Morgunblaðið - 03.09.1991, Side 51
MÖRGUNBliÁfíflÐ ÞRIDJt DAGTTR 3. SEflflRMBltR 1991 '
5Í
ágúst sl. Hún fæddist á Bjargi í
Miðfirði fyrsta sumardag 1893, sem
þá bar upp á 20. apríl, dóttir hjón-
anna Karls Asgeirs Sigurgeirssonar
og Ingibjargar Jóhannesdóttur, sem
þar bjuggu allan sinn búskap.
Foreldrar Karls voru Þingeyingar
að ætt, hjónin Vigdís Halldórsdóttir
og Sigurgeir Pálsson. Hann var
annálað glæsimenni, fríður og höfð-
inglegur, allra manna mestur í vexti
og sterkastur og iðkaði mjög íþrótt-
ir. Hann hafði söngrödd mikla og
fagra og var víða kirkjuforsöngv-
ari. Um Vigdísi er sagt, að hún
væri „ágætiskona, í góðu meðallagi
há og samsvaraði sér vel, glaðleg
í viðmóti, með góðlegan, hreinan
og fallegan svip“. Hún dó 55 ára
að aldri 1886. Þau Sigurgeir áttu
8 börn, sem komust til fullorðins-
ára. Þar af fluttust 5 til Vestur-
heims, Páll, Halldór, Ásdís, Arin-
björn og Ingunn.
Sigurgeir fluttist vestur alda-
mótaárið. Hann andaðist árið 1925,
96 ára að aldri. Þeir feðgar tóku
sér ættarnafnið Bardal þegar vestur
kom og voru mjög vel þekktir, fram-
takssamir og duglegir landnemar.
Helga, dóttir Sigurgeirs og Vig-
dísar, var móðir bændahöfðingjans
Lárusar í Grímstungu og hans
ágætu systkina.
Guðrún Aðalbjörg, dóttir Sigur-
geirs og Vigdísar, giftist, en dó ung
og átti ekki afkomendur.
Foreldrar Ingibjargar, kpnu
Karls á Bjargi, voru hjónin Ólöf
Jónsdóttir frá Hindisvík og Jóhann-
es, gullsmiður og bóndi á Auðunn-
arstöðum, Guðmundsson.
Ingibjörg Jóhannesdóttir á Bjargi
var með afbrigðum sviphrein og
fríð sýnum, greind og fróð, skemmt-
ileg í viðræðum og aðlaðandi, lék
vel á orgel og unni mikið allri tón-
list.
Karl á Bjargi var landskunnur
maður. Hann hafði ferðazt mikið
utan lands og innan og kynntist
fjölda fólks, eftirsóttur í félagsskap
vegna glaðværðar, sem honum var
eiginleg alla tíð, og skemmtilegrar
framkomu, kunni vel að koma fyrir
sig orði, kurteis og greindur í bezta
lagi. Heimili þessara sæmdarhjóna
var orðlagt fyrir gestrisni og alúð-
legar viðtökur, hver sem í hlut átti.
Þar var ekki farið í manngreinar-
álit, enda var oft gestkvæmt á þessu
rausnarheimili, þar sem unað var
við söng og hljóðfæraslátt margar
ánægjustundir.
Á þessu góða heimili ólst Mar-
grét, elzta barn þessara hjóna, upp,
ásamt fimm glæsilegum systkinum,
sem nú eru öll látin. Þau voru: Vig-
dís, f. 12. okt. 1894, d. 11. maí
1914; Páll Sigurður, f. 8. nóv. 1896,
bóndi á Bjargi; d. 26. marz 1980,
Ólöf Ingibjörg, f. 12. maí 1898, d.
27. júní 1943; Sigurgeir, f. 29.
marz 1908, bóndi á Bjargi, d. 4.
okt. 1976, og Jóhannes, f. 22. maí
1909, d. 1. september 1920.
Snemma bar á miklum tónlistar-
hæfileikum hjá Margréti og um
fermingaraldur hóf hún orgelnám
hjá frænda sínum, Sigurgeir Jóns-
syni á Akureyri, föður hinna góð-
kunnu systkina Hermínu tónlistar-
kennara og Vigfúsar ljósmyndara
og þeirra mörgu systkina. Skyld-
leiki þeirra var þannig, að Aðal-
björg, móðir Sigurgeirs á Akureyri,
var systir Sigurgeirs Bardal. Á
Akureyri dvaldist Margrét við nám
í tvo vetur og minntist þess jafnan
með mikilli hlýju, hversu vel frænd-
fólkið reyndist henni, og taíaði um
börn Sigurgeirs sem væru þau
systkini hennar.
Síðar dvaldist Margrét í Vestur-
heimi um þriggja ára skeið og
stundaði þá nám í píanóleik hjá
Steingrími Hall, frægum kennara,
og náði miklum árangi’i í náminu.
Þegar heim kom hóf hún kennslu
í orgelleik og kenndi þá bæði á
Isafirði og Akureyri og þótti frábær
kennari.
Margrét giftist Axel Vilhelms-
syni verslunarmanni 14. okt. 1917.
Þau stofnuðu heimili á Akureyri og
bjuggu þar, unz Axel lézt 31. marz
1927 frá fjórum ungum börnum
þeirra hjóna. Þau voru: Anna, f.
24. ágúst 1918, ekkja, búsett á
Hvammstanga; Karl Jóhannes,- f.
7. ágúst 1920, d. 5. maí 1943, mik-
ill músíkmaður og snilldarteiknari,
gleðigjafi og vinsæll af öllum, sem
kynntust honum; Páll, strætisvagn-
astjóri, Rvík, f. 29. júní 1922, d.
15. júlí 1988, kvæntur Sigríði Hall-
dórsdóttur; Sigurgeir, vélstjóri,
Rvík, f. 27. maí 1926, kvæntur
Jónínu Guðmundsdóttur.
Nú fóru í hönd erfiðleikaár hjá
Margréti, heimilið leystist upp og
hún fór að vinna á ýmsum stöðum,
en börnin fóru flest til dvalar á
æskuheimili móðurinnar, Bjargi,
þar sem þeim var tekið opnum örm-
um, sem vænta mátti af því góða
fólki.
Margrét átti son með Birni Jóns-
syni. Það er hinn frægi harmoniku-
meistari Grettir, f. 2. maí 1931,
kvæntur Ernu Geirjónsdóttur.
29. júlí 1933 giftist Margrét Ar-
inbirni Árnasyni frá Neðri-Fitjum í
Víðidal, ágætum manni.' Þeirra
heimili var áþekkt Bjargsheimilinu,
þar ríkti glaðværð og gestrisni,
hjálpsemi og umhyggja, ef eitthvað
bjátaði á hjá náunganum, og engin
fyrirhöfn annarra vegna talin eftir.
Sonur þeirra hjóna er Árni, org-
el- og fiðlusnillingur, f. 8. sept.
1934, kvæntur Lydíu Haraldsdótt-
ur.
Margrét eignaðist mannvænleg
börn. Hið sama má segja um
tengdabörnin og barnabörnin, allt
er þetta gott og vel gefið fólk. Hún
átti það skilið, því að hún var frá-
bærlega góð og umhyggjusöm móð-
ir og svo lagin að tala um fyrir
börnum, að mestu óþekktarormar
hlýddu henni möglunarlaust.
Margrét var forkunnarfríð sýn-
um, höfðingleg í fasi og allri fram-
komu, ljúf í viðmóti og allri um-
gengni ásamt góðvild og hlýju í
garð allra samferðamanna á lífs-
leiðinni.
Við hjónin og börn okkar þökkum
nú við leiðarlok alla þá umhyggju
og elskusemi, sem hún auðsýndi
okkur.
Blessuð sé minning hennar.
Sólin til fjalla fljótt
fer um sjóndeildarhring.
Senn tekur nálgast nótt,
neyðin er allt um kring.
Dimmt er í heimi hér,
hættur er vegurinn.
Ljósið þitt lýsi mér,
lifandi Jesú minn.
(Hallgr. Pétursson)
Jóhann Benediktsson
HEILSU (Jd LINDIN
NÝBÝLAVEGI24 SÍMI46460
Heilsupakkimt sjö sjö
• 5 tíma nudd hjá menntuÖum nuddwum.
• 10 tíma Ijós i frábœrum Ijósabekkjum.
• 2 mánuðir i líkamsrœkt fyrir kyrrsetufólk
og byrjendur.
Sérstakur stuðningur fyrir
þáf sem vilja leggja af
• Allt þetta fyrir kr. 7.700,-.
• KjörorÖ okkar er vöðvabólga og stress, bless.
Sími 46460.
Hinir frábæru SUPADANCE skór fyrir dömur
og herra í öllum stærðum og gerðum.
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Kennsla hefst miðvikudaginn 11. sept.
Kennslustaðir:
Auðbrekka 17, "Lundur" Auðbrekku 25,
og "Hallarsel" við Þarabakka 3 í Mjódd.
Kennum alla samkvæmisdansa:
suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar dagana 2. - 6. sept.
kl. 13 -19 í síma: 64 1111.
Kennsluönnin er 15 vikur,
og lýkur með jólaballi.
BREFABINDI - TÖLVUBINDI
SKIPTIBLÖÐ - STAFRÓF
DISKLINGABOX
-PLASTMÖPPUR
-GATAPOKAR
OGMARGT
FLEIRA
allar geróir afmöppum
V|S/NIMtíO