Morgunblaðið - 17.10.1991, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
45
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
■ Úrslit og marlfS^
skorarar / 46
UEFA að leikir Rúmeníu - Sviss
og Skotlands - San Marínó, sem
fara fram 13. nóvember, verði leikn-
ir á sama tíma. „Ef Skotar vita um
úrslitin úr okkar leik áður en þeir
ganga til leiks gegn San Marínó,
vita þeir að hveiju þeir ganga,”
sagði Stielike.
Júgóslavar og Danir berjast í 4.
riðli og sanda Júgóslavar, sem unnu
Færeyinga, 2:0, betur að vígi. Þeir
eru með 12 stig, en Danir 11, þeg-
ar tveir leikir eru eftir í riðlinum.
Danir leika heima gegn N-írum, en
Júgóslavar leika í Austurríki.
Þjóðveijar
óstöðvandi
- þegar þeir unnu stórsigur, 4:1,
á Walesbúum í Numberg
„ÞJÓÐVERJAR léku eins góða
knattspyrnu og þeir geta leikið.
Þeir áttu sigurinn svo sannar-
lega skilið og þá vann Dean
Saunders til þess að vera rek-
inn af leikvelli,” sagði T erry
Yorath, þjálfari Wales, eftir að
Þjóðverjar höfðu unnið stórsig-
ur, 4:1, á Walesbúum í Núrn-
berg. Wales lék einum leik-
manni færri í 39 mín., en
Saunders var rekinn af leikvelli
í byrjun seinni hálfleiksins eftir
Ijótt brot á Thomas Doll.
Berti Vogts, þjálfari Þjóðveija,
var að sjálfsögðu ánægður
með leik sinna manna. „Við þurfum
að komast yfir síðasta þröskuldinn
- í Belgíu, til að tryggja okkur
farseðilinn til Svíþjóðar. Við sýnd-
um nú að við erum með besta liðið
í riðlinum, en hvaða framhald verð-
ur - kemur í ljós í Belgíu.”
Liðin sem léku í gærkvöldi, voru
þannig skipuð:
Þýskaland: Bodo Illgner, Manfred Binz,
Stefan Reutcr, Guido Buchwald, Jiirgen
Kohler, Thomas Doll (Steffen Essenberg
79.), Lothar Matthaus, Andy Möller, Andre-
as Brehme, Karlheinz Riedle (Thomas
Hassler 65.), Rudi Völler.
Wales: Neville Southall, Gavin Magu-
ire (Gary Speed 46.), Paul Bodin,
Andrew Melville, Kevin Ratcliffe, Eric
Young (Ryan Giggs 84.), Mark Bowen,
Barry Horne, Mark Hughes, Ian Rush,
Dean Saunders.
Evrópumeistarar Hollands eru
einnig með pálmann í höndunum
eftir sigur á Portúgölum í Rotter-
dam, 1:0, í 6. riðli. Hollendingar
settu strax á fulla ferð og ráku
Portúgala í vamarstöðu og á 20
mín. skoraði Witschge sigurmarkið
af 20 m færi.
Englendingar áttu í mikíum
vandræðum með Tyrki á Wembley
og önduðu þeir léttar þegar dómari
leiksins flautaði til leiksloka, í leik
liðanna í 7. riðli. Alan Smith skor-
aði sigurmark, 1:0, þeirra með
skalla, eftir fyrirgjöf frá Stuart
Pearce. 50.896 áhorfendur á Wem-
bley sendu leikmönnum Englands
óspart tóninn - voru óánægðir.
Englendingar þurfa nú aðeins að
ná jafntefli gegn Pólveijum í Pól-
landi til að tryggja sér farseðilinn
til Svíþjóðar, en ef þeir tapa getur
markatala ráðið úrslitum um hvort
það verða þeir, Pólveijar eða írar,
sem komast áfram. írar standa
Rudi Völler fagnar margi sínu gegn Wales í gærkvöldi.
besta að vígi í sambandi við marka-
tölu.
Jackie Charlton, landsliðsþjálfari
íra, var óhress með sína menn í
Póllandi, þar sem þeir misstu unnin
leik niður í jafntefli, 3:3. írar voru
yfir, 3:1, þegar 13. mín. voru til
leiksloka, en þá fengu þeir tvö mjög
klaufaleg mörk á sig eftir varnar-
Níu léku í Reykjavík
Cnglendingar áttu í miklum erfíðleikum með Tyrki á Wembley, 1:0.
™ Þess má geta til gamans að níu leikmanna Tyrkja, sem léku
gegn Englandi, léku gegn íslendingum á Laugardalsvellinum 17. júlí
í sumar. Þá unnu íslendingar stórsigur, 5:1.
mistök. Pat Bonner, markvörður
íra, getur nagað sig í handarbökin
- hann hefur ekki sofíð vel í nótt,
en Pólvetjar jöfnuðu þegar fjórar
mín. voru til leiksloka, eftir ævin-
týralegt úthlaup hans.
Skotar máttu sætta sig við sitt
fyrsta tap í 2. riðli — 0:1, f Rúmeníu.
Spennan er mikil í riðlinum og eiga
fjórar þjóðir möguleika á að komast
til Svíþjóðar; Sviss, Skotland, Búlg-
aría og Rúmenía. Sviss er með 10
stig og á eftir að leika úti gegn
Rúmeníu, sem er með 7 stig, en
Rúmenar eiga tvo leiki eftir. Skotar
eiga eftir að leika heima gegn San
Marínó. Uli Stielike, þjálfari Sviss-
lendinga, sem hafa bestu marka-
töluna, hefur óskað eftir því við
FORSALA
aðgöngumiða er
í öllum verslunum
Steina og Skífunnar.
Miðaverð kr. 1.500,-