Morgunblaðið - 03.09.1991, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1991
61
Kvótaáekkiað
selja né veiðileyfi
Grein í Morgunblaðinu, sem er
einskonar frétt af fundi ungra sjálf-
stæðisma,nna, gefur mér tilefni að
skrifa um þann villuráfandi hóp sem
gefur yfirlýsingar um gjaldtöku á
óveiddum fiski, það er skatt sem
leggst á fiskveiðar.
Rétt er að úthluta kvóta án gjald-
töku vegna takmarkaðs afla, en
gjaldtaka verður aukinn kostnaður
°g rýnr kjör sjómanna og útgerðar
svo eftir fá ár verður þá ekki gert
út nema með ríkisstyrkjum. Hug-
mynd ykkar ungu sjálfstæðismenn
er heilaþvottur vinstriaflanna sem
þið hafið meðtekið, þið sjáið ekki
enn afleiðingar vinstristefnunnar.
Hér hafa atvinnuvegir lands-
manna hnmið í stórum stíl af völd-
Þjóðin þykist eiga fiskinn í sjón-
um og vill leggja á skatt, með hug-
myndir ungra sjálfstæðismanan sér
til stuðnings. Ekki er það ofmælt
að þjóðin verður að sjá til þess að
aðstæður séu þannig að menn fáist
á sjóinn til að færa björg í bú. Ég
trúi því varla að sjómenn láti þann-
ig eyðileggja frumkvæði sitt til fisk-
veiða sem er allri þjóðinni til hags-
bóta.
Um kostnað af fiskirannsóknum
er þjóðarinnar að sjá um eins og
verið hefur, það er í hennar þágu.
Sjómenn geta fundið og veitt fisk
án nokkurra rannsókna og þeir vita
oftast hvar fisk er að fá og finna
með nýtísku fiskleitartækjum sín-
um.
Hvikum ekki
frá settum
markmiðum
Nokkrir, jafnvel menn, sem telja
hefði mátt með einhveija glóru í
kollinum, hafa haldið því fram að sú
væri skoðun lögreglustjórans í
Reykjavík að loka ætti pylsusölunum
í miðbænum. Ég veit ekki til þess
að lögreglustjóri hafi haldið því fram.
Hinsvegar hafa aðrir sagt að lög-
reglustjóri vildi láta gera tilraun með
takmarkaðan opnunartíma pylsusala
að næturlagi um helgar vegna þess
ástands sem skapast meðal ölvaðs
fólks í og við þá á þeim tíma. En
það er eins og við manninn mælt,
ein fjöður getur orðið að dauðri hænu
ef menn vilja og eru þannig stemmd-
ir. Pylsusalar telja sig hafa hag af
því að snúa út úr orðum lögregiu-
stjóra ogég hef sjálfur heyrt þá rang-
túlka orð hans svo um munar. Auð-
vitað hefur lögreglustjóri hag fjöld-
ans, hinna heiðvirðu borgara, að leið-
arljósi þegar hann með rökum reynir
að sannfæra menn um með hvaða
ráðum megi hafa jákvæð áhrif á
ástandið. Og auðvitað hlýtur hann
að skilja afstöðu pylsusala, en stund-
um verða.sérhagsmunir að víkja fyr-
ir hagsmunum Qöldans.
Ég veit til þess að sú tillaga að
takmarka opnunartíma pylsusala að
næturlagi um helgar er ekki eina
tillagan, sem komið hefur fram. Þær
eru ótal fleiri, en ekki hefur verið
talin ástæða til þess að minnast sér-
staklega á þær. Ég hvet hins vegar
lögreglustjóra til þess að halda áfram
sínu striki og hvika hvergi frá settum
markmiðum.
Jón Hannesson
Italskar dömu- og herraúlpur
Verð frá kr. 9.390,- til 12.500,-
rnlMH utiuf
H
Glæsibæ - Sími 812922
um vínstrimannaktjórna og af völd-
um sömu stefnu hafa atvinnuvegir
annarra landa hrunið og stefnir í
þá átt annarstaðar.
I því ríka landi Svíþjóð, sem lengi
hefur staðið af sér afæturnar, er
að fara af stað gjaldþrotaalda og í
Noregi eru flestar atvinnugreinar á
ríkisstyrkjum, maður talar nú ekki
um það sem gerst hefur í fjölda
Evrópulanda af völdum kommún-
ísmans sem er ógleymanlegt
hneyksli. Þið ungu sjálfstæðismenn
eruð að kveðja upp dauðadóm yfir
sjálfstæðum atvinnurekstri með
þessu háttalagi ykkar.
Kvótasala og það sem því fylgir
hefur komið af stað ógeðfelldum
útgeðarrekstri sem verður að
breyta.
Sú hætta getur skapast að kvóti
verði seldur úr landi fýrir háa upp-
hæð og þar með útlendingar komist
á fiskimið okkar og hreinlega með
ykkar hugmyndum kveðið upp
dauðadóm útgerðar á íslenskum
grunni. Kvótasala og auðlindaskatt-
ur rýra svo kjör sjómanna og út-
gerðar, að þeir hreinlega telja sér
ólífvænlegt að stunda fískveiðar.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspumir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisfong
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem em gagnrýni, ádeilur
eða Arásir á nafngreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Nei og aftur nei, kvóta á ekki
að selja né veiðileyfi. Eitt dæmi um
þetta er þegar menn eru farnir að
selja báta sína stórum aðilum sem
hirða kvótann svo bátarnir eru kvót-
alausir, þetta er spilling á verðmæt-
um.
Öllum ónýttum kvóta á að safna
í kvótabanka sem úthlutar til báta
og skipa þar sem best kemur að
gagni og eykur atvinnu sem víðast
við nýtingu verðmæta sem búið er
að byggja upp og undirbúa til nýt-
ingar afla úr sjó.
Ég á bágt með að trúa að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé orðinn svo
spiíltur af áróðri vinstrimanna að
hann láti sjómannastéttina lenda í
þrælkunarvinnu fyrir ríkisvaldið
með afætusjónarmiðum og ítökum
í afkomu sjómanna með þeim hætti
sem til stendur.
Stefna vinstrimanna í þessum
málum mun leiða af sér eymd eins
og skapast hefur af þeirra völdum
um víða veröld sem afleiðing af
þjóðnýtingarstefnu þeirra.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson