Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBÍAÐÍÐ FIMMTUÖAGUR 17. OKTOBER 1991 Benedikt Bjarna- son - Minning’ Fæddur 23. desember 1915 Dáinn 3. október 1991 Benedikt fæddist að Brún á Stokkseyri 23. desember 1915. Hann fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur árið 1929, og bjó á Fálkagötu 25 fram til ársins 1957, er hann gekk í hjónaband með móður okkar, Ólafíu Sigurðardóttur og þar hófust okkar kynni af hon- um. Benedikt starfaði lengst af sem vörubifreiðastjóri en síðustu starfs- ár sín var hann starfsmaður á Borg- arspítalanum. Benedikt andaðist á heimili dóttur sinnar, Kolbrúnar, 3. október sl. eftir langvarandi veik- indi. Heimili þeirra Benedikts og Ólaf- íu var alla tíð afar hlýlegt og nota- legt og þangað var gott að koma. Fjölskyldan var stór, þannig að þar var oft glatt á hjalla. Barnabörnin hændust að Benedikt, sem ávallt var kallaður Benni afi í þeirra hópi, og minnast þau hans með mikilli hlýju. Benedikt var afar greiðvikinn maður og þegar hann var beðinn um að veita aðstoð í einhverju máli var svarið áva.llt já. Við, böm Ólafíu og fjölskyldur okkar, minnumst Benedikts með þakklæti og hlýju fyrir það sem hann var okkur og móður okkar, en henni reyndist hann einstaklega vel í þeim veikindum, sem hún hef- ur átt við að stríða nú í nokkur ár. Við sendum öllum aðstandendum Benedikts okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Megi haiin hvíla í Guðs friði. Börn Ólafíu Signrðardóttur og fjölskyldur. Benedikt Bjarnason hefur kvatt okkur að sinni. Hann lést á heimili Kolbrúnar dóttur sinnar og hefur nú lagst til hinstu hvílu og losnað frá veraldlegum þrautum þessa jarðlífs. Benedikt, eða Benni, eins og við kölluðum hann, kvæntist tengdamóður minni, Ólafíu Sigurð- ardóttur, árið 1957 og áttu þau mörg góð ár saman. Hann bar hana á höndum sér og reyndist henni og fjölskyldu hennar sérstaklega vel á meðan hann naut heilsu og krafta. Heimili þeirra var fallegt og bar þess merki að þar byggju einstök snyrtimenni. Þar var gestrisnin í hávegum höfð og alltaf hugsuðu Ólafía amma og Benni afi um að eiga eitthvað handa litla fólkinu. Eftir að Ólafía og Benni fluttu af Fálkagötunni bjuggu þau í Háaleit- ishverfi, nú síðast á Háaleitisbraut 39. Þegar riljaðar eru upp samveru- stundir með Benna kemur margt fram í hugann. Ég minnist stund- anna í litla húsinu á Fálkagötu 19, þegar ég kom þangað fyrst 18 ára gömul með eiginmanni mínum, Guðna Steinari Gústafssyni, syni Ólafíu. Þar var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja, en þar var alltaf nóg pláss fyrir alla. Það var svo sannarlega glatt á hjalla þegar öll fjölskyldan var þar saman komin og sjaldan hefur maður heyrt fjöl- skyldu slá á léttari strengi og gera góðlátlegt grín að sér og sínum. Einnig var oft tekið í spil og höfðum við, sem ekki tókum þátt í spila- mennskunni, gaman af því að hlusta á samræðurnar við spilaborðið. Það var aldrei vafi á því hver hafði betri stöðu í spilunum, því mikill hlátur og hnyttnar athugasemir, stundum allharðar, komu því til skila. Hef ég grun um að tengdamóðir mín hafí með sínu góða kaffi og kræs- ingum, oftar en hún vissi sjálf, leyst úr „heitum sögnum” við spilaborðið — a.m.k. fyrir suma! Benni var sérstakur maður, traustur og ósérhlífinn. Hann var hjálpsamur og ætíð tilbúinn að rétta fólki hjálparhönd. f>egar hann átti vörubifreið var hann alltaf tilbúinn að hjálpa, hvort heldur verið var að byggja hús eða flytja búslóð. Þegar slíkt var framundan, spurði hann ætíð: „Klukkan hvað á ég að koma?” Þá var eins gott að vera tilbúinn á þeim tíma sem upp var _ gefinn, því Benni var stundvís og nákvæmur og í hans orðabók var ekkert sem hét „ um það bil klukk- an þetta eða hitt”. Hann var ákveð- inn og staðfastur í sínum skoðunum og hvikaði hvergi ef hann var ekki sammála síðasta ræðumanni. Hann var barngóður og naut sín vel í samskiptum við börnin, sem nú sakna „Benna afa með skeggið”, eins og þau kölluðu hann. Innilegar þakkir fyrir samfylgdina eru hér með fluttar frá börnum okkar og barnabörnum. Þetta ár hefur verið þeim hjónum erfitt, þar sem þau'þurftu bæði að leggjast inn á sjúkrahús. Þar sem ekki er enn unnt í okkar velferðar- þjóðfélagi að veita þá þjónustu, sem fullorðið sjúkt fólk þarfnast, tók dóttir Benna, Kolbrún, hann inn á sitt heimili og veitti honum umönn- un þar til yfir lauk. Ólafía hefur nú um stundarsakir flutt til dóttur sinnar, Ólafíu, þar sem hún nýtur ástúðar og umönnunar. Guð styrki elskulega tengdamóður mína og veiti henni huggun á erfiðum tím- um. Börnum Benedikts Bjarnasonar og fjölskyldum þeirra, ættingjum og vinum votta ég samúð mína og óska þeim Guðs blessunar. Guðrún Snæbjörnsdóttir Aðalheiðurl. Jónsdóttir Morastöðum - Kveðjuorð Fædd 5. janúar 1911 Dáin 7. október 1991 Heiða var dóttir hjónanna Gróu Eiríksdóttur frá Gíslakoti á_Vatns- leysuströnd og Jóns Engilbertsson- ar er bjuggu í Sunnuhvoli í Grinda- vík. Var hann dugnaðarmaður, stundaði sjóróðra og var smiður góður. Grindavík var þá sem nú mikið útgerðarpláss og nóg að starfa fyrir vinnufúsar hendur. Þangað ijölmenntu sjómenn víðs- vegar að á vetrarvertíð. Meðal þeirra var Gunnar Einarsson, f. 16. desember 1904, d. 16. desember 1987, Jónssonar og Guðrúnar Jóns- dóttur frá Morastöðum í Kjós. Hann var með afbrigðum duglegur og vinnusamur eins og hann átti kyn til. Þarna í Grindavík sá hann stúlk- una sína og var brúðkaup þeirra Heiðu og Gunnars haldið 8. júlí 1933 er sumarið fór í hönd. Ungu hjónin settust að á Morastöðum og bjuggu þar í sambýli við ijölskyldu hans, foreldra og systkini í hálfan annan áratug. En hann hélt áfram að stunda sjóinn á vetrarvertíðum um árabil. Heiða þessi hugljúfa stúlka vann hug og hjörtu allra þeirra er hún umgekkst. Hún var bráðdugleg við hvað eina, inni sem úti. Heiða og Gunnar eignuðust ellefu mannvænleg börn á lítið fleiri árum. Þau eru: Bergmann, Jón, Stella, Björg, Ingibjörg, Gróa, Ragnar, Sveinn, Sigríður, Guðrún og Hall- bera. Allt er þetta fríður hópur og mannvænlegur. Barnabörnin eru 33 og barnabarnabörnin eru orðin 20., Árið 1946 hættu tengdaforeldrar hennar búskap og Heiða og Gunnar tóku við öllum búsforráðum. Heiða var góð húsmóðir og mikil móðir barna sinna. Hún var bókhneigð og las mikið, á heimili þeirra var gestkvæmt og það var opið öllum. Þar var ekki farið í manngreinarálit. Árið 1969 fluttu þau frá Morastöðum og sett- ust að í Reykjavík. Þar stunduðu þau vinnu um tíma og voru vel látin. Innilegar samúðarkveðjur til allra ástvina Heiðu. Blessuð sé minning hennar. Hulda Pétursdóttir, Útkoti. Word er fjölhæfasta rilvinnsluforritið fyrir Macintosh og PC. Námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu. Höfum kennt á Word frá árinu 1987. _ JJ Tölvu- og verkfræðiþjonustan - v Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16-’ Stofnuð 1. mars 1986 (g) Íiriíigdia og seal eiulak SOLUDEILD S. 683366 35 HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 S Stutt námskeið -J L' í nóvember í K ! Endurunninn pappír og kortagerð 14. nóv. - 5. des. Fimmtud. kl. 19.30-22.30. Kr. 5.000,- Körfugerð fyrir jólin 12. nóv. - 3. des. Þriðjud. kl. 19.30-22.30. Kr. 5.000,- Jólanámskeið í silkimálun og tauþrykki 18. nóv. 9. des. Mánud. kl. 19.30-22.30. Kr. 5.000,- Útskurður 11. nóv. - 2. des. Mánud. kl. 19.30-22.30. Kr. 5.000,- Spjaldvefnaður 13. nóv. - 4. des. Miðvikud. kl. 19.30-22.30. Kr. 5.000,- Skrifstofa skólans verður opin alla virka daga kl. 16-18. Skráning fer fram á skrifstofu skólans í síma 17800. A í SCULFTURE ® VIÐ BJ0DUM FYR5TA FLOHKS ÞREKHJOL FRA BODY SCULPTURE Varðveittu heiísuna alit órið með ódýrri, hollri og góðri hreyfingu ó vönduðu þrekhjóli! • Beslukoup • Þungi kasthjól með iölnu og góöu ástigi • Púlsmælir • Slillaniegt sæli og slýn • Tölvumælir • Dúnmjúktsæti • Kaloríumælii • Slillcnlegt átak • Tímastillir • Stööug og endingagód Model 2000..................kr. 19.618,- stgr. Model 2200 með púlsmæli ...kc 22.461,- stgr. — — R eiðh/ó/a versfunfn JjEtsaE RAOGREIDSLUH VERSLUN SIMI 679890 VERKSTÆÐI SIMI 679891

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.