Morgunblaðið - 15.10.1991, Síða 56
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Orkustofnun:
Uppnina olíugass-
Ins í Öxarfirði leit-
að með kjamaborun
Unnið við borun í Öxarfirði. Á innfelldu mynd-
inni skoðar Magnús Olafsson sýni úr borholunni.
Morgunblaðið/Ingveldur Árnadóttir
Enskumælandi maður sem notar íslenskt nafn kærður:
Sveik fyrirtæki um
hundruð þúsunda
UNDANFARNAR vikur hefur á
vegum Orkustofnunar verið unnið
að því að ná sýnum úr setlögum
við Skógarlón í landi Ærlækjar-
sels í Öxarfirði, en þar fundust
■ visbendingar um olíu í jarðlögum
þegar borað var eftir heitu vatni
árið 1987 og jarðgas kom upp með
vatninu. í sumar var boruð 325
metra djúp hola við Skógarlón
sem var fóðruð, og undanfarið
Stóð sótt í
eyðisveit
Reykhólum.
TÍU MENN fóru í gær að sækja
stóð vestur í Múlasveit og ætla
þeir að reka stóðið í Reykhóla,
að sögn Steingerðar Hilmarsdótt-
ur, fulltrúa sýslumannsins í Barð-
“ttíirandarsýslu.
Þar verður eiganda stóðsins sem
er frá Brjánslæk gefinn kostur á að
leysa stóðið út, annars verður það
boðið upp. Sextíu hestar eru í stóð-
inu og er það væntanlegt til Reyk-
hóla um miðjan dag í dag.
Eigendur eigna í Múlasveit kvarta
undan ágangi hestanna en þeir naga
hús og skemma mannvirki. Múla-
sveit er í eyði.
Bjarni P. Magnússon, sveitarstjóri
á Reykhólum, er einn þeirra sem
fóru að ná í stóðið. Hann sagði að
lausaganga búfjár væri algerlega
bönnuð. Aðvörunarbréf vegna þessa
hefðu ítrekað verið send en án
árangurs og þyí hefði verið gripið
rfiji þessara aðgerða af illri nauðsyn.
Sveinn
hefur verið borað með kjarnabor
niður úr lienni, en upphaflega stóð
til að afla sýna niður á um 700
metra dýpi. Að sögn Magnúsar
Ólafssonar jarðfræðings hafði í
gær tekist að ná um 120 metra
borkjarna úr holunni, og sagði
hann að væntanlega yrði borað
niður á um 500 metra dýpi í vik-
unni, en óvíst væri um framhaldið
þar sem fjárveiting til verkefnis-
ins væri nánast uppurin.
Sýni úr borkjarnanum hafa þegar
verið send til rannsóknar í Dan-
mörku, og að sögn Magnúsar er
fyrstu niðurstaðna þaðan að vænta
í næsta mánuði.
„Aðaltilgangurinn með þessum
borunum hefur verið að ná sýnum
til að senda í greiningu og finna
þannig upprunann að olíugasinu. Við
ætluðum okkur að komast niðu" úr
setlagabunkanum og fara niður á
um 700 metra dýpi, en jarðeðlis-
fræðilegar mælingar hafa gefið til
kynna að á því dýpi geti verið komið
niður í berggrunninn á þessum slóð-
um. Þetta hefur hins vegar verið
erfiðari borun heldur en við höfðum
áætlað í upphafi, og einsýnt að við
náum ekki settu marki,” sagði Magn-
ús.
Hann sagði að þegar boruninni
lyki yrði mældur hiti og þrýstingur
í holunni ásamt ýmsum eðlisfræði-
legum eiginleikum bergsins, og jafn-
framt tekin sýni af vatni og gasi,
sem síðan yrðu efnagreind. Fram-
hald rannsóknanna færi svo eftir
þeim niðurstöðum sem fengjust, en
að þeim fengnum yrði tekin ákvörðun
um hvort borað yrði dýpra eða gerð-
ar jarðeðlisfræðilegar mælingar til
að kanna enn betur útbreiðslu setlag-
anna í Öxarfirði.
ENSKUMÆLANDI maður á þrí-
tugsaldri, sem dvalist hefur hér
á Iandi um rúmlega þriggja vikna
skeið, með vegabréf frá Namibiu
stílað á íslenskt nafn, var í gær
kærður fyrir svik af að minnsta
kosti tveimur aðilum til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Annars vegar er um að ræða
heildsölufyrirtæki sem maðurinn er
talinn hafa svikið snyrtivörur frá,
fyrir á bilinu 100-350 þúsund krón-
ur, hins vegar hótel þar sem hann
hefur búið um rúmlega 3 vikna
skeið án þess að greiða krónu af
reikningi, sem nú er kominn í um
200 þúsund kr. Á föstudag setti
hótelið manninum stólinn fyrir
dyrnar og var lagt hald á vegabréf
hans og farseðil. Maðurinn var
fijáls ferða sinna í gær.
Aðili sem Morgunblaðið hefur
rætt við og haft hefur samskipti
við mann þennan kveðst telja lík-
legt að vegabréf hans sé falsað og
að hann sé eftirlýstur svikari er-
lendis en það fékkst ekki staðfest
í gær.
Við einn aðila hér á landi sagði
maður þessi að hann væri hingað
kominn á vegum flugfélagsins
Namibair til að kanna kostnað við
að þjálfa starfsfólk hér á landi.
„Verkefnið” dróst á langinn. Fyrir
öðrum hefur-hann kynnt sig sem
snyrtisérfræðing og hárgreiðslu-
meistara. Sem slíkur hefur hann
komið fram í hópi fagfólks hér á
landi og hafði tekið til starfa á
hárgreiðslustofu í borginni. Fagfólk
sem blaðið ræddi við í gær sagði
að maðurinn hefði greinilega ekki
verið með öllu ókunnugur í faginu
en við skoðun á handverkinu kæmi
í ljós að hann kynni rétt nóg fyrir
sér til að villa á sér heimildir.
Um helgina fóru utan til Parísar
nokkrir íslenskir „kunningjar”
þessa manns sem höfðu þegið boð
hans um að útvega þeim gistingu
í borginni. Fyrsta verk fólksins eft-
ir komuna til Parísar var að útvega
sér gistingu því hótelið góða sem
kunninginn sagðist hafa útvegað
reyndist ekki vera til.
Maðurinn hefur gengið undir ís-
lensku nafni og sagt fólki að hann
sé fæddur hér en hafi flust
barnungur utan með foreldrum sín-
um. Hann kann nokkur stök orð í
íslensku og hefur sagt sumum eitt
en öðrum annað um íslenskan upp-
runa sinn.
Smygl í Klakki
Vestmannaeyjum.
TOLLGÆSLAN lagði hald á 1.400
kíló af kjötmeti er Klakkur VE
kom til Eyja á sunnudag eftir sölu-
ferð til Þýskalands. Þá var einnig
lagt hald á áfengi, bjór og sígar-
ettur.
Smyglvarningurinn, sem var 30
karton af sígarettum, 13 kassar af
bjór og 6 flöskur af sterku víni,
reyndist aðallega í eigu tveggja skip-
verja, en kjötvarningnum var fram-
vísað við tollafgreiðslu skipsins.
Grímur
Blönduós:
Kýr lengdi líf sitt um sólarhring'
Einstæð lífsbaráttusaga langdælskrar kýr
Blönduósi r—
KYRIN VON frá Fremstagili í Langadal gerði sér lítið fyrir sl.
fimmtudag og hljóp frá gæslumönnum sínum við sláturhúsdyrnar
á Blönduósi og hélt lieim á leið. Rétt ttepur sólarhringur leið áður
en kýrin náðist á ný og þurfti þá að skjóta hana á færi þar sem
hún jórtraði undir barði á bænum Blöndubakka skammt norðan við
Blönduós. Á þessum tæpa sólarhring hafði Von lagt að minnsta
kosti 30 kílómetra að baki, brotið niður nokkrar girðingar, synt
yfir vatn og farið yfir ótal skurði.
Eftir að kýrin skiidi við eiganda
sinn og sláturhúsfólk í dyrum slát-
urhússins stefndi hún vestur fjör-
una og í átt að ósi Blöndu. í fjör-
unni skammt fyrir neðan áhaldahús
Pósts og síma lá leið Vonar upp á
aðalgötu Blönduóss og fór hún þar
yfír tvær lóðir og voru girðingar
engin hindrun þegar átti að króa
hana þar af. Eftir atganginn á lóð-
unum fór kýrin aftur niður í fjöru
en hafði stuttan „stans” og fór'
aftur til baka og þá upp Skúla-
brautina, upp Klaufina og linnti
ekki ferðinni fyrr en í nágrenni við
vatnstank Blöndósinga sem stend-
ur um 3 kílómetra austur af bæn-
um. Þegar hér vár komið ferðum
Vonar íhugðu menn að skjóta kúna
og var kallað eftir vopni. Var eins
og kýrin skynjaði hvað til stóð því
nú skipti engum togum, Von lagði
aftur af stað og stefndi nú til fjalls
og leit lengi vel út fyrir að það
áfoj-m hennar heppnaðist. Seint og
um síðii' tókst að komast í veg
fyrir kúna og á leið sinni til baka
synti kýrin dágóðan spöl í Grafar-
vatni sem er skammt vestan við
bæinn Breiðavað í Langadal. Upp
úr vatninu hélt kýrin ferðinni áfram
og fór þá yfir þjóðveg 1 og niður
að Blöndu og þegar hér var komið
sögu var Von ekki svo fjarri heima-
fjósi sínu að tilraun var gerð til
að reka hana heim að Fremstagili
aftur. Við Baslhaga, en svo kallast
skúrbygging ein á Blöndubökkum
frammi í Langadal, neitaði kýrin
að fara lengra fram dalinn en þess
í stað sameinaðist hún hrossastóði
á Björnólfsstaðatúninu en þá var
komið myrkur og var ákveðið að
freista þess að ná kúnni í birtingu
daginn eftir. En rétt fyrir mið-
nætti er hringt í eiganda kýrinnar
og honum tilkynnt að hún væri
aftur komin á Blönduós, nánar til-
tekið á lóð sláturhússins. Hófst iíú
eltingaleikur að nýju en honum
lauk um tveimur klukkutímum síð-
ar er kýrin hvarf leitarmönnum út
í myrkrið rétt austan Blönduóss í
svokölluðum Ennishvammi. Leit
hófst síðan strax aftur um leið og
birti og um hádegisbil fannst kýrin
undir barði á bænum Blöndubakka
og var þá kölluð til þekkt grenja-
skytta og skömmu síðar féll kýrin
Von í valinn fyrir skoti skyttunnar.
Þykir lífsviljinn með ólíkindum í
Von því leið sú sem kýrin lagði að
baki var að minnsta kosti þijátíu
kílómetrar, ekki alltaf greið leið
og voru vötn, skurðir og girðingar
engin hindrun.
Jón Sig.