Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
Ráðstefnuhald um fram-
tíð vestnorrænu landanna
DAGANA 19.- 20. október n.k.
heldur Samband ungra jafnaðar-
manna ráðstefnu um framtíð
vestnorrænu landanna og ber
hún heitið „Atlantshaf um aldar-
mót”. Þáttakendur ráðstefnunn-
ar verða frá Islandi, Færeyjum
og Grænlandi.
Á ráðstefnunni verða rædd sam-
eiginleg hagsmunamál landanna og
um nýtingu fiskistofna í höfunum
kringum löndin. Rætt verður m.a.
um hverjir stjórni nýtingu auðlinda
þessara landa um aldamótin og
hvernig staða umhverfismála eigi
eftir að vera.
Ráðstefnan hefst kl.10 laugar-
daginn 19. október í Alþýðuhúsinu
Strandgötu í Hafnarfirði með
ávarpi Eiðs Guðnasonar umhverfis-
ráðherra. Meðal frummælénda eru
Magnús Jóhannesson, aðstoðar-
maður umhverfisráðherra og Sven
Aage Malmberg.
Wolfgang Brunner.
- / ■ SÆNSKUR líffræðikennari,
Wolfgang Brunner, er staddur hér
á landi og heldur á næstunni stutt
námskeið, fyrirlestra og einnig ræð-
ir hann við fólk í skólum og öðrum
menntastofnunum. Brunner er hér
í boði menntamálaráðuneytisins,
Samtaka líffræðikennara, Norr-
æna hússins og Kennarasam-
bands Islands. í fréttatilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu segir
að hann hafi átt frumkvæði að
ýmsum nýjungum í kennslu vist-
fræði, umhverfisfræði, kynfræðslu
og fleira og hafi ferðast um til að
kynna nýjungar og halda námskeið
fyrir kennara. Fimmtudaginn 17.
^ október kl. 16 heldur Wolfgang
námskeið fyrir kennara í grunnskól-
um og framhaldsskólum um kyn-
fræðslu og verður það haldið í
Kennslumiðstöð Námsgagna-
stofnunar. Sama dag kl. 20.30
verður svo opinn fyrirlestur og
umræður um umhverfísmennt og
er bæði fyrir kennara og annað
áhugafólk um umhverfismál. Laug-
ardaginn 19. október kl. 14 verður
haldið stutt námskeið fyrir kennara
í grunnskólum og framhaldskólum
og fer það fram í Menntaskólanum
í Reykjavík. Viðfangsefni nám-
skeiðsins eru: „Að skoða skólann
sem vistkerfi” og „Fréttir af nám-
skrárumræðu í Svíþjóð”.
Fyrirlest-
ur um sorg
og sorgar-
viðbrögð
FYRIRLESTUR verður í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30 í Breiðholts-
kirkju í Mjódd á vegum Nýrrar
dögunar, samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð í Reykjavik. Mun
sr. Bragi Skúlason sjúkrahús-
prestur fjalla um efnið Sorg og
sorgarviðbrögð. Er þessi fyrir-
lestur öllum opinn og á eftir
verður boðið upp á umræður og
viðtöl fyrir þá sem þess óska.
Einnig skal á það bent, að Ný
dögun hefur Opið hús í Laugarnes-
kirkju öll þriðjudagskvöld kl. 20-22.
Hefur starfsemi samtakanna orðið
mörgum til hjálpar á erfíðum tíma-
bilum í lífi þeirra og er því örugg-
lega óhætt að mæla með þessu
starfí fyrir alla þá, sem eiga um
sárt að binda eftir einhvers konar
missi. Sr. Gísli Jónasson
Síðasta sýning á „Á
ég hvergi heima?”
SÍÐASTA sýning á rússneska
leikritinu Á ég hvergi heima? eft-
ir Alexander Galin verður föstu-
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fl.
Danfoss VLT hraðabreytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt að 90 kVA.
Hraðabreytingin er stiglaus frá 0-200% og mótorinn
heldur vægi við minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga í söludeild.
HÉÐINN
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
VERSLUN - RÁÐQJÖF
dagskvöldið 18. október í Borgar-
leikhúsinu. Verkið var frumsýnt
í vor og hlaut mjög góðar viðtök-
ur og gagnrýnendur luku miklu
lofsorði á sýninguna.
Á ég hvergi heima? fjallar um
Tjumtin sem er eldri ekkjumaður og
kominn á eftirlaun. Hann býr hjá
dóttur sinni og tengdasyni í Moskvu.
Tengdasonurinn vill koma þeim
gamla af heimilinu og býður heim
þrem eldri konum og hefur í huga
að gifta karlinn einhverri þeirra.
Karl hefur lítinn áhuga á konunum
og vill helst flytja út í sveit til syst-
ur sinnar. Leikurinn rekur þessa
atburðarás til lykta á grátbroslegan
og kíminn hátt.
I aðalhlutverkum eru Bessi Bjarn-
ason, Sigríður Hagalín, Guðrún
Ásmundsdóttir og Þóra Friðriksdótt-
ir eru einnig í viðamiklum hlutverk-
um I sýningunni og Eggert Þorleifs-
son og Guðrún S. Gísladóttir.
Leikstjóri er María Kristjánsdótt-
ir, leikmynd gerði Steinþór Sigurðs-
son og búninga Sigríður Guðjóns-
dóttir.
FRABÆR HÖNNUN
Blöndunartækin frá damixa
tryggja rétt vatnsmagn og
hitastig með einu handtaki.
Veljið aðeins það besta
- veljið damixa blöndunartæki
fyrir eldhúsið og baðherbergið.
damixa
///
Fæstíhelstu
umlandallt.
Ásta Guðrún Eyvindardóttir við eitt verka sinna.
Myndlistarmatseð-
ill Ástu Guðrúnar
ÁSTA Guðrún Eyvindardóttir
myndlistarmaður heldur sýning-
ar á næstunni undir yfirskriftinni
„Má bjóða þér út?”, undirtitill er
Matseðill.
Fyrsta sýningin, sem hún kallar
„kokteilinn” verður í Eden í Hvera-
gerði 17. til 20. þessa mánaðar. Á
sýningunni eru átján grafíkmyndir
auk nokkurra gróðurverka.
Frá 20. október til 20. desember
er sýning á olíumálverkum Ástu
Guðrúnar í tískuversluninni Sautján
á Laugavegi. Listamaðurinn nefnir
þessa sýndingu „Kaffi 17 forrétt”.
Sýning á verkum Ástu Guðrúnar
í veitingahúsinu Torfunni stendur
frá 27. október og fram á vor. Sú
sýning er „aðalrétturinn” á mynd-
listarmatseðli Ástu Guðrúnar að
þessu sinni.
■ Á PÚLSINUM í kvöld, fímmtu-
daginn 17. október, heldur KK-
Band tónleika eftir langt hlé sem
þeir félagar hafa notað til að vinna
hljómplötu, sem nú er fullbúin og
kemur á markað í nóvember. Má
því búast við þeim félögum tvíefld-
um með ferskt efni á Púlsinum
þetta kvöld. Sérstakir gestir þetta
kvöld eru vinir KK og Þorleifs; Leo
Gillespie farandsöngvari, ljóð- og
tónskáld ásámt Mick M. látbragðs-
leikara og sjónhverfingarmanni.
Leo Gillespie er fæddur í Manchest-
er, ólst að mestu upp í París og
Dublin, þar sem hann þróaði sinn
farandsöng og lífstíl m.a. í návígi
við The Dubliners og Patti Smith.
í yfír 20 ár hefur hann ferðast um
heiminn, skrifað ljóð og söngva um
lífsreynslu sína og segist enn bíða
eftir að heimurinn skilji hvað hann
er að fara, segir í fréttatilkynningu
frá Púlsinum. Mick M. hóf feril sinn
13 ára á strætum Hamborgar.
Hann hefur ferðast víða um Evrópu
og unnið mikið með listamönnum,
látbragðsleikurum og grínistum.
Hann hlaut fyrstu verðlaun í Golden
Camera á vegum franska sjón-
varpsins.
VINNINGASKRA
A- FL0KKUR
1. vinningur: kr. 3.206.750
188495
2. -11. vinningur, hver vinningur: kr. 192.405
140630
147032
136137
167643
186839
1BB142
212925
213696
213793
227835
12.-111. vinningur, hver vinningur: kr. 12.B27
100226 121819 129249 149623
111401 122776 129634 151444
112606 124611 131640 151646
113211 128361 132812 131929
113241 128B27 141B31 132491
116461 128885 143615 157645
120618 129209 146638 139067
159072 164051 169333 176049
139243 165389 170043 176061
159283 163730 171480 176778
160B22 163766 17321B 177873
162290 168219 173230 179419
162488 16B2S1 174231 179620
163240 168735 175349 1B0625
181063 186299 189392 192B30
1B428B 187310 189839 193163
184374 187362 190081 194525
185093 188098 190094 196449
185269 189100 190B13 197260
183483 189137 190863 200435
186,049 189181 191226 201694
202026 206037 20S63B 210443
202468 206486 209139 221019
203242 206B96 210204 224616
203803 2074BB 210337 226637
* ■***•'*_ 1,10 i i)i ;i) i 11 HAPPDRÆTTI 1 í 11 lilí 'MfISL
.ttv, ivuJL t-jiy