Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991 i t GUÐMUNDUR VALDIMARSSON, Bárustíg 3, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. októb- er kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahús Skagfirðinga. Sigurbjörg Sigurðardóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Rafn Benediktsson, Guðlaug Guðmundsdóttir, Steinn Elmar Árnason, Guðmundur Valdimar Rafnsson, Fanney Steinsdóttir, Grétar Rafn Steinsson, Sigurbjörg Hildur Steinsdóttir. t Sonur okkar, unnusti, bróðir og mágur, RAGNAR ARNAR HJALTASON, Skála, Fœreyjum, sem lést 9. október sl., var jarðsettur 13. þessa mánaðar. Poltra Hjaltason, Hjalti Hjaltason, Sigga Djurhus, Álfhildur Ósk Hjaltadóttir, Annfinnur Poulsen. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, JÓN INGVARSSON bifreiðastjóri, Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavik, lést þann 15. október. Ásdís Jóhannesdóttir, Viðar H. Jónsson, Ingunn B. Jónsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAUKUR JÓNSSON, Þverholti 26, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. október kl. 10.30. Rósa Einarsdóttir, Kolbrún Hauksdóttir, Auður Hauksdóttir, Berglind Hauksdóttir, tengdasynir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, faðir og bróðir, BENEDIKT BJARNASON, fyrrverandi vörubflstjóri og starfsmaður Borgarspitalans, Háaleitisbraut 39, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 17. október kl. 13.30. Ólafia Sigurðardóttir og aðstandendur. t Eiginmaður minn og faðir okkar, PÁLMI HELGI ÁGÚSTSSON kennari, Hringbraut 69, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag, fimmtudag- inn 17. október, kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á að láta Skógræktarfé- lag Hafnarfjarðar njóta þess. Minningarkort eru hjá Bókabúð Olivers Steins í Hafnarfirði. Helga Þórarinsdóttir og börn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KARLS Ó. JÓNSSONAR fyrrv. útgerðarmanns frá Sandgerði, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. október kl. 13.30. Hulda Pálsdóttir, Jón Karlsson, Guðbjörg Björnsdóttir, Örn Karlsson, Ingibjörg Óladóttir, Eygló Karlsdóttir, Benjamin Hansson, Gunnvör Karlsdóttir, Ármann Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Jóhannes Guð- mundsson vélstjóri Fæddur 5. janúar 1910 Dáinn 9. október 1991 Með angurværð sest ég niður til að setja nokkrar línur á blað, til að minnast Jóhannesar Guðmunds- sonar, sem jarðsettur er í dag. í lífi manns eru alltaf einhverjar manneskjur sem maður telur sjálf- sagðar, hafa verið til frá því maður fæddist og manni finnst nær óhugs- andi að þær kveðji og fari á aðrar lendur. Fyrir mér er Jói einn af þessum fastapunktum í lífinu og frá því ég man eftir mér hafa nöfnin Sísí og Jói verið samofin. Jóhannes Guðmundsson var gift- ur Sigríði Ásbjömsdóttur föðursyst- ur minni, sem lést fyrir 6 árum. Jói varð þó enganveginn einn þó Sísíar nyti ekki við lengur, hann bjó í sambýli við einkasoninn Ásbjörn Ragnar, konu hans Elínu og sonar- soninn Jóhannes sem var afa sínum einkar kær, aðdáunarvert var að sjá hversu vel sambýlið gekk og hlýtur það að vera huggun fyrir þau sem eftir lifa. Með nokkrum orðum langar mig að votta virðingu mína kærri vin- konu, Halldóru ísleifsdóttur í Stykkishólmi. Henni á ég margt að þakka, og mun minning hennar ávallt lifa í huga mér. Halldóra gætti mín oft, þegar ég var lítil stúlka vestur í ERFISDRYKKJUR í þægilegum og rúmgóöum salar- kynnum okkar. Álfheimum 74, sími 686220 Minning Semjum minningargreinar, afmælisgreinar, tækifærisgreinar. Önnumst milligöngu við útfararstofnanir. Sími 91-677585. Fax 91-677586. V J Á stundum sem þessari er maður gjarn á að láta hugann reika og minnast allra góðu stundanna sem við áttum saman. Fyrstu minningar mínar um ferðalög eru „ógnarlöng ferðalög í afskaplega stórum bílum, langt langt upp í sveit”, og ég yfir- leitt bílveik! Enn eitt var víst, bíl- ferðin borgaði sig því við vorum að fara „austur að Ljósafossi” til Sísíar og Jóa. Við Sogsfossana bjó líka Úlla systir Sísíar og Tyrfmgur maður hennar og þeirra börn. Allt var þetta eins og ein stór fjölskylda og samheldni mikil. Fyrir barn sem er fætt og uppalið í Reykjavík er ómetanlegt að eiga sér frændfólk úti á landi, enda nutum við systurn- ar þess í ríkum mæli. Allt varð að ævintýri, hvort sem það var að gefa hænsnunum, fara á bát út á Ulfljótsvatn til að vitja um net, eða rölta sér í berjamó. Ein minning er þó sterkust og það er þessi til- finning um öryggi og ró sem maður fann hjá Sísí og Jóa og sú tilfinning tilheyrði þeim, ekki bara staðnum, Stykkishólmi. Hún var með ein- dæmum barngóð og virtist alltaf hafa nægan tíma fyrir leiki og spjall. Hún reyndist mér sem besta amma, og alltaf fylgdi tilhlökkun heimsóknum til hennar. Oft sagði hún mér prakkarasögur af bræðrum sínum og lífinu í sveit- inni. Ég minnist þess, hvað ég var spennt, þegar hún las fyrir mig framhaldssöguna Hrafnhildi úr Heima er best. Núna er innihaldið gleymt, en eftir lifir minningin um Halldóru og lesturinn hennar. Halldóra var líka lagin við að gera nytsöm störf að leik, t.d. þeg- ar hún kenndi mér að búa til ijóma- ís og súkkulaði, mala kaffi í kvörn og margt fleira. Hún hafði þann hæfileika að láta mig finna, að ég væri fullt eins merkileg og fullorðið fólk og að allt, sem ég segði eða gerði, væri jafn mikilvægt og væri ég fullorðin manneskja. Halldóra var líka óþreytandi að spila við mig á spil. Skemmtilegast þótti mér að spila marías, sem hún kenndi mér ásamt fleiru. Halldóra var bæði góð og hlý, og hún var líka vinnusöm og var alltaf með eitthvað á pijónunum í bókstaflegri merkingu. Ófáir voru vettlingarnir og hlýju hosurnar, sem hún pijón- aði á okkur fjölskylduna, og vand- lega gætti hún þess, að prestinum hennar, honum sr. Hjalta, yrði hvorki kalt á höndum né fótum. Slík var umhyggja hennar bæði í orði og verki. '"ÍG : það kom á daginn þegar þau tóku sig upp og fluttu til Reykjavíkur. Það var sama hvar þau bjuggu, alltaf var gott að koma til þeirra. Nú er komið að kaflaskiptum, Jói er farinn að finna Sísí sína og við sem eftir sitjum óskum honum velfamaðar á nýjum leiðum. Elsku Ásbjörn, Elín og Jóhannes, við systurnar Kolbrún, Auður, Nanna Stína, og Hulda, ásamt fjöl- skyldum okkar og mömmu, hugsum hlýtt til ykkar. Auður Hafsteinsdóttir Halldóra var trúuð kona og bar þess merki. Hún var ekki hrædd við að játa trúna á frelsara sinn Jesúm Krist, hann sem gaf líf sitt fyrir okkur, til þess að við mættum öðlast eilíft iíf. Þess vegna, fyrir náðarverk Jesú Krists, getum við glatt okkur við þá tilhugsun að seinna munum við hittast aftur í Guðs ríki, íklædd eilífum dýrðar- líkömum. Ég þakka Guði mínum fyrir þá dýrmætu stund, sem ég átti með Halldóru skömmu áður en hún lést. Ég skynjaði þá, að þetta yrði í síð- asta sinn, sem ég sæi hana á jörðu og gat þess vegna kvatt hana og þakkað fyrir gömlu góðu tímana. Þótt hárri elli fylgdi gleymska, gleymdi hún ekki Guði sínum. Við töluðum saman um frelsarann Jes- úm Krist, sem hún þráði og var tilbúin að hitta. Að lokum bið ég Guð um að blessa fjölskyldu og ástvini Hall- dóru og gefa þeim styrk í söknuðin- um. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvflast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, þvi að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, ■,_____ og í húsi Drpttins bý ég langa æyi. (23. sálmur Davíðs.) Ragnhildur Hjaltadóttir II. '■ I ' i t Móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGURVEIG VIGFÚSDÓTTIR, Freyjugötu 38, . andaðist að heimili sínu 15. október. Jarðarförin auglýst síðar. Steinunn M. Pétursdóttir, Birgir Jónsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar og systir, RÓSA SVANFRÍÐUR ODDSDÓTTIR, Ljósheimum 18a, lést i Borgarspítalanum 16. október. Fyrir hönd systkina, Héðinn Svanbergsson, Rannveig Magnúsdóttir, Oddur Agústsson. Halldóra Isleifs- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.