Morgunblaðið - 15.10.1991, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
t
Föðursystir okkar,
ÁSA ÞORSTEINSDÓTTIR KRISTENSEN,
andaðist 13. þessa mánaðar á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Stefán Ólafsson,
Ólafur Ólafsson.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést 12. október á heimili sínu, Lönguhlíð 3, Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda.
Hrafnhildur Leifsdóttir, Karólina Kristinsdóttir.
t
Eiginkona mín,
GUÐRÍÐUR HELGADÓTTIR,
Mávahlíð 15,
Reykjavík,
andaðist laugardaginn 12. október.
Jóhannes Halldórsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
PERNILLA M. OLSEN,
Norðurbrún 1,
lést í Landspítalanum föstudaginn 11. október.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
andaðist á Ljósheimum, Selfossi, þann 13. október.
Iris Bachmann, Skarphéðinn Sveinsson,
Elín Bachmann, Hörður Bergsteinsson,
Ólafur Bachmann, Hrafnhildur Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Tómasarhaga 11,
Reykjavík,
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þórður Runólfsson,
Jakobína Þórðardóttir,
Runólfur Þórðarson, Hildur Halidórsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGFÚS HALLGRIMSSON
fyrrverandi kennari,
Hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi,
Stokkseyri,
andaðist í sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, sunnudaginn
13. október.
Kristjana Steinþórsdóttir,
Anna og Svein Johansen,
Per, Mark og Linda Johansen.
t
Ástkær faðir okkar,
ÁRNI KÁRASON,
Hallbjarnarstöðum,
Tjörnesi,
andaðist í sjúkrahúsi Húsavíkur sunnudaginn 13. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Eiður Árnason,
Kári Árnason,
Ingólfur Árnason.
- . - ...—
Jón A. Guðnason
Götu — Kveðjuorð
Fæddur 23. febrúar 1918
Dáinn 10. september 1991
Á haustdögum 1939 komu
nokkrir ungir sveinar „heim til
Hóla” í Hjaltadal, hins forna
menntasetur, í þeim tilgangi og
með það f huga að rækta sinn eigin
garð í orðsins fyllstu merkingu.
Þessir ungu menn voru komnir
víðs vegar af landinu og sumir
hverjir jafnvel með það í huga að
Hólar yrði þeirra dvalarstaður
næstu þtjú misserin. Af eðlilegum
ástæðum tekur það sinn tíma að
kynnast, þegar svona hópur kemur
saman víðsvegar af landsbyggðinni.
Þessa tvo vetur sem þessir ungu
menn voru samvistum á Hólum bar
að sjálfsögðu margt á góma sem
■ekki verður tíundað hér. Að námi
loknu dreifðist hópurinn fullur
bjartsýni á framtíðina. Sumir fóru
til síns heima aðrir á hinn almenna
vinnumarkað og enn aðrir til frek-
ara náms. Einn þeirra sem mættur
var á Hólum á haustdögunum ’39
var Jón A. Guðnason frá Hólmi í
A-Landeyjum, stór og sterklegur
að vallarsýn enda karlmenni mikið
í reynd. Það sýndi sig fljótt að Jón
var félagslega sinnaður og sjáan-
lega vanur úr ungmennafélagi sinn-
ar heimabyggðar. Ohætt er að segja
að hann var sá eini í okkar hópi
sem fannst ræðustóllinn ekki sá
ógnvaldur sem hann var hjá öðrum,
hann gat því án ótta flutt mál sitt
og hugsun úr honum en það var
meira en hinir nýju félagar gátu
látið eftir sér svona fvrst í stað.
Þá leyndi það sér ekki að hann
hafði stundað þjóðaríþrótt íslend-
inga sem var glíman og var öðrum
fremri í henni fyrst í stað. „Bóndi
er bústólpi, bú er landstólpi, því
skal hann virður vel”. Þessara
fleygu orða skáldsins hefur Jón lát-
ið á sér sannast því hann varð einn
af þeim fáu úr ’39 árganginum sem
nýtti nám sitt til þeirra hluta sem
stofnað var til og gerðist bóndi.
Það hafa aðrir skrifað um hann
sem bónda og einnig ætt hans, því
verður að mestu leyti sleppt þeim
þáttum í lífshlaupi hans hér í þess-
um línum. Þó verður ekki hjá því
sneitt að Jón var atorkusamur á
jörð sinni, Götu í Hvolhreppi, sem
var æskuheimili konu hans, en þá
jörð keyptu þau og bjuggu þar til
yfír lauk. Hann ræktaði jörðina og
stækkaði auk þess sem hann byggði
og stækkaði allar byggingar á jörð-
t
Tengdamóðir mín, amma, langamma og systir,
ELÍN KLARA VALDIMARSDÓTTIR BENDER,
verður jarðsett frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. október
kl. 13.30.
Sigrún J. Haraldsdóttir,
Elin Klara Grétarsdóttir,
Haraldur Þór Grétarsson, Linda Hauksdóttir,
Helga Þóra Haraldsdóttir, Guðlaug Á. Valdimarsdóttir.
t
Hjartkær faðir okkar,
RAGNAR ELÍASSON,
Hátúni 8,
Reykjavík,
andaðist á Grensásdeild Borgarspítalans sunnudaginn 13. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hanna Ragnarsdóttir,
Guðlaug Ragnarsdóttir.
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. Blánuustofa FnÓfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öii kvöld til kl. 22,-einnig um heigar. Skreytingar við öll tiiefni. Gjafavörur. ,'l - - pv ^ Á
K S.HELGASON HF IISTEINSMIDJA ■ ■ SKEMMUVEGI48. SlMI 76677
LEGSTEINAR =-. VETRARTILBOÐ -5 Graníl s/P Tn HELLUHRAUNI 14 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 652707 ® « OPIÐ 9-18. LAUGARDACA FRÁ'KL. 10-15.
inni. Slíkt er all dijúgt lífsstarf.
Þess skal þó getið að ekki stóð Jón
einn að verki þar sem kona hans
stóð honum við hlið. Þessi skrif
áttu fyrst og fremst að vera frá
skólafélögum fyrir góð kynni og
tryggð við félagana eftir að við
skildum um vorið 1941. Oft hefur
verið sagt að „hver sé sinnar gæfu
smiður”. Víst er það að Jón hefur
verið gæfumaður í gegnum tíðina
þar sem hann eignaðist góða konu,
. mannvænleg börn og gott heimili,
er það ekki þetta sem flestir stefna
að í lífinu?
Síðan við kvöddumst á Hólum
1941 hefur þessi árgangur haldið
óvenju vel saman, fimm sinnum
hefur verið stofnað til nemenda-
móts, og í öll þessi skipti var Jón
með þeim fyrstu að tilkynna þátt-
töku sína og mætti ætíð. Á síðasta
vori, er 50 ár voru liðin frá kveðju-
stundinni, var stofnað til Hólamóts.
Að venju var Jón þar mættur, þó
hann ætti ekki beint heimangengt
þar sem kona hans hafði veikst
síðastliðinn vetur og var undir
læknishendi. Ekki leiddi maður
hugan að því, að hér væri í síðasta
sinn sem maður hitti Jón svo hress
og kátur sem hann var þá. Já, svona
er lífið, enginn veit hvenær kallið
kemur eða hver er næstur. Að sjálf-
sögðu erum við sem komum að
Hólum á haustdögum 1939 komnir
af léttasta skeiði og ekki óeðlilegt
að skörðin fari að stækka í hópnum.
Það var 10. sept. sL sem kallið kom
óvænt til Jóns, þar sem hann var
við störf á búi sínu. Hver er svo
tilgangurinn með þessu jarðneska
striti? Þessari spurningu get ég
' ekki svarað frekar enn aðrir. Hitt
er víst hann er einhver. Mitt per-
sónulega mat er það að við séum
hér á nokkurskonar stökkpalli, þar
sem við eigum að þroskast. Eg vil
trúa því að Jón hafi ræktað sinn
garð og fengið góðar móttökur á
hinum nýja stað. Að endingu send-
um við konu hans og bömum þeirra
samúðarkveðjur.
Fari kær skólabróðir í friði með
bestu þökkum fyrir góð kynni.
F.h. skólabræðra,
Guðmundur Jóhannsson.
ERFISDRYKKJUR
í þægilegum og
rúmgóöum salar-
kynnum okkar.
Álfheimum 74,
sími 686220
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Onnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.