Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991 29 að nú sýndist Ólafi Ragnari Gríms- syni bókun 6 allt í einu vera orðið aðalatriði og kjarni málsins. Hann benti á að, að Kvennalistanum frá- töldum hefði verið nokkuð víðtæk samstaða um þessar viðræður. Ut- anríkisráðherra hefði haldið réttilega fram málstað íslands og allt ylti á því hvort samkomulag tækist um viðskipti méð sjávarafurðir án þess að við létum af hendi veiðiheimildir fyrir aðgang að mörkuðum. Það væri fráleitt að söðla- um núna og taka upp aðrar aðferðir nú þegar málið væri á lokastigi. Afstaða ríkis- stjórnarinnar væri skýr og hún bygg- ist á grunni sem lagður var í tíð fyrrverandi stjórnar. Tilraunir stjóm- arandstæðinga, annarra en þing- manna Kvennalistans, til að gera málið tortryggilegt mætti rekja til þess að þeir sætu ekki lengur í ríkis- stjórn. Óhófleg bjartsýni Halldór Ásgrímsson (F- Al) var Bimi Bjamasyni sammála um að ekki væri ráðlegt að breyta um samn- ingatækni. En það væri ekki sama um hvað væri samið og hvemig væri haldið á málum. Halldór taldi ýmislegt hafa gengið afturábak síðan og taldi að óraunsæi og óhófleg bjart- sýni hefði að ýmsu leyti skaðað okk- ar málstað. Halldór var Ólafi Ragn- ari Grímssyni ósammála um að bók- un 6 gæfi okkur fortakslausan rétt. EB hefði aldrei viljað viðurkenna að samtölum um bókun 6 væri lokið. Þar af leiðandi hefði hann því miður ekki trú á því að hægt væri að sækja þetta mál eingöngu á því að krefjast þess að bókunin tæki gildi. Eiður Guðnason umhverfisráð- herra taldi að þessi umræða snerist að sumu leyti um það hvar við vildum vera í samstarfi þjóðanna. Menn töluðu í niðrunartón um að laga okk- ar reglur að reglum EB. Það væri spuming hvort við gætum búið við allt aðrar reglur í viðskiptum heldur en nágrannaþjóðir. Hann taldi ýmsa mistúlka fullveldishugtakið til að gera EES sem tortryggilegast. Eiður furðaði sig á því að Olafur Ragnar vitnaði nú til bókunar 6 frá árinu 1976. Hvers vegna hefði hann ekki flaggað þessari skoðun fyrr? Páll Pétursson (F-Nv) vildi svara því nokkru að stjórnarandstaðan væri núna farin að sýna tortryggni gagnvart þessum viðræðum. Það væri eðlilegt þegar menn töluðu af sannfæringarkrafti fýrir samningi sem þeir vissu ekki hvernig yrði. Það væri samstaða um að reyna að ná samningum en þessi samstæða ætti sér takmörk og það yrði ekki heims- endir þótt samningar tækjust ekki. Páll taldi einnig að ekki kæmi til greina að nota tilslakanir um inn- flutnig landbúnaðarvara sem skipti- mynt fyrir tollfrelsi á sjávarafurðum. Össur Skarphéðinsson (A-Rv) vildi fá að vita hver afstaða Fram- sóknarflokksins væri, það hefði ekki komið fram í þessum umræðum. Hann taldi að þessir samningar sner- ust um uppbyggingu islensks sjávar- útvegs næstu tvo áratugina; að sigr- ast á harðvítugri tollastefnu EB sem nú miðaði að því að gera okkur að hráefnisframleiðendum. Steingrímur Hermannsson (F-Rn) sagði að farið hefði verið fram á þessa umræðu til að menn gætu mótað afstöðu. Ýmislegt hefði komið fram í þessum samningum sem ork- aði tvímælis. T.a.m. varðandi landa- kaup útlendinga. Svavar Gestsson (Ab-Rv) sagði að Alþýðubandalagsmenn hefðu talið rétt að kanna hvað ístendingum byð- ist í þessum viðræðum en nú sýnist heldur lítið á þessu að græða. Það væri ekki einangrunarstefna að vera andvígur þessum samningum. ís- lendingar ættu fleiri kosta völ. Hinir raunverulegu einangrunarsinnar væru í EB sem vildu lokaðan „lúksus- klúbb” ríkra þjóða. Að afloknu fundarhléi vegna þing- flokksfunda skiptust þingmenn á skoðunum um fyrirvarana, og túlkun á dómum og dómsvaldi í Evrópu- bandalaginu um svonefnt „kvóta- hopp”, ávinning og tap af hugsanleg- um samningum og hvort bera ætti þessa samninga undir þjóðaratkvæði. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra taldi þar sem hér væri ekki fullveldi afsalað þjrfti þess ekki og að þjóðkjörnir fulltrúnar myndu taka afstöðu til samninganna. Nú stæði lokataflið fyrir dyrum og það yrði ekki dans á rósum. Lissy heldur þrenna tónleika Kvennakórinn Lissy heldur þrenna tónleika um helgina, í Ýdölum, Miðgarði og á Siglufirði Fyrstu tónleikarnir verða í Ydölum, Aðaldal, annað kvöld, föstudagskvöldið 18. október og hefjast þeir kl. 21. Á laugardag, 19. október heldur kórinn tónleika í Miðgarði, Skagafirði kl. 21. og á sunnudag, 20. október verða síðan tónleikar í Siglufjarðar- kirkju og hefjast þeir kl. 16. Píanóleikari er Ragnar L. Þorgrímsson, einsöngvarar eru Hildur Tryggvadóttir og Gunnfríður Hreiðarsdóttir, en stjórnandi er Margrét Bóasdóttir. Á efnisskránni eru íslensk og erlend kórlög, einsöngur og tvísöngur. Kvennakórinn Lissy heldur þrenna tónleika á Norðurlandi um helgina. Þrotabú Istess: 430 milljóna kröfum lýst í búið ÞRIGGJA manna kröfuhafa- nefnd var kosin á fyrsta skipta- fundi í þrotabúi ístess hf. sem haldinn var í gær, en hlutverk nefndarinnar verður m.a. að Festi handlegg í strekkivél VINNUSLYS varð í gærmorgun í verksmiðjuhúsi Islensks skinna- iðnaðar, þegar starfsmaður klemmdi handlegg í armi strekkivélar. Tilkynnt var um slysið laust fyr- ir kl. hálf tíu í gærmorgun, en þá hafði starfsmaður íslensks skinna- iðnaðar á Gleráreyrum fest hægri handlegg í armi strekkivélar. Hann var fluttur á slysadeild, en að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri var ekki vitað hversu alvarleg meiðsl hans voru. koma fram sem nokkurs konar fulltrúaráð fyrir hönd kröfu- hafa í búið og fylgjast með rekstri þess. Lýst hefur verið um 430 milljóna króna kröfum í búið, en óvíst er hvers virði eigir þess eru. Jóhannes Sigurðsson skipta- stjóri þrotabúsins sagði að reynt yrði að selja eignir búsins hið fyrsta, en þær eru m.a. verk- smiðjuhús í Krossanesi, lager- og skrifstofuhúsnæði. Þá ætti búið óinnheimtar viðskiptakröfur upp á um 240 milljónir króna, en óvíst væri hvort tækist að innheimta þær þar sem í flestum tilfellum væru um að ræða fiskeldisfyrir- tæki, sem sum væru þegar orðin gjaldþrota. Norska fyrirtækið T. Skretting AS, fyrrum samstarfsaðili ístess, lýsti um 30 milljóna króna kröfu í búið, en fyrirtækið hafði á sínum tíma skrifað sig fyrir hlutafé sem Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Eigendur Sædísar í Morgunblaðinu í gær féll niður að birta mynd af eigendum Sædísar hinu nýja skipi Ólafsfirðinga. Þeir eru taldir frá vinstri Gunnar Þór Magnússon, útgerðarmaður, Brynja Sigurðardóttir, Sigurður G. Gunn- arsson, útgerðarstjóri, Ásgerður Gylfadóttir og Númi Jóhannsson, skip- stjóri. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum OFURMINNI Námskeií 19./20., 26727. okt. og 9710. nóv. í Reykjavík. Námskeið á Austfjörðum 2.-3. nóv. Uppl. hjá Farskóla Austurlands. Námskeiðá Selfossi 16.-17. nóv. Uppl. hjá Farskóla Suðurlands. Möguleiki á kvöldnámskeiðum fyrir fyrirtæki. Ofurminnistæknin er einföld og örugg. Þú lærir óendanlega langa lista yfir hvað sem er, öll nöfn, númer, andlit o.s.frv. Styttu heima- námið. Simi 642730 (og 626275 í hádegi). lúunjnnivi;; i'oqrvróf;r n;. ,, nnr:.' 'nii'fOri lo i:~t& greiða átti með leyfisgjaldi vegna framleiðsluréttar. Þegar ístess var tekið til gjaldþrota í sumar voru 37 milljónir króna af því hlutafé sem Norðmenn höfðu skrifað sig fyrir ógreiddar. Jóhannes sagði það vafamál hvort þetta skilyrði fyrir greiðslu hlutafjárins héldi, þ.e. að hlutafé sé greitt með leyfis- gjaldi. Var skiptastjóra falið að taka ákvörðun um hvort þessi krafa yrði sótt. Næsti skiptafundur í búinu verður að hálfum mánuði liðnum, 31. október, og verður þá m.a. gengið endanlega frá kröfulýsing- askrá og tekin afstaða til launakr- afna. Alvarlegt vinnuslys: Taug- lenti á hafnarvörð- um sem slösuðust mikið ALVARLEGT vinnuslys varð á Akureyri í gærmorgun, þegar taug úr Hvassafelli slitnaði og lenti af miklum krafti í tveimur mönnurn. sem stóðu á bryggjunni þar sem skipið var að leggja að. Slysið varð um kl. 10 í gærmorg- un, en atvik voru þau að Hvassafell- ið, skip Eimskipafélags íslands, var að leggja að togarabryggjunni við Útgerðarfélag Akureyringa. Skipið keyrði í svokallaðan „spring”, en það er taug sem liggur frá skipinu í land og er notað til að ná aftur- enda skipsins að bryggjunni. Norð- anátt var og gekk erfiðlega að leggja skipinu að bryggjunni. Þegar skipið keyrði á taugina slitnaði hún og lenti á hafnarvörð- um sem stóðu á bryggjunni. Lenti taugin á öðrum þeirra og kastaðist sá til og á hinn. Þeir slösuðust báð- ir mikið, að sögn lögreglu. Annar slasaðist þó mun meira en hinn, en hann brotnaði mikið, m.a. var hann handleggs-, fót- og lærbeinsbrot- inn. Þeir voru fluttir á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri þar sem þeir gengust undir aðgerð í gær. Dagur Ijóssins 1991 Vinnulýsing á heimilum Ráðgjöf um lýsingu, sjónstarf og umgengni við rafmagn verður í dag kl. 16-18 í eftirtöldum versl- unum: Rafbúð, Bíldshöfða 16, Ljós og orka, Skeifunni 19, Borgarljós, Skeifunni 8. Verið velkomin! Ljóstæknifélag íslands Félag raftækjasala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.