Morgunblaðið - 15.10.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.10.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991 19 Tveir fiskmarkaðir stofnaðir á Snæfellsnesi: Stofnfundur Nesmarkað- ar hf. haldinn á morgun Reynt að koma á samstarfi við Fisk- markað Snæfellsness hf. HALDINN verður stofnfundur fiskmarkaðar á Snæfellsnesi á morg- un á Grundarfirði. Hefur væntanlegur fiskmarkaður gengið undir nafninu Nesmarkaður hf. meðal undirbúningsaðila en að honum standa sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar á Snæfellsnesi. Að sögn Finns Jónssonar á Stykkishólmi, sem unnið hefur að undirbúningi að stofnun markaðar- ins af hálfu Atvinnuráðgjafar Vest- urlands fyrir héraðsnefnd Snæfells- ness, hefur þegar tekist að safna 15 millj. kr. stofnhlutafé, sem næg- ir til að koma markaðinum á fót en gert er ráð fyrir að heildarstofn- kostnaður geti numið um 45 millj. kr. Fyrir nokkru stóð hópur áhuga- manna að stofnun annars fiskmark- aðar á nesinu, Fiskmarkaðar Snæ- fellsness hf. í Olafsvík, en fyrir ligg- ur viljayfirlýsing um samstarf eða sameiningu þessara tveggja mark- aða, að sögn Finns. Finnur sagði að Atvinnuráðgjöf Vesturlands hefði komist að þeirri niðurstöðu í sérstakri úttekt að hagkvæmast væri að reka fisk- markað á fjórum stöðum sem yrði þá með höfuðstöðvar í Ólafsvík en væri jafnframt starfræktur í Stykk- ishólmi, Grundarfirði og á Rifi. „Við komust að þeirri niðurstöðu að ef 14 þúsund tonn færu um þennan markað árlega myndi það skila 10% arðsemi. Ut frá því var gengið og hefur sérstakur starfs- hópur safnað hlutafé að undanf- örnu, sem hefur gengið ágætlega,” sagði hann. Finnur sagði að þeir aðilar sem stæðu að stofnun Nesmarkaðar hefðu haldið undirbúningssstofn- fundi á þeim stöðum þar sém mark- aðurinn mun starfa. Hefðu aðstand- endur Fiskmarkaðar Snæfellsness hf. setið þá fundi en þar komu fram eindregin tilmæli um að þessir tveir hópar settust niður og reyndu að ná saman. Var það gert með undir- ritun viljayfirlýsingar um að reynt yrði að koma á samstarfi. Var gert ráð fyrir að hvorugur hæfi starf- semi fiskmarkaðar fyrr en fullreynt yrði hvort af samstarfi gæti orðið. „Ég vænti þess að fyrsta verk stjórnar Nesmarkaðar hf. verði að hafa samband við stjórn Fiskmark- aðar Snæfellsness hf. og reyni að finna sameiginlegan flöt á að reka þetta. í okkar vinnu er gert ráð fyrir að Nesmarkaður hf. geti hafið starfsemi í nóvember og ég sé ekk- ert því til fyrirstöðu,” sagði Finnur. Nýlega keypti bæjarsjóður Ólafs- víkur útgerðarfélagið Utver á Ól- afsvík og. verður hluthafafundur haldinn í dag þar sem gengið verð- ur frá eigendaskiptunum og ný stjórn kosinn í félaginu. Orka fyrir Evrópu: Lagt til að kjarnorku- framleiðsla verði stöðvuð fyrir 2020 I ályktunartillögu sem Hjörleifur Guttormsson, alþmgismanður, hefur lagt fram á orkuráðstefnu á vegum Norðurlandaráðs sem nú stendur yflr í Osló, er gert ráð fyrir að ríki Evrópu stefni að stöðv- un kjarnorkuframleiðslu fyrir árið 2020. Hjörleifur er fulltrúi efna- hagsnefndar Norðurlandaráðs á ráðstefnunni sem ber heitið Orka fyrir Evrópu. Anker Jorgensen forseti Norðurlandaráðs er í forsæti á ráðstefnunni. Lögð voru fyrir ráðstefnuna drög að ályktun þar sem sérstök áhersla er lögð á tengsl orku- og umhverfis- mála. Hjörleifur gerði viðaukatil- lögu við drögin þar sem hann tekur fyrir orkuframleiðslu með kjarna- orku, bendir á hættur sem tengjast slíkri framleiðslu og óleyst vanda- mál varðandi meðhöndlun úrgangs geislavirkra efna. Hjörleifur leggur einnig fyrir ráð- stefnuna beina ályktunartillögu sem gerir ráð fyrir að skipulega verði dregið úr orkuframleiðslu með kjarnorku á næstu árum og ríki Evrópu vinni að heildarstöðvun á framleiðslu kjarnorku með það að markmiði að hún taki gildi fyrir árið 2020. Sagði Hjörleifur í sam- tali við Morgunblaðið að tillagan hefði valdið töluverðum umræðum á ráðstefnunni í gærdag. Meðal þeirra sem tækju undir hana væru fulltrúar Ira, Austurríkis og Dan- merkur en ýmsir aðrir hefði komið á framfæri athugasemdum. Hann sagðist. ekki gera sér miklar vonir um að tillagan yrði samþykkt en hún lægi fyrir sérstakri nefnd sem færi yfir tillögur ráðstefnugesta. Hjörleifur talaði um ákvæði er varða opnun orkulinda útfrá mark- asforsendum í Orkusáttmála Evr- ópu á ráðstefnunni. Hann sagði þá meðal annars að þó taka ætti tillit til fullra yfirráða þjóða yfir orku- lindum væri ekki á neitt að treysta þegar mál af þessu tagi væru innan laga Evrópubandalagsins og innan evrópsks efnahagssvæðis og heyrðu undir dómstól Evrópubandalags- dómstólsins. Ráðstefnunni lýkur síðdegis í dag. Auk Hjörleifs situr Tómas Ingi Olrich ráðstefnuna. Hann er fulltrúi forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Einnaf þúsundum Nafn: Einar Úlfsson Starf: Framkvæmdastjóri Aldur: 29 Heimili: New York, New York Bifreið: Land Rover 1974 Ahugamál: Skíðakennsla, tónlist og veiðar Mitt álit: „Ég kaupi iðulega Skyndibréf þegar ég ætla að geyma fé í nokkra daga eða mánuði. Skyndibréfin bera ágæta vexti umfram verðbólgu og eru alltaf án innlausnargjalds. “ VERÐBRÉFAMARKAÐUR - FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566 KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚST0RGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.