Morgunblaðið - 17.10.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
Þmgfararkaup án þess að vera þingrnaður:
Krafínn endurgreiðslu
á óútleystum launum
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ krefur Árna Matthíasson, blaðamann
á Morgunblaðinu, um endurgreiðslu á þingfararkaupi, sem honum
var sent í maíbyrjun án þess að hann hefði verið kjörinn á Al-
þingi. Um var að ræða launaávísun Árna Mathiesen alþingis-
manns, sem nafna hans var send í misgripum í vor og hann inn-
leysti aldrei.
Morgunblaðið birti á sínum
tíma frétt um málið og sagði Sig-
urður Þorkelsson ríkisféhirðir þá
að líklega hefði kennitala Árna
Matthíassonar verið sett á lista
yfir alþingismenn í misgripum
fyrir kennitölu nafna hans Mathi-
esep.
Árni Matthíasson segist aldrei
hafa innleyst launaávísunina,
heldur eyðilagt hana. Hún hefði
varla komið Árna Mathiesen að
gagni, þar sem hún var stíluð á
nafn og kennitölu Árna Matthías-
sonar.
Áma barst bréf í maí, þar sem
hann var krafínn um endur-
greiðslu þingfararkaupsins og
fyrir nokkrum dögum fékk hann
svohljóðandi bréf: „Fjármálaráðu-
neytið starfsmannaskrifstofa vill
vekja athygli yðar á að þér skuld-
ið enn ofgreidd laun að upphæð
kr. 115.913,- sbr. áður sent bréf
dags. 7. maí 1991. Starfsmanna-
skrifstofan ítrekar þau tilmæli sín
að þér endurgreiðið ofangreinda
upphæð sem allra fyrst til ríkisfé-
hirðis, Sölvhólsgötu 7, 150
Reykjavík, svo komizt verði hjá
frekari innheimtuaðgerðum. Ef
þér hafið eitthvað við ofangreint
að athuga, vinsamlegast hafið
samband við undirritaða.” Undir
þetta ritar Ásta L. Leósdóttir.
„Fyrst var vegið að mannorði
mínu með því að gera mig að þing-
manni, og nú á að fara að gera
mig að vanskilamanni líka,” sagði
Árni Matthíasson í samtali við
Morgunblaðið. „Ef þessu linnir
ekki fer ég að íhuga málsókn á
hendur fjármálaráðuneytinu.”
Sent þingfarark^
án þess að hafa ví
ið Iqörinn á þing [
ÁKNl M»Uhbn»««i.bU<«i»JuráMoct«nl»lWli—.f<U<l
UuojUtUub frá rikUrfhirfi •* mti b*am Uaau '
thmd*ð tr þtaffraiaup tU huw. Árni er á árin
■IþUcÚBuáar. n befar þá ekki eoa reriá iýirú.
aldrri reriá I frBmbo* Sifnrður Þoririmoa rikU
I »«raUli »W MontunfaUðið I gtn, »í trúJe»m ntn w
I >«1 mi keooiUU Lrw* krfði rerið eett á iUU yfír
I ■Jefripam lyrir kennitilu amtn* kum. Anu IL II
iýtrUa alþiacUauoa*.
Anl M. Katkteo aVa(U- eeri aht* aáUur >
taaður eacði I •aaáali rið Uorxua- áf b> ekkJ Bka nd
bUM I pv •« kaaa kef» ekkJ Ariaioioeráll
eno tenfið att þiocfaraikaup. A UooaaeðCmmi b-------_
Hiaa eefar keaáat hann ekki riU upphariio akJptát J *U*Mm
heort það hefði núafariat, þar aem fjrrir aaafmlaað. aí ■Úþi|
haaa befSi ekld aporri fjrrir «n I70M2 kitear Of fariUtíj '
þeA Arni aiffl það tkki *era ad upphari M þteund kiteð
aýtt að þeia aSfwiouM eaari aaataia 1*04SZ bteaul
ni|Ufl aamao. ,É* ttik [tet Araa árátUriWr an. b&|
tfSaat f riðuriu aurtenaaoartifal
riku ee atundum hef tg uarið apacimaaaateU. ar4£|
apurður að þri baort ég akrifl um krtour f auð»mðri« akattia_
múafk f MorfuobUðið," aagði AraJ Sicuriur tariaUma
ui aýjasU pðat aa|ðiat haan toa ar
Frétt Morgunblaðsins 7. maí.
Frá slysstað í gær.
Reykjanesbraut:
Morgunblaðið/Ingvar
Banaslys þegar fólksbíll
og olíubíll rákust saman
BANASLYS varð á Reykjanes-
braut um klukkan fjögur í
gær. Fólksbíll og olíubíll rák-
ust saman og er talið að öku-
maður fólksbílsins, nær fimm-
tugur karlmaður,
samstundis.
hafi látist
Ekki er unt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
--------*_4_e--------
íslensk verslun, ný verslunarsamtök, stofnuö:
VersIunaiTáð er fyr-
ir einstök fyrirtæki
- segir Birgir Rafn Jónsson, formaður FÍS,
og að í athugun sé stofnun fraktkauparáðs
NÝ félagasamtök, íslensk versl-
un, verða stofnuð formlega 12.
nóvember nk. og eru stofnendur
þess félög atvinnurekenda í
verslun á Islandi, Félag ísl. stór-
kaupmanna, Kaupmannasamtök
íslands og Bílgreinasambandið.
Stórkaupmenn ganga þar með
ór samstarfi við Verslunarráð
íslands sem staðið hefur frá því
í ársbyrjun 1989. Birgir Rafn
Jónsson, formaður FÍS, segir að
í samstarfi stórkaupmanna við
Verslunarráð hafí komið í Ijós
að hagsmunir verslunarmanna
og annarra aðila innan Verslun-
arráðs hafi víða rekist á. Upp-
bygging Verslunarráðsins leiði
til ákveðinnar samþjöppunar á
valdi og að ráðið sé þannig sam-
tök fyrir sérhagsmuni einstakra
fyrirtækja en ekki félag félag-
anna.
Birgir segir að innan FÍS hafí
verið samþykkt að ganga í Evrópu-
samtök fraktkauparáða, enda telji
'samtökin sig í raun vera félag frakt-
kaupenda á íslandi. Þau fyrirtæki
sem eru innan FÍS kaupi frakt fyr-
ir um 4-5 milljarða á ári, en það
eru um 30-40% af markaðnum.
Birgir segir einnig í viðtali í við-
skiptablaði Morgunblaðsins í dag
að það valdi áhyggjum ef frakt-
flutningar færist eingöngu á hendur
tveggja aðila. Með því verði lands-
menn og viðskiptaaðilar ofurseldir
fákeppnismarkaði og slíkt hljóti á
endanum að leiða til hærra vöru-
verðs. Hann gagnrýnir einnig að
hafnarafstaða hér á landi skuli vera
í eigu þessara tveggja aðila. Áhugi
FÍS á Ríkisskipum hafi m.a. tengst
hafnaraðstöðu skipafélagsins við
Vogabakka sem hefði staðið öllum
opin tii afnota. Horfur séu á að
ekkert verði af þeirri hugmynd en
það mál hljóti að tengjast stefnu
stjómvalda um einkavæðingu og
hringamyndum. Þá segir Birgir
Rafn hugmyndir uppi að koma á
fót hér á landi fraktkauparáði.
Sjá „Við ætlum að verða sterkt
afl ...” á bls. B4.
Lögreglunni í Keflavík barst til-
kynning kl. 16.14 um harðan
árekstur á Reykjanesbrautinni,
skammt vestan við Vogaafleggj-
ara. Fólksbíll og olíubíll, sem var
á leið til Reykjavíkur, höfðu rekist
saman. Ökumenn bílanna voru ein-
ir í farartækjum sínum og er talið
að ökumaður fólksbílsins hafi lát-
ist samstundis.
Fólksbíllinn er gjörónýtur. Olíu-
bíllinn kastaðist útaf veginum við
áreksturinn og ökumaður hans
meiddist á hné og var fluttur á
slysadeild Borgarspítalans. Lög-
reglan í Keflavík sagði ekki hægt
að fullyrða neitt um hvað varð
þesá valdandi að bílamir rákust
saman en sagði að mikið rok hafí
verið á Reykjanesbrautinni þegar
slysið varð og ekki ólíklegt að það
hafí átt einhvem þátt í slysinu.
Flateyri:
Endurskipulagn-
ing hjá Hjálmi
STARFSFÓLKI á skrifstofu
Hjálms hf á Flateyri um tíu manns
var sagt upp störfum vegna end-
urskipulagningar, en búið er að
ganga frá ráðningu þeirra flestra
aftur.
Einar Oddur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálms, sagði að þetta
væru mjög venjulegar aðgerðir í takt
við það sem öll frystihús væru að
gera. Þau væru að aðlaga sig breytt-
um aðstæðum og leita leiða til þess,
því þeim væri gert að minnka fasta-
kostnað sinn um 20%. Samdráttur
þorskaflans væri búinn að leika
sjávarplássin á Vestfjörðum óskap-
lega hart.
Framkvæmdastjórn EB um Evrópska efnahagssvæðið:
Erfiðlega gengnr að finna
málamiðlanir í sjávarútvegi
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) kynnti fyrir fasta-
fulltrúum aðildarríkja bandalagsins mögulegar málamiðlanir í samn-
ingunum um Evrópska efnahagssvæðið á fundi í Brussel í gær.
Samkvæmt heimildum í Brussel fyrir fundinn hefur framkvæmda-
stjórninni gengið erfiðlega að fínna málamiðlanir sérstaklega í sjáv-
arútvegi. Heimildarmenn Morgunblaðsins segja að helst sé útlit
fyrir að minnkandi áhersla verði lögð á sérstöðu íslendinga í þeim
tillögum sem framkvæmdastjórnin hyggst kynna fyrir aðildarríkjum
EB. Heimildum ber á hinn bóginn saman um að ekki sé ljóst hvort
um er að ræða flóknar samningabrellur af hálfu EB eða bandalag-
ið átti sig ekki á því hversu mikilvægar sjávarafurðir séu fyrir Is-
lendinga.
Samningamenn EB og Fríversl-
unarbandalags Evrópu (EFTA)
hafa lagt á það áherslu undanfarið
að fínna viðunandi lausnir á þeim
atriðum sem standa samningi um
EES fyrir þrifum fyrir fundi ráð-
herra bandalaganna sem verða í
Lúxemborg á mánudag. Hér er
sérstaklega átt við sjávarafurðir
og svokallaðan þróunarsjóð sem
aðildarríki EFTA eiga að fjár-
magna. Ulf Dinkelspiel, Evrópu-
málaráðherra sænsku ríkisstjórn-
arinnar, sagði í gær í samtali við
Reuíers-fréttastofuna að umtals-
verðir erfíðleikar einkenndu enn
þann þátt viðræðnanna er varðaði
sj ávarútvegsmálin.
Ljóst er að fundurinn á mánudag
verður látinn ráða úrslitum um það
hvort samningar nást eða ekki.
Samkvæmt heimildum í Brussel
leggur framkvæmdastjórn EB til
að tollar EFTA-ríkjanna af sjávar-
afurðum lækki um sem svarar 40
milljónum ECU (tæpum þremur
milljörðurn ÍSK) en heildar toll-
greiðslur af innfluttum sjávaraf-
urðum frá EFTA er rúmlega 70
milljónir ECU. Sömu heimildir
herma að afstaða framkvæmda-
stjórnarinnar til aðgangs að fiski-
miðum og undanþága frá fjárfest-
ingum í sjávarútvegi hafi frekar
farið harðnandi frá fundi utanríkis-
ráðherra EB 1. október sl.
Ljóst þykir að sá árangur sem
talið var að náðst hefði um Alpaum-
ferð á fundi í Eindhoven hafí verið
mjög orðum aukinn. Nokkrar aðild-
arþjóða EB hafí þegar lýst and-
stöðu við málamiðlunina (Holland,
Ítalía og Grikkland) auk þess sem
Austurríkismenn hafa ekki sam-
þykkt hana ennþá. Mikill ágrein-
ingur er um það á milli EB og
Austurríkismanna hver skuli vera
staða slíks samkomulags þegar til
aðildarsamninga Austurríkis kem-
ur. Framkvæmdastjóm EB vill að
þá verði nokkur atriði samninganna
tekin upp aftur s.s. aðlögunartímar
sem hún vill láta stytta að mun.
Austurríkismenn vilja hins vegar
annað hvort semja nú eða láta
samninga bíða til aðildarviðræðn-
anna.
Sett hefur verið fram gróf hug-
mynd um fyrirkomulag þróunar-
sjóðs EFTA fyrir vanþróuð svæði
innan EB. Hún gocir ráð fyrir því
að EFTA ríkin leggi 2 milljarða
ECU í sjóðinn sem verði lánaðar
út á fímm ára tíma. Fyrstu tvö ár
lánstímans verði vaxtalaus en eftir
það greiði EFTA vextina niður um
3%. Lánstími verði 10 ár. Þá er
gert ráð fyrir að EFTA leggi fram
400 milljónir ECU í styrkjum á
sama fimm ára tímabili. Fundir
ráðherra EFTA og EB hefjast í
Lúxemborg klukkan 11 á mánu-
dagsmorgun, ekki er gert ráð fyrir
neinu sambandi á milli fundanna
fyrr en eftir klukkan þrjú og þá
því aðeins að viðunandi niðurstaða
fáist á fundi samgönguráðherra
EB sem hefst á sama stað klukkan
11 á mánudagsmorgun. Verði sá
fundur árangurslaus, þ.e. ekkert
samkomulag við Sviss og Austur-
ríki um Alpaumferð þykir líklegt
að samhliða fundum EFTA og EB
verði aflýst.