Morgunblaðið - 19.10.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.10.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991 21 Reuter „Þýsku ríki” mótmælt Hugsanlegt er, að Volgu-Þjóðveijar, sem svo eru kallaðir, afkomendur þýskra bænda, sem Katrín mikla fékk til að setjast að í Rússlandi á 18. öld, stofni sitt eigið sjálfstjórnarsvæði og í gær var sett í Moskvu fyrsta þing þýskættaðra Rússa. Ekki eru þó allir Rússar hrifnir af hugmyndinni um „þýskt ríki” innan landamæra Rússlands og var myndin tekin þegar henni var mótmælt í borginni Krasnojarsk. Atlantshafsbandalagið: Sovétmenn treysti ör- yggi kjamavopna sinna Taormina. lteuter. Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) luku tveggja daga fundi sínum á Sikiley í gær með því að hvetja Sovétrík- in til að huga vandlega að öryggi kjarnorkuvopnabúrs landsins. Margir telja að sovéska sambandsríkið muni leysast upp og þá sé hætta á að vopnin falli í hendur óábyrgra aðila. Aður höfðu ráðherr- arnir samþykkt að fækka kjarnavopnum bandalagsins um 80% í samræmi við fyrri yfirlýsingar George Bush Bandaríkjaforseta. Manfred Wörner, framkvæmdastjóri NATO, sagði á fréttamanna- fundi að bandalagið þyrfti „um ófyrirsjáanlega framtíð” að ráða yfir nokkur hundruð kjarnavopnum og sagði Evrópu aldrei geta orðið kjarnorkuvopnalaust svæði. „Kjarnorkuvopn hafa verið fund- in upp og þeirri staðreynd verður ekki breytt,” sagði Wörner. „Þess vegna get ég ekki séð fyrir mér að við getum losnað við öll kjarnavopn í Evrópu.” Dick Cheney, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, var sammála og taldi kjarnavopnin vera það sem tryggði öryggi bandalags- ríkjanna þegar öllu væri á botninn hvolft. Enn er deilt um yfirstjórn kjarna- vopnanna í Sovétríkjunum og vilja Úkraínumenn ráða yfir einhveijum hluta skammdrægu vopnanna. Auk þess sem rætt var um sovésku kjarnorkuvopnin á NATO-fundin- um var fjallað um framtíð hundraða ef ekki þúsunda Sovétmanna sem kunna til verka við smíði slíkra vopna en horfa nú fram á atvinnu- leysi vegna takmörkunar vígbúnað- ar. „Við höfum áhyggjur af því að fólkið gæti reynt að selja einstökum Sovétlýðveldum þekkingu sína eða selja hana til útlanda og afleiðingin gæti orðið útbreiðsla kunnáttu í smíði kjarnorkuvopna,” sagði ónafngreindur embættismaður NATOl Hann benti á að írakar hefðu verið langt komnir með smíði kjarnavopna og bætti við: „Ráði ríki yfir nægilegum fjármunum get- ur það greitt fyrir slíka sérþekk- ingu.” Wörner og ráðherrarnir sem sóttu fundinn vísuðu því á bug að deilt hefði verið hart um tillögur Frakka og Þjóðveija sem vilja að Evrópuríkin komi á fót sérstöku stórfylki á vegum Vestur-Evrópu- bandalagsins er ekki lúti yfirstjórn NATO. Bretar hafa gagnrýnt tillög- una og segja að með þessu verði stefnt í hættu einingu NATO. Frakkar taka ekki þátt í hernaðar- samstarfi NATO og sóttu því ekki fundinn á Sikiley. Þeir eru andvígir hinum miklu áhrifum sem Banda- ríkin hafa í bandalaginu. Wörner taldi tillöguna afar óljósa. „Hveijir ættu að leggja til lið í stórfylkið? Hvert ætti að vera hlutverk þess? Hvar kæmi til greina að það yrði notað? Hvernig yrðu tengsl þess við varnarsveitir NATO?” spurði fram- kvæmdastjórinn. Cheney lagði áherslu á að hugmyndir Frakka og Þjóðveija mættu með engu móti verða til að grafa undan NATO og þýskir ráðamenn segja að það sé alls ekki markmiðið. ------t-M-------- ■ PLAYA DE JIBACOA - Rúmlega 1.850 manns hafa flúið á flekum yfir hafið frá Kúbu til Florída í Bandaríkjunum það sem af er árinu. Flóttamennirnir eru þegar orðnir fjórfalt fleiri en allt árið í fyrra, er þeir voru 467. Auk þess er talið að hundruð manna, sem hafa reynt að flýja, hafi drukknað eða orðið hákörlum að bráð. ■ HELSINKI - Finnar hafa ákveðið að verja sex milljörðum marka, jafnvirði 90 milljarða ÍSK, til mengunarvarna í Eistlandi og til endurnýjunar tækjabúnaðar úr- eltra orkuvera þar í landi. Er það liður í alþjóðlegri áætlun um meng- unarvarnir og hreinsun í landinu en búist er við að önnur ríki sem land eiga að Eystrasalti leggi pen- inga til verksins sem talið er muni kosta 3,5 milljarða dollara, jafnvirði 210 miíljarða ÍSK. Bandaríkin; Þingið hafnar tak- mörkun byssueignar Washington. Reuter. FRUMVARP um að byssueign almennings í Bandaríkjunum verði takmörkuð var fellt með miklum meirihluta atkvæða í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í fyrrakvöld, sólarhring eftir að geðbilaður maður hafði myrt 22 menn í Texas og framið síðan sjálfsmorð. frumvarpsins sögðu að ef tak- markanir þess væru þegar í gildi hefði morðinginn þurft að hlaða byssuna oftar og hugsanlega hefði þá verið hægt að yfirbuga hann fyrr. Þingmenn, sem lögðust gegn frumvarpinu, sögðu að það væri ósanngjarnt fyrir veiðimenn og skerti rétt bandarísks almenn- ings til að eiga byssur. Þeir töldu frumvarpið einnig illa unnið og óskýrt. Frumvarpið er liður í umfangs- miklum lagabreytingum, sem fyrirhugaðar eru til að stemma stigu við glæpum. Það var fellt með 247 gegn 177. í frumvarpinu var gert ráð fyrir að 13 tegundir sjálfvirkra árásarvopna yrðu bannaðar. Þá yrðu hleðsluhólkar í byssur tak- markaðar við sjö skot. Maðurinn sem framdi fjölda- morðið í Texas notaði sautján skota hleðsluhólka á skamm- byssu sína. Stuðningsmenn Viðreisn Sovétiíkjanna aðalefni ársfund- ar helstu fjármálastofnana heims; Tæki tíu ár þótt allir legðust á eitt Baiigkok. Rcuter. ARSFUNDI Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk í Bangkok í Thailandi á fimmtudag. Ræðumenn frá Vesturlöndum voru ahnennt sammála um að aðstoða þyrfti Sovétríkin við að koma efnahagsmálum sinum í betra horf en ágreiningur var um hvaða leiðir skyldi fara. Almenna viðhorfið var að vandamálið væri ógnvæn- lega stórt. Vegferð Sovétríkjanna í átt til markaðshagkerfis yrði löng og ströng: ,JÞað tæki tíu ár jafnvel þótt allir legðust á eitt,” sagði háttsettur embættismaður hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Margir ráðherranna sem tóku til máls lýstu ársfundinum sem sögu- legum tímamótum þar sem lokið hefði sjö áratuga einangrun Sovét- ríkjanna í alþjóðaviðskiptum. Mál- efni þriðja heimsins og almennur hagvöxtur í heiminum féllu í skugg- ann af vandamálunum sem við blasa í Sovétríkjunum. Sovéski hag- fræðingurinn Grígoríj Javlínskíj gaf til kynna á blaðamannafundi hvers vegna Sovétmenn hefðu stolið sen- unni: „Sovétríkin ráða yfir kjarna- vopnum og efnahagur þeirra er hrynja.” Hann bætti því við að vissulega væri um þróun að ræða í Sovétríkjunum. „En ég veit ekki hvort hún er fram á við eða niður til heljar.” Fjármálaráðherrar sjö helstu iðn- ríkja heims ákváðu að senda full- trúa til Moskvu á næstunni til að aðstoða stjórnvöld við að komast að því hver bæri ábyrgð á 68 millj- arða dala erlendum skuldum lands- ins og til að afstýra reiðufjárþurrð ríkisins sem nú vofir yfir. Tillaga Bandaríkjamanna um skammtíma- aðgerðir til hjálpar Sovétmönnum, sem meðal annars fólust í því að þeir fengju frest á afborgunum af lánum, mætti mikilli andstöðu Þjóð- veija. Þeir eru helstu lánardrottnar Bandaríska leyniþjónustan: Nefnd öldungadeildarmnar samþykkir tilnefningn Gates Washington. Reuter. Leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings féllst í gær á tilnefningu Roberts Gates í embætti yfirmanns bandarísku leyni- þjónustunnar CIA og mælti með því að deildin staðfesti hana. Sovétmanna og sögðu að ráðstöfun af þessu tagi myndi eyðileggja við- skiptatraust Sovétmanna sem hefur verið mikið. Fulltrúar iðnríkjanna sjö virtust hins vegar sammála um að efnahagsmálum sovésku lýðveld- anna yrði betur borgið ef gerður yrði sáttmáli Sovétlýðvelda um efnahagssamstarf. Armenía; Stórsigur Ter- Petrosjans Jerevan. Reuer. SAMKVÆMT bráðabirgða- tölum fékk Levon Ter-Petro- sjan 83% atkvæða í forseta- kosningunum í Armeníu á miðvikudag. Næstur kemur Paruir Hairikjan sem fékk 7,21% atkvæða. „Þetta sýnir að almenningur trúir á stefnu Tet'-Petrosjans sem felst í stöðugleika sem tryggir raunverulegt öryggj og hreyfingu í átt til sjálfstæðis og efnahagslegs fullveldis,” sagði Ashot Artinjan, talsmað- ur armenska þingsins. Ellefu þingmenn greiddu atkvæði með tilnefningunni en fjórir á móti. Anstæðingar hennar og nokkrir stuðningsmenn höfðu sagt að þeir hefðu efasemdir um hana vegna þáttar Gates í íran-kontramálinu, tengsla hans við William Casey, fyrrverandi yfirmann CIA, og harðrar afstöðu hans til Sovétríkj- anna á árum kalda stríðsins. Stuðn- ingsmenn hans sögðu hins vegar að hann hefði lært af mistökum sínum og væri - vegna reynslu sinnar sem næst æðsti maður leyni- þjónustunnar - kjörinn til að hafa yfirumsjón með þeim viðamiklu breytingum sem fyrirhugaðar eru á starfsemi hennar í kjölfar hruns kommúnismans í Sovétríkjunum. i Lóninu á Hótel Loftleiðum sunnudaginn 20. október á milli kl. 12 og 14 Verð aðeins kr. 1.395,- Jón Baldursson heimsmeistari í bridge spjallar við matargesti og svarar fyrirspurnum. Borðapantanir í síma 22321. HÓTEL LOFTLEIÐIR í hddeginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.