Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991 5 Hitaveita Reykjavíkur: Milljón til rannsókna á murtu í Þingvallavatni Murta veidd í hringnót á næstunni STJÓRN veitustofnana hefur samþykkt að Hitaveita Reykja- víkur veiti eina miljón króna til rannsókna á murtu í Þingvalla- vatni. Rannsóknir á hegðun murtunnar hafa staðið yfir að undanförnu. í framhaidi af þeim verður murta veidd í hringnót á vatninu á næstunni. Rannsóknarverkefnið er á veg- um Veiðifélags Þingvallavatns. murtunnar sem væri buin að her- taka vatnið. í framhaldi af grisjun stofnsins sagði hann að murtan sem eftir yrði fengi meiri fæði og yrði væntanlega betri. Sveinbjörn Einarsson, formaður Veiðifélags Þingvallavatns, sagði að fundist hefðu murtutorfur sem lægu fremur djúpt á daginn en grynnra á nóttinni. Veiði færi því væntanlega fram á nóttunni. Nýr leikskóli í Vogum Vognm. NÝR leikskóli var tekinn í notkun í Vogum föstudaginn 4. október sl. Leikskólinn sem er staðsettur á horni Suðurgötu og Vogagerðis er alls 130 fermetrar að flatarmáli. Byggingarkostnaður liggur ekki endanlega fyrir, en gróft áætlað er hann átján milljónir króna. Aðalverktaki við bygginguna var Virki sf. í Vogum og stóðu fram- kvæmdir yfir í 4 mánuði og fram- kvæmdir við lóðina í einn mánuð. Byggingin er glæsileg og bætir úr brýnni þörf, þar sem gamli leikskól- inn að Sólvöllum var í gömlu og þröngu húsnæði. - EG Jón Kristjánsson, fiskifræðing- ur hefur verið fenginn til að stjórna rannsóknunum. í greinar- gerð hans sem lögð var fyrir fund stjórnar veitustöfnana 4. október kemur fram að murta í Þingvalla- vatni sé orðin svo smá að hún smjúgi net. Því hafi verið ákveðið að kanna hegðun murtunnar og vita hvort hægt væri að veiða hana í hringnót. Gert er ráð fyrir að murtustofnin sé 400-600 tonn og þurfi að taka um 200 tonn af honum á ári til að byrja með en ársafli geti í framtíðinni verið 100-200 tonn. I samtali við Morgunblaðið sagði Jón að beðið væri eftir hent- ugu veðri til þess að hefja veiðarn- ar en rannsóknir stæðu nú yfir. Hann sagði að tilgangurinn með hringnótaveiðinni væri fyrst og fremst að hafa tekjur af murtu- veiðinni en einnig að slá á fjölda Húnavershátíðirnar: Skattur ekki verið lagður á tónleikana SKATTAMÁL vegna útitón- leika í Húnaveri um verslunar- mannahelgi árin 1989, 1990 og 1991, eru enn óútkljáð en fjár- málaráðuneytið hefur þetta mál með höndum og vinnur nú að lausn þess í samvinnu við ríkis- skattstjóraembættið. Ágrein- ingur reis upp milli ráðuneytis- ins og ríkisskattstjóra annars vegar og sýslumannsins í Húna- vatnssýslu hins vegar um hvort innheimta bæri sölu- og virðis- aukaskatt af tónleikunum, sem Jakob Frímann Magnússon, fyr- irsvarsmaður Stuðmanna, stóð fyrir. Jón ísberg sýslumaður í Húna- vatnssýslu túlkaði skattalög og reglugerðir á þann hátt að ekki bæri að innheimta þennan skatt en íjármálaráðuneytið hefur aðra túlkun á sömu lögum. „Við lítum þannig á að sýslumaður sé inn- heimtumaður ríkissjóðs í þessu til- felli en ekki skattstjóri. Hans mál er að innheimta þau gjöld sem fyrir hann eru lögð og réttir aðilar leggja á en ekki að meta skatt- skyldu að öðru leyti. Hans niður- staða breytir í sjálfu sér ekki hvort einhver er skattskyldur eða ekki. Fari innheimtan ekki fram á staðn- um getur komið álagning eftir á og krafa á viðkomandi aðila um að greiða skattinn,” sagði Indriði Þorláksson, skrifstofustjóri í fjár- málaráðuneytinu. Hann sagði að verið væri að skoða hvaða leið yrði farin í þessu máli til að fá í það endanlega nið- urstöðu og væri hennar ekki langt að bíða. Yrði niðurstaðan sú að lagður yrði virðisaukaskattur á hátíðina 1991 myndi sú niðurstaða að líkindum einnig gilda fyrir há- tíðina 1990, að því tilskyldu að fyrirkomulag þeirra væri sams- konar. Hins vegar væru undan- þáguákvæði skattalaganna af- skaplega teygjanleg og erfið í framkvæmd. LEIÐIN INN I NYJAN J SJÓNVARPSHEIM [ !©i PHILIPS Nú á dögum er sjónvarpstækjum ætlað margbrotnara hlutverk en við upphaf litasjónvarps á Islandi. Þau eiga t.d. að geta tekið við textavarpi, stereoútsendingu og sagt okkur hvað er á einni stöð meðan við horfum á aðra. MATCH L 'L/NE 44 Nýju Matchline sjónvarpstækin frá Philips uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til hágæða sjónvarpstækja í heiminum í dag. - Ótal spennandi nýjungar. Þess vegna ættir þú að hringja eða koma í heimsókn. Það væri gaman að skýra þetta allt nánar fyrir þér. Sjón er sögu rfkari. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SIMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 ■ sanouKguM ÞÚ GETUR TREYST PHILIPS Philips myndlampi sem skilar eðlilegum litum og betri mynd, líka í dagsljósi. Stereo í öllum PHILIPS tækjum. 100 Mz Enginn titringur í mynd, betra fyrir augun. TEXTAVARP Fullkomið textavarp með 20 síður í minni. MÍM Mynd í mynd. Tvær stöðvar á skjánum í einu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.