Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
43
Nýr skólastjóri Reykhólaskóla
Miðhúsum.
HINGAÐ að Reykhólum er kominn nýr skólastjóri, Skarphéðinn Ólafs-
son, en hann var lengi skólastjóri í Reykjanesi við Djúp, en sá skóli
hefur verið lagður niður eins og kunnugt er.
Fráfarandi skólastjóri er Jón
Ólafsson en hann er búinn að vera
við skólann í fimm ár og þar af skóla-
stjóri í tvö ár.
Skólinn var settur 16. september
í Reykhólakirkju að viðstöddum nem-
endum, kennurum og foreldrum.
Breytingar á skólastarfi verður
mikið í ár. Ekki verður starfrækt
heimavist í vetur og öilum börnum
ekið til og frá skóla. Tveir bæir sem
lengst áttu í skólann að sækja fóru
í eyði í sumar en það eru Klettur í
Kollafirði í Gufudalssveit og syðst
bær í Reykhólahreppi, Gilsijarðar-
brekka, sem stendur við botn Gils-
ijarðar.
Tveir bílar eru nú í skólaakstri
fram að áramótum, en það eru sömu
bílar og í fyrra, sem þeir Eiríkur
Snæbjörnsson bóndi á Stað og Þórð-
ur Jónsson bóndi í Árbæ aka. Um
áramót kemur þriðji bíllinn, en Reyk-
hólahreppur er að kaupa nýjan bíl,
sem Stefán Magnússon oddviti Reyk-
hólahrepps ekur, en við það minnkar
akstur hjá þeim Þórði og Eiríki..
Tveir nemendur eru úr Gufudals-
sveitinni og aka foreldrar þeim í veg
fyrir skólabílinn. Þeir nemendur eiga
lengst að fara.
Níu kennarar starfa við Reykhóla-
skóla í vetur að Skarphéðni skóla-
stjóra meðtöldum.
Þeir eru: Ebeneser Jensson,
Steinunn Rasmus, Eyjólfur Stur-
laugsson, Eygló Gísladóttir en hún
er með skólaselið í Króksfjarðarnesi.
Var áður skólastjóri í Súðavík,
Sveinn Guðmundsson, Svanborg
Guðbjörnsdóttir íþróttakennari í
hálfu starfi, Jóhanna Þórhallsdóttir
í 60% starfi. Óskar Gíslason verður
smíðakennari og einnig húsvörður
og gangavörður.
Mötuneyti verður í gangi og geta
starfsmenn og nemendur fengið mið-
degismat og síðdegiskaffi. Við
mötuneytið starfa þær Indiana
Ólafsdóttir og Ása Stefánsdóttir. Um
rætingar sjá þær Jóhanna Guð-
mundsdóttir og Guðqý Jónsdóttir.
Nemendur eru 55 og mun þeim hafa
fækkað um 10 frá því í fyrra. Skól-
■ inn starfar í öllum bekkjardeildum.
Frá skólanum hurfu þessir kenn-
arar: Jón Ólafsson skólastjóri og
kona hans Birna Sigurjónsdóttir sem
bæði fóru til starfa á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
María Björk Daðadóttir fór að
Finnbogastöðum í Strandasýslu,
Ingibjörg Björgvinsdóttir er hætt
störfum, en er búin að starfa við
Reykhólaskóla lengi við góðan orðst-
ír sem og Guðbjörg Þorkelsdóttir en
hún er í fæðingarorlofi. - Sveinn.
Doktorsvörn í vandamál-
um örsmárra hagkerfa
IVAR Jónsson varði nýverið doktorsritgerð við Háskólann í Sussex,
Englandi. Ritgerðin er á sviði félagslegra og efnahagslegra afleiðinga
tækhiþróunar og ber heitið Langtíma hagsveiflur og upphleðslukerfi.
Smáríki, örsmá ríki og vandamál aðlögunar að heimsmarkaði. Forystu-
stjórnmál og efnahagsstefnur á íslandi 1944-1990.
í ritgerðinni eru nýklassískar og
Keynesískar kenningar gagnrýndar
þar sem þær skýra hvorki áhrif
tækniþróunar og nýsköpunar í at-
vinnulífinu né áhrif stofnana félags-
og stjórnmálakerfis á efnahagsþró-
un. í ritgerðinni eru upphleðslu- og
nýsköpunarkerfi Breta, Japana og
Svía borin saman og rök færð fyrir
mikilvægi þeirra í skýringum á efna-
hagsþróun þessara landa. Jafnframt
eru sérstök vandamál örsmárra ríkja
greind. Til að skýra vandamál ör-
smárra ríkja eru þróuð í ritgerðinni
líkön af ójafnri efnahagsþróun og
formgerðarbundinni samkeppnis-
hæfni. Því næst er sett fram kenning
um forystustjórnmál („hegemonic
politics”), sem beitt er við greiningu
á kreppuboðum, vanþróun íslenska
nýsköpunarkerfísjns og hnignun
upphleðslukerfis íslands á tímabilinu
1944-1990.
Ráðgefendur ívars við gerð rit-
gerðarinnar voru Christopher Free-
man forstöðumaður, Vísinda- og
tækniþróunarstofnunar („Science
Policy Research Unit”) Háskólans í
Kennarafélag Reykjavíkur:
Mótmæla stofnun einka-
skóla á grunnskólastigi
HAUSTÞING Kennarafélags Reykjavíkur, sem haldið var 4.-5. októ-
ber, hefur sent frá sér mótmæli við hugmyndum um stofnun einka-
skóla á grunnskólastigi og eru skólayfirvöld ríkis og Reykjavíkurborg-
ar hvött til að hverfa frá þeim.
í ályktun haustþingsins er vitnað
til skólastefnu Kennarasambans ís-
lands um að hvorki stétt né efnahag-
ur eigi að hafa áhrif á möguleika
einstaklinga til náms. Jafnframt er
varað við stofnun einkaskóla sem
einungis séu kostaðir af foreldrum
og fyrirtækjum. Slíkir skólar verði
fyrst og fremst sérskólar hinna efn-
uðustu í landinu.
Haustþingið skorar á ríkisstjórn
og alþingismenn að standa vörð um
nýsett grunnskólalög. Þess er enn-
fremur krafist að menntamálæaráð-
herra hætti þegar í stað við þá
ákvörðun sína að fresta ákvæðum
grunnskólalaga um fækkun í bekkj-
um og lengingu skóladagsins. Jafn-
framt er skorað á alþingismenn og
skólafólk að standa vörð um breytt
og bætt 120 eininga nám við Kenn-
araháskóla íslands. „Haustþing
Kennarafélags Reykjavíkur krefst
þess að yfirvöld menntamála sjái til
þess að stærsti vinnustaður þjóðar-
innar, skólinn verði vel búinn heils-
dagsskóli fyrir öll börn þar sem jafnt
gildi allra, virðing fyrir einstaklingn-
um og samábyrgð ráði ríkjum,” seg-
ir í ályktun kennarafélagsins.
Skerðingn á kirkju-
garðsgjöldum mótmælt
TILLAGA um að motmæla skerðingu á kirkjugarðsgjöldum og fram-
lagi tii kirkjubyggingarsjóðs ríkisins, eins og ráðgert er í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár, var samþykkt samhljóða á héraðfundi
Reykjavíkurprófastsdæmis vestra sem haldinn var sl. laugardag.
Fundinn sóttu um sextíu manns en þetta var fyrsti héraðsfundur í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra eftir skiptingu prófastsdæmisins.
Auk tillögunnar sem samþykkt
var og venjulegum aðalfundarstörf-
um var starfsemi Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Hins ísl. Biblíufélags
kynnt á fundinum. Guðmundur
Magnússon prófessor flutti erindi
um fjármál safnaðanna og gerði
grein fyrir því m.a. hvernig hægt
væri að hafa meiri samhjálp í fjár-
málunum. Sr. Guðný Hallgrímsdótt-
ir, prestur fatlaðra, sagði frá starfi
sínu í þjónustu við fatlaða, og lagði
hún áherslu á að hún liti á starf sitt
sem tengilið fatlaðra við söfnuðina.
Á fundinum var lagt fram frum-
varp til breytinga á lögum um veit-
ingu prestakalla en ný lög um veit-
ingu prestakalla voru sett árið 1987
og var þá gert ráð fyrir að þau yrðu
endurskoðuð eftir fimm ár. Með
þessu frumvarpi er leitast við að
sníða mestu agnúana af lögunum.
Fundurinn var haldinn í Lang-
holtskirkju og hófst með guðsþjón-
ustu þar sem biskup íslands, herra
Ólafur Skúlason prédikaði en pró-
fastur. sr. Jón D. Hróbjartsson og
sr. Flóki Kristinsson þjónuðu fyrir
altari. Kór Langholtskirkju söng
undir stjórn Jóns Stefánssonar org-
anista.
Dr. ívar Jónsson
Suxssex, og Michael Dunford, dósent
í Evrópurannsóknadeild Háskólans í
Sussex. Gagnrýnendur voru Bob
Jessop, prófessor í stjórnmálafræð-
um við Háskólann í Lancaster, og
Andrew Sayer dósent í upplýsinga-
og framleiðslutækni við Háskólann í
Sussex.
ívar Jónsson lauk BA-námi í fé-
lagsfræðum frá Háskóla íslands
1980 og MA-námi í heimspeki og
sögu félags- og stjórnmálavísinda við
Háskólann í Essex, Englandi 1984.
Hann lauk jafnframt 60 einingum í
fil.kand.-námi í vísindakenningum
við Gautaborgarháskóla 1981 og 40
einingum í doktorsnámi 1984.
Ivar er giftur Lilju Mósedóttur,
hagfræðingi. Hann er sonur hjón-
anna Jóns G. Ivarssonar verslunar-
stjóra og Guðrúnar G. Sigurgeirs-
dóttur iðnverkakonu. ívar starfar á
Hagstofu íslands. (Frcttatilkynning-)
=m Dictaphone
A Rtney Bowes Company
Gæðatæki til hljóðupptöku,
afspilunar og afritunar.
Falleg hönnun. Vandaðar upptökur.
e<
Umboö á íslandi:
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Simar624631/624699
Þekking Reynsla Þjónusta
~FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 814670
SACHS
KÚPLINGAR
DISKAR
HÖGGDEYFAR
BENZ ■ BMW ■ V0LV0
OG FLESTALLIR AÐRIR EVRÓPSKIR FRAMLEIÐENDUR
VANDAÐRA BlLA NOTA SACHS KÚPLINGAR OG
HÖGGDEYFA SEM UPPRUNAHLUTII BIFREIÐAR SÍNAR.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ N0TA ÞAÐ BESTA
JILSANDER
IVAN SAPUTERA
kynnir
IILSANDER - COLOUR PURE
HAUSTLÍNUNA '91
þriðjudaginn 15. októberí
BYLGJAN
Hamraborg kl. 9.30 -12.00
GJAFA OG SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Suðurveri kl. 14.00 -18.00
Exel 3.0
16 stunda námskeið í notkun töflureiknisins Exel 3.0.
Meðal efnis er: Einföld áætlanagerð, notkun reiknilíkana,
myndræn framsetning talna (línu- og súlurit), greiðsludreifing
lána o.m.fl.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku
í námskeiðinu.
Verð kr. 12.800,-
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.