Morgunblaðið - 03.09.1991, Side 28

Morgunblaðið - 03.09.1991, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER; 1991 Ríkisstjórn Póllands: Farið fram á sér- stakt tilskipanavald Varsjá. Reuter. RÍKISSTJÓRN í Póllands sendi í gær neðri deild þingsins frumvarp til samþykktar þar sem farið er fram á að stjórninni verði veitt sérstakt tilskipanavald, þannig að ákvarðanir varðandi brýn efna- hagsmál þurfi ekki að fara í gegnum þingið. Þetta er gert til að komast úr þeirri sjálfheldu sem upp er komin og felst í því að neðri deild þingsins hefur neitað að samþykkja frumvörp sem miða að því að hraða efnahagsumbótum í landinu. Heimildarmaður Reuters-frétta- stofunnar sagði í gær að stjórnin myndi, á sérstökum fundi, sem halda á í vikunni, fara fram á að breytingar verði gerðar á stjórnar- skránni sem miða að því að veita framkvæmdavaldinu aukin völd til frambúðar. Jan Krzystztof Bielecki forsætis- ráðherra baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á föstudag og sagði. að kommúnistar, sem var á sínum tíma úthlutað ákveðnum hluta þing- sæta, notuðu aðstöðu sína til að spoma við umbótum. Eftir harðar umræður hafnaði pólska þingið á laugardag lausnarbeiðni Bieleckis og Samstöðustjómar hans. Atkvæði féllu 211 gegn 114, Bielecki í vil. Hann sagði að enn væri eftir að leysa ýmis vandamál vegna deilna við kommúnista, er nú kalla sig sósíalista, og stuðnings- menn þeirra en þessi afdráttarlausa Grænland: niðurstaða gerbreytti þó ástandinu. Stjórnin hefur borið fram tillögur um víðtækan niðurskurð ríkisút- gjalda vegna gífurlegra fjárhags- vandræða ríkissjóðs en ekki getað fengið þær samþykktar. Fyrstu al- frjálsu kosningarnar í landinu eru fynrhugaðar í lok október. í gær ræddust Bielecki og Helm- ut Kohl, kanslari Þýskalands, við í síma um að veita Sovétríkjunum matvælaaðstoð. John Major, forsætisráðherra Bretlands, ræðir við Li Peng, forsætisráðherra Bretlands, í Alþýðuhöll- inni miklu í Peking í gær, er þriggja daga heimsókn hans til Kína hófst. John Major, forsætisráðherra Bretlands, heimsækir Kína: Segir tímabært að binda enda á einangrun Kínveija Pekíng, Moskvu. Reuter. Refsað fyrir hnúfubaksdráp Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. LÖGREGLAN í Kulusuk á aust- urströnd Grænlands hefur kært 19 manns í tengslum við dráp á hnúfubak siðastliðinn föstudag. Að sögn grænlenska útvarpsins tóku að minnsta kosti 14 bátar þátt í eltingarleik við hvalinn sem drepinn var með riffilskotum. Hnúfubakur er friðaður með öllu, hvorki má veiða hann með riflum né skutlum. Mennirnir sem veiddu hnúfubakinn sögðust hafa villst á honum og hrefnu sem takmarkaðar veiðar eru heimilar á. Grænlensk yfirvöld hafa ákveðið að hnúfubaksdrápið muni kosta byggðimar við austurströndina all- an hvalkvótann sem eftir er að veiða á árinu. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, kom í þriggja daga opin- bera heimsókn til Kína í gær og sagði að tímabært væri að binda enda á einangrun landsins. Hann er fyrsti vestræni þjóðhöfðinginn sem heimsækir Kína frá því hermenn drápu hundruð, eða jafnvel þúsundir, mótmælenda á Torgi hins himneska friðar í Peking 4. júní 1989. Major fylgdist með hersýningu á Torgi hins himneska friðar og stóð þá við hlið Lis Pengs, forsætisráð- herra Kína, sem talinn er hafa fyr- irskipað árásina á mótmælendurna. „Kínveijar hafa verið einangraðir um tíma. Fólk verður að koma til þeirra og segja þeim augliti til aug- litis hvað heimsbyggðinni finnst," sagði Major við blaðamenn við komuna til Peking. Hann kvaðst ætla að vekja máls á ástandinu í mannréttindamálum í Kína, en kín- versk stjómvöld hafa kveðið niður hvers konar andóf með hörku og látið handtaka hundruð manna sem tóku þátt í mótmælunum 1989. í ráði er að Major undirriti í dag samning við kínversk stjórnvöld um að lagður verði flugvöliur fyrir 16,3 milljarða dala (820 milljarða ÍSK) í bresku nýlendunni Hong Kong, sem verður færð undir stjórn Kínveija árið 1997. Breskir emb- ættismenn sögðu að breska stjórnin hefði samþykkt heimsóknina er samið var við kínversk stjórnvöld um flugvöllinn. Ferð Majors til Kína hefur sætt harðri gagnrýni ýmissa breskra blaða. Major kom til Kína eftir tíu klukkustunda heimsókn til Moskvu, þar sem 'hann ræddi við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta og Borís Jeltsín, forseta Rússlands, á sunnu- dag. Hann sagði að þeirri heimsókn lokinni að hann teldi að Gorbatsjov og Jeltsín gætu unnið saman til að bjarga efnahag Sovétríkjanna. Breski forsætisráðherrann ræddi einnig breytingarnar í Sovétríkjun- að spenna kynni að skapast við um við ráðamenn í Kína í gær. Li landamæri ríkjanna vegna umróts- Peng kvaðst hafa áhyggjur af því ins í Sovétríkjunum. Norskir bankar tapa milljörðum króna Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. MEIRI erfiðleikar hrjá norska banka en nokkru sinni frá kreppuárun- um á þriðja áratugnum. Til þess að bjarga stærsta banka landsins, Kreditkassen, frá þroti verður ríkissjóður til dæmis að leggja fram 2,1 milljarða, jafnvirði 18 milljarða ISK, af skattfé almennings. Allir stærstu bankar og fjárfest- ingasjóðir Noregs hafa verið reknir með umtalsverðu tapi. Nemur það tugum milljarða norskra króna á síðustu fimm árum. Fyrr á árinu varð þriðji stærsti banki landsins, Fokus Bank, 11,7 milljarða ÍSK úr tryggingarsjóði bankanna, opinberum neyðarsjóði sem ætlað er að leysa vanda bank- anna, vegna erfiðleika sinna. I síðustu viku kom svo röðin að Kreditkassen. Þá var birt uppgjör fyrstu sex mánuði ársins og í ljós kom að tapið þann tíma nam 1,5 milljörðum króna, eða 13,5 milljörð- um ISK. Samdægurs sagði Sverre Walter Rostoft, æðsti stjórnandi bankans upp starfi. Svenska Dagbladet: Pankín var á mála hjá KGB BORÍS Pankín, nýskipaður utanríkisráðherra Sovétríkjanna, var um árabU i þjónustu sovésku öryggislögreglunnar KGB. Að sögn Svenska Dagbladet var Pankín yfirmaður þeirrar deildar KGB, sem hefur það verkefni að koma á framfæri áróðri og villandi upplýsingum á Vesturlöndum. Þegar þegar harðlínumenn reyndu að komast til valda 19. ágúst var Pankín sendiherra í Prag og gagnrýndi hann valda- ránið harkalega ólíkt ýmsum starfsbræðrum sínum, sem ýmist lýstu yfir stuðningi, sögðu fátt eða fóru huldu höfði á meðan myndir af Míkhafl Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna, voru fjarlægðar af veggjum sendiráða. Pankín var valinn utanríkisráð- herra án mikils fyrirvara. Sam- starfsmenn Edúards Shevardnad- zes, fyrrum utanríkisráðherra, segja að Gorbatsjov hafí gert mis- tök þegar hann valdi Pankín án þess að hafa samráð við nema nokkra menn. Sjálfur hefur She- vardnadze farið varlega í ummæl- um sínum um Pankín og túlkar Svenska Dagbladet það sem svo að hann hefði viljað láta skipa annan mann í stöðuna, jafnvel Alexander Besmjertnykh, sem féll í ónáð eftir valdaránið. í Svenska Dagbladet er því haldið fram að hann hafí ætíð verið leiðitamur stjórnvöldum í Moskvu. í viðtali, sem dagblaðið tók við Pankín í nóvember 1984, kvaðst hann kenna í bijósti um það fólk, sem mótmælti innrás Sovétmanna í Afganistan: „Ég finn til með þessu fólki á sama hátt og ég finn til með rugluðu fólki.“ Pankín hélt því ætíð fram þegar hann var í Svíþjóð að inn- rásin hefði verið lögleg. Pankín reis til metorða á tímum Brezhnevs. Árið 1965 varð hann aðalritstjóri dablaðsins Komso- molskaja Pravda og árið 1973 varð hann yfirmaður „höfundar- réttardeildar“ KGB. Opinber til- gangur þeirrar deildar er að greiða fyrir samskiptum sovéskra rithöfunda við bókaforlög erlend- is. Talið er að deildin hafi einnig haft það verkefni með höndum að koma fyrir starfsmönnum KGB undir fölsku flaggi. Bæði deildin og Pankín flækt- ust í hneykslismál í Grikklandi árið 1984. Þá var KGB sökuð um að hafa fjármagnað gríska frétta- ritið Eþnos. í staðinn birti Eþnos sovéskan áróður, kallaði Berlín- armúrinn „friðarmúr" og sagði Sovétríkin „fyrsta friðarríki sög- unnar“. Pankín var sagður hafa verið tengiliður deildarinnar og ritstjórnar blaðsins. Pankín var gerður að sendi- herra í Svíþjóð árið 1982. Þá voru samskiptin milli Svía og Sovét- manna stirð vegna sovéska kaf- bátsins U137, sem tók niðri fyrir utan Karlskrona. Pankín var falið það verkefni að lappa upp á sam- skipti Svía og Sovétmanna. Á meðan Pankín sór og sárt við lagði að sovéskir kafbátar hefðu ekki rofið sænska landhelgi upphófust miklar kafbátaveiðar í sænska skeijagarðinum. Þýska dagblaðið Frankfurter Borís Pankín, utanríkisráð- herra Sovétrílqanna. Allgemeine dregur upp aðra mynd af Pankín. Þar segir að honum hafí tekist að draga úr spennunni milli Svía og Sovétmanna þrátt fyrir hið þráláta kafbátamál. Hann hafí lagst á sveif með Gorb- atsjov þegar eftir að hann komst til valda árið 1985. Jafnframt hefði.hann stundað sænskt menn- ingarlíf og haft áhuga á sænskum viðskiptum. Síðustu 115 mánuðina nemur uppsafnað tap Kreditkassen 3 millj- örðum norskra króna. Endurspegl- ast staða bankans meðal annars í lækkun hlutabréfa og hefur hlutur- inn lækkað úr 119 krónum í 15 krónur á aðeins tveimur mánuðum. Um tíma hugðist verðbréfamarkað- urinn í Ósló hætta viðskiptum með hlutabréf í bankanum en frá því var fallið í síðustu viku. Sverre Waiter Rostoft er ekki fyrsti bankamðaurinn sem missir starf sitt vegna erfiðleika bank- anna. Alls hefur rúmlega 3.500 bankamönnum verið sagt upp vegna þrenginga bankanna frá 1988 og er búist við að talan verði komin í 5.000 um næstkomandi áramót. Allir norsku bankarnir hafa boðað frekari uppsagnir og lokun mikils fjölda útibúa. Bankakreppan í Noregi á rætur að rekja tiL'mikilia uppgangstíma í upphafi níunda áratugarins. Með nýrri peningastefnu samsteypu- stjórnar undir forystu Káre Willochs, formanns Hægriflokksins, fengu bankarnir fullt útlánafrelsi. Útlán þeirra jukust um 200 millj- arði norskra króna. Hækkandi olíu- verð leiddi til stóraukinnar eftir- spumar eftir lánsfé. Þróunin snerist við með verðhruni á olíu eftir 1985. Tryggingar að baki útlánum stórm- innkuðu vegna verðhruns á fast- eignum og glötuðu bankarnir þann- ig lánsfé sínu svo nam milijörðum króna á ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.