Morgunblaðið - 08.10.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1991
35
Taxablús
Taxablús („Taxiblues”). Sýnd í
Regnboganum. Leikstjóri og
handritshöfundur: Pavel Longu-
ine. Aðalhlutverk: Piotr Mam-
onov, Piotr Zaithenko, Vladimir
Kachpour, Hal Singer. Rúss-
land/Frakkland. 1990. 110. mín.
Enskur texti.
Taxablús er ein af myndum kvik-
myndahátíðar sem óhætt er að
mæla sérstaklega með. Hún er unn-
in í samvinnu Frakka og Rússa og
segir á einkar sprækan og skemmti-
legan hátt frá tveimur gerólíkum
persónuleikum sem eru fullrúar
andstæðra viðhorfa í Rússlandi á
tímum glasnost og perestrojku.
Nýi tíminn og sá gamli mætast
í leigubílstjóra og vandræða kúnna
sem hefur af honum rúblur og get-
ur ekki borgað. Leigubílstjórinn
tekur þá af kúnnanum saxafóninn
hans því kúnninn er tónlistarmaður
góður en gripurinn sá er svo hátt
verðlagður á markaðstorgi svarta-
brasksins að heiðarlegur leigubíl-
stjórinn skilar honum aftur. Hann
tekur frekar listamanninn í vinnu
til sín og þannig límast þeir saman
þessir tveir ólfku menn en óvildin
er aldrei langt undan.
Myndin lýsir á sérlega líflegan,
forvitnilegan og skoplegan hátt
umróti breyttra tíma, frelsisanda
og hömluleysi fólksins, nokkuð sem
bílstjórinn, sem er af gamla skólan-
um, hvorki þolir né skilur. Hann
vill óbreytt ástand, blæs á frelsis-
vinda og er haldinn kynþáttafor-
dómum. Hann lítur á sig sem undir-
stöðuna í þjóðfélaginu, hinn trausta
grunn sem allt byggir á. Hann trú-
ir á kerfið. Hvar væruð þið án mín
og minna líka? spyr hann unga fólk-
ið. í augum þess er hann ótýndur
fasisti. Saxófónleikarinn er af allt
öðru sauðahúsi, alger andstæða
bflstjórans. Hann er fulltrúi nýja
tímans, frjálsræðisins og framtíðar.
Hann er listamaður, menntamaður,
bóhem, ábyrgðarlaus drykkjurútur
og gyðingur, allt sem bflstjórinn
ekki þolir. Hann segist vera helgur
maður, dýrlingur í beinu sambandi
við guð.
Þeir eru ómótstæðilegir andstæð-
ingar í sífelldri glímu og frábærlega
leiknir af Piotr Mamonov og nafna
hans Zaithenko. Myndin gerist að
öllu leyti í öngstrætum Moskvu-
borgar á meðal braskara og götu-
lýðs og allt yfirbragðið er einkar
raunsæislegt og aukapersónur
margar skoplegar því þrátt fyrir
hörð átök er létt yfir frásögninni.
Kímnin er aldrei langt undan í
mynd sem segir heilmikið um breyt-
inguna sem 'a sér stað í Rússlandi
samtímans.
Góði tann-
hirðirinn
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Góði tannhirðirinn - ”Eversmile,
New Jersey”. Leikstjóri Carlos
Sorin. Handrit Sorin, Jorge Gold-
enberg, Roberto Schever. Aðal-
leikendur Daniel Day-Lewis,
Mirjana Jokovic.
Jim Jarmusch varð heimsfrægur
á að senda furðufugla á flandur um
Bandaríkin eins og þau höfðu aldr-
ei komið mönnum fyrir sjónir fyrr.
Með augum hans urðu þau ótrúlega
austantjaldsleg grámygla, fólkið
sambland af marsbúum og utan-
garðsfólki, álíka vonlausu og skitu-
legt umhverfið. Þessi háðski, mein-
fyndni og persónulegi leikstjóri hef-
ur eignast margan sporgöngu-
manninn síðan hann gerði Stranger
Than Paradise. Er skemmst að
minnast urrandi fyndinnar myndar
Aki Karismakis um hljómleikaferð
vonlausustu rokksveitar heims Kúr-
Úr myndinni Taxablús
eka Leningrads, á þessum hálf-dap-
urlegu slóðum á finnskri kvik-
myndaviku í vor.
Leikstjóri Góða tannhirðisins,
(kaldhæðnisleg íslensk nafngift,
betri en myndin!), Carlos Sorin,
sannar það eitt með mynd sinni að
auðveldara er að gera sig kjánaleg-
an en að gera myndir um lúnar
aðstæður og geggjaðar persónur.
Þrátt fyrir skoplega hugmynd um
tannhirðinn góða (Day-Lewis) sem
leggur Patagóníu undir mótorgand
sinn til að bæta mannlífið með betri
tannhirðu, nær hún aldrei flugi. Býr
yfir nokkrum, fyndnum uppákom-
um fáránleikans og Day-Lewis (sem
samkvæmt hlutverkavali er greini-
lega meðal örfárra ofurhuga leika-
rastéttarinnar) á sína spretti sem
hinn vélvæddi kolgeitkristur. En,
notabene, myndir sem þessar eru
krydd kvikmyndahátíða, aukakrydd
að vísu em koma með þetta ómiss-
andi, framandi bragð af veisluföng-
um.
Til hins
óþekkta
Til hins óþekkta - „Til en
ukjent”. Sýnd í Regnboganum.
Leikstjóri og handritshöfundur
Unni Straume. Kvikmyndataka
Harald Paalgard. Aðalleikarar
Hilde Aarö, Harald Heidesteen
jr., Toni Brevik. Noregur 1990.
Enskur texti.
Unga konan er á heimleið úr
borginni eftir langar fjarvistir.
Akstur inní myrka nóttina yfir ijöll
og firnindi er slítandi og langdreg-
inn. Þá er gott að láta hugann
reika, riija upp ljúfsárar endur-
minningar, velta fyrir sér spurning-
um tilverunnar, leita að sjálfum
sér. Skyndilega birtir yfír. Hún er
komin heim í afskekktu sveitina
sína. Virðir fyrir sér gamalkunnugt
útsýnið úr eldhúsglugganum. Enn-
þá liðast þjóðvegurinn framhjá íðil-
grænum túnfætinum. Skyldi rútan
vera hætt að ganga?
Það fer ekki hjá því að ljóðræn-
ar hugsanir leiti á áhorfandann eft-
ir að hafa séð hina ægifögru og
lýrísku mynd Unni Straume, sem
minnir ekki síður á ljósmyndasýn-
ingu sem endar í dulitlu málverki.
Ung stúlka heldur á puttanum til
bernskuslóðanna í Vestur-Noregi
og notar langt ferðalagið til að riija
upp æskuminningarnar sem svífa
hjá og skynja sjálfa sig. Virðist
sátt í myndarlok. Til hins óþekkta
heldur manni föngnum frá upphafi
til enda. Hér er vel hugsað fyrir
augum og eyrum. Textinn er sam-
fellt prósaljóð, hljóðlátur eins og
myndin sjálf, myndataka Paalgards
augnakonfekt. Leikkonurnar sem
fara með hlutverk sögumannsins
eru penar og huggulegar og stand-
ast langar nærmyndatökur með
miklum ágætum. Straume sagði í
aðfaraorðum að þessari fögru frum-
raun sinni að hún væri engin átaka-
mynd, það er víst hverju orði sann-
ara. Þeir sem hafa áhuga fyrir
slíkum verða fyrir vonbrigðum. En
þeir sem leita að róandi og nærandi
kveðskap á filmu fara upphafnir
af þessari einstöku sýningu.
Litli glæpa-
maðurinn
Litli glæpamaðurinn - „Le Petit
Criminel”. Sýnd í Regnboganum.
Leikstjóri Jacques Doillon.
Handrit Doillon. Aðalleikendur
Richard Anconina, Gérald Thom-
assin, Clotilde Coureau. Frakk-
land 1990.100 mín. Enskur texti.
Unglingspilturinn Marc er á villi-
götum og farinn að brjóta lög og
reglur. Stefnan tekin á vandræðin.
Hann hefur búið við ömurlegt upp-
eldi hjá diykkfelldri móðir, faðirinn
löngu horfinn út í buskann, litlu
systir hefur verið komið fyrir hjá
vandalausum. Hvergi skjól að finna.
Dag einn hringir síminn og Marc
kemst að því að hann á eldri syst-
ir. Hann fyllist nýrri von en notar
þau meðöl sem honum eru nærtæk-
ust til að komast á fund hennar.
Fremur vopnað rán, lendir í höndum
lögreglumanns, en dæmið snýst við
því Marc tekur hann í gíslingu.
Saman halda þeir til Montpellier,
finna systurina sem tekur bróðurn-
um fálega er hún kemst að aðstæð-
um hans. Snýst síðan hugur og
leggur honum allt sitt lið til bjargar
útúr ógöngunum.
Döpur en athyglisverð mynd um
vandamál tveggja utangarðsbarna
sem ekkert eiga, finna hvort annað,
eru rík um sinni og halda í auðinn
dauðahaldi. En mega sín lítils gagn-
vart skilningslausu umhverfinu sem
hefur engann tíma né áhuga fvyrir
vandamálum smælingjanna. Doillon
dregur upp eftirminnilega mynd af
Marc. Hann hefur margt til síns
ágætis en kringumstæðurnar eru
þegar komnar með hann, tólf ára
gamlan, í ógöngur sem hann ræður
ekki við. Það er engu síður þjóðfé-
lagið sem þarf að taka til athugun-
ar en drenginn. Samband systkin-
anna er eftirminnilegt, leikurinn
afburða góður, einkum Anconia
hins unga. Þá fer Thomassin mjög
vel með erfitt, margsnúið hlutverk
lögregluþjónsins sem verður að loka
eyrunum fyrir bænum iítilmagn-
anna. Enda lítið betur settur sjálf-
ur. Hvað verður um þessa einstakl-
inga er ekki gott að spá en það
ástand senj Doillon skapar er gagn-
rýnið og vonleysið uppmálað og síst
til að vekja bjartsýni hjá áhorfand-
anum.
Myndir sýnd-
ar í dag
Lóla, Launráð, Lögmál lost-
ans, Gluggagægirinn,
Taxablús, Freisting vampír-
unnar, Stingur dauðans, Til
hins óþekkta.
Smíðum út viðhaldsfríu uPVC efni:
• Sólstofur
• Svalahýsi
• Rennihurðir
| • Renniglugga
I • Fellihurðir, útihurðiro.m.fl.
I Ekkert viShaU
íslensk framleiösla
□rí Gluggar og Garöhús «
Dalvegi 2A, Kópavogi, Sími 44300
SIEMENS -s*ð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020
■ Breidd 60 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
HISI 26020
■ Breidd 50 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
• Borgarnes: Glitnir.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvitárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrimsson.
• Stykkishólmur: Skipavik.
• Buðardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
• ísafjörður: Póllinn hf
• Blönduós: Hjörleifur Júliusson
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf.
• Siglufjörður: Torgið hf.
• Akureyri: Sir hf.
• Husavik: Öryggi sf.
• Þórshöfn: Norðurraf
• Neskaupstaður: Rafalda hf.
• Reyðarfjörður: Rafnet.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmundss
• Bréiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
• Höfn i Hornarfirði: Kristall
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
• Selfoss: Árvirkinn hf.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar.
• Keflavik: Ljósboginn.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300