Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 17. OKTÓBER 1991 13 Þerney, Lundey og Akurey • • Ornefni og sagnir óskast Blaðinu hefur borist eftirfar- andi frá Náttúruverndarfélagi Siiðvesturlands: Til að gera ferðum Náttúru- verndarfélags " Suðvesturlands, NVSV, betur skil hefur félagið hug á að afla fleiri ömefna og sagna um svæðin sem farið verður um. Þess vegna biður félagið alla þá sem vitneskju hafa um örnefni og sagnir sem tengjast mannlífi, mannvistarminjum og náttúmfari Þerneyjar, Lundeyjar og Akureyjar á Kollafirði að hafa samband við félagið í síma 15800 eða skriflega til NVSV, Pósthólf 1114, 121 Reykjavík. Allar ábendingar um leiðir til að afla ofangreindrar vitn- eskju eru einnig vel þegnar. -------------- Könnun Þjóðhags- stofnunar á vinnu- markaðinum: Um 450 störf laus í fiskiðnaði LITLAR breytingar hafa orðið á vinnumarkaði hér í sumar að því er fram kemur í könnun Þjóðhagsstofnunar og vinnu- máiaskrifstofu félagsmálaráðu- neytisins á atvinnuástandi og horfum í atvinnumálum. Fjöldi lausra starfa var nú í september 0,8% af heildarvinnuaflinu en var í apríl í vor 0,6%. Hins veg- ar hafa orðið miklar breytingar á eftirspurn eftir vinnuafli í ein- stökum atvinnugreinum, aukist í fiskiðnaði og á sjúkrahúsum en minnkað í flestum öðrum greinum. Um 450 störf voru laus í fískiðn- aði í september, sem er um 7% af heildarvinnuafli í greininni. Eftir- spurnin er nær eingöngu bundin við landsbyggðina. Um 280 starfs- menn vantaði til vinnu á sjúkrahús- um, fyrst og fremst á höfuðborgar- svæðinu eða 230. Samtals vantaði 730 starfsmenn í þessar tvær greinar. í öðrum atvinnugreinum er ekki hægt að merkja vilja til að gera teljandi breytingar á starfsmannahaldi, að því er fram kemur í könnuninni, nema í verslun og veitingastarfsemi, þar sem at- vinnurekendur vilja fækka um 80 störf, þar af 60 á höfuðborgar- svæðinu. Ekki hefur mælst jafnmikill skortur á vinnuafli í fiskiðnaði frá því á árinu 1988. í apríl í vor vant- aði um 150 starfsmenn í fískiðnað og 370 í september í fyrra. Vinnu- málaskrifstofunni hafa borist tæp- lega 1.500 beiðnir um atvinnuleyfi það sem af er árinu, sem er svipað- ur fjöldi og árinu 1988, en þá bár- ust henni 1.900 beiðnir allt árið. Um 1.500 beiðnir bárust allt árið í fyrra. Áætlað er að 500-600 beiðnir í ár séu vegna fiskvinnsl- unnar, fyrst og fremst á Vestfjörð- um. Á höfuðborgarsvæðinu vilja iðn- rekendur fækka um 120 störf í iðnaði en út á landi vilja þeir fjölga um 140 störf. I samgöngum og byggingastarfsemi vildu atvinnu- rekendur hvorki fækka né fjcilga störfum. Hins vegar var ríkjandi mikil óvissa í byggingastarfsemi með framtíðina einkum hvað snerti fyrirhugaðar álversframkvæmdir. Kort af Þerney, Lundey og Akurey með þeim örnefnum sem NVSV veit um. (Mælikv. 1:15.000.) ■ ARKITEKTAFÉLAG íslands stendur í vetur að röð fyrirlestra fyrir fagfólk og áhugamenn á sviði hönnunar og byggingarlistar. Með þessu framtaki hyggst félagið efla faglega umræðu um þessi efni hér á landi, en sem kunnugt er er ekki boðið upp á nám í byggingarlist og tengdum hönnunargreinum hér á landi. Stefnt er að því að halda átta fyrirlestra-, einn í hveijum mánuði, á tímabilinu september- maí. Dagskráin fram að jólum verð- ur sem hér segir: 17. október mun dr. Maggi Jónsson arkitekt í Reykjavík flytja fyrirlestur er hann nefnir „Forsendur og hugmynda- fræði”. Maggi hefur um árabil sér- hæft sig í hönnun kennsluhúsnæðis og hefur m.a. gert uppdrætti að Hugvísindahúsi Háskólans og Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi. 21. nóvember kynna írsku arkitekt- arnir Sheila O’Donnel og John Tuomey verk sín. Þau starfa í Dublin en áður unnu þau m.a. á teiknistofu hins kunna breska arki- tekts James Stirling. 12. desember flytur Þórarinn Þórarinsson arki- tekt í Reykjavík fyrirlesturinn „Lín- ur í landnámi Ingólfs”, um athugan- ir sínar á staðháttum og fyrirbærum frá fyrstu öldum íslandsbyggðar. Allir fyrirlestrarnir verða haldnir í Ásmundarsal, Freyjugötu 41, og hefjast þeir kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill, á meðan húsrúm leyfir. VEL , UPPLYST VERSLUN í rúmgóðri verslun okkar bjóðum við eitt mesta úrval úti- og inniljósa sem völ er á. Hvort sem þú ert að leita að heildarlausn eða stökum Ijósum átt þú erindi til okkar. Smáljós.stofuljós, lesljós, tískuljós , útiljós, hjá okkur snýst allt um Ijós og lýsingu Við bjóðum umfram allt vönduð og örugg Ijós. ZEFYR RIMGERSTAR BREAK FOXTROT TÍBET MACHO valljósahöfum viðeinnjg i úrval af heimilistæk)um ' : ■ : RIMGER BOWLER ri KADET Q^ur í i íHfcw t^§|j|| ÚTSÖLUSTAÐIR: Rayk|avlk og nágronnl: Borgarljós, Skelfunnl 8. Byko, Kringlunnl. Glóey, Armúla 19. Ljós og Rattæki, Strandgötu 39 Hfj. yósbser, Faxafeni 14. Rafbúöln, Alfaskeiöl 31 Hfj. Rafglit, Blönduhllö 2. Rafvörur, Langholtsvegl 130. Kringluljós, Borgarkringlunni. Vesturland: Blómsturvellir, Helllssandl. Elnar Stefánsson, Búöardal. Guönl Hallgrlmsson, Grundarfiröl. Húsiö, Stykklshólmi. Lúx, Borgamesl. Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesl. Vestflrölr: Jónas Þór, P^treksflröl. Straumur hf, Isafiröl. Rafsjá hf, Bolungarvfk. HIGHLINE Noröurtand: Aöalbúöln, Siglufiröl. KVH, Hvammstanga. Ósbær, Blönduósl. Radlóvinnustofan, Akureyri. Rafsjá, Sauöárkróki. Torglð, Slglufiröl. Óryggl, Husavfk. Austuriand: Kaupfélag Vopnflröinga. Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Svelnn Ó. Ellasson, Neskaupstað. Suöuriand: Árvirklnn, Selfossi. Nelstl, Vestmannaeyjum, Kaupfólag Rangælnga, Árnesinga Hvoisvelí. Suöumes: R.Ó. Rafbúö, Keflavlk. Rafborg, Grlndavlk. Rás, Þorlákshöfn. LYSIR ÞER LEfÐ... SKEIFUNNI 8 108 REYKJAVÍK S 812660

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.