Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur
námskeid
í skyndihjálp
sem hefst fimmtudaginn 5. september í
Fákafeni 11, 2. hæð, og stendur yfir í
4 daga. Kennt verður frá kl. 17-20.
Öllum 15 ára og eldri heimil þátttaka.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 688188
kl. 8-16. Á næstunni verður gefinn kostur á dag-,
síðdegis-, kvöld- og helgarnámskeiðum.
Athygli skal vakin á því, að Reykjavikurdeildin útvegar leiðbeinend-
ur til að halda námskeið fyrir skóla, fyrirtæki og aðra, sem þess óska.
Geymið auglýsinguna.
Raudi Krosslslands
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar!
Heildsala og smásala:
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
(Sj /ICCORD (0
19 9 1
Phonda.
HondaAccord 1991-EX
Fullbúinn lúxusbíll
á ótrúlega hagstæðu verði.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi.
Við tökum góða, notaða bíla upp í nýja.
_ Verð frá kr. 1.474.000,- stgr.
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
Kynbótahross á heimsmeistaramóti:
Eiga kynbótadómar erindi
á heimsmeistaramótin?
Hestar
Valdimar Kristinsson
í FJÓRÐA skipti voru kynbóta-
hross sýnd og Ieidd fyrir dóm-
nefnd á Evrópu/heimsmeistara-
mótum. Reglurnar eru þannig að
hverri þátttökuþjóð er heimilt að
senda tvo stóðhesta og tvær hryss-
ur og verða hrossin að vera fædd
í því landi sem þau koma fram
fyrir. Allt frá upphafi hafa verið
skiptar skoðanir Islcndinga hvort
þetta eigi heima á þessum mótum
og í öðru lagi hvort íslendingar
eigi yfir höfuð að taka þátt í þess-
um sýningum.
Ef við snúum okkur að kynbóta-
sýningunni sjálfri þá voru 30 hross
leidd fyrir dómnefnd og hlutu 29
gildan dóm. Einn stóðhestur, Glampi
frá Erbelderinghof, veiktist og var
því dreginn út úr kepni.
Hrossin voru dæmd í tveimur ald-
ursflokkum, þ.e. 5 til 6 vetra og 7
vetra og eldri. Fyrir íslands hönd
mættu til leiks tveir stóðhestar, þeir
Örn frá Akureyri og Gammur frá
Tóftum. Til stóð að stóðhesturinn
Kriki frá Hellulandi yrði sýndur en
hann kom ekki og kom Örn þá inn
í hans stað. Ein hryssa, Sprengja frá
Ytra-Vallholti, var send utan frá ís-
landi. En hin hryssa, Irma' frá Vatns-
leysu, kom frá Þýskalandi. J vor fóru
ráðunautarnir Þorkell Bjarnason og
Kristinn Hugason utan til að velja
hross í Þýskalandi sem sýnd skyldu
í nafni Islands og völdu þeir Irmu
og Gamm en Örn var til vara fyrir
Krika.
Vel gekk með Sprengju í dómi og
var hún langefst í sínum flokki eins
og fram kemur í Morgunblaðinu 20.
ágúst sl., auk þess að vera hæst
dæmda kynbótahross mótsins. Báðir
komust stóðhestarnir í verðlauna-
sæti, Örn varð annar í eldri flokknum
með 8,01 og Gammur varð þriðji í
yngri flokknum með 8,30. Irma varð
önnur í eldri flokki með 8,25.
Ekki var frítt við að þessir dómar
sem þarna fóru fram virkuðu ósann-
færandi á mann. Dómurinn á Svaðil-
fara frá Heager í Danmörku virkaði
til dæmis ósannfærandi. A þeim
tveimur sýningum sem hrossin komu
fram á fór hann á skeiðtölti eða jafn-
vel skeiðlulli, brokkaði ekki og hreint
tölt sást ekki. í dómsorði sagði með-
al annars að hesturinn væri tilbúinn
að gera allt sem hann væri beðinn
um. Mátti þá skilja það sem svo að
Örn frá Akureyri hafnaði
Jón Steinbjörnsson.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
öðru sæti í eldri flokki stóðhesta, knapi
Sprengja frá Ytra-Vallholti stóð vel fyrir sínu og varð hæst í sinum
flokki og jafnframt hæst dæmda kynbótahross mótsins, knapi er
Gunnar Arnarsson.
knapinn hafi ekki beðið hann um
hreint tölt og verða það að teljast
mistök hjá annars ágætum knapa,
Dorte Stougaard. Fyrir tölt fékk
Svaðilfari 8,0 en hefði með réttu
borið 7,0 eða þar um bil. Hinsvegar
skeiðaði hann býsna vel og fékk 8,75
og var vel að þeirri einkunn kominn.
Bruce Willis í hlutverki sínu í myndinni „Hudson Hawk“.
Stjörnubíó sýnir mynd-
ina „Hudson Hawk“
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýn-
ingar myndina „Hudson Hawk“.
Með iiðalidutvcrk fara Bruce Will-
is og Danny Aiello. Leikstjóri er
Michael Lehman.
Eddie Hawkins, öðru nafni Hud-
son Hawk er nýsloppinn úr fangelsi
eftir tíu ára vist. Hann ætlar ekki
þangað aftur. Frægasti innbrotsþjóf-
ur sögunnar er hættur og meinar
það. Hin ofurríku og snarríku hjón
Darwin og Minverva Mayflower
vantar þjóf og aðeins sá besti kemur
til greina. Hudson afþakkar gott boð
en snýst hugur þegar hjónakornin
hóta að drepa besta vin hans Tommy.
Hudson á að finna þijá hluti eftir
meistara Leonardo da Vinci: Hest-
inn, öforza gamalt handrit með
teikningum og þyrlu frá 16. öld.
Hudson veit þó ekki að vermæti þess-
ara hluta er meira en sögulegt því
komist Mayflower hjónin yfir þá líður
heimurinn undir lok. Til að flækja
málið enn frekar kynnist Haukur
hinni fögru Önnu Baragli. Er hún í
slagtogi með Mayfiower-hjónunum,
á mála hjá CIA eða njósnari Vatík-
ansins? Hudson er nokk á sama því
hann þarf að gagna frá Mayflower-
hjónunum, bjarga Tommy, njóta
Önnu og forða heiminum frá glötun.
Tveir stóðhestar voru efstir og
jafnir í yngri flokki, Kolbakur frá
Sortehaug í Noregi og stjarna móts-
ins, Týr frá Rappenhof. Þótt þessir
tveir lentu á sömu einkunninni eru
þeir eins ólíkir og tveir hestar geta
verið. Týr, stór og myndarlegur há-
gengur klárhestur með tölti, dæmi-
gerður glæsihestur. Kolbakur er lítill
snaggaralegur kútur með mikið skeið
og reyndar einnig gott brokk og tölt,
flinkur hestur. Sjálfsagt má deila um
hvorum hefði frekar borið efsta sæt-
ið, þar ræður vafalaust smekkur
manna. Týr er samkvæmt uppgefinni
ættartölu hreinræktaður Kolkuós-
hestur og ætti frammistaða hans að
auka hróður Kolkuósræktunar bæði
heima og erlendis. Faðir hans er Þór
frá Sporz sem gerði garðinn frægan
á Evrópumótinu í Roderath 1983 er
Andreas Trappe vann fjórganginn
og varð annar í tölti. Þór er undan
Stíganda 625 frá Kolkuósi. Móðir
Týs er Gríma frá Koikuósi undan
Yngri-Mósu frá Kolkuósi en hún er
móðir Kristals frá Kolkuósi. í eldri
flokki hryssna varð efst Bára frá
Wiesenhof með 8,39 en hún er undan
Hrafni 737 frá Kröggólfsstöðum og
Bunu frá Hólum.
Dæmt var eftir FEIF (Evrópusam-
band eigenda íslenskra hesta) dóm-
skala sem notaður er í öllum aðildarl-
öndum samtakanna nema íslandi.
Er hann frábrugðinn íslenska dóm-
skalanum að því leyti að gefin er
einkunn fyrir fet, þá fór einn dómar-
inn á bak öllum hrossum en slíkt
mun aflagt hér á landi. Þá gaf hver
dómari fyrir sig einkunn og reiknuð
meðaleinkunn út úr þeim fimm ein-
kunnum sem dómarar gáfu.
Ávallt er nokkuð um það rætt
hvort þessir kynbótadómar eigi er-
indi inn á heimsmeistaramótin og
hvort íslendingar eigi að taka þátt
í þessum sýningum yfirleitt. Ekki er
IUMjU : i-rj .