Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTOBER 1991 33 ORAR A BANABEÐI Kvikmyndir Sæbjörn valdimarsson Bíóborgin: í sálarfjötrum - „Jacob’s Ladder” Leikstjóri Adrian Lyne. Handrit Bruce Joel Rubin. Aðalleikendur Tim Robbins, Elizabeth Pena, Danny Aiello, Mcauley Culkin. Bandarísk. Gerð 1991. Hvað er að gerast í lífi bréfber- ans Robbins? Skammt er liðið frá því hann tók þátt í Víetnamstríð- inu og eitthvað hefur farið heldur betur úr böndunum. Hann er hlaupinn frá konu og bömum, hefur fórnað fjölskyldu sinni fyrir hina villikattarlegu Pena og fær óhugnanlegar martraðir af blóð- vellinum sem eru þó augnayndi miðað við þá drýsildjöfla og dé- skota sem birtast honum af og til í hversdagsgráma New Yorkborg- ar. Hann er ekki einn um þessar hryllingssýnir því herdeildarfélag- ar hans úr stríðinu fá þær líka. En samt sem áður er engu líkara en hann sé smám saman að missa tökin á raunveruleikanum, hægt og sígandi færist hann nær og nær bijálæðislegri veröld martr- aðarsýnanna. / sálarfjötrum er listilega vel gerð hrollvekja, e.k. Flatliners fyrir fullorðna. Það skal játað að söguþráðurinn er í snúnari kantin- um; er Robbins lífs eða liðinn, er hann á að bilast? eru ofsýnimar afturhvarf leynilegrar LSD lyfja- gjafar hersins? Við þessum og fleiri spurningum fæst snjallt svar á síðustu mínútunum, það kemur hressilega á óvart og myndin upp- lýkst fyrir manni í einu vetfangi. / sálrháska er ein þeirra mynda sem ekki hafa fengið þá athygli sem þeim ber og alltof dræma aðsókn (klisjulegt og heldur frá- hrindandi íslensk nafngift á hér vafalaust einhveija sök). Sögu- fléttan er óvenjulega fjölskrúðug og dularfull, minnir eilítið á aðra ágætismynd Angel Heart, reynd- ar útlitið líka enda listrænir stjórnendur og sviðsmynda og -munahönnuðir hinir sömu. Ásóknirnar sem Robbins verður fyrir eru hreinasta andstyggð hvað áhrifin snertir, leikmynda- smiðir veita áhorfandanum innsýn í víti verka Bosch, Brueghels, Bacons og fleiri myndlistarmanna sem þeir kynntu sér rækilega og urðu fyrirmyndir listilegs óhugn- aðsins. Sem nær þó aldrei yfir- höndinni heldur birtast okkur sýn- irnar örfá augnablik. Hér er ekki verið að velta sér upp úr ófögnuð- inum því á ferðinni eru listamenn sem þurfa ekki að beita ódýrum brögðum til að halda áhorfandan- um spenntum og hér er á ferðinni alltof góð hrollvekja til þess að Allt á hvolfi Bíóhöllin: Oscar. Leikstjóri John Landis. Handritshöfund- ar Michael Barrie og Jim Mul- holland, byggt á leikriti eftir Claude Magnier. Tónlist El- mer Bernstein. Aðalleikendur Silvester Stallone, Peter Rie- gert, Chazz Palminteri, Yvonne DeCarlo, Don Amec- he, Eddie Bracken, Art LaFle- ur, Kurtwood Smith, Vincent Spano, William Atherton, Orn- ella Muti, Tim Curry, Linda Gray, Marisa Tomei. Bandarísk. Touchstone 1991. Strax í upphafi, undir titlun- um, gefur bráðskemmtileg og furðu mennsk (!) brúða tóninn þegar hún syngur af slíkum fítonskrafti og feiknlegum til- burðum Largo Al Factotum úr Rakaranum í Sevilla, að maður smellur í fínasta skap. Og fyrr en varir er maður komin á fulla ferð í miðri hringiðu farsa — sem upphaflega var gerður fyrir það erkiflón og farsastjötnu Louis des Funes — af þeirrj gerðinni sem kenndur er við screwball, og naut mikilla vinsælda, einkum á íjórða áratugnum. Þeir eru einn misskilningur og mistök frá upphafi til enda; hlutir víxlast, menn fara mannavillt, fólk sífellt að fara á mis, uppruni persón- anna óljós, o.s.frv., o.s.frv. Það er því vita glórulaust að fara að eltast við efnisþráðinn en í sem fara hjá án verðskuldaðrar at- hygli. stystu máli þá er þungamiðja hans gangsterinn Angelo .jSmelIur” Provolone (Stallone). Á hann ekki annarra úrkosta en að lofa föður sínum, sem liggur banaleguna, að gerast ærlegur maður á ný, snúa baki við glæp- astússi hverskonar og 'hreinsa nafn ættarinnar af smán og skömm. En það er ýmislegt auð- veldara en að víkja af breiðu brautinni inn á þá mjóu ... Eins og flestir vita er Sylvest- er Stallone í allnokkurri tilvistar- kreppu sem leikari um þessar mundir. Eftir að hafa verið ein vinsælasta stjarna kvikmynd- anna um árabil varð hann að horfa upp á Rocky og Rambo falla í skuggann fyrir breyttum smekk kvikmyndahúsagesta. Tók við tímabil magurra mynda og er það fréttist að kappinn hefði fengið aðalhlutverkið í gamanmynd hristu flestir höfuð- ið. En karl er ekki á því að gef- ast upp frekar en kempurnar hans tvær og þessi valinkunni slagsmálahundur stendur sig hér með mikilli prýði í hlutverki sem byggist fyrst og fremst á löng- um, fyndnUm samræðum. Og éf þið rennið augunum yfír leikara- nöfnin í upptalningunni að ofan þá kemur í ljós að þetta er mann- val hið mesta. Engimf þó betri en Chazz Palminteri í hlutverki heilalausrar hægri handar Pro- volones. Ekkert snilldarverk en Oscar tekst einfaldlega að koma fólki í gott skap. __________Brids____________ Umsjón Arnór Ragnarsson Bridsfélag Hornafjarðar Árni Stefánsson og Jón Sveinsson sigruðu með yfirburðum í hausttví- menningi sem nú er lokið og staðið hefir yfir í þijár vikur. Árni og Jón fengu 1090 stig en röð næstu para varð þessi: Baldur Kristjánsson - Skeggi/Valdimar 998 IngvarÞórðarson - Gísli Gunnarsson 966 Sigurpáll Ingibergss. - Jón G. Gunnares. 917 Ragnar Björnsson - Birgir Bjömsson 917 Grétar Vilbergsson - Vífill Karlsson 908 Næsta keppni félagsins verður þriggja kvölda hraðsveitakeppni, svo- kallað Landsbankamót. Bridsfélag Suðurnesja Einhverri jöfnustu keppni keppni sem spiluð hefir verið hjá félaginu um ára- bil lauk sl. mánudagskvöld með sigri Péturs Júlíusssonar og Heiðars Agn- arssonar. Keppni þessi var þriggja kvölda tvímenningur með Butler fyrir- komulagi og urðu úrslit þessi: Pétur Júlíusson- Heiðar Agnarsson 276 BjömDúason-ReynirÓskarsson 273 Logi Þonnóðsson - AmórRagnarsson 272 Þórður Kristjánsson - Stefán Jónsson 271 Gunnar Guðbjörnsson - Birgir Sehevins 270 Næsta keppni verður tveggja kvölda hraðsveitakeppni. Spilað er í Kristínu í Njarðvíkum á mánudagskvöldum kl. 19,45. íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi íslandsmót kvenna og yngri spil- ara verður haldið dagana 26. og 27. október nk. í Sigtúni 9. Skrán- ing er þegar hafin í síma BSÍ 91- 689360 og eru þeir sem ætla að keppa um íslandsmeistaratitlana í þessum flokkum, beðnir um að láta skrá sig sem fyrst. í flokki yngri spilara geta allir sem fæddir eru 1966 og yngri tekið þátt. Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 14. október var annað kvöldið í hausttvímenningnum spilað. Staðan er þessi: Kristján Ólafsson - Ólafur Gíslason 102 Dröfn Guðraundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 83 Halldór Einarsson - Kristófer Magnússon 75 Erla Siguijónsdóttir - Kristjana Steingrímsd. 64 BorgþórPétursson-SverrirÁrmannsson 63 Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson 44 Staðan í sveitakeppni byijendarið- ilsins: Sv. Júlíönu Sigurðardóttur 36 Sv. Steinþórunnar Kristjánsdóttur 33 Sv. Margrétar Pálsdóttur ' 27 Sv. Bryndísar Eysteinsdóttur 24 Bridsfélag Hreyfils Síðastliðinn mánudag var spiluð 3. umferð af 5 í hausttvímenningi félags- ins. Hæstu skor hlutu: f A-riðli: Daníel Halldórsson - Viktor Björnsson 182 Sigui"ður Ólafson — Flosi Ólafsson 181 GuðjónJónsson-TraustiPétursson 172 í B-riðli: Birgir Sigurðsson - Ásgnmur Aðalsteinsson 193 GuðmundurÓlafsson - Sigurður Blöndal 172 Árni Halldórsson - Þoreteinn Sigurðsson 169 Meðalskor er 156. Að þremur umferðum loknum skipa eftirtalin 5 pör efstu sætin: Daníel Halldóreson - Viktor Bjömsson 545 Biigir Sigurðsson - Ásgrimur Aðalsteinsson 541 Skafti Bjömsson - Jón Sigtryggsson 524 Sigurður Ólafsson - Flosi Ólafsson 522 Bemhard Linn - Gísli Sigurtryggvason 520 Fjórða umferð verður spiluð í Hreyf- ilshúsinu mánudaginn 21. október og hefst kl. 19.30. Bridsfélag kvenna Nú er 14. umferð lokið í Baromet- ernum og virðast Sigríður og Ingibjörg vera að stinga aðra keppendur af, annars er staðan þessi: Sign'ður Pálsdóttir - Ingibjörg Halidórsdóttir 230 Júííana ísebam - Margiðt Margeirsdóttir 144 Halla Bergþói-sdóttir — Soffia Theodórsdóttir 127 Kristín ísfeld - Hrafnhildur Skúladóttir 88 Sigriður Ingibeigsdóttir - Jóhann Guðlaugsson 80 Halla Ólafsdóttir—Sæbjörg Jónasdóttir 80 Ólafía Þóiðai'dóttir - Hildur Helgadóttir 62 Véný Viðai-sdóttir - Dóta Friðleifsdóttir 60 Bridsfélag Sauðárkróks Nú er lokið Barómeterkeppni fé- lagsins. Efstu pör urðu: ÓlafurJónsson-SteinarJónsson 81 KristjánBlöndal-GunnarÞórðarson 60 JónasBirgisson-JónS.Tryggvason 35 Sigurgeir Angantýsson—Birgir Rafnsson 27 Næsta mánudagskvöld verður spil- aður eins kvölds tvímenningur með forgjöf. Vetrar-Mitchell BSÍ Þrátt fyrir vökunætur hjá brids- fólki undanfarna viku mættu 22 pör í vetrar-mitchell BSÍ föstudags- kvöldið 11. október. Spilamennska hefst kl. 19.00 á þessum kvöldum í Sigtúni 9 og er öllum velkomið að mæta og skrá sig á staðnum. Spilaðir eru eins kvölds tvímenning- ar, um það bil 30 spil. Síðasta föstu- dagskvöld urðu úrslit þessi: N/S-riðill: Sigurleifur Guðjónsson - Hermann Friðriksson Þorsteinn Bergsson - Eyþór Hauksson Unnur Sveinsdóttir - Jóri Þór Karlsson A/V-riðill: Hjálmar Pálsson - Sveinn Sigurgeirsson Þorsteinn Erlingss. - Gunnþórunn Erlingsd. Mapús Sverrisson - Guðjón Jónsson Námstefna handavinnu- leiðbeinenda FÉLAG handavinnuleiðbeinenda gengst fyrir námstefnu föstudag- inn 18. október kl. 13.00 í Borg- artúni 6. Markmið námstefnunn- ar er að veita handavinnuleið- beinendum innsýn inn í þann heim er fylgir því að eldast, bæði andlega og líkamlega. Námstefnustjóri er Þuríður Ingi- mundardóttir hjúkrunarforstjóri. Framsöguerindi flytja: Sigurbjöm Björnsson, iæknir: „Að verða aldr- aður”. Þóra Arnfinnsdóttir, geð- hjúkrunarfræðingur: „Samskipti við aldraða”. Anna Greta Hansen, iðjuþjálfi: „Hugur og hönd, hjálpar- tæki”. Guðrún Jónsdóttir, kennslu- stjóri Hí: „Konur og öldrun”. Námstefnan er öllum opin og áætlað er að henni ljúki um kl. 16.00. Aðgangseyrir er kr. 1.500 en kr. 500 fyrir ellilífeyrisþega. Kaffi innifalið. (Frcttatilkynning) Höfóar til -fólks í öllum starfsgreinum! Philco vélamai* sem bæði þvo og þurrka Ahyggjulaus þvottur frá upphafi til enda. Spara pláss, engin barki, engin gufa. Vélamar spara orku með því að taka inn á sig bæði heitt og kalt vatn. Þægjlegra getur það ekki verið LA103RXT • Tvöföld vél í ejnu tæki • Tekur 5 kg í þvott, -25, kg í þurrkun • Allt að 1000 snúninga vinda '• Flæðivan • Yfirhitunarvari • Ryðfrítt stál í ytri og innri belg LA1046 • Tvöföld vél í ciriu tæki • Nýjung: Tekur 6 kg í þvott, þurrkar 3,5 kg • , 400 til 1000 snúninga vinda • Rofi sem metur tímaþörf • Rafeindastýrð hleðslujöfnun • Flæði- og yfirhitunarvari iþ Heimilistæki hf SÆTÚN18 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 SOMUHgXWC m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.