Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 36
MORGUNBIjAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR i3l SEPTEMBER 1991
í$6
Fyrirtæki
Aukinn áhugi stjóm-
enda á orkuspamaði
STJÓRNENDUR fyrirtækja hafa á síðustu árum í auknutn mæli
beint sjónum sínum að smærri kostnaðarþáttum í rekstri fyrirtækja
sinna, með sparnað og hagræðingu í huga. Orkusparnaður er einn
þeirra þátta þar sem ná má fram umtalsverðum sparnaði, og hefur
Félag íslenskra iðnrekenda undanfarin misseri lagt áherslu á vekja
fyrirtæki til umhugsunar um orkusparnað. Félagið hefur nú með
stuðningi Iðnlánasjóðs gefið út bók um skynsamlega orkunotkun,
'þar sem farið er yfir helstu þætti orkunotkunar i fyrirtækjum sem
og heimilum, og möguleika sem bjóðast til úrbóta í þeim efnum.
Arnþór Þórðarson rafmagnsverk-
fræðingur, sem sá um útgáfu bók-
arinnar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í kjölfar aukins stöðug-
leika í rekstri fyrirtækja, svo sem
hvað fjármagnskostnað varðar, hafi
stjórnendum gefist aukið i'áðrúm
til að gefa smærri kostnaðarþáttum
gaum. „Orkukostnaður er ekki stór
þáttur í rekstri fyrirtækja, líklega
víðast hvar á bilinu 1-4%,“ sagði
Arnþór. „Orkukaupum fylgir hins
vegar fastur kostnaður sem hægt
er að lækka, og af þeim sparnaði
nýtur fyrirtækið góðs til langframa.
‘Þannig er mér kunnugt um fram-
leiðslufyrirtæki sem sparar nú þeg-
ar 2-3 milljónir í orkukostnað á
ári, þrátt fyrir að endurbótum á
orkunýtingu sé ekki að fullu lokið
þar.“ Arnþór sagði, að einfaldir
hlutir eins og að slökkva á vélum
Leiðrétting
Misskilnings gætti í frétt viðskipta-
blaðsins á síðasta fímmtudag, þar
sem fjallað var um útgáfu nýrrar
handbókar fyrir viðskiptahugbún-
aðinn Bústjóra. í fréttinni sagði að
um 100 íslensk fyrirtæki hefðu tek-
ið Bústjóra í notkun sína. Hið rétta
er að fyrirtækin eru rúmlega 300.
Hins vegar hafa um 100 aðilar þeg-
ar keypt útgáfuna Bústjóra 3 þrátt
fyrir að hún sé ekki enn komin á
markað. Opnum á þeirri útgáfu
verður næsta föstudag. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
sem ekki eru í notkun, slökkva ljós
þegar þeirra væri ekki þörf o.s.frv.
gætu skipt miklu máli þegar orku-
sparnaður væri annars vegar. „Með
ábyrgu eftirliti með þessum hlutum
næst ekki aðeins fram allt að helm-
ings lækkun á orkuþörf, heldur
einnig aukning á endingu viðkom-
andi rafmagnstækja. Þá eru hlutir
eins og einangrun röra sem heitt
vatn fer um eitt af því sem víða
mætti bæta. Af hveijum óeinangr-
uðum metra af slíku röri hlýst
óumflýjanlega nokkur kostnaður."
Arnþór sagði, að ólíkt því sem
gerðist viða erlendis væri lítill áróð-
ur fyrir orkusparnaði rekinn af
orkuyfirvöldum hérlendis. Það
kæmi væntanlega til af því, að er-
iendis er orka framleidd í kola-, og
olíuorkuverum, og mikilvægt væri
fyrir stjórnvöld þar að stilla raf-
orkunotkun í hóf. „Af þessum sök-
um hefur fólk ekki verið mjög með-
vitað um orkunotkun og hvernig
hafa má stjórn á henni,“ sagði hann.
ORKUSPARNAÐUR — Aðstandendur bókarinnar Orku-
sparnaður. Arnþór Þórðarson er vinstra megin og við hlið hans stend-
ur Sveinn Frímannsson, aðalhöfundur bókarinnar.
„Markmiðið með bókinni er ekki
síst að auðvelda fólki að takast á
við þennan kostnaðarþátt, jafnt á
heimilum og í fyrirtækjum. Við
höfum reynt að safna þarna saman
Iðnaður
Samþykkt að auka hluta-
fé Islensks skinnaiðnaðar hf.
Á fyrsta aðalfundi íslensks skinnaiðnaðar hf. nýverið var samþykkt
að heimila stjórn félagsins að auka hlutafé um 100 milljónir króna.
Jafnframt voru samþykktar breytingar á lögum félagsins þess efnis
að aflétt sé öllum hömlum um meðferð hlutabréfa þess. Um 7,6 millj-
óna hagnaður varð fyrstu sex mánuði ársins en heildartekjur námu
um 395,3 miiljónum á sama timabili.
íslenskum skinnaiðnaður var
stofnaður 15. desember sl. og tók
yfir rekstur Skinnaiðnaðar Sam-
bandsins í upphafi ársins. í frétt frá
félaginu kemur fram að unnið hefur
verið á fullum afköstum síðustu
mánuði og hafa pantanir borist í nær
allt magn síðustu slátrunar. Sam-
hliða hefðbundinni framleiðslu er
stöðugt unnið að nýjungum varðandi
sútun, liti og áferðir á mokkaskinn
og leður. Helstu markaðir eru Ítalía,
Bretland, Þýskaland og Nprðurlönd.
Um 250 manns starfa hjá íslenskum
skinnaiðnaði. Eignir félagsins í lok
júní voru 1.190 milljónir og eigið fé
291,8 milljón. Hefur eigið fé aukist
um 21,8 milljón frá áramótum.
í stjóm sitja þeir Guðjón B. Ólafs-
son, Hjörtur Eiríksson og Jóhannes
Sigvaldason.
Könnun
Hagnaður í flestum greinum
AFKOMA fyrirtækja í flestum
atvinnugreinum á árinu 1990
batnaði frá árinu á undan að
HESTAMANNAFELAGIÐ
FÁKUR
heldur almennan félagsfund í félagsheimilinu
föstudaginn 6. september kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Heimild til stjórnar um sölu eignar.
3. Onnur mál.
Stjórnin.
undanskildum fyrirtækjum í
byggingariðnaði, innlánsstofn-
unum og tryggingafélögum.
Þetta kemur fram í afkomukönn-
un Þjóðhagsstofnunar.
Þjóðhagsstofnun bar saman árs-
reikninga 794 fyrirtækja og leiddi
sú athugun í ljós, að bókfærður
hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrirtækjanna í heild sem hlutfall
af tekjum jókst um 4% frá árinu
1989, eða úr 1,2% í 5,2% árið 1990.
Um er að ræða hagnað fyrir
greiðslu tekju- og eignaskatta og
er ekki tekið tillit til óreglulegra
tekna og gjalda.
Þjóðhagsstofnun endurmat einn-
ig fjármagnskostnað beggja áranna
til að fá raunhæfari mynd af af-
komu ársins þar sem verðlag innan
ársins 1990 hækkaði meira en
gengisbreytingar og hins vegar
vegna þess að verðbreytingar á
árinu 1990 urðu minni en á árinu
á undan, sem m.a. hafði áhrif á
gjaldfærslu birgða. Stofnunin áætl-
ar því raunvexti bæði árin sem leið-
ir í ljós að afkomubati fyrirtækj-
anna hafi verið 1,5% samaborið við
4% bata sem fram kemur í ársreikn-
ingum.
Samkvæmt ársreikningum fyrir-
tækjanna var eiginfjárhlutfall
þeirra 19% í árslok 1989 en hafði
hækkað í 22% í lokj síðasta árs.
á einn stað upplýsingum um þessi
mál, og reynum einnig að miðla
reynslu sem fengist hefur hérlendis
og erlendis," sagði Arnþór að lok-
um.
-r .-í
ÍSLEMSKT ATVIMIUULÍF
1990
1. BIIUDi
iMUMOÖKAW hf 03 vlSKWaWG
m
HIUIJJ
*
Islensktat-
vinnulíf
komið út
ÁRSRITIÐ íslenskt atvinnulíf er
komið út. Sú breyting verður nú
á að ritið kemur út í tveimur bind-
um, og er það fyrra bindið sem
nú verður fáanlegt. í íslensku at-
vinnulífi er að finna ársreikninga
fyrirtækja, og raktir helstu þættir
starfseminnar.
Það bindi sem nú kemur út hefur
að geyma umfjöllun um fyrirtæki á
hlutabréfamarkaði, banka, spari-
sjóði, verðbréfafyrirtæki, eignaleigur
og tryggingafélög. Seinna bindi árs-
ritsins er væntanlegt í lok septemb-
er. Ritstjóri íslensks atvinnulífs er
Sigurður Jóhannesson, prófessor, en
útgefendur eru Talnakönnun hf. og
Vísbending.
VERKSMIÐJUUTSALA
frá 3. september í húsi Sjóklæðagerðarinnar Skúlagötu 51,1. hæð.
Útlitsgallað og eldri gerðir af sport- og vinnufatnaði.
STÍGVÉL
REGNFATNAÐUR
barna, kvenna, karla
SJÓFATNAÐUR
NYLONFATNAÐUR
KAPP-FATNAÐUR
barna, kvenna, karla
VINNUFATNAÐUR
samfestingar, buxur, jakkar, sloppar
VINNUVETTLINGAR
SEXriU OG SEX NORÐUR
Oplð virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 10-14. sjóklæðagerðin hf • skúlagötu 51