Morgunblaðið - 03.09.1991, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3.i SEPTEMBER 1991
t
AXEL HAFSTEINN ÞÓRODDSSON,
Melhaga 6,
Reykjavík,
lést á Kumbaravogi 1. september.
Þorgrímur Ólafsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
HANNIBAL VALDIMARSSON
fyrrverandi ráðherra,
lést 1. september.
Sólveig Ólafsdóttir.
t
JÓN DANÍELSSON,
Hesteyri,
Mjóafirði,
lést 31. ágúst í sjúkrahúsinu, Norðfirði.
Anna Guðmundsdóttir
og börn hins látna.
t
Eiginmaður minn,
BJÖRN KARLSSON,
Aðalgötu 8,
Blönduósi,
lést í Héraðssjúkrahúsinu, Blönduósi, föstudaginn 30. ágúst.
Helga Daníelsdóttir.
Sonur minn og stjúpsonur,
KRISTINN EIRÍKSSON,
Goðheimum 11,
er látinn.
Stefanía Sigurjónsdóttir, Jón Guðnason
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
LÁRUS P. HJALTESTED,
Kríunesi v/Vatnsenda,
lést á heimili sínu sunnudaginn 1. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gróa Sigurjónsdóttir
og synir.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
frú ÞÓRDÍS EGGERTSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 64,
andaðist í Borgarspítalanum þann 30. ágúst.
Björgvin Jónsson,
Oddbjörg Ragnarsdóttir, Kristján Hj. Ragnarsson,
Jón Björgvinsson, Jóhanna S. Kristmundsdóttir,
Eggert Björgvinsson, Hulda L. Magnúsdóttir,
Þorgils Björgvinsson, Elma B. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINN GUÐMUNDSSON,
Tangagötu 10,
ísafirði,
lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 1. september.
Aðalheiður Hannibalsdóttir,
Sigrún Steinsdóttir, Haukur Harðarson,
Elva Steinsdóttir,
Bára Steinsdóttir,
Lilja Steinsdóttir, Ásgeir Erling Gunnarsson,
Aðalheiður Steinsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Bernharður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Hendrik Rasmus
Fæddur 6. maí 1911
Dáinn 4. ágúst 1991
Svífur að haustið og svalviðrið gnýr
svanurinn þagnar og heiðlóan flýr.
Blóm eru fölnuð í brekkunum öll.
Bylgjumar ýfast og ijúka sem mjöll.
Fleygir burt pllhörpu fossbúinn grár.
Fellir nú skóggyðjan iðjagrænt hár.
(Stgr. Th.)
Tími haustsins gengur nú í garð
og laufin falla af trjánum, Hendrik
vinur okkar kvaddi á þessari árstíð.
Hann var einn af okkar hæfíleika-
ríku en hljóðlátu listamönnum, en
nafn hans var þekkt og lögin hans
hljómuðu í danssölum landsins.
Oft má heyra lögin hans leikin í
fjölmiðlum og þau lífga alltaf upp
á tilveruna.
A unglingsárum mínum kom eitt
sinn maður vestur að Reykhólum
til þess að mála prestshúsið á staðn-
um. — Þetta var Henni Rasmus.
Þá var vor í lofti og rómantíkin
blómstraði. Hrefna frænka á Reyk-
hólum og Henni opinberuðu trúlof-
un sína nokkrum vikum síðar.
Henni var ólatur við að taka lag-
ið fyrir samferðamenn sína. Settist
gjarnan við orgelið eða píanóið og
töfraði fram músíkina eins og hon-
um var einum lagið.
Einhveiju sinni komu þau hjón
Hrefna og Henni í heimsókn að
Miðhúsum og þá rifjaði Henni upp
er hann gerðist fylgdarmaður móð-
ur sinnar, Margrétar Rasmus, frá
Reykjavík vestur í Reykhólasveit,
en þau fóru ríðandi með marga
hesta, en þá var hesturinn þarfasti
þjónninn, sem fiuttu þau á æsku-
stöðvar Margrétar.
Að Stað komu þau í þessari ferð
og þá ræddu þær vinkonur, Ólína
prestsfrú og Margrét, liðnar stund-
ir. Henni varð margs vís á þessu
ferðalagi og kynntist bæði mannlífi
fyrri ára og landslagi og margbreyt-
ileika náttúrunnar.
Henni bar með sér heimsborgara-
legan blæ, fíngerður, kurteis og
skemmtilegur.
Mér er í fersku minni er ég heim-
sótti þau á Snorrabrautina í Reykja-
vík. Gestrisnin var í hávegum höfð
og gestir fundu að þeir voru hjart-
anlega velkomnir.
Píanó var í stofunni og fyrir mín
orð settist húsbóndinn við píanóið
og spilaði nokkur lög og þá var sem
opnaðist nýr heimur. Þar var í ess-
inu sínu hinn „sjarmerandi", prúði,
en þó fjörlegi „kunstner", og allt
iðaði af 'músík.
í þetta skipti vildi svo til að
„óskabörnin“ voru heima. Gréta og
litli Húgó, en Steinunn og Tómas
voru þá ekki fædd.
Gréta tók nokkra takta á píanóið
og það var ánægjulegt að heyra.
Við Ebba nutum stundarinnar með
kaffisopanum.
Eitt sinn sagði Henni mér frá
því er hann lék í hljómsveit á Hótel
Borg. Þá lék hann einnig í ballett-
skóla Sifjar Þórs og Sigríðar Ár-
mann. Til þess að þetta gæti farið
saman þá varð hann að mæta sel-
skapsklæddur í ballettskólann til
þess að geta mætt stundvíslega á
Borgina.
Síðastliðið sumar kom vinkona
mín mgð gamlar myndir til móður
minnar til þess að vita hvort hún
vissi deili á fólkinu sem á myndun-
um var. Viti menn þar var ein
mynd af ungum vel klæddum
manni, sem tekin var í Leipzig.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
STURLA SIGFÚSSON
vélstjóri,
Frostafold 105,
lést í Landspítalanum 30. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anna Soffía Guðmundsdóttir og börn.
t
Ástkær eiginmaður minn,
STEINAR MAGNÚSSON,
Akraseli 28,
lést í Landsptíalanum þann 1. september sl.
Anna Þóra Baldursdóttir,
Guðrún Steinarsdóttir,
Magnús Steinarson,
Baldur Steinarsson, Guðrún Erlingsdóttir,
Hafdís Aradóttir, Tómas Jónsson
og barnabörn.
Bl£mst°fa
Fnúfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,* einnig um heigar.
Skreytingar við öli tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASOK HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI46. SIMI76677
Myndin var af Henna Rasmus á
námsárum sínum út í Þýskalandi,
en þess ber að geta að systrasynirn-
ir Henni og Jón Leifs tónskáld sóttu
báðir sína menntun til Þýskalands,
en á þeim árum var óalgengt að
fólk frá íslandi færi utan i músík-
nám.
Henni minntist þessara ára með
gleði.
Henni og Hrefa virtu hvort annað
og samhent voru þau í því að veita
börnum sínum góða menntun. Þau
vissu þeim sá fjársjóði fær hvorki
mölur né ryð grandað og hveijum
sem hlýtur til farsældar.
Eitt sinn er ég kom í heimsókn
til þeirra í Barmahlíð úr Kópavogi,
var Ebba rétt ókomin úr vinnunni.
Henni tók mér vel að vanda og að
vörmu spori sátum við Henni við
rausnarlegt kaffiborð. Henni sýndi
mér bréf sem hann var nýbúinn að
fá frá afabarni sínu er stundaði nám
í Ameríku. Hann fylgdist vel með
námi barna og barnabarna sinna,
leiðbeindi og örvaði þau til þess að
nota hæfileika sína og tækifæri til
frama og menningar.
Einnig minntumst við á það hve
Ebba var dugleg og flínk að sauma,
pijóna og hekla á börnin. Þau voru
alltaf svo vel kldd, og það svo að
eftir því var tekið. Tískuhús borgar-
innar hefðu mátt vera stolt af því
að hafa slíka konu í þjónustu sinni.
Hrefna kann þá list að gera falleg-
ar flíkur og nýtni hennar er líka
sá eiginleiki sem fleiri mættu til-
einka sér.
Fyrir nokkrum árum var ættar-
mót okkar haldið í Reykhólasveit.
Þótt Henni væri þá illa haldinn af
sjúkdómi er þjáði hann síðustu árin,
þá lét hann ekki sitt eftir liggja.
Hann brá sér að píanóinu í sam-
komuhúsinu ásamt Amari Sigur-
bjömssyni og þeir tóku lagið svo
að hægt væri að dansa.
Þar voru engir viðvaningar á
ferð. Henni fyrrverandi atvinnu-
maður og Arnar starfandi í þeirri
grein.
Henni var alltaf tilbúinn að gera
tilveruna litríkari með menntun
sinni og hæfileikum og þökk sé
minningunni um ánægjulegar
stundir.
Hrefnu frænku og afkomendum
hans færi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Ólína Kristín Jónsdóttir
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öli tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.