Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 44
- 44 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDÁGUR 17. OKTÓBER 1991 KORFUKNATTLEIKUR Fyrstu stig Tinda- stóls TINDASTÓLL krækti sér í a^íyrstu stigin á ísiandsmótinu í körfuknattleik, Japisdeildinni, er liðið sigraði Snæfell nokkuð örugglega í fyrsta leik vetrarins hér í Hólminum. Það var aðal- lega frábær hittni Einars Ein- arssonar sem skóp sigur Tindastóls en hann gerði m.a. níu 3ja stiga körfur og skotnýt- ing hans í heild var mjög góð. Hittni leikmanna var óvenju slök. Það voru aðeins þrír leik- menn sem virtust finna rétta Ieið í körfuna í fyrri hálf- leik, þeir Ivan Jonas og Einar Einarsson hjá Tindastóli og Rúnar Guðjónsson njá Snæfelli, en hann átti mjög góðan leik. Bakverðir Snæfells, sem léku mjög vel í Borgamesi 'í 2. umferð, fundu sig engan vegin í fyrri háfleik og áttu varla skot á körfuna. Seinni hálfleikur var mjög jafn en forskot Tindastóls var of mikið og leikmönnum Snæfells tókst ekki að minnka muninn. Ivan Jonas átti mjög góðan leik; spilar samheija sína mjög vel uppi vg er öruggur undir körfunni. Bárð- "u'r Eyþórsson tók góðan kipp í síð- ari hálfleik og sýndi þá hvers hann er megnugur, gífurlega snöggur en hefði mátt beita sér mun meir. Tim Harvey var mjög sterkur í seinni hálfleik og skoraði þá 18 stig. Mis- heppnaðar sendingar og afar slæm skotnýting Snæfellinga varð þeim að falli í þessum leik, ásamt þætti Einars Einarssonar, sem áður er getið. Ólafur Sigurðsson skrifarfrá Stykkishólmi Einar Einarsson fór á kostum í Hólminum í gærkvöldi, og skoraði m.a. níu 3ja stiga körfur. URSLIT Snæfell-Tindastóll 69:83 íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi, Japisdeild- in í körfuknattleik, miðvikudaginn 16. okt- óber 1991 Gangur leiksins: 2:0, 10:13, 14:20, 22:30, 27:40, 46:54, 48:61, 55:67, 61:74, 69:83. Stig Snæfells: Tim Harvey 23, Bárður Eyþórsson 20, Rúnar GuðjónssonT6, Hjör- leifur Sigurþórsson 8, Hreinn Þorkelsson 2. Stig Tindastóls: Einar Einarson 33, Ivan Jonas 25, Valur Ingimundarson 15, Kristinn Baldvinsson 7, Hinrik Gunnarsson 2, Karl Jónsson 1. Dómarar: Arni Freyr Sigurlaugsson og Brynjar Þór Þorsteinsson. Áttu rólegan dag, en athygli þeirra dofnaði undir lokin. Áhorfendur: 380. KKÍfær 5-7 milljónirfyrir samning við Japis: Lrfsspurssmál - segir Kolbeinn Pálsson, formaður Körfuknattleikssambandsins KORFUKNATTLEIKSSAM- BAND íslands og Japis hf. gerðu í fyrradag stærsta aug- lýsingasamning sem báðiraðil- ar hafa átt aðild að; samning til eins árs spm færir KKÍ 5-7 milljónir króna, og segir Kol- beinn Pálsson, formaður sam- bandsins þetta lífsspursmál fyrir KKÍ, þar sem sérsambönd fái engan styrk úr ríkissjóði og lottótekjur, einu föstu tekjurn- arsem sérsambönd njóti, hafi aðeins numið um 12% af brúttó rekstri KKÍ í fyrra og reiknað sé með að svipað verði upp á teningnum í ár. JT Isamningnum felst að efsta deild íslandsmóts karla í körfuknatt- leik, sem kölluð hefur verið Úrvals- deild undanfarin ár, nefnist Japis- deild frá og með undirritun. Samn- ingurinn gildir til eins árs, sem fyrr segir, en fyrirtækið Japis hefur for- kaupsrétt á deildinni næstu tvö árin. Það sem fyrirtækið fær fyrir sinn snúð eru auglýsingaskilti á öllum leikjum sem fram fara á vegum KKI; leikjum í deiid, bikarkeppni landsleikjum og stjörnuleikjum. Þá Morgunblaðið/Júlíus Samningur KKÍ og Japis undirritaður. Pétur Steingrímsson, fulltrúi Japis, t.v. og Kolbeinn Pálsson, formaður Körfuknattleikssambandsins. hefur fyrirtækið rétt til að nota landsliðsmenn í íþróttinni í auglýs- ingar, auk þess sem auglýsing frá Japis verður á buxum allra leik- manna deildarinnar svo og á bún- ingum dómara. „Þetta er stærsti samningur sem KKÍ hefur gert og gífurlega mikil- vægur fyrir okkur,” sagði Kolbeinn Pálsson, við undirritun samnings- ins. Hann sagði sambandið reka KNATTSPYRNA Helgi Björgvinsson skor- aði með þrumufleyg Helgi Björgvinsson, miðvörðurinn sterki úr Víkingi, opnaði marka- reikning sinn fyrir háskólann í Norður-Karolínu, þegar hann skoraði sannkallað draumamark á 85. mín. í leik gegn Gamecocks, 2:1. Helgi fékk knöttinn 35 m fá marki og lét skotið ríða af - þrumu- fleygur hans hafnaði efst uppí hægra horninu, án þess að markvörður Gamecock ætti möguleika á að veija. Með Helga leikur annar íslensk- ur ieikmaður, Jónas Guðjónsson, sem hefur átt við meiðsii að stríða, en hann hefur verið einn mesti markaskorari liðsins undanfarin ár. HANDKNATTLEIKUR jOpið bréf til framkvæmdastjómar HSÍ Af gefnu tilefni óskum við eftir að koma á framfæri og árétta skoðanir okkar í máli því sem upp kom á dögunum, þegar mótanefnd HSÍ samþykkti að fresta tveimur leikjum í fyrstu umferð Islandsmóts- ins í handknattleik, leik ÍBV og HK sem fram átti að fara í Vestmanna- eyjum og KA og Vals sem leika átti á Akureyri. Þar sem um fyrsta leik mótsins var að ræða, höfðu forráðamenn KA og ÍBV staðið í ströngu við undirbún- ing, eins og forráðamenn annarra liða hafa væntanlega gert líka. Á Akureyri hafði verið lagður mikill kostnaður í augiýsingar og auk þess Kdfði verið undirbúin hundrað manna veisla fyrir leikmenn beggja liða og aðra aðstandendur. Umræddan dag gaf Veðurstofa ísiands út veðurspá næsta sólar- hrings þar sem gert var ráð fyrir slæmu veðri sem átti að bresta á þegar iíða tæki á nóttina. Hún gaf okkur ekki tilefni til þess að ætla að leikjunum yrði frestað því eins og skýrt kom fram í spánni, var ekki gert ráð fyrir versnandi veðri fyrr en um nóttina. Síðdegis sama dag, nánar tiltekið á fimmta tímanum; bárust okkur sögusagnir þess efnis að til stæði að f^esta leikjunum vegna veðurs. Þá var ijómablíða á Akureyri (sem hélst fram yfir miðnætti) og sömu: leiðis ágætis veður í Reykjavík. í Vestmannaeyjum var hins vegar til- kynnt að líklega yrði ekki hægt að fljúga til baka. Skömmu seinna kom tilkynning frá Þorsteini Jóhannes- syni formanni mótanefndar, þess efnis að búið væri að fresta leiknum vegna veðurs en Valsmenn munu hafa haft áhyggjur af því að komast ekki utan til Evrópuleiks tveimur dögum seinna, af þeir yrðu veður- tepptir á Akureyri. Oneitanlega kom tilkynning þessi eins og þruma úr heiðskíru lofti, auk þess sem hún kom aðeins þremur tímum fyrir leik og því ómögulegt að afstýra öllum undirbúningi sem fram hafði farið. í elleftu grein reglugerðar HSÍ um handknattleiksmót segir orðrétt: „Óski félag eftir frestun á leik í mótum á vegum HSÍ skal skrifleg beiðni þar um berast formanni móta- nefndar á skrifstofu HSÍ í ábyrgð eða skeyti með minnst 7 sólarhringa fyrii-vara, nema veigamiklar ástæður liggi fyrir frestunarbeiðni. Veiga- miklar ástæður eru: 1. Samgöngu- örðugleikar vegna veðurs. 2. Far- sóttir.” Við teljum að lögin gefi ekki ástæðu til þess að fresta umræddum leik og okkur finnst ófyrirgefanlegt að beita vinnubrögðum sem þessum. Þá höfðu Valsmenn haft nægan tíma til þess að biðja um frestun á leikn- um vegna nálægðar við Evrópuleik- inn. Þegar tilkynning um frestun barst, voru fyrstu viðbrögð á Akur- eyri að bjóða leikmönnum Vals akst- ur til baka ef ekki yrði flogið um og að bjóða leiguflugfélagi að hýsa flugvélina á Akureyri ef hún kæmist ekki til baka. Báðum þessum kosta- boðum var hafnað. Við erum sann- færðir um að ef við hefðum beðið um frestun af sama tilefni, hefði verið hlegið að okkur og okkur sagt að við hefðum bara gaman af því að skoða Kringluna einn dag. Reynd- ar þekkjum við það vel að verða veðurtepptir í Reykjavík á keppnis- ferðalögum og er það ekkert óal- gengt að þegar farið er í leik sé tannburstinn tekinn með til öryggis. Leikmenn ÍBV voru t.d. veðurtepptir sex sinnum á síðasta keppnistíma- bili, þar af vissu þeir tvisvar af því fyrirfram. Þá má ekki gleyma því að það er kostnaðarsamt að verða veðurtepptur en sá kostnaðúr er aðeins brot af því sem það kostar að fresta leik með eins stuttum fyrir- vara og gert var um daginn. Sama dag og daginn eftir létum við hafa eftir okkur í fjölmiðlum að við værum óánægðir með vinnu- brögð mótanefndar HSÍ og virtist okkur að menn væru undrandi á viðbrögðum okkar. Föstudaginn 4. október er haft eftir Bjariía Ákasyni, formanni handknattleiksdeildar Vals að KA- menn mættu vera þakklátir og ættu ekki að vera með læti því Valsarar hafi „lækkað” rekstrarkostnað deild- arinnar. Ástæðan væri sú, að nú þyrftu KA-menn ekki að mæta í leik ef veðurspá er tvísýn og því ekki að greiða kostnað við uppihald ef þeir yrðu veðurtepptir. Við ætlum ekki að kenna Bjarna lexíu í al- mennri hagfræði né hvernig reka á handknattleiksdeild, en hann hlýtur að vita að dæmið var dýrara fyrir KA en það hefði verið fyrir Val, ef þeir hefðu þurft að gista. Laugardaginn 5. október er rætt við Þorstein Jóhannesson formann mótanefndar HSÍ þar sem hann seg- ir að ef farið verði fram á að móta- nefnd greiði kostnaðinn vegna frest- unarinnar, séu KA-menn að greiða hann sjálfir þar sem félögin reki deildina sjálf. Ef Þorsteini finnst þetta sjálfsagt, styðjum við sjónar- mið hans eindregið því þá hlyti það sama að gilda um annan kostnað, svo sem ferðakostnað og yrði það mikil búbót fyrir félögin á lands- byggðinni. Það er alveg öruggt að við fyrsta tækifæri munum við leggja það til að reglum verði breytt á þann hátt að dómurum verði ekki heimilt að ferðast með sömu flugvél og leik- menn sé þess kostur þegar þeir koma til leiks, eins og tíðkast í knatt- spyrnu. Þetta er ágætis regla og ef hún hefði verið í gildi í dag, hefði leiknum aldrei verið frestað því dóm- arar hefðu verið komnir með áætlun- arflugi og aldrei samþykkt að fresta leiknum vegna veðurs enda blíða á báðum stöðum, eins og áður sagði. Nú halda flestir að við séum í hefndarhug og bíðum spenntir eftir fyrsta tækifæri til þess að gjalda í sömu mynt og Valsmenn og leik- menn HK. Það ætlum við okkur ekki að gera. Við erum nefnilega þeirrar skoðunar að þessi vinnu- brögð séu ófyrirgefanleg og ætlum ekki að taka þau upp. Við munum leggja okkur fram um að mæta til leiks á settum tíma hvort sem farið er loft- eða landleiðis og munum áfram hafa tannburstann með til öryggis. Þá ætlum við okkur ekki að fara fram á skaðabætur. Það eins sem við förum fram á er að þetta endurtaki sig ekki! F.h. KA, Sigurður Sigurðsson. F.h. ÍBV, Einar Benediktsson. fimm landslið, standa fyrir þjálfara- námskeiðum og ýmis annar kostn- aður væri við rekstur þess, ríkis- framlag til sérsambanda væri hins vegar ekkert nú og einu föstu tekj: ur þeirra væru lottótekjur. KKÍ hefði fengið 2,4 milljónir af þeim i fyrra og reiknað væri með sömu upphæð í ár. Samningurinn við Jap- is færði KKÍ hins vegar um 23-25% af rekstrarkostnaði ársins. íuém FOLK ■ KEPPNI í NBA-deildinni í körfuknattleik hefst í fyrstu viku- inni í nóvember. Pat Riley, fyrrum þjálfari Lakers, sem nú þjálfar New York Knicks hefur styrkt lið sitt með tveimur leik- mönnum. Hann hef- ur fengið Xavier McDaniel frá Phoenex og Tim McCormic frá Atlanta, en lét Maurice Cheeks fara þangað í staðinn. McCormic á að vera vara- maður fyrir Patrik Ewing. ■ „MAGIC” Johnson gekk í heil- agt hjónaband nýlega. Sú lukkulega heitir Earletha Kelly og er æsku- ástin hans úr menntaskóla. Þau létu gefa sig saman í Michigan og svaramenn voru félagar hans, Isiah Thomas og Mark Aguirre. Þegar hjónin gegnu úr kirkju biðu 3.000 aðdáendur Magic fyrir utan til að beija goðið augum. ■ MICHAEL Jordan var við- staddur þegar hluti af hraðbraut í N-Karolínufylki var nefnd eftir honum, en hann gekk í skóla þar um slóðir. Gunnar Valgeirsson skrifarfrá Bandaríkjunum íkvöld Körfuknattleikur Japisdeildin: Keflavík ÍBK - Haukar kl. 20 1. deild karla: Kennarask. ÍS - Víkveiji kl. 21.30 1. deild kvenna: Hafnarfj. Haukar-KR kl. 20 Kennarsk. ÍS-UMFG kl. 20 Víkingasveitin á leiðtil Selfoss Víkingasveitin, nýstofnaður stuðningsklúbbur handknattleiks- deildar Víkings, verður með rútuférð á leik Selfoss og Víkings á morgun, föstudag. Farið verður frá félags- heimilinu í Stjörnugróf kl. 19. Vík- ingasveitina skipa handhafar árs- korta á heimaleiki Víkings. Upplýs- ingar og skráning er hjá Magnúsi Guðmunssyni í símum 678188 eða 686508.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.