Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTOBER 1991
Magnús St. Ágústs
son — Kveðjuorð
Hryggnr og einmana. Enginn
til að hlusta og skilja en aftur á
móti fjöldinn allur til að lítillækka
og gagnrýna. Vakna upp og sjá
að þær stoðir er þú vonaðir að
myndu ávallt styðja grunn þíns
' lífs, hefðu verið reistar án undir-
stöðu og fallnar með allri þeirri
vináttu og öllu því trausti er þær
áttu að bera. Ekkert til að líta
björtum augum til, enginn ljós
punktur i tilverunni nema undur-
samleg tilhugsun um kærleika,
réttlæti og gleði í guðs ríki.
Mér verður litið aftur til þess
tíma er ég fyrst kynntist honum
Magga. í litlu samfélagi úti á sjó
þar sem menn urðu að standa
saman og sýna vinskap til þess
að hveijum einstaklingi gæti liðið
sem best. Minningar mínar frá
þessu tímabili eru blendnar, bæði
gleði og sorg. Gleði yfir að hafa
fengið tækifæri til að kynnast svo
góðum og duglegum dreng sem
Maggi var. Fullur af hlýju og rétt-
læti og bjartsýnn á að framtíðin
bæri með sér gleði og hamingju.
Sorg yfir því hversu grimm og
sjálfumglöð mannskepnan getur
verið. Hví þarf maður ávallt að
verða vitni að því að jafnt hjá
bömum sem fullorðnu fólki þurfi
alltaf að finnast einhver í hópnum
sem verður undir. Einhver sem
neyðist til að loka sig frá öllu, ein-
hver sem þarf að vakna upp með
kvíða og hræðslu við það að þurfa
að lifa lífinu í gegnum sífellt mót-
læti.
Maggi var gæddur öllum þeim
kostum er prýða má góðan dreng,
en því miður dugar heiðarleiki og
góðvilji lítið í hinum harða heimi.
Sú hugsun að njóta góðs á kostn-
að annarra var ekki til hjá Magga,
en slík eigingirni og græðgi virðist
vera grundvöllur hins ljúfa lífs í
nútímaþjóðfélagi.
En nú hefur Maggi fundið frið,
nú loksins fær hann launað fyrir
góðvild sína og heiðarleika. í
himnaríki er hann huggaður við
bijóst Drottins.
Ölli
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Meinatæknir
Meinatækni vantar til afleysinga í 6-8 mán-
uði við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs frá
1. janúar 1992. Góð vinnuaðstaða. Viðkom-
andi þarf líka að taka bakvaktir.
Allar upplýsingar veita Sigurlaug eða undirrit-
aður í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
/MIKIIG4RDURHF.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir kassafólki í Miklagarði, Miðvangi
og Miklagarði, Garðabæ.
Upplýsingar á stöðunum hjá verslunarstjóra.
ÝMISLEGT
-
! GX
Heildsalar - kaupmenn
Jólamarkaður verður haldinn í 1700 fm glæsi-
legu sýningar- og verslunarhúsnæði á einu-
besta verslunarsvæði í Reykjavík, nánar til-
tekið í Faxafeni í nágrenni við Hagkaup dag-
ana 15. nóv.-30. des. Húsnæðið verður hlut-
að niður í 50-60 verslunarhólf sem öll verða
uppsett.
Þeir sem vilja tryggja sér pláss vinsamlega
hringið strax og fáið nánari upplýsingar,
símar 687245 og 651563.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
90 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í nýbygg-
ingu í Skútuvogi 12H.
Upplýsingar í símum 686544 og 30543.
HÚSNÆÐIÓSKAST
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska að taka á leigu
húsnæði fyrir rafmagnsverkstæði.
Húsnæðið þarf að vera um 300 m2 og vera
staðsett í austurhluta borgarinnar.
Salarhæð þarf að vera minnst 5 m og snyrt-
ing og önnur starfsmannaaðstaða þarf að
vera fyrir hendi.
Húsnæðið þarf að vera laust til afhendingar
í sTðasta lagi 1. febrúar 1992.
Nánari upplýsingar veitir Garðar Briem í síma
605500.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík. •
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Samband fiskideilda á Vesturlandi heldur
aðalfund laugardaginn 19. október 1991 kl.
14.00 í Hótel Stykkishólmi.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður fjall-
að um breýtt skipulag Fiskifélagsins, fisk-
markaði og framtíð kvótakerfisins.
Á fundinn mæta fiskimálastjóri, Þorsteinn
Gíslason, og formaður milliþinganefndar
fiskiþings, Marteinn Friðriksson. Einnig
mætir fulltrúi frá Hafrannsóknastofnun.
Stjórnin.
TJÁÚÐUNGÁRÍJmœ
Nauðungaruppboð
Fimmtudaginn 17. október 1991
fer fram nauðungaruppboð á neðangreindri fasteign í dómsal
embættisins í Gránugötu 4-6 kl. 14.00. Önnur sala.
Lækjargötu 6C, Siglufirði, þingl. eign Kristjáns Elíassonar, eftir kröfu
Steingríms Þormóðssonar hdi.
Bæjarfógetinn á Siglufirói.
TILKYNNINGAR
Týndurhestur
Brúnn 5 vetra foli frá Skarði, Landsveit, tap-
aðist úr girðingu í Byggðarhorni við Selfoss
í júní. Stórt D er klippt í síðu hestsins og
grænt límband er í faxi.
Ef þið hafið orðið vör við hestinn vinsamleg-
ast látið vita í síma 98-21048 eða 91-666880.
KENNSLA
Gítarkennsla
Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa-
skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku.
Upplýsingar í síma 91-629234.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Félag íslenskra gítarleikara.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Aðalfundur
félags sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi, Breiðholti I, verð-
ur haldinn laugardaginn 19. október næstkomandi í Valhöll kl. 11.00
árdegis.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi.
Fundarstjóri: Guðmundur Jónsson.
Stjórnin.
Kópavogur - Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagiö Edda.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
fimmtudaginn 24. október kl. 20.30 i Sjálf-
stæðishúsinu, Hamraborg 1, 3ju hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins: Arndís Jónsdóttir,
formaður landssambands sjálfstæðis-
kvenna.
3. Kaffiveitingar.
4. Önnur mál.
Eddukonur fjölmennið,. „ .. .
FFLAGSLÍF
I.O.O.F. 11 =17310178'/2 = 9.O.
I.O.O.F.5 = 17317108V2 = Br.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli 11
Almenn samkoma verður í kvöld
kl. 20.30. Ræðumaður: Garðar
Ragnarsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld fimmtudag
17. október. Byrjum að spila kl.
20.30 (stundvíslega). Verið öll
velkomin og fjölmennið.
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Richard Perinchief for-
stöðumaður frá Bandaríkjunum
predikar. Allir hjartanlega vel-
komnir.
\ ,--7 /
KFUM
\/ '
V ADKFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. Biblíulestur, „Þegar Baels-
turninn hrundi". Ástráður Sigur-
steindórsson, cand. theol talar.
Kaffi eftir fund. Allir velkomnir.
Hjónanámskeið
Hjónanámskeið með Eivind Frö-
en verður haldið í Bústaðakirkju
21. og 22. október kl. 20.00.
Skráning i síma 27460 eða
14327. Allir velkomnir.
fÍMnhjélp
Vegna heimsóknar Göte Edel-
bring frá Lewipethrus-stofnun-
inni í Svíþjóð verða samkomur
í Þríbúðum sem hér segir:
Fimmtudagur 17. október:
Almenn samkoma f Þribúðum
kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá
með miklum söng. Samhjálpar-
vinir vitna um reynslu sina.
Söngtríóið „Beiskar jurtir”
syngur. Ræðumaður verður
Göte Edelbring.
Laugardagur 19. október: Al-
menn samkoma í Þríbúðum kl.
20.30. Fjölbreytt dagskrá með
söng og vitnisburðum. Sam-
hjálparkórinn tekur lagið.
Söngtrióið „Beiskar jurtir’’
syngur. Ræðumaður Göte Edel-
bring.
Sunnudagur 20. október: Al-
menn samkoma í Þríbúðum kl.
16.00. Samhjálparvinir vitna um
reynslu sína og kór þeirra syng-
ur. Barnagæsla. Söngtríóið
„Beiskar jurtir" syngur. Ræðu-
maður Göte Edelbring. Kaffi að
lokinni samkomu. Allirvelkomnir
í Þríbúðir.
Samhjálp.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 s. 11798 19533
Á mörkum hausts og
vetrar f Landmanna-
laugum 18.-20. okt.
Það eru miklar andstæður í
landslagi á Landmannalauga-
svæðinu, snævikrýndir fjalla-
toppar, kolsvört hraun og lit-
skrúðugir líparíthamrar. Laugin
er best á þessum árstíma. Það
er hægt að komast á gönguskíði
á hærri slóðum (t.d. á leiðinni í
Hrafntinnusker). Allra siðasta
Landmannalaugaferö ársins.
Takmarkað pláss. Góð gisting í
sæluhúsinu. Uppl. og farm. á
skrifst. Öldugötu 3, símar:
19533 og 11798.
Munið fjölskylduferð á Sela-
tanga, sunnudaginn 20. okt. kl.
13. og kvöldgöngu á fullu tungli
miðvikudaginn 23. okt. kl. 20.
Allir ættu að vera í Ferðafélag-
inu; skráið ykkur á skrifstofunni.
Ferðafélag islands.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Engin samkoma í kvöld. Her-
mannasamsæti föstudaginn kl.
19.00 í safnaðarheimili Dóm-
kirkjunnar. Kommandershjónin
John og Lydie Ord ásamt foringj-
um Færeyja og islands eru með
á þessari samveru og á sam-
komu í Neskirkju sunnudaginn
kl. 16.30.