Morgunblaðið - 17.10.1991, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
4S
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Dómsdagnrinn
Var krossfestingin Guðs vilji eða
mistök fólksins?
Það voru einu sinni tveir gyðing-
ar, annar hafði látið lífið í gasklef-
um Treblinka í síðari heimsstyijöld,
en hinn í Auschwitz. Þeir voru á
förum ásamt tveimur kristnum
rriönnum sem dáið höfðu af völdum
krabbameins.
Allir voru þeir á leið til fundar
við skaparann, til að uppgjöra sitt
líf og til áheyrnar dóms hans.
Er gyðingarnir birtast segir eng-
illinn við þá: Þið gyðingar sem lífið
létu í gasklefum og hafið ekki frels-
ast í blóði Jesú Krists, komist ekki
inn í Paradís. þar sem yðar forfeður
krossfestuð hann.
Annar gyðingurinn, sá er látist
hafði í Treblinka, svaraði: En var
það ekki til þess að spádómarnir
Afnotagjöld
Mig hefur lengi langað til að
koma á framfæri 'skoðun minni á
okkar rikisrekna sjónvarpi. Lengi
vel þráaðist ég við að borga afnota-
gjöld þessa fjölmiðils. Eg gekk í
samtök sem eru á móti ríkissjón-
varpinu, en málið er að þau gera
bókstaflega ekki neitt. Þessi samtök
eru bara til að nafninu til. Svo leið
og beið, afnotagjöidin fóru í lög-
fræðing og ég fékk sendar hótanir
um að borga: Höfuðstól + vexti +
lögfræðikostnað. Eftir því sem mér
skilst þá eru tvær lögfræðiskrifstof-
ur á vegum ríkissjónvarpsins. Þar
er vangoldnum afnojagjölduni kast-
að á milli eins og gullbolta því eng-
inn vafi er á því að fyrir þessar
lögfræðistofur er þessi þjónusta
hrein gullnáma. Þar sem ég er heið-
arleg manneskja þá endaði þetta
með því að ég borgaði þessi um-
ræddu gjöld með vöxtum og lög-
fræðikostnaði, sem sagt ekki tugi
þúsunda heldur um hundrað þúsund
krónur. Það sem ég hef á móti því
að borga þetta er það að ég er
kúguð til þess. Ég er kúguð til þess
af því að ég er að borga fyrir þjón-
ustu sem ég kæri mig ekkert um.
Ég horfi aldrei á ríkissjónvarpið af
því hreinlega að mér finnst dag-
skráin ekki höfða til mín. Ég hef
áhuga á að horfa á Stöð 2 og borga
mín afnotagjöld þar, þegar ég hef
efni á því. Eg er heiðarleg en mér
finnst þessi lög sem skylda mann
til að borga fyrir þjónustu sem
maður kærir sig ekki um, ekki heið-
arleg, þau eru lögleg en siðlaus.
Þóra
Höfdar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
rættust og var það ekki Guðs vilji
að Jesús yrði krossfestur til þess
að þeir sem á hann tryðu glötuðust
ekki, heldur öðluðust eilíft líf. Hefðu
þessir kristnu nokkuð hlotið himna-
vist nema vegna verknaðar okkar
forfeðra? Já sjáðu til, segir hinn
gyðingurinn frá Auschwitz. Hann
átti að fæðast til þess að okkar
forfeður gætu dæmt og krossfest
hann, og Hann kæmi svo aftur í
skýjum löngu seinna á öðmm tím-
um, eins og spáð var í Daníel og
tæki eingöngu við þeim kristnu.
Gyðingurinn frá Treblinka: En
samt sem áður þakka þessir kristnu
menn ekki forfeðrum okkar fyrir
að hafa krossfest Jesú Krist. Þeir
fá frelsun gegnum krossinn og ei-
líft líf, en hvað verður um okkur
gyðinga? Það var hreint út sagt
ekki hægt að krossfesta Hann öðru
vísi en fólkið tryði ekki á Hann svo
að þeir sem á hann tryðu fengju
frelsun.
En ef forfeður okkar hefðu ekki
krossfest Krist? Hvað áttu við? Þá
Þakka öllum þeim, sem glöddu mig með gjöf-
um, blómum og heillaóskum á 90 ára afmœli
minu 10. október sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Hólmfríður Jónadóttir.
Öllum vinum mínum og vandamönnum sendi
ég mínar bestu óskir og þakka heimsóknir,
gjafir, kveðjur og skeyti á 90 ára afmœli mínu
8. október.
Lifið heil.
Jóhanna Jónsdóttir,
Fellsmúla 20.
rGORE-TEX
hefðu spádómarnir ekki ræst og
þessir tveir ekki getað fengið frels-
un gegnum krossinn, sagði annar
þeirra.
Tilvitnanir: Helgaðir, frelsaðir
NT Heb. 10:10, Rom 5:6 og Op
5:4. Kristur kemur á skýi GT Dan
7:13.
Þorsteinn S.T.
^Trrmi
BORÐ-, PALL-, KRÓK-, TELJARA-
OG GÓLFVOGIR
Margar geröir eða frá 15 kg. að 6000 kg. með
mismunandi nákvæmni. Einnig fáanlegar vatnsvarðar
(IP65) og með ryðfríum palli.
Möguleikar á tengingu við tölvur og prentara.
Viðgerðir á allflestum gerðum voga og breytum eldri
gerðum voga í rafvogir.
HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA.
OlAflJR GÍSlASOíJ & CO. \\f.
SUNDABORG 22 SÍMI 91-686800
VOGAÞJÓNUSTA SÍMI 91-686970
\SUPERPR0 0F
C3 S e:
gönguskór
Vatnshe
Léttir
Þægileg
i i r túnuF" Glæsibæ, sími 812922 X ‘'L
II
Hótel íslandi í kvöld kl. 21.00
Leiðrétting
í pistli Magna Guðmundssonar
„Ofríki EB” sem birtist í Velvak-
anda 12. október féllu brott nokkur
orð. Seinni málsgreinin birtist hér
leiðrétt.
Reynir tekur upp nokkrar setn-
ingar úr Morgunblaðsgrein minni
24/9. Málið er það, að við eigum
rétt á tollfríðindum fyrir fiskafurðir
okkar í EB-löndunum, ef við látum
þau ganga fyrir um kaup á þeim.
Það er þeirra eigin hagur, því að
án íslenzks fiskjar myndi verðið
hækka á meginlandinu. EB krefst
hins vegar annars tveggja: milljarða
króna tollgreiðslna ellegar. afnota
af auðlindum okkar. Slíkt er ofríkið.
Póstverslunin
6VI/W flytur
Lokað í dag.
Opnum aftur á morgun,
föstudaginn 18. október,
að Stangarhyl 5 í Ártúnsholti.
P3
IH
ssy
(RLi
(3S)
Les Satellites
Forsala aðgöngumiða:
Japis, Brautarholfi og Kringlunni / Steinum, Austurstræti og
Laugavegi / Skrifstofu Alliance Francaise, Vesturgötu 2.