Morgunblaðið - 15.10.1991, Side 26
. 26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTOBER 1991
Helsingin Sanomat:
Brídssigur Islend-
inga ekki tilviljun
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Átta vitni í yfirheyrslunum á Bandaríkjaþingi sverja þess eið að segja sannleikann.
Reuter
BRIDS telst ekki til mikilvægra
íþróttagreina meðal Finna,
enda hefur sigurs íslendinga á
heimsmeistaramótinu í Yoko-
hama vart verið getið í frétta-
dálkum dagblaða í Finnlandi.
Bridsskýrandi Helsingin Sano-
mat, stærsta dagblaðs Finna, hef-
ur þó sagt frá atburðunum austur
í Japan og velt vöngum yfir því
hversu fljótt íslendingum hafi tek-
ist að komast í raðir sterkustu
bridsþjóða heims.
Bridsskýrandinn, Ismo Kopon-
en, skrifar að sigur íslendinga
hafí komið flestum á óvart en að
úrslitin hafi ekki verið háð neinum
tilviljunum. íslenska sveitin hafi
sýnt augljósan styrk sinn strax í
undanúrslitunum. _Það sé einnig
athyglisvert að íslendingar og
-Finnar hafí staðið nokkuð jafnt
að vígi í brids fyrir tíu árum en
íslendingum tekist af einhveijum
ástæðum að' styrkja stöðu sína
verulega síðustu árin.
♦ ♦ ♦
Yfirheyrslur vegna tilnefningar nýs hæstaréttardómara í Bandaríkjunum:
Thomas segist hafa lent í vítis-
eldi en hyggst ekki gefast upp
Edward Kennedy meðal þingmanna sem dæma skulu um siðferði dómaraefnisins
Washington. Daily Telegraph, Reuter.
EITTHVERT vinsælasta sjónvarpsefnið í Bandaríkjunum á sunnudag
voru 14 klukkustunda yfirheyrslur þingmanna yfir blökkumanninum
Clarence Thomas sem George Bush forseti vill að taki sæti i hæsta-
rétti landsins. Það sem vakið hefur mesta athygli og eftirvæntingu
eru ásakanir lagaprófessorisns Anitu Hill um að Thomas hafi fyrir
áratug sýnt sér kynferðislega áreitni, m.a. sagst vera einstaklega
bólfimur og með óvenju stóran lim. Þetta á að hafa gerst er þau
störfuðu saman og hann var yfirmaður hennar. Thomas segir að
um sé að ræða samsæri gegn sér og reynt sé að höfða til fordóma
hvítra sem ávallt hafi gert sér undarlegar hugmyndir um kynlíf
svertingja. Hann bendir á að sér muni aldrei takast að afsanna stað-
hæfingarnar en hyggst ekki gefast upp. Greidd verða atkvæði í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings um tilnefninguna í dag.
„Ég hefði fremur kosið að verða
fyrir byssukúlu morðingja en lenda
í því víti sem ég og fjölskylda mín
höfum hafnað í,” sagði Thomas á
sunnudag. Hann taldi aðferðir
rannsóknarmanna nefndarinnar og
alla málsmeðferð vera háþróaða
tegund aftöku án dóms og laga eins
og andstæðingar blökkumanna
beittu gegn þeim í Suðurríkjunum
á sínum tíma. Undanfarin ár hafa
þingmenn demókrata orðið æ að-
gangsharðari þegar þeir fjalla um
menn sem forsetar repúblikana til-
nefna í hæstarétt. Ástæðan fyrir
aukinni hörku stjórnmálaflokkanna
er sú að túlkanir hæstarétts á lög-
um geta í sumum tilvikum kollvarp-
að lagasetningu einstakra ríkja en
hæstaréttardómarar eru skipað
ævilangt. Áhrif þeirra á þróun
dómsmála eru því afar mikil og
hafa staðið deilur um úrskurði
þeirra í mannréttindamálum síðan
á sjötta áratugnum.
Umræddar konur unnu allar und-
ir stjórn Thomas, sem var um hríð
háttsettur yfirmaður hjá mennta-
máiaráðuneytinu og síðar hjá opin-
berri stofnun er tryggja skal jafnan
rétt til vinnu. Joel Paul, lagapró-
fessor í Washington, segir að Hill
segi áreiðanlega sannleikann. Hún
hafi minnst á þessa framkomu
Thomas árið 1987 og vinkona Hill,
Susan Hoerchner, staðfesti að hún
hefði rætt þessi mál við sig í síma
fyrir tíu árum. Hili kvartaði undan
því að Thomas hefði sífellt verið
að bjóða sér út og hann hefði ekki
virst skilja hvað það merkti er hún
hafnaði boðinu. Stuðningsmenn
Thomas benda á að Hill hafi þrátt
fyrir þetta ákveðið að starfa áfram
fyrir Thohias er hann tók við starfí
hjá síðarnefndu stofnuninni og þyk-
ir sem það dragi úr gildi fullyrðinga
hennar.
Angela Wright, sem Thomas rak
úr iStarfi 1985, sagði í viðtali við
rannsóknarmenn þingsins að Thom-
as hefði oft rætt um sköpulag
kvenna og eitt sinn spurt sig um
bijóstastærðina. Önnur kona, Rose
Jourdain, er einnig starfaði fyrir
Thomas, staðfesti að Wright hefði
sagt sé að stöðugar athugasemdir
Thomas um líkamsvöxt hennar
væru farnar að valda sér nokkrum
vanda.
Þekktar konur vitna um
áreitni
Joseph Biden, öldungadeildar-
þingmaður og formaður dómsmála-
nefndar þingdeildarinnar, sagði á
sunnudag að þeim loknum að ekki
yrði haldið áfram á mánudeginum
eins og búist hafði verið við. Strang-
ar reglur gilda um það fyrir banda-
rískum dómsstólum að ákæranda
beri að sanna að um kynferðislega
áreitni hafí verið að ræða en reglan
gildir ekki þegar um yfirheyrslur
þingnefnda er að ræða. Þeim er
einungis ætlað að vera leiðbeinandi
fyrir þingmenn áður en þeir sam-
þykkja tilnefningu forsetans eða
hafna henni. Mörgum þykir kynd-
ugt að öldungadeildarþingmaðurinn
Edward Kennedy, sem frægur er
fyrir kvennafar sitt og aðra laus-
ung, er einn þingmannanna sem
dæma eiga um hæfni Thomas.
Skoðanakannanir hafa sýnt meiri
trú almennings á framburði Thomas
en Hili og nokkrar konur, er unnið
hafa undir stjórn hans, hafa mót-
mælt áburðinum á hendur honum.
Yfirheyrslurnar hafa órðið til þess
að mikil umræða hefur hafist um
kynferðislega áreitni á vinnustað í
Bandaríkjunum. Er eiginkona Dans
Quayle varaforseta ein frægra
kvenna sem segjast hafa orðið fyrir
slíkri áreitni.
Misheppn-
að valdarán
í Chad
N’djamena. Reuter.
MISHEPPNUÐ valdaránstil-
raun var gerð í N’djamena, höf-
uðborg Afríkuríkisins Chad, um
helgina og biðu a.m.k. 28 manns
bana og tugir manna slösuðust.
Maldoum Bada Abbas innanrík-
isráðherra var sagður foringi bylt-
ingarmanna og situr hann nú á
bak við lás og slá í N’djamena,
að sögn embættismanna. Kona
hans sagði í gær að maður sinn
hefði engan þátt átt i valdaráni,
um væri að ræða samsæri til þess
að losna við hann úr ríkisstjórn-
inni. Hann hefði verið heima við
er Idriss Deby forseti hringdi á
sunnudagsmorgun og bað hann
að koma til fundar við sig. Tveim-
ur stundum síðar hefði herforingi
komið, sagt að maður hennar
væri í fangelsi og afvopnað líf-
verði hans.
Abbas kom riæstur Idriss Deby
forseta í ríkisstjórninni. Heimildar-
menn sögðu að margir voldugir
stjórnmálamenn í Chad væru
sagðir hafa tekið þátt í ráðabruggi
Abbas og væru þeir nú einnig í
haldi.
Flestir þeirra sem féllu af völd-
um valdaránsins misheppnaða
voru óbreyttir borgarar sem biðu
bana er hersveitir hliðhollar Deby
forseta hefndu valdaránstilraunar-
innar. Ótímabundið útgöngubann
að nóttu til var sett í N’djamena
í gær.
Jeltsín Rússlandsforseti sak-
adur um einræðislega tilburði
BORÍS Jeltsín, forseti Rússland, hefur alla tíð verið frekar umdeild-
ur maður og menn hafa ekki almennilega vitað hvort hvort þeir
ættu að dá hann eða fyrirlíta. Rússneskir kjósendur virtust hins
vegar ekki vera í vafa um það, þegar þeir kusu sér forseta í júní sl.,
að Jeltsín væri sá maður sem þeir vildu helst sjá sem forseta. Á
þeim mánuðum sem síðan eru liðnir hefur Jeltsín unnið markvisst
að því að styrkja valdastöðu embættis síns. Nokkuð sem allir eru
ekki sammála um að sé æskilegt.
Vissulega má færa rök fyrir því
að eins og staðan er í dag sé í
Rússlandi þörf á forsetaembætti
með mjög víðtæk völd rétt eins og
Lech Walesa hefur reynt að koma
á í Póllandi. Rússneska þingið er í
hálfgerri upplausn og þar sitja enn
margir sem fastir eru í gömlum
kreddukenningum sósíalismans.
Á sama tíma er þörf á mjög rót-
tækum aðgerðum í þjóðfélagsmál-
um. Það þarf að skera niður skrif-
ræðið og einkavæða fyrirtæki ef
umbætur eiga að ná fram að ganga.
Eru margir þeirrar skoðunar að ein-
ungis mjög sterkur forseti geti
framkvæmt slíka hluti. Aðrir benda
hins vegar á að sterkt miðstýringar-
vald geti haft hættur í för með sér
í Rússiandi og nauðsynlegt sé að
þingið hafi eins víðtæk völd og
unnt er.
Eftir að hafa fengið það ótvíræða
umboð sem hann fékk í rússnesku
forsetakosningunum í júní sl. hófst
Jeltsín handa við að breyta stjórn-
sýsiúkerfinu í Rússlandi. Sú aðferð
sem hann hefur beitt til að þjappa
valdinu saman í kringum sjálfan
sig, á kostnað þings og ríkisstjórn-
ar, er stofnun ýmissa ráða og
nefnda sem heyra beint undir fram-
kvæmdavaldið. Nær undantekning-
arlaust eru þar í forystu menn hlið-
hollir Jeltsín sem ekki eru líklegir
til að verða að pólitískum keppi-
nautum hans.
Ber þar fyrst að nefna Ríkisráð-
ið. Þó að það eigi að forminu til
að vera ráðgefandi stofnun má
segja að ráðið sé ríkisstjórn Rúss-
lands í raun. Annars vegar eiga þar
sæti níu helstu ráðherrar Rússlands
og hins vegar formaður ráðsins og
sex ráðsmenn sem hver um sig
bera ábyrgð á einum málaflokki.
Það er ráðsmannanna að móta
stefnu í einstökum málaflokkum en
ráðherranna að framkvæma hana.
Yfirmaður ráðsins er Gennadí Búrb-
úlis, fyrrum heimspekiprófessor frá
Jekaterínburg (Sverdlovsk) en þar
hóf Jeltsín stjórnmálaferil sinn.
Með stofnun ráðsins hefur hin
eiginlega ríkisstjórn (sem nú er
kölluð Ráðherraráðið) verið sett
beint undir stjórn Jeltsíns og áhrif
hennar eru hverfandi.
Annað ráð sem sett hefur verið
á laggirnar er Öryggisráðið en hlut-
verk þess er að takast á við neyðar-
aðstæður s.s. ef blóðugar þjóðernis-
eijur myndu bijótast út. Það var
stofnað að tillögu hins vinsæla vara-
forseta Rússlands, Alexanders
Rútskojs, en í stað þess að gera
hann að formanni ráðsins tilnefndi
Jeltsín Júrí Skokov sem formann
en hann er talinn vera hæfur skipu-
Ieggjandi en einnig engin ógnun við
völd Jeltsíns.
Einn af þeim lærdómum sem
Jeltsín hefur dregið af raunum
Gorbatsjovs við stjórn Sovétríkj-
anna er að það þýðir ekkert að
vera með sterkt forsetavald ef ekki
er hægt að tryggja að skipunum
þess sé fylgt út um allt land. I þessu
skyni hafa verið stofnuð tvö ráð. í
fyrsta lagi Ráð sairibandsríkisins
og sjálfstjórnarsvæðanna sem m.a.
mun hafa undir höndum innbyrðis
samskipti mismunandi þjóðarbrota.
Þar sitja t.d. forystumenn sjálf-
stjórnarsvæðanna innan Rússlands
jafnt sem borgarstjórar stærri
borga s.s. Moskvu og Pétursborgar.
I ráðinu eiga alls 90 menn sæti sem
gerir það ekki mjög hentugt til skil-
virkrar ákvarðanatöku. Því var Eft-
irlitsráðið stofnað en það er hluti
af Ríkisráðinu. Er hugmyndin sú
að sérstakir sendiboðar verði sendir
út í héruðin til að vera augu og
eyru forsetans. Þeir eiga ekki að
hafa afskipti af innri málefnum
héraðanna en gefa skýrslur um
hvað sé að gerast. Samtímis áttu
yfirmenn héraðanna kosnir sam-
kvæmt gamla Sovétkerfinu, að vera
áfram við völd.
Jeltsín á í sívaxandi átökum við
þingið sem sakar hann um einræðis-
lega tilburði. Þannig hefur hann
viðrað hugmyndir um að ný stjórn-
arskrá Rússlands, sem nú er verið
að vinna drög að, verði ekki sam-
þykkt af þinginu heldur beint í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Á móti hefur
þingið samþykkt frumvarp þess
efnis að sendiboðar forsetans í hér-
uðunum eigi að kjósa í kosningum