Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
11
Spjaldvísur II
Bókmenntir
Skafti Þ. Halldórsson
Spjaldvísur II nefnist Ijóðabók
eftir Hallberg Hallmundsson. Útgef-
andi er útgáfufyrirtækið Brú. Hall-
berg sem lengi hefur dvalist vestan-
hafs hefur áður gefið út fimm
ljóðabækur auk fjölda þýðinga á ís-
lensku og ensku.
Bókin skiptist í fimm hluta og fer
sú skipting að nokkru leyti eftir inn-
taki kvæðanna. Fyrsti hlutinn fjallar
þannig um ýmsar hliðar ástarinnar
og lífsnautnina. Annar hlutinn ein-
kennist af heimspekilegum vanga-
veltum og aforismum. Þriðji hlutinn
inniheldur smáljóð um árstíðirnar
og í fjórða hluta eru ýmsar náttúru-
stemmningar. í fimmta hlutanum
er síðan einhvers konar uppgjör
skáldsins við lífshlaup sitt.
í Spjaldvísum II er einkum að
finna stuttar vísur. Höfundur er
ekki við eina fjölina felldur í skáld-
skaparmálum. Stundum yrkir hann
vísur í hefðbundnum stíl, í annan
tíma er lauslega farið með fonnið
og oft eru vísurnar algjörlega lausar
við ljóðstafi, rím og hefðbundna
hrynjandi. Þar að auki fæ ég ekki
betur séð en Hallberg geri athyglis-
verða tilraun með hækuformið jap-
anska í þriðja hluta bókarinnar.
Nokkuð af vísum Hallbergs eru
skemmtilegar athugasemdir við
ýmislegt í tilverunni. Athylisverð er
til dæmis þessi hugleiðing um* við-
kvæm skáldamál í kvæðinu Góð-
skáld og þjóðskáld:
Grænt af öfund
sagði góðskáldið við þjóðskáldið:
- Eg get nú ekki séð hvað þú hefur framyf-
ir mig.
Kafijótt af þótta
sagði þjóðskáldið við góðskáldið:
- Það er sko af því þú ofmetur sjálfan þig.
Mörg gamankvæði Hallbergs
beinast að honum sjálfum. Sjálfsháð
er til að mynda meginhugmynd
kvæðisins Yfírborðsmennska:
„Bijóst þín eru mjúk/ en undir slær
hart hjarta/ — sem hentar mér raun-
ar vel:/ Ég held mig jafnan við yfir-
borðið.”
Raunar finnst mér skáldinu takast
mun betur upp við ljóðrænar nátt-
úrulýsingar. Þær eru oft kunnáttu-
samlega gerðar. Dæmi um þetta er
kvæðið Náttmál:
Fjallið hengir skýjahattinn sinn
á snaga tunglsins
dregur nóttina upp fyrir enni
og hverfur á vit
jökultærra drauma.
í þriðja hluta bókarinnar leitast
Hallberg við að túlka heimþrá sína
í ljóðaflokki sem ortur er undir jap-
önskum hækuhætti. Hátturinn ein-
kennist af þremur línum, samtals
17 atkvæðum (5-7-5). Annað ein-
kenni háttarins er að efni ljóðanna
er jafnan bundið ákveðinni árstíð.
Málþing um
skilnaðarböm
SAMTÖKIN Barnaheill efna
lil málþings um skilnaðar-
börn. Tilgangur málþingsins
er að draga fram reynslu
þeirra sem um skilnaðarbörn
fjalla og að fá fram gagnlegar
ábendingar vegna undirbún-
ings heildstæðrar rannsóknar
sem samtökin vilja beita sér
fyrir i samvinnu við rannsókn-
arstofnanir á þessu sviði.
Á málþinginu miðla af reynslu
sinni Barna og unglingadeild
geðdeildar Landspítalans, Fjöl-
skyldudeild félagsmálastofnun-
ar, Sálfræðideild skóla og Sifja-
deild dómsmálaráðuneytisins.
Eftir framlag þeirra verða al-
mennar umræður. Fundarstjóri
verður Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son.
Málþingið verður haldið í
Gerðubergi fimmtudaginn 24.
október kl. 13. Mælst er til að
fólk tilkynni. sig á skrifstofur
Barnaheilla fyrir 22. október
n.k.
Þetta gerir Hallberg á þann hátt að
hver vísa túlkar ákveðinn árstíða-
bundinn viðburð, leysingu, voryrkj-
ur, hirðingu, göngur o.fl. Fyrsta
kvæðið í flokknum heitir í annarri
álfu. Það er sveitamaðurinn í stór-
borginni sem horfir heim.
Fuglamir hópast
fljúga norður til vorsins —
Vænglaus vonlaus þreyr.
Miklu misjafnari eru þau kvæði
Hallbergs sem bundin eru rími og
ljóðstöfum. Oft vilja þau verða frem-
ur stirðlega ort auk þess sem höf-
undurinn hirðir ekki alltaf um rétta
stuðlasetningu. Orðaval og orðaröð
vill ráðast um of af ríminu. Dæmi
um þetta er kvæðið Hinn góði hirðir:
Ég hóa saman orðum eins og hjarðmaður sá fé
sem hefur á gaddinn beitt.
Honum þykir vænt um það þótt horgemlingar sé
og hnífur hans komst ekki í feitt.
Stundum er einnig því líkast að
merking skipti ekki svo ýkja miklu
máli heldur aðeins rímleikurinn einn
eins og í Tveim léttúðugum vísum
um ástina og dauðann:
Ast mín er eins
og aðrar kenndir
til ekki neins
Dauðinn vendir
kvæði mínu í kross
og kankvís sendir
mér fingurkoss.
Lífsspeki Hallbergs er umfram
allt annað hugsjón lífsnautnamanns-
ins eða eins og segir í kvæðinu Betra
er lifður:
Ólifður fer ekki á fyllirí
né fær hann ljóðastrengjum bifað
svo að ég minnist nú ekkert á
ástir kvenna heitar tiðar...
Andlegir timburmenn eru sjálf-
sagt eðlilegir fylgifiskar slíkrar líf-
■ NÁTTÚRUVERNDARFÉ-
LAG Suðvesturlands verður með
rabbfund laugardaginn 19. október
kl. 13.30 í Hafnarhúsinu að vestan-
verðu um hvaða hlutverki Kolla-
fjörðurinn sjálfur, eyjarnar og
strandlengja hans eiga að gegna í
framtíðinni. Að Kollafirði liggja
fjögur sveitarfélög, höfuðborginni
og Kjalarneshreppi tilheyrir þó
stærsti hlutinn. „Að hafa við bæjar-
dyrnar fallegan fjörð með sundum
eyðieyjum, nesjum, töngum, skerj-
um og skemmtilegum fjörum er
Hallberg Hallmundsson
snautnastefnu. í það minnsta er
ekki laust við að í seinasta hluta
bókarinnar bryddi á þeim. Hallberg
er fullur heimþrár eftir langa veru
í Ameríku sem hann telur sína verstu
skissu eins og segir í kvæðinu Átta-
villtur:
Því finnst mér nú
eins og íjalla-Stjána
ég' eigi hvergi heima
en sé alls staðar gestur.
Auk þess kvelur hann eftirsjá eft-
ir því sem hefði getað orðið en aldr-
ei varð. Skáldið lætur að vísu sem
sér standi á sama þótt það hafi var-
ið sextíu árum ævinnar illa að eigin
sögn og „til lítils lifað” (Sextugur í
sekúndum). Samt er örstutt í sjálfsá-
sökun og sjálfsfæð:_ „En væntu þér
einskis vinskapar. Ég vil helst ekki
sjá þig meir,” segir í Eintali við speg-
il. Éf til vill er það í gamni sagt en
mér er nær að halda að því fylgi
nokkur alvara. Sem betur fer á
Hallberg söngvana sína óbrotna inn-
an um brostnu draumana og má því
segja um Ijóð hans að þar sé til
nokkurs ort.
einstakt og gefur tilefni til allskon-
ar náttúruskoðunarferða og útvist-
ar fyrir unga sem aldna. Því þarf
að gá vel að sér með allt sem getur
orðið þessu til alvarlegrar röskunar.
Botngróður og dýralíf er lítt kannað
en það hefur sýnt sig að fjörðurinn
hefur verið með fjölbreyttu og gró-
skumiklu lífríki, segir í fréttatil-
kynningu frá NVSV. Allir sem búa
við og í nágrenni Kollafjarðar eru
velkomnir á rabbfundinn sem taka
mun einn og hálfan til tvo tíma.
■ RÁÐSTEFNA Fram-
kvæmdanefndar um launamál
kvenna verður haldin í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a, laugar-
daginn 19. október nk. kl. 13.30.
Þar verður fjallað um launamun
kynjanna, leitað orsaka, bent á
nýjar leiðir í baráttunni og greint
frá nýrri könnun kjararannsóknar-
nefndar um launamun innan ASÍ.
Frummælendur verða Rannveig
Sigurðardóttir, hagfræðingur:
Hagfræðikenningar um launamun
kynjanna, dr. Eiríkur Hilmars-
son: Um könnun Kjararannsóknar-
nefndar á launamun innan ASÍ,
Hildur Jónsdóttir verkefnisstjóri
Norræna jafnlaunaverkefnisins:
Nýjar leiðir í jafnlaunabaráttu. Að
lokinni framsögu verða fijálsar
umræður. Fundarstjóri verður
Lára V. Júlíusdóttir, fram-
kvæmdastjóri ASÍ. Gert er ráð
fyrir að ráðstefnunni ljúki kl.
17.00. Aðgangseyrir er 400 kr.
Kaffi og meðlæti innifalið. Fundur-
inn er ölium opinn. Konur í stjórn-
un verkalýðsfélaga og
samninganefndum eru sérstak-
lega hvattar til að mæta.
(Fréttatilkynniiig)
jýE^AINl^iURENl
SNYRTIVÖRUKYNNINGAR
★ Clara, Austurstræti 3,
FIMMTUDAGINN 17. október kl. 12.30-17.30.
★ Clara, Laugavegi 15,
FÖSTUDAGINN 18. október kl. 12.30-17.30.
★ Clara, Kringlunni 8-12,
LAUGARDAGINN 19. október kl. 11.30-16.00.
NÝ FATASENDING
Til dæmis:
Pilot-jakkan frá kr. 8.900,-
Herrapevsur frá kr. 3.300,-
Lambsullar- oq anqórupeysur Rúllukragabolir frá kr. 3.990,- frá kr. 1890,-
Einlitar herrapeysur i mörgum litum frá kr. 3.290,-