Morgunblaðið - 17.10.1991, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991
47
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
<
Sigrar þrátt fyrir
litla samæfingu
„ÉG er mjög sáttur við varnar-
leikinn í báðum leikjunum.
Sóknarleikurinn var ekki eins
góður og er það lítilii samæf-
ingu um að kenna. En það er
margt sem þarf að laga og við
verðum að nota tímann vel
fram að B-keppninni f Austur-
ríki,” sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari,
eftir að íslenska landsliðiðið
hafði lagt það tékkneska að
velli, 25:23, í Laugardalhöll í
gærkvöldi. Konráð Olavson var
besti leikmaður íslenska liðs-
ins, gerði 10 mörk þrátt fyrir
, að vera meðftensu - rúmlega
■ 38 stig hita.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað, en engu að síður spenn-
andi allan tímann. Þorbergur virðist
hafa náð góðum
tökum á vamar-
leiknum, en sóknar-
leikurinn og
markvarslan hlýtur
að vera mikið umhugsunarefni fyrir
hann næstu vikumar. í þessum leik
var sóknarleikurinn mjög tilviljun-
arkenndur, með fáum undantekn-
ingum þó. Þess ber þó að geta að
það vantaði hornamennina sterku,
Valdimar Grímsson, Bjarka Sig-
urðsson og Jakob Sigurðsson, sem
allir em meiddir og svo Júlíus Jón-
asson og Geir Sveinsson fengu sig
ekki lausa frá félögum sínum á
Spáni.
Það var sérstaklega áberandi að
liðið gerði -aðeins tvö mörk eftir
hraðaupphlaup og kann skýringin
að vera sú að samæfingu vantaði
í liðið. Hraðinn var því ekki mikill
og fór óþarflega mikill tími í að
skipta leikmönnum inná milli sókn-
FOLK
■ ÍSLENSKU landsliðsmennimir
í brids vom heiðursgestir á lands-
leiknum í gærkvöldi. Þeir mættu í
. Höllina með Bermúdaskálina eft-
irsóttu og sýndu áhorfendum. Jón
Hjallalin Magnússon, formaður
HSÍ, færði þeim blóm fyrir leikinn
og óskaði þeim til hamingju með
f heimsmeistaratitilinn.
■ VALDIMAR Grímsson, lands-
liðsmaður úr Val, var á meðal
I áhorfenda í gær. Hann meiddist
sem kunnugt er í leik Vals og Sel-
foss í síðustu viku.. Hann sagðist
| vera að ná sér myndi leika með
Val gegn ÍBV á morgun.
■ OSKAR Ármannsson, sem
kom gagngert frá Þýskalandi til
að leika með íslenska landsliðinu,
lék aðeins í 10 mínútur samtals í
báðum leikjunum. „Það hefði verið
skemmtilegra að fá að leika meira,
en þjálfarinn ræður og ekkert við
bví að segja,” sagði Óskar.
KNATTSPYRNA
ar og varnar. íslenska liðið á sjálf-
sagt eftir að breytast mikið næstu
mánuði og það verður að gefa því
tíma. Við viljum jú alltaf sjá hand-
bolta eins og hann gerist bestur,
en tveir sigrar gegn Tékkum á jafn-
mörgum dögum verður að teljast
gott hjá þessu annars óslípaða liði.
Konráð og Birgir voru bestu leik-
menn íslenska liðsins. Sigurður
Sveinsson og Sigurður Bjarnason
komust einnig vel frá sínu. Patrek-
ur og Einar léku í vörn og stóðu
sig vel. Héðinn Gilsson virðist ekki
vera í nægilega góðri æfingu, hver
svo sem skýringin kann að vera á
því. Óskar Ármannsson fékk lítið
að spreyta sig, lék aðeins í 10 mín-
útur. Bergsveinn Bergsveinsson
fékk heldur ekki að koma inná þrátt
fyrir slaka markvörslu.
Tékkneska liðið var slakt, líklega
eitt það lélegasta sem þeir hafa
sent hingað til lands. Sigurinn er
því enginn mælikvarði á getu ís-
lenska liðsins.
Konráð lék með 38 stiga hita
Konráð Olavson fékk matareitrun er hann kom til landsins á mánu-
dag og fékk yfir 38 stiga hita og lék þannig báða leikina. Það
virtist þó ekki há honum í leiknum í gærkvöldi. Hann gerði 10 mörk
og var besti leikmaður íslenska liðsins.
„Ég er búinn að liggja í rúminu meira og minna síðan ég kom til
landsins. Ég var með hita í báðum leikjunum og hafði ekkert getað
borðað fyrr en í hádeginu í dag [í gær]. Ég var slappur í fyrri leiknum
en í síðari leiknum náði ég mér vel á strik, enda hámaði ég í mig
súkkulaði og tók magnil fyrir leikinn til að fá kraft,” sagði Konráð.
ISLAND
25
TEKKOSLOVAKIA 23
Fyrri hálfl.: 0:21:23:36:58:610:1011:11 12:11___________
Seinni hálfl.: 13:11 16:14 19:16 21:17 23:19 23:22 24:23 25:23
LEIKMENN: Skot Mörk/ Víti Varið Fram- hjá Stöng Lfnu- send. Fiskað vfti Knetti tapað Utan vallar (mfn.) Nýting (%)
Konráð Olavson 13/4 10/3 2/1 1 2 1 71
Sigurður Sveinsson ynf)ri 4 2 1 1 1 3 2 29
Birgir Sigurðsson 9 6 2 1 2 67
Sigurður Bjarnason 5 2 3 1 40
Héðinn Gilsson I 3 3 2 1 2 -
Sigurður SveinjjitfnWkL jf 6/1 4 2/1 2 1 67
Gústaf BjarnafDn c' s
Einar Sigurðsson V / 4
Patrekur Jóhaiinesson 7 1 2
Óskar Ármanfsson sr 1 1 100
Axel BjörnssWi
Gunnar Andrésso&^w^#
i. [H / V
i WURMÆ VARIN SKOT Lang. Hom Lina Hrað. Víti Gegn.
Guðmundur Hrafnkelssön / 5 3 - 2 - -
Bergsveinn Bergsveinsson
■ ) tJXl
jF f-- •
árdalshöll
old. 1991
orfendur: 631
1 MÖRK SKORUÐ 1
Langskot 6
Af línu 9
Vítakast 3
E. gegnumbrot 1
E. hraðaupphl. 2
Úr homi 4
|soknarnýting|
Sóknir Mörk Nýting
Fyrri hálfl. 24 12 50%
Seinni hálfl. 22 13 59%
SAMTALS 46 25 54%
Guðmundur Hrafnkelsson stóð í íslengka markinu allan leikinn. Hann varði einnig þrjú skot, sem knötturinn fór
aftur til mótherja. Mörk Tékka: Hudak 4, Sedlacek 4, Hazel 3, Liptak 3/1, Holesa 2, Suma 2, Vanék 2, Tonar 2, Folta
1. Tékkar voru utan vallar í 6 mínútur. Dómarar voru Krister Broman og Kent Blademo frá Svíþjóð, voru mjög hlið-
hollir íslenska liðinu.
„Við átlum í erfiðleikum”
- sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari íslands eftirjafnteflið á Kýpur
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálfari
í knattspymu, sagðist vera
þokkalega ánægður með vináttu-
landsleikinn á Kýpur í gær.
„Ég er þokkalega ánægður með
þetta og við vorum betri í seinni
hálfleik. Okkur gekk illa að komast
út úr þvögunni í fyrri hálfleik og
náðum ekki að nýta svæðið á milli
miðju og öftustu línu hjá Kýpur-
mönnum. Þetta var skárra eftir hlé,
en þó við næðum að draga miðjuna
þeirra fram tókst okkur ekki að
nýta það almennilega.
Það sem vantar aðallega er að
koma boltanum betur inn á miðjuna
og þaðan upp í hornin, en það kem-
ur.
Morgunblaðið/Sverrir
Konráö Olavson var besti leikmað-
ur íslenska liðsins í gær þrátt fyýy
að hann væri með flensu. Hann gerði
10 mörk og mörg þeirra glæsileg.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ EYJÓLFUR Sverrisson er
annar íslenski knattspyrnumaður-
inn til.að fá gult spjald í leik á
Kýpur. Haraldur Sturlaugsson,
WWWI^KWU sem er með í för,
Steinþór fékk gult spjald.
Guöbjartsson þegar IA lék ge^rT
skrifar Omonia í Evrópu-
ra ypur keppni meistaraliða
1975. Hann fékk reyndar gult í
báðum leikjunum og var fyrsti ís-
lenski knattspyrnumaðurinn til ið
vera dæmdur í leikbann í Evrópu-
keppni.
■ UM 200 áhorfendur voru á
iandsleik Kýpur og Islands og þótti
flestum fátt til koma. En ekki Sig-
urði Jónssyni. „Þetta var æðislegt.
Það eru aldrei fleiri en 25 áhorfend-
ur, þegar varalið Arsenal er ið
spila, þannig að maður þekkir vai la
annað en tóma bekki!”
■ ÍSLENDINGAR voru tvisvar
dæmdir rangstæðir í fyrri hálflek, ..
en aldrei eftir hlé. Kýpurme in
voru einu sinni dæmdir rangstæði •.
■ ÍSLENDINGAR fengu eitt
horn fyrir hlé og þrjú í seinni h?lf-
leik. Kýpurmenn fengu þijár hoi n-
spyrnur í fyrri hálfieik, en fjóra r í
þeim seinni.
■ TVEIR landsliðsmenn á Kýpur
fengu að sjá rauða spjaldið í leikjum
um helgina. Þeir voru því settiv í
bann og fengu þess vegna ekki að
spilaýandsleikinn.
■ ÁSGEIR Elíasson fór beint frá
Kýpur til Kölnar í Þýskalandi,
þar sem hann verður á þjálfaranám-
skeiði ásamt fjölda íslenskra þjálf-
ara.
■ ATLI Helgason fékk nýliða-
merki KSí strax eftir leikinn, en
hann lék sinn fyrsta landsleik á
Kýpur.
■ ÍSLAND lék í gær fjórða leik
sinn í röð án taps, sem er met.
Áður hafði íslenska liðið unnið
Tyrki, gert jafntefli við Dani og
unnið Spánverja.