Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÖBER 1991 Bæjarsjóður Ölafsvíkur: Utveri breytt í fiskvinnslu- fyrirtækið Snæfelling hf. GENGIÐ var frá kaupum bæjarsjóðs Olafsvíkur á útgerðarfélaginu Útveri hf. á Ólafsvík á hluthafafundi á þriðjudag en það gerir út togar- ann Má. Var nafni félagsins breytt í Snæfelling hf. og er því ætlað að annast útgerð og fiskvinnslu á staðnum. Eftir eigendaskiptin á Ólafs- víkurbær allt hlutafé fyrirtækisins en átti áður 40% hlut. Greiddi bæjar- sjóður 19,5 milljónir kr. fyrir hlutabréfin og verður hlutafé félagsins 90 milljónir kr. Már hefur verið í uppboðsmeðferð að kröfu Landsbank- ans vegna vanskila en að sögn Sverris Hermannssonar bankastjóra hefur bankinn látið fresta uppboðinu þar til séð verður hvernig rætist úr málefnum fyrirtækisins. Bæjarstjóm Ólafsvíkur samþykkti samhljóða kaupin á Útveri og til- nefndi fulltrúa í stjóm fyrirtækisins fyrir hluthafafundinn á þriðjudag. Stefán Garðarsson bæjarstjóri er for- maður stjómar félagsins og með- stjórnendur eru Atli Alexandersson, forseti bæjarstjómar, og Sveinn Þór Elínbergsson bæjarfulltrúi. Stefán sagði í samtali við Morgunblaðið að á hluthafafundi Snæfellings hf. hefðu verið gerðar breytingar á sam- þykktum félagsins, sem fela í sér að stjóm og hluthafar eigi ekki for- kaupsrétt að hlutabréfum sem boðin verða til sö!u í félaginu. Sagði hann að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að selja hlutabréf í félaginu eða að auka hlutafé en Ólafsvíkurbær stefndi að því að losa sig út úr því eftir eitt til tvö ár. „Hlutaféð, 90 milljónir, hefur ekki verið greitt til félagsins ennþá en verið er að ganga frá því. Fyrsta verk stjórnarinnar verður að hnýta marga lausa enda varðandi togarann ,Má, því Útver var í verulegum van- skilum og munum við semja okkur út úr því,” sagði Stefán. Stefán sagði að vanskil næmu á annað hundrað millj. kr. Þá sagði hann að stjórnin myndi vinna að því að leiða saman fleiri aðila til að kanna möguleika á að gera tilboð í eignir þrotabús Hraðfrystihúss Ólafsvíkur. Már er nú í söluferð í Þýskalandi og sagði Stefán að stefnt yaeri að því að skipið landaði afla á Ólafsvík þegar það kæmi úr næstu veiðiferð. Stefán sagði að skuldir bæjarsjóðs Ólafsvíkur myndu aukast úr 160 millj. kr. í 270 millj. vegna þessara aðgerða. „Við höfum gert fjögurra ára áætlun um hvemig bæjarsjóður geti staðið'í skilum með afborganir vegna þessara skuldbindinga.” I gærkvöldi var haldinn stofnfund- ur Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf., nýs fiskmarkaðar sem á að starf- rækja á fjórum stöðum á Snæfells- nesi. 75 aðilar lögðu fram hlutafé samtals að fjárhæð rúmar 13 milljón- ir kr. Morgunblaðið/Björn Blöndal Geir Hauksson formaður Flugvirkjafélags íslands tók fyrstu skófl- ustunguna að hinu nýja flugskýli sem reist verður á næstu 14 mánuð- um. Að baki Geirs standa Sigurður Helgason forstjóri og Hörður Sigurgestsson stjórnarformaður Flugleiða. Flugleiðir byggja flugskýli á Keflavíkurflugvelli: Verður stærsta hús í eigu Islendinga og kostar um milljarð —rt, ” VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 17. OKTOBER YFIRLIT: Um 200 km suðsuðvestur af Færeyjum er 958 mb. lægð sem þokast austur. 1033 mb. hæð yfir Grænlandi, þokast suðaust- ur. SPÁ Smám saman gengur norðanáttin niður. Fyrst um landið vest- anvert, en ekki fyrr en undir kvöld austanlands. Snjókoma verður norðaustanlands, él á Vestfjörðum en sennilega léttskýjað suðvest- an- og sunnanlands. Hiti víðast um eða rétt undir frostmarki, en þó 1-5 stiga hiti við suðausturströnd. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan- eða norðvestan átt og að heita má þurrt um land allt. HORFUR Á LAUGARDAG:Áframhaldandi vestanátt. Snjókoma eða él á Vestfjörðum og við norðurströndina en þurrt í öðrum landshlut- um. Víða léttskýjað á suður- og austurlandi. Hiti 1-5 stig að degin- um báða dagana en talsvert næturfrost inn til landsins. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * •* * * * * * Snjókoma 1Q Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V B = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður FYRSTA skóflustungan að nýju flugskýli Flugleiða á Keflavíkurflug- velli var tekin í gær og var það Geir Hauksson formaður flugvirkja- félags íslands sem það gerði að viðstöddum fjölda gesta. Nýja flug- skýlið 12.500 fermetrar og um 170.000 rúmmetrar. Áætlað er að yúka við bygginguna sem verður stærsta hús í eigu íslendinga á 14 mánuðum og er áætlaður byggingarkostnaður um milljarður króna. Að sögn Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa hafa Flugleiðir samið við kanadíska verktakafyrirtækið Matthews Contracting um bygg- ingu stöðvarinnar. Um væri að ræða svokallaðan alverktökusamn- ing með föstu verði. Fyrirtækið skilaði viðhaldsaðstöðunni fullfrá- genginni í lok næsta árs og væri hluti af tilboðinu ákaflega hagstætt lán frá kanadískum útflutnings- banka. Einar sagði að gert væri ráð fyr- ir að vinna við bygginguna yrði að mestu í höndum íslenskra undir- verktaka og yrði hafist handa með jarðvinnu þegar um næstu mánaða- mót. í fyrradag hefðu verið opnuð tilboð í þann verkþátt og hefðu 12 fyrirtæki skilað inn tilboðum sem næstum öll hefðu verið undir kostn- aðaráætlun. Hlaðverk hefði átt lægsta tilboðið og síðan hefðu kom- ið tilboð frá Borgarfelli og Hag- virki. Einar sagði að tilboðin yrðu könnuð á næstu dögum og stefnt yrði að ganga frá samningum um eða eftir næstu helgi. Flugleiðir myndu því í lok næsta árs flytja nær alla starfsemi tæknisviðs til Keflavíkurflugvallar og þá myndu um 170 manns starfa í nýju við- haldsstöðinni. -BB Vf’l VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri +1 snjóél Reykjavík 0 úrkoma í grennd Bergen 10 alskýjað Helsinki 10 skýjaö Kaupmannahöfn 13 þokumóða Narssarssuaq 12 hálfskýjað Nuuk +2 skýjað Osló 10 skýjað Stokkhólmur 11 þokumóða Þórshöfn 9 rigning Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 14 þokumóða Barcelona 20 iéttskýjað Berlín 17 mistur Chicago 0 léttskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 16 léttskýjað Glasgow 11 skúr Hamborg 16 skýjað London 14 rigning Los Angeles 17 þoka Lúxemborg vantar Madríd 16 léttskýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Montreal 7 rigning NewYork 12 alskýjað Orlando 18 alskýjað París 15 alskýjað Madeira 21 skýjað Róm 22 hálfskýjað Vín 19 léttskýjað Washington 11 rigning Winnipeg 2 rigning Köln: Islenskt vatn og sæl- gæti á vörusýningu Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, bladanianni Morgunblaðsins. ÞRJÚ íslensk iðnfyrirtæki kynntu framleiðslu sína á stærstu mat- vælasýningu í Evrópu, Anuga, sem haldin er í Köln í Þýskalandi annað hvert ár. Þau fyrirtæki sem hlut eiga að máli eru Akva á Akureyri sem kynnti lindarvatn í femum, Nói-Siríus sem sýndi sælgæti og íslenskt bergvatn í Reykjavík sem hefur náð góðum árangri í sölu á kolsýruvatni. Finnur Geirsson, framkvæmda- stjóri Nóa-Siríus, sagði að eini vaxt- armöguleiki fyrirtækisins fælist í aðgangi að stærri mörkuðum með útflutningi. Hann sagði að sælgæt- ið frá Nóa-Síríusi væri samkeppnis- hæft í verði sem gæðaframleiðsla á Evrópumörkuðum og á þeirri for- sendu væri hann hóflega bjartsýnn. Þátttakan á Anuga væri fyrst og fremst tilraun, að sýningunni lok- inni yrði árangurinn metinn og ákvarðanir teknar um framhaldið. Um þessar myndir væri unnið að undirbúningi markaðskannana er- lendis í samvinnu við Útflutnings- ráð. Nói-Siríus tók þátt í vörusýn- ingu í New York í sumar á vegum Útflutningsráðs. Akva er fyrirtæki sem stofnað var af mjólkursamlögum á Norður- landi fyrir 6 árum, m.a. til að mark- aðssetja íslenskt lindarvatn. Síðustu 4 árin hefur fyrirtækið verið í eigu Mjólkursamlags kaupfélags Eyfirð- inga á Akureyri. Framleiðsla fyrir- tækisins fór í bytjun hægt af stað að sögn Þórarins Sveinssonar, mjólkurbússtjóra. Hann sagði að kostnaður við markaðssetningu hefði vaxið eigendunum í augum en undanfarin ár hafí verið unnið hægt en markvisst að henni. Þórar- inn sagði að fyrirtækið legði áherslu á Bandaríkjamarkað og þar hefði náðst nokkur árangur. Hins vegar hefðu fyrirtæki í Evrópu sýnt fram- leiðslunni áhuga þannig að við ákváðum að vera fluga á veggnum hér í Köln, sagði Þórarinn. Tvær verslanakeðjur á Englandi, Tesco og Safeway, munu selja Akva-vatn- ið í verslunum sínum á næsta ári. Að sögn Þórarins eru vandamál vegna umbúða sem hannaðar eru fyrir Bandaríkjamarkað sem þarf að leysa. Þórarinn lagði áherslu á að markaðsstefna fyrirtækisins væri mjög hægfara, menn þar vildu skoða hvert skref áður en tekið væri og meta árangur þess áður en annað væri tekið. Við erum að markaðssetja hreint og fagurt land, sagði Þórarinn og við viljum fara varlega í sakimar til þess að engu verði spillt. íslenskt bergvatn hefur mesta reynslu þessara fyrirtækja hvort heldur er í markaðssetningu erlend- is almennt eða þátttöku í vörusýn- ingum á borð við Anuga. Ekki reyndist unnt að ná tali af Davíð Scheving Thorsteinssyni á sýning- unni í Köln þannig að frásögn af þátttöku fyrirtækisins verður að bíða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.