Morgunblaðið - 22.06.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1991
KARATE
Ólafur Valvík rádinn
landsliðsþjálfari
Olafur Valvík hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari í karate til tveggja
ára, en hann var síðast landsliðsþjálfari 1985.
íslenski landsliðshópurinn keppir við enskan hóp, sem er hér staddur,
í Hagaskólanum kl. 18 í dag. Boðið verður upp á æfingu með enska
hópnum á gervigrasvellinum í Laugardal kl. 13 í dag og eru allir karate-
men'n velkomnir á æfínguna.
FRJALSAR IÞROTTIR
Buirell mætir ekki Lewis og Johnson
Leroy Burrell, sem setti nýtt
heimsmet í 100 m hlaupi á
dögunum, 9,90 sek., mun ekki
taka þátt í 100 m hlaupi í Grand
Prix-móti í Lille í Frakklandi 1.
júlí, þar sem hann átti að keppa
við tvo fyrrum heimsmethafa,
Carl Lewis og Ben Johnson.
„Leroy er ekki tilbúinn til að
hlaupa 100 metrana strax. Ég er
honum sammála,“ sagði þjálfar-
inn Tom Tellez, sem þjálfar bæði
Burrell og Lewis.
Hinn 24 ára Burrell skaust
heldur betur upp á sjömuhiminn-
inn þegar hann bætti með Lewis
14. júní. „Þetta er nýtt fyrir Bur-
rell. Hann þarf hvíid frá 100 m
hlaupi áður en hann byijar að
undirbúa sig fyrir heimsmeistara-
mótið í Tókýó,“ sagði Telliz.
Burrell mun keppa í 200 m
hlaupi í Lille.
POOL
Billiardstofan
Hverfisgötu 46.
ÚRVALS bón- og
hreinsivörur!
Olíulélagið hf
Ódýrar
RAFMAGNS-
TALÍUR
100-800 kg
fyrir vörulagera,
verkstæði,
byggingaverktaka.
bændurog fleiri.
Eigum einnig
fyririiggjandi:
Steypuhrærivélar.
Rafstöðvar.
Flísasagir.
Loftþjöppur.
VerkstáeðLskrana.
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
Fallar hf.
Dalvegi 16 -
200 Kópavogi.
Símar 42322 - 641020
TENNIS/WIMBLEDON
Sá tíundi hjá
Navratilovu?
Stefan Edberg og Steffi Graf með
bestu hlutföllin íveðbönkunum
MARTINA Navratilova byrjar á
mánudaginn titilvörn sína og
stefnir að tíunda meistaratitli
sínum á frægasta tennismóti
heims, Wimbledon. Hún er sett
í fjórða sæti á styrkleikalista
mótsins, er afar ósátt við það
og telur sig eiga betra skilið:
„Eg veit ekki hvað ég þarf að
vinna mótið oft til að gera þeim
grein fyrir þessu," sagði
Navratilova eftir að hafa sigrað
á sterku móti í Eastborne.
Þrátt fyrir að Navratilova hafi
tapað nokkuð oft á þessu ári,
segir hún að það sé ekki mark-
tækt: „Það er allt annað að tapa á
leirvelli en á grasi,“ segir hún og
flestir eru sammála um að hún sé
enn í hópi þeirra bestu á grasi.
Á Eastborne-mótinu, sem fram
fer á hveiju ári, skömmu fyrir
Wimbledon, sýndi Navratilova hvað
í henni býr. I úrslitaleiknum sigraði
hún Amaöndu Coetzer 6:0 og 6:1
á rúmlega 40 mínútum.
Monica Seles er efst á listanum
en hún hefur ekki staðið sig vel á
grasi. Steffí Graf er í 2. sæti og
Gabriela Sabatini í 3. sæti. Zina
Garrison, sem sigraði Seles og Graf
í fyrra, er í 8. sæti.
Meistararnir mætast
Stefan Edberg er í efsta sæti í
karlaflokki á sama lista og næstir
koma Boris Becker og Ivan Lendl.
Það þykir eðlileg röð. En í fimmta
sæti er mjög umdeildur kappi,
Andre Agassi, sem hefur aðeins
einu sinni keppt á Wimbledon, árið
1987, og féll þá út í 1. umferð.
Pat Cash, sem sigraði á mótinu
árið 1987, er ekki á listanum, þrátt
fyrir að hafa leikið vel að undan-
förnu og sama er að segja um John
McEnroe og Jimmy Connors. Þessir
þrír eru allir settir í sama fjórðung,
ásamt Stefan Edberg, og eru marg-
Martina Navratilova.
Stefan Edberg segist eiga von á
að verða í erfiðleikum með „gömlu
mennina." „Menn eru lengi að læra
að spila vel á grasi og þeir eldri
standa betur að vígi,“ segir Edberg.
Hann bendir á að fyrir fjórum árum
voru tvö risamótanna á grasi, opna
ástralska ■ meistaramótið og
Wimbledon. „Cash verður til dæmis
mjög erfiður og hann er einn af
þeim sem leika alltaf vel á grasi,“
segir Edberg.
Þrátt fyrir þessar vangaveltur er
Edberg í með bestu hlutföllin (13:8)
í bresku veðbönkunum og þeir eru
oft áreiðanlegir. Næstir koma Boris
Becker (7:4), Ivan Lendl (11:2) og
Andre Ágassi, Pat Cash og Pete
Sampras (14:1). Steffi Graf stendur
best kvennanna með 13:8 en næst-
ar eru Monica Seles (9:4), Gabriela
Sabatini (4:1) og Martina Navratil-
ova (9:2).
Gabriela Sabatini verður í sviðsljósinu í Wilbledon.
ir ósáttir við að setja fjóra meistara
í sama hluta.
Þeir gömlu standa betur
FOLK
Frá
JóniHalldóri
Garðarssyni
ÍÞýskatandi
■ GERHARD Mayer, forseti
Stuttgart, hélt hóf fyrir leikmenn
liðsins eftir síðasta leikinn í Bun-
desligunni á laugardaginn. Þar voru
nokkrir leikmenn
liðsins kvaddir. Þeir
sem fara frá liðinu
nú eru; Buchwald,
Schmaler-bræður-
inr, Jiiptner, Strehmel, Hart-
mann og Allgöwer, sem er hættur.
■ BAYER Uerdinegn og Herta
Berlín hlutu það vafasama hlut-
skipti að falla úr Bundesligunni.
Upp í Bundesliguna koma Schalke
og MSV Duisburg úr vesturdeild
og Hansa Rostock og Dinamo
Dresden úr austurdeild. St. Pauli,
sem varð í 3. neðsta sæti í Bundesl-
igunni og Stuttgart Kickers þurfa
að spila um laust sæti í deildinni.
■ 20 lið verða í Bundesligunni
næsta keppnistímabil í stað 18 á
síðasta tímabiíi. Deildarkeppnin
hefst 3. ágúst.
■ ULF Kirsten, sem lék með
Leverkusen síðasta tímabil,_hefur
gert samning við Verona á Italiu.
Hann er fyrsti Austur-Þjóðveijinn
sem leikur á Italíu.
■ BA YERN Munchen hefur fest
kaup á tveimur brasilískum landsl-
iðsmönnum fyrir komandi keppn-
istímabil. Þeir eru Fernando da
Silva frá Sao Paulo og Mazinho
frá Bragantino.
■ ARI Haan, þjálfari NUrnberg,
hefur verið ráðinn þjálfari Stand-
ard Liege í Belgíu. Haan lék með
Standard á sínum tíma er Ásgeir
Sigurvinsson fórtil Bayern Munc-
hen.
■ GUMMERSBACH varð um
síðustu helgi Þýskalandmeistari í
handknattleik. Liðið vann Magde-
burg á heimavelli 18:15 en tapaði
á útvelli 16:14. Finninn Rune Er-
land var markahæsti leikmaður
Gummersbach í síðari leiknum í
Magdeburg með 6 mörk.
FELAGSLIF
KR vill land á Korpúlfs-
staða- og Blikastaðalandi
STEFÁN Haraldsson, for-
maður knattspyrnudeildar
KR, segir í grein í leikskrá KR
að farsælla sé fyrir nýbyggð
íbúðahverfi að þar starfi rót-
gróin og vel skipulögð
iþróttafélög. Því skorar hann
á væntanlegan formann KR
að beita sér fyrir því að KR
fái land miðsvæðis á Korp-
úlfsstaða- og Blikastaðalandi.
„Landið þarf að rúma a.m.k.
7-8 knattspyrnuvelli, 2
íþróttahús og landrými fyrir
aðrar útiíþróttir, keppnisfólk
og almenning."
Stefán segir m.a. að reynsla
undanfarinna 30 ára sýni að
heilar kynslóðir alist upp í nýjum
hverfum án þess að njóta viðun-
andi skilyrða til íþrótta. Ástæðan
sé fyrst og fremst sú að í stað
þess að fela félögum með sterka
innviði að annast skipulag og
uppbyggingu hafi verið ýtt undir
stofnun grasrótarfélaga, sem hafi
byijað á núlli án aðstöðu og
reynslu. Þau vanti stuðningsmenn
og félagslegar hefðir.
Stefán segir ennfremur að þrátt
fyrir þetta verði rætur KR ávallt
í Vesturbænum, en þar vanti fé-
lagið aukið æfingasvæði nú þeg-
ar, viðbótarland fyrir knattspyrnu
og nýtt íþróttahús. Hann bendir
á tvo möguleika í þessu sam-
bandi; annars vegar Þormóðs-
staðaland, milli Þorragötu og Suð-
urgötu, sem hefur ekki verið
skipulagt af borginni, en sé notað
til knattspyrnuiðkunar, og hins
vegar að stækka mætti með upp-
fyllingu opið svæði við Faxaskjól
og Ægisíðu.
Félög á faraldsfæti
íþróttafélög í Vesturbænum í
Reykjavík hafa skipt um aðsetur
vegna þrengsla. Til að mynda
flutti Víkingur af Grímsstaðar-
holtinu í Hæðargarðinn, Þróttur
fór frá sama stað að Holtavegi
við Sund, Valur fór frá melunum
að Hlíðarenda, ÍR frá Túngötu í
Breiðholtið og Fram úr miðbæn-
um í Skipholtið og reyndar þaðan
síðar i Safamýrina. Fram sótti um
nýtt féiagssvæði í Grafarvogi, en
hætti við í vetur.
Um helgina
Tennis
Úrslitaleikirnir í einliðaleik kvenna
og karla í Wilson-tennismólinu fara
fram á tennissvæði Víkings kl. 13
og 14 á morgun. Mótið er eitt af
fjórum stigamótunum í tennis.
Sund
Alþjóðasundmót Ægis heldur áfram
í dag og morgun í Laugardalssund-
lauginni. Keppni hefst báða dagana
kl. 15.
ÍR-dagurinn
ÍR-dagurinn verður á morgun á
svæði IR í Mjódd. Dagskrá dagsins
hefst kl. 14.