjómarfundinn, þar sem þetta
var samþykkt, að nú væru öll höft
er lytu að ferða-, menningar- og
menntamálum fallin úr gildi.
Aðspurður um hvenær viðskipta-
banninu yrði aflétt svaraði hann:
„Við munum fylgjast náið með því
hvernig gengur að leggja aðskilnað-
arstefnuna endanlega niður og taka
ákvarðanir í samræmi við það.“
Hann sagði einnig að afstaða
Suður-Afríkustjórnar til pólitískra
fanga væri stór þröskuldur fyrir því
að löndin gætu tekið upp stjórn-
málasamband, en það yrði ekki fyrr
en öllum höftum hefði verið aflétt.
Reuter
Borís Jeltsín í þyrpingu fréttamanna er hann kom af fundi með
George Bush forseta í Hvíta húsinu.
Jeltsín jók hróður sinn í Bandaríkjaferðinni:
Bush forðast að styggja
stjónivöld í Sovétríkjmium
Washington. Reuter. Frá ívari Guðmundssyni,
BORÍS Jeltsín, hinn nýkjörni
leiðtogi Rússlands, hlaut betri
móttökur er hann heimsótti
Bandaríkin í vikunni en þegar
hann var þar á ferð fyrir ári.
Almenn skoðun valdhafa og
fjölmiðla í Washington virtist um
þær mundir vera sú að maðurinn
væri vandræðagripur sem tor-
veldaði störf Míkhails Gorbatsj-
ovs Sovétleiðtoga með gagnrýni
TRAOST
VARAHLUTAÞJÓNHSIA
er opinfró klukkan 8-18.
Sumaropnun ó laugardögum frá klukkan 10-12.
WldsOiífý
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -686500
fréttaritara Morgunblaðsins.
sinni án þess að hafa nokkuð
raunhæft fram að færa sjálfur.
Ekki bætti úr skák að framkoma
Jeltsíns sætti þá ámæli, m.a. þótti
hann teyga viskí af full miklum
ákafa. George Bush forseti og
embættismenn hans sýndu
Jeltsín nú fyllstu virðingu en
gættu þess þó vandlega að
styggja ekki Gorbatsjov.
Hrifnir ferðamenn þyrptust um
Jeltsín er hann heimsótti minnis-
merki Abrahams Lincolns og stuðn-
ingsmenn Eystrasaltsþjóðanna
héldu á loft spjöldum við Hvíta
húsið með áletruninni: „Þakka þér,
herra Jeltsín, fyrir að styðja sjálf-
stæðisbaráttu Eystrasaltsþjóða“.
Rússneski forsetinn átti að þessu
sinni rúmlega hálfrar annarrar
stundar fund með Bush en á sam-
eiginlegum blaðamannafundi notaði
Bandaríkjaforseti helminginn af
tíma sínum til að hrósa Gorbatsjov.
Heimildarmenn í Hvíta húsinu hafa
eftir forsetanum að hann telji það
skyldu sína að vera Gorbatsjov
„trúr“ vegna þess sem áunnist hef-
ur í samskiptum risaveldanna und-
anfarin ár. Sjálfur gerði Jeltsín
gestgjöfum sínum auðveldara um
vik með því að leggja þunga áherslu
á stuðning sinn við Gorbatsjov ef
til þess kæmi að harðlínuöflin
reyndu að velta Sovétleiðtoganum.
Jeltsín fullyrti eftir viðræðumar
að nýtt tímabil viðskiptatengsla
hefði runnið upp í samskiptum
Bandaríkjanna og Rússlands en
bandarískir embættismenn telja að
ekkert hafi í reynd breyst. „Ég
hygg að Bush hafi gert skýra grein
fyrir því að við erum reiðubúnir að
starfa með einstökum Sovétlýðveld-
um á þeim sviðum sem nýi sam-
bandssáttmálinn, ef hann verður
samþykktur, gerir slíkt kleift,"
sagði Brent Scowcroft, öryggis-
málaráðgjafi Bush. Hann átti við
samning um stöðu einstakra Sovét-
lýðvelda og tengsl þeirra við alríkis-
stjórnina í Moskvu er Gorbatsjov
hefur reynt að fá samþykktan.
Nokkur lýðveldanna hafna sáttmá-
lanum og vilja algert sjálfstæði.
Ljóst er að Bandaríkjastjórn er
einnig varfærin vegna þess að þótt
sambúð Jeltsíns og Gorbatsjovs sé
nú með skásta móti geta sviptingar
orðið snöggar og óvæntar í sovésk-
um stjórnmálum og fáu að treysta.
Hylltur af almenningi
Þótt stjórnvöld séu varkár er
ekki sama að segja um ýmsa aðra
frammámenn. Hægrisinnar í Was-
hington kepptust um að láta mynda
sig með Jeltsín sem hefur verið
skorinorður í stuðningi við fijálst
markaðskerfi og lýðræði auk þess
sem hann styður Eystrasaltsþjóð-
imar. Robert Dole, leiðtogi minni-
. hluta repúblikana í öldungadeild-
inni, tók á móti Jeltsín á flugvellin-
um og sagðist álíta að Bandaríkja-
menn hefðu verið of seinir að átta
sig á því aukna hlutverki sem ein-
stök Sovétlýðveldi gegndu nú. Dan
Quayle varaforseti snæddi kvöld-
verð með Rússlandsforseta og hældi
honum fyrir „staðfestu í umbóta-
starfínu“. Quayle sagði Jeltsín hafa
hrifið fólk í Bandaríkjunum og taldi
rússneska forsetann gegna mikil-
vægu hlutverki í að halda Gorbatsj-
ov á umbótabrautinni.
Jeltsín hlaut einnig vinsamlegar
móttökur á fundi sem hann átti
með blaðamönnum í Washington á
fímmtudag. Þeim ummælum hans
að hann hefði engan hug á að feta
í fótspor Gorbatsjovs var fagnað
með lófataki og sérstaka athygli
vakti sú yfirlýsing hans að þess
yrði ekki lengi að bíða að Rússar
hættu að styrkja og styðja einræðis-
stjórnir víða um heim svo sem á
Kúbu.
Rao myndar minni-
hlutastjóm á Indlandi
Nýju Delhí. Reuter.
NY minnihlutastjórn undir forystu P.V. Narasimha Rao formanns
Kongressflokksins tók við völdum á Indlandi í gær og hefur hún
sett sér það markmið að leysa margflókinn vanda sem Indverjar
eiga við að stríða; stéttaólgu, trúarbragðadeilur, vopnuð átök við
aðskilnaðarsinna og hrikalega efnahagsörðugleika.
í stjórn Raos sitja 14 ráðherrar
og kemur einna mest á óvart að
Sharad Pawar, helsti keppinautur
Rao um formennsku í Kongress-
flokknum, hefur samþykkt að taka
sæti í stjóminni. Stjórnmálaskýr-
endur sögðu í gær, að ákvörðun
Pawars yrði til þess að styrkja
stöðu stjórnarinnar. Hann mun
sveija embættiseið næstu daga,
eftir að hafa farið til Bombay, við-
skipta- og íjármálamiðstöðvar
Indlands, og afsalað sér starfi for-
sætisráðherra Maharashtra-ríkis.
Skipting embætta í nýju stjóminni
hefur ekki verið gerð opinber en
heimildir hermdu að Pawar yrði
innanríkisráðherra.