Morgunblaðið - 17.10.1991, Page 7
M0RGUNBLAÐIÖ¥ÍMíttt3lÁÖttó:: ÍVf U£íðM?t’ %§91
i7
Alþjóðleg ráðstefna um landbúnað og umhverfismál:
Umhverfisvandamálin
þekkja engin landamæri
ALÞJÓÐASAMBAND búvöru-
framleiðenda, IFAP, ítrekaði á
stjórnarfundi, sem haldinn var
í Reykjavík 14.-15. október síð-
astliðinn, áskorun sina um að
ríkisstjórnir aðildarríkja GATT-
samkomulagsins beittu sér fyrir
því að GATT- viðræðurnar skíl-
uðu viðunandi niðurstöðum um
landbúnaðarmál fyrir lok þessa
árs, svo að bændur viti með vissu
hveijar framleiðsluhorfur í
landbúnaði verða.
Stjórn IFAP hefur ritað ríkis-
stjórnum áskorunarbréf þar sem
stjórnvöld viðkomandi ríkja eru
hvött til að gera það sem í þeirra
valdi stendur til að greiða fyrir því
að GATT-viðræðurnar skili árangri
fyrir árslok eða í byrjun næsta
árs. Að mati Hans Kjeldsen, for-
seta IFAP, er raunhæfur möguleiki
á því að samkomulag náist varð-
andi landbúnaðarmál í GATT-við-
ræðunum á þessu ári, svo framar-
lega sem pólitískur vilji sé fyrir
hendi. Hann telur það auka enn á
ringulreið á alþjóðamarkaði land-
búnaðarafurða náist samkomulag
ekki. Það hefði alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir afkomu
bænda víða um heim, sem hefðu
mátt þola mestu tekjuskerðingu
sem þeir hefðu orðið fyrir um ára-
tuga skeið.
Fjársvikari í
gæsluvarðhald
Sjá vörulista IKEA 1992, bls. 35.
*
- sagði forseti Alþjóðasambands búvöru-
framleiðenda við setningu ráðstefnunnar
RÁÐSTEFNA Alþjóðasambands búvöruframleiðenda um landbúnað og
umhverfismál var sett á Hótel Sögu í gær, en á ráðstefnunni er ann-
ars vegar fjallað um landbúnað með hliðsjón af umhverfisvernd og
hins vegar tengsl landbúnaðar og hagkerfis. Yfirskrift ráðstefnunnar
er: „Umhverfið og sjálfbær þróun: lykilhlutverk bænda”, og er til-
gangurinn með henni að mynda alþjóðlegan vettvang fyrir umræðu
um umhverfismál og framtíðarhorfur landbúnaðar séð frá sjónarhóli
bænda. Þetta er í fyrsta sinn sem bændur hittast á alþjóðavettvangi til
að ræða umhverfismál og landbúnað, og verður niðurstaða ráðstefnunn-
ar framlag bænda til umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem
haldin verður í Brasilíu á næsta ári.
ráðherra og Eiður Guðnason um-
hverfisráðherra ræður við setning-
una, og H.O.A. Kjeldsen, forseti
Alþjóðasamband búvöruframleið-
enda, flutti ávarp.
H.O.A. Kjeldsen sagði meðal
annars í ávarpi sínu að umhverfis-
mál skiptu bændur miklu máli, en
landbúnaður væri stundaður í nán-
ari tenglsum við náttúruna en nokk-
ur annar atvinnuvegur. Landbúnað-
ur væri í eðli sínu samfelld endur-
Davíð Oddsson forsætisráðherra
setti ráðstefnuna, en auk hans
fluttu Halldór Blöndal landbúnaðar-
Alþjóðasamband bú-
vöruframleiðenda:
Niðurstaða
verði af GATT
nýting auðlinda jarðarinnar, og
bændur yrðu að vernda umhverfið
vegna þess hve háðir þeir væru því
afkomu sinnar vegna. Hann lagði
áherslu á að sjálfbær þróun væri
sameiginlegt markmið' sem ekki
yrði náð af bændum eingöngu, held-
ur kallaði það á skoðanaskipti milli
allra þjóðfélagshópa. Þátttaka
bænda væri þýðingarmikil, og sam-
ráð og aðild þeirra gegnum eigin
samtök væri nauðsynleg til að ná
fram sjálfbærri þróun landbúnaðar-
ins. Umhverfisvandamálin þekktu
engin landamæri, og því yrðu lausn-
ir á þeim að ná til alls heimsins.
Hann benti á að ekki væri hægt
að bæta umhverfið með því að
þrengja að bændum fjárhagslega,
heldur þyrftu að koma til rannsókn-
ir, menntun, þjálfun og upplýs-
ingamiðlun til þess að veita bænd-
um aðstoð til að bæta framleiðslu
sína og rekstraraðferðir. Þetta
þyrfti að fara saman með efnahags-
stefnu sem gerði búvöruframleið-
endum kleift að reka býli sín á
viðræðunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá ráðstefnu Alþjóðasambands
búvöruframleiðenda um um-
hverfismál sem hófst á Hótel
Sögu í gær. Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, setti ráðstefnuna.
þann hátt sem væri bæði vistfræði-
lega traustur og efnahagslega líf-
vænlegur.
Fulltrúar á ráðstefnunni á Hótel
Sögu eru um 140 talsins frá bænda-
samtökum í 29 þjóðrríkjum. Hún
er haldin í boði ríkisstjórnar íslands
og hafa íslensku bændasamtökin
annast undirbúning hennar.
1
SAKADÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær mann á þrítugs-
aldri sem tveir aðilar hafa kært
fyrir fjársvik í gæsluvarðhald til
næstkomandi miðvikudags. Önn-
ur kæran er frá hóteli, hin frá
heildverslun með hársnyrtivör-
ur.
LITTU A VERÐIÐ!
Glæsilegt leSursófasett ó ótrúlegu verÖi
Eins og fram hefur komið ferð-
ast maðurinn um á namibísku vega-
bréfi og gengur undir íslensku
nafni. Lögreglan hafði hendur í
hári mannsins í fyrradag eftir að
tvær kærur höfðu borist á hann.
Hann er talinn hafa svikið út vörur
á heildverslun með snyrtivörur í
Reykjavík og safnaði um 200 þús-
und króna reikningi á hóteli. Þá
hafði hann tekið til starfa sem
spyrtifræðingur og hárgreiðslu-
meistari í Reykjavík. Lögregla bíður
enn eftir upplýsingum um hann
erlendis frá en samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins hefur hann
meðal annars dvaldist nýlega í
Frakklandi og Kanada.
ViS getum nú boðið viðskiptavinum okkar þetta glæsilega
leðursófasett á mjög lágu verði.
TIDO leðurstóll 25.000,-
TIDO leðursófi (tveggja sæta) 40.000,-
BRENNA sófaborð 3.550,-
Vörulisti IKEA 1992 er kominn út og er þar á að líta fjölda
stórgóðra tilboða. Kynntu þér málið.
IKEA FYRIR ALLA
KRINGLUNNI 7 • SÍMI 91-686650
KRAFTAVERK 11-161091