Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 48
(
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Eskifjörður:
Eldur í sölt-
unarstöð
Eskifirði.
SLÖKKVILIÐINU á Eskifirði
var tilkynnt um eld í söltunar-
stöðinni Öskju um hádegisbilið í
gærdag. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins en töluverðar
skemmdir urðu á húsinu sem er
í eigu Kristmanns Jónssonar.
Söltunarstöðin stendur í miðjum
bænum.
Kristmann segir að húsið sé 25
ára gamalt. Þar hafi verið saltað í
mörg ár en ekki í fyrra. Þá lét
Kristmann salta annars staðar en
notaði söltunarstöðina sem
geymslu. Hann segir að engin stór
tæki hafi verið í húsinu, einungis
bönd og bjóð frá gömlu söltunarað-
ferðinni. Eldsupptök eru ókunn.
BJ
------------
Olíugasleitín í Öxarfirði:
Borunum
hætt fyrr
en ætlað var
Snjófjölskylda í smíðum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Það snjóaði hressilega á Akureyri í gær og voru börnin á Lundarseli
alsæl þegar þau hlupu út á fannhvíta jörðina. Þau hófust strax handa
við að hnoða fjölskyldu úr hinu forgengilega efni, snjónum. Er ljós-
myndara bar að garði höfðu þau lokið við að gera mömmuna og litla
barnið, en voru í óða önn að sanka að sér efnivið til að fullkomna
verkið, að búa til föðurinn.
BORUNUM við Skógarlón í
Öxarfirði var hætt seinnipart
þriðjudagsins þegar komið var
niður á heitavatnsæð sem gerði
það að verkum að ekki var hægt
að halda borunum áfram nema
koma fyrir sérstökum öryggis-
búnaði á bornum. Að sögn Guð-
mundar Ómars Friðleifssonar,
jarðfræðings hjá Orkustofnun,
var þá búið að bora niður á 450
metra dýpi, en upphaflega var
ætlunin að bora niður á um 700
metra dýpi, eða niður úr setlög-
um á þessu svæði.
Guðmundur Ómar sagði að fjár-
veiting sem veitt var til þess að
leita uppruna oiíugassins sem kom-
ið hefur upp úr borholum á þessu
svæði væri nú þrotin, en Alþingi
veitti 8,5 milljónir króna til þessa
verkefnis. Hann sagði það vera
mikil vonbrigði að ekki hefði tekist
að komast niður úr setlagabunkan-
um og þurfa nú að hætta við hálf-
klárað verk, en talsverða gaslykt
leggði upp úr holunni.
Tillaga um breytingar á loftferðasamningi:
Heimild fyrir beinu flugi til
sextán borga í Þýskalandi
SAMKOMULAG hefur náðst
milli íslands og Þýskalands um
tillögur að breytingum á loft-
ferðasamningi landanna, sem
gera ráð fyrir beinu flug frá Is-
landi til sextán borga í Þýska-
landi en þó aldrei fleiri en
þriggja samtímis. Eina undan-
tekningin er Tegel-flugvöllur við
Berlín en heimilt er að fljúga til
annarra flugvalla í nágrenni
borgarinnar. Þá er veitt heimiid
til að fljúga um Glasgow, Noreg,
Svíþjóð og Danmörku til Þýska-
Iands, þó með því skilyrði að við-
komandi stjórnvöld veiti til þess
heimild.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar
þjóðréttarfræðings í utanríkisráðu-
neytinu, er jafnframt sá skilningur
lagður í samkomulagið að fleirum
en einu flugfélagi í hvoru landi verði
heimilt að nýta sér þetta
samkomulag.
í loftferðasamningi landanna frá
árinu 1959 er ákvæði um að honum
megi breyta að undangengnum við-
Stefnt að 5 millj, lítra niðurfærslu fullvirðisréttar í mjólkurframleiðslu:
Bændur fái 35 kr. fyrir hvem
lítra sem þeir framleiða ekki
KÚABÆNDUR munu væntanlega fá greiddar 35 krónur úr ríkissjóði
fyrir hvern mjólkurlítra sem þeir framleiða ekki innan fullvirðisréttar
síns undirriti þeir samning um að draga úr framleiðslunni á yfirstand-
andi verðlagsári. Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur Iagt til
að með þessum hætti verði reynt að draga úr mjólkurframleiðslunni
um fimm milljónir lítra á verðlagsárinu, en það myndi kosta ríkissjóð
175 milljónir króna.
Mjólkurbirgðir í landinu við upp-
haf verðlagsársins 1. september síð-
astiiðinn voru 24 milljónir lítra, og
höfðu þær þá aukist um fimm millj-
ónir lítra milli verðlagsára. Sam-
kvæmt gildandi búvörusamningi eiga
mjólkurbirgðir í lok yfirstandandi
verðlagsárs hins vegar að vera '16
milljónir lítra. Heildarfullvirðisréttur
kúabænda er 104 milljónir lítra á
verðlagsárinu, en á síðasta verðlags-
ári nam mjólkurframleiðslan 106,2
milljónum lítra. Innanlandssala
mjólkurafurða nam þá hins vegar
rúmlega 99 milljónum lítra og hafði
hún dregist saman um rúma milljón
lítra milli verðlagsára. Innan verð-
ábyrgðar ríkisins voru fluttar út
mjólkurafurðir sem samsvara um 2,2
milljónum lítra, en þar var aðallega
um osta að ræða. Kostnaður vegna
útflutningsins er um 65 kr. á lítra,
og nam því samtals rúmlega 140
milljónum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Framkvæmdanéfnd
búvörusamninga lagt fram tillögur
til að draga úr mjólkurframleiðslunni
á yfirstandandi verðlagsári um fimm
milljónir lítra. Tillögurnar miða að
því að einstakir bændur undirriti
samninga um að mínnka framleiðslu
sína um eitthvað ákveðið magn og
fái fyrir það greiðslur sem nema 35
kr. á hvern lítra, en það samsvarar
um það bil launalið verðlagsgrund-
vallarins í mjólkurframleiðslu. Þann-
ig fengi sá bóndi sem hefur 100
þúsund lítra fullvirðisrétt og gerir
samning um að minnka framleiðsl-
una um 10 þúsund lítra greiddar 350
þúsund krónur fyrir þennan ónotaða
rétt. Gert er ráð fyrir því í tillögunum
að bændur þurfí að undirrita samn-
inga þessa annaðhvort fyrir 15.
desember eða 15. mars og komi
greiðslur til þeirra 10. janúar eða
10. apríl. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru einnig uppi hug-
myndir um greiða þeim bændum sem
framleiða umfram fullvirðisrétt sinn
á verðlagsárinu 15-20 kr. í lok verð-
lagsársins fyrir hvem umframlítra,
en samkvæmt gildandi reglugerð er
gert ráð fyrir að hjá þeim bændum
sem ekki ná að framleiða upp í full-
virðisrétt sinn flytjist ónotaður réttur
til þeirra sem framleiða umfram full-
virðisrétt sinn. Landbúnaðarráðherra
hefur tillögur Framkvæmdanefndar
búvörusamninga nú til umfjöllunar.
ræðum milli landanna. Niðurstaða
þeirra er að lagt er til að flugi verði
breytt þannig að þýsk flugfélög,
fleirum en einu verði veitt heimild
til að fljúga til íslands og jafnframt
að þeim verði heimilt að koma við
á fleiri stöðum en einum í Noregi,
Danmörku og Svíþjóð en einungis
á einum stað á Englandi eða í Glas-
gow á leið sinni til Reykjavíkur
og/eða annarra staða á íslandi.
Að sama skapi, er gert ráð fyrir
að heimilt verði að fljúga frá ís-
landi til einhverra af 16 alþjóðaflug-
völlum í Þýskalandi, þó aldrei til
fleiri en þriggja í einu, með viðkomu
í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Ef
flogið er frá íslandi um Glasgow
má ekki taka farþega um borð þar
nema þegar flogið er til Berlínar.
Pétur J. Eiríksson framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða sagð-
ist fagna þessum samningi. „Hann
liðkar mikið til fyrir okkur. Hann
opnar leið til að færa út kvíarnar
í Þýskalandi og við fáum verðmæt
réttindi með því að geta flogið milli
Skandinavíu og þessara borga í
Þýskalandi og þau réttindi eiga eft-
ir að nýtast okkur í framtíðinni.
.Við höfum því miður ekki rétt til
að flytja farþega milli Bretlands og
Þýskalands, nema Berlínar, en við
höfum óskað eftir að loftferðasamn-
ingur við Bretland verði endurskoð-
aður og gefínn fijáls,” sagði Pétur.
Hann sagðist ekki óttast þó Luft-
hansa fengi sömu réttindi og Flug-
leiðir á leiðinni milli íslands og
Þýskalands.