Morgunblaðið - 22.06.1991, Qupperneq 37
rÍIÍlÍGljílBLÁÖlÖ’ JÚNí'1*991
9
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
IIÆ IJ-JVl
Þessir hringdu ..
Jóna stendur á miðanum
Undir þurrku á framrúðu á blá-
um bíl, sem stóð við gangstéttina
í Tjamargötu í fyrradag, var stung-
ið miða, sem á hafði verið skrifað
Jóna og símanúmer. Sá sem hér á
hlut að máli er vinsamlegast beðinn
að gera viðvart í síma 636914 eða
31514, sem fyrst.
Eru dýrin alveg réttlaus?
Ragnheiður hringdi:
„Fyrir skömmu var í fréttum að
hundur hefði bitið barn í Húsdýra-
garðinum og var gefið í skyn að
sjálfsagt þyrfti að aflífa hundinn.
En svona lagað gerist ekki nema
ástæða til. Börn stríða oft hundum
og þá gerist þetta. En dýrinu er
alltaf kennt um, það er alltaf
réttdræpt ef eitthvað kemur fyrir.
Þetta er hugsunarháttur sem mér
fínnst ekki réttur. Dýrin hljóta líka
að eiga einhvern rétt.“
Goð þjónusta
Hafdís Bogadóttir hringdi:
„Ég vil þakka starfsfólki flug-
leiða mjög góða þjónustu, sérstak-
lega Adra Hrólfssyni umboðsmanni
Flugleiða á Djúpavogi og starfs-
stúlkunum á aðalskrifstofunni. Það
væri betra ef slík lipurð og þjón-
ustulund, sem einkennir þetta fólk,
mætti manni oftar.“
Læða
Grá læða, um það bil sex mán-
aða, kom í hús 13. júní. Eigandinn
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 618986.
Bíllykill
Bíllykill á kippu merktri Sjóvá
tapaðist 17. júní, sennilega í grennd
við Menntaskólann í Reykjavík.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 71944.
Eyrnalokkur
Eymalokkur, sem er glerklasi
með svörtum kúlum á endum, týnd-
ist við Lækjargötu hinn 17. júní.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 28783.
Næla
Víravirkissilfumæla tapaðist í
Vesturbænum eða við geðdeiid
Landsspítalans. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
23230 eftir kl. 18.
Gullhringur
Gullhringur • með demöntum
glataðist 17. júní í Hafnarfírði.
Upplýsingar í síma 54554.
Gleraugu
Gleraugu töpuðust á leið frá
Baldursgötu að Laugaveg 25 fyrir
skömmu. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 21393 eða
síma 600300.
Úr
Kvenúr tapaðist 13. júní, senni-
lega við Skólavörðustíg eða Freyju-
götu. Upplýsingar í síma 41389 eða
síma 601023.
Kápa
Poki með rauðri kápu með hettu
og breiðum spæl ásamt svörtum
buxum tapaðist í Reykjavík fyrir
nokkru. Finnandi vinsamlegst
hringi í Nínu Þórðardóttur í síma
602859.
Miðstj órnarfundur Alþýðubandalagsins:
Ahersla á samstöðu^
gegn ríkisstjórninni
„MIÐSTJORN Alþýðubandalags-
ins lýsir eindregnum vilja til að
skapa víðtæka sanivinnu allra
þeirra sem vilja mynda sterka
samstöðu gegn hægristjórninni. I
því skyni ber að leggja ríka
áherslu á samvinnu núverandi
stjórnarandstöðuflokka á Alþingi,
svo að þeir geti hvenær sem er
tekið þátt í myndun nýrrar ríkis-
stjórnar," segir í ályktun fyrsta
miðstjórnarfundar Alþýðubanda-
lagsins eftir kosningar, sem hald-
inn var á Selfossi fyrir skömmu.
í ályktuninni er lýst furðu á að
forystusveit Alþýðufíokksins skyldi
„hafa brugðist málstað íslenskra
jafnaðannanna og gengið gegn úr-
slitum kosninganna og vilja stærsta
hluta kjósenda Alþýðuflokksins,“
með myndun núverandi ríkisstjórn-
ar. 4
Af þessum sökum er sagt að
breyttar aðstæður hafí skapast í
málefnum vinstrimanna og þróun
j afnaðarmannahreyfíngarinnar.
„Alþýðubandalagið mun á næstu
mánuðum efna til heimsókna í öll
byggðarlög landsins og ræða við
hópa og einstaklinga í röðum fé-
lagshyggjufólks og jafnaðarsinna,
launafóik á vinnustöðum og ábyrgð-
armenn í atvinnulífí og byggðaþró-
un. Markmið slíkra heimsókna og
viðræðna verður að mynda víðtæka
samstöðu gegn hægri stefnu ríkis-
stjórnarinnar," segir í ályktuninni.
Réttmæt vaxtahækkun?
GEFÐU DOSTIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum viö einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
Það fínnst mörgum óeðlilegt að
vextir á húsnæðismálastjórnarlánum
séu hækkaðir afturvirkt, þar sem
samið hafði verið um tiltekna vaxta-
prósentu er láni var tekið. Ég er að
vísu sammála því að óeðlilegt sé að
hækka vexti afturvirkt eins og nú
er verið að gera varðandi húsnæðis-
stjómarlánin en spumingin er hvort
nokkur annar valkostur var fyrir
hendi. Er ekki lífeyrissjóðunum frem-
ur um að kenna en ríkisstjórninni -
þeir neita alfarið og hafa ávalt neitað
■ að lækka sína vexti, sem mig minnir
að séu 7,5 prósent, og verður ríkis-
sjóður því áfram að greiða á milli
svo endar nái saman með þessi lán.
Hækkun vaxta á húsnæðislánum
getur líka verið réttlætismál. Tökum
dæmi sem sannar þetta. Margir sem
fengið hafa inni í verkamannabústöð-
um þegar þeir voru tekjulitlir, fólk
sem ef til vill var að ljúka námi eða
nýbúið að ljúka því og gat þetta fólk
því sýnt framá mjög lágar tekjur
þegar það fékk íbúðimar. Staðreynd-
in er sú að margt að þessu fólki er
nú komið í mjög góðar tekjur og
hlýtur því að þurfa að endurskoða
dæmið, þar sem ekkert réttlætir
lengur að það njóti þvílíkra vildarkj-
ara umfram aðra. Það er óréttlátt
að þetta fólk komist upp með að
borga aðeins 1% vexti af sínum hús-
næðislánum meðan aðrir burðast
með svimandi afborganir af húsbréf-
um, það hljóta allir að sjá. Þarna
þarf reglulega að leiðrétta, skilja
sauðina frá höfrunum ef svo mætti
segja.
Ég þekki að minnsta kosti dæmi
þess að hátekjufólk búi í verka-
mannabústöðum og greiði aðeins
þessa lægstu vexti. Þetta sjá allir
að er hrópandi óréttlæti - þetta kerfí
var sett á laggirnar til að gera lág-
tekjufólki kieift að koma yfír sig
þaki en ekki til að þeir sem hafa há
laun geti haft það ennþá betra. En
svona er það í samfélaginu, það er
alltaf viss tilhneiging til að misnota
allt en það í sjálfu sér réttlætir ekki
misnotkun.
Ég verð sjálfur fyrir nokkru fjár-
hagstjóni vegna vaxtahækkunarinn-
ar en verði framangreindar leiðrétt-
ingar gerðar get ég vel sætt mig við
það. Vona ég bara að fjármálaráð-
herra takist að rétta við hallann á
ríkissjóði án þess að grípa til frekari
niðurskurðar. Gunnar
ÞJÓÐÞRIF
BANOMAO ISUNSXM BUlH
Dósakúlur um allan bæ.
Enginn má fara út á bát á ám og vötnum án þess að hafa björgunar-
vesti. Þau þurfa að snúa þeim sem þau nota sjálfkrafa í flotlegu með
öndunarfæri fyrir vatnsfletinum. Öll eiga þau að vera með endurskins-
borðum, flautu og ljósi.
NYTTOG SPENNANDI FYRIR ELDRI BORGARA
ÍRLAND
A
- EYJAN GRÆNA
með
Hermanni
Ragnari
Stefánssyni
Brottför
5. júlí
- 2 vikur
Aðeins 2ja klst.
beint flug til Cork
með nýrri þotu Flugleiða.
Gisting á glæsilegu
4ra stjörnu hóteli.
Veri kr. 57.400
fyrir manninn í tveggja manna
herbergi
• TmsiLvatspiuscs
THE
SILVER
SPRINGS
með öllum þægindum, í stórum
garði rétt hjá ánni Lee, og stutt frá
miðborg Cork, þar sem hægt er
að gera ótrúlega góð kaup í stórum
vöruhúsum eða tískuverslunum.
Kynnisferðir með þaulkunnugum fararstjórum Veraldar,
Ásu Maríu Valdimarsdóttur og Andrési Eiríkssyni.
Meira en helmingur sæta er þegar seldur - takmarkað sætamagn.
nmmflsillfliN
FLUGLEIDIR
AUSTURSTRÆTI17SÍMAR (91)62 20 11 4 62 22 00
AKUREYRI
Tölvutækni - Bókval hf.,
Koupvongsstræti 4,
sími 96-26100
VESTMANNAEYJAR
Friðfinnur Finnbogoson,
Eyjobúð,
simi 98-11450/11166.
KEFLAVÍK (SAFJÖRÐUR AKRANES SELFOSS
Aðalstöðin hf., Bílosolan Elding sf., Ásgeir R. Guðmundsson, Austurgarður,
Hofnorgötu 86, Skeiði 7, Gorðalundi 2, Austurvegi 56,
sími 92-11518. simi 94-4455. simi 93-12800. sími 98-21626/22556.