Morgunblaðið - 19.10.1991, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTOBER 1991
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Stjórn FBS Hellu, f.v.: Erlingur Gíslason, Sigurgeir Guðmundsson, Óskar Jónsson, Oddur Þorsteinsson
og Kolbrún Björnsdóttir.
HELLA
Opið hús
hjá Flug-
björgunar-
sveitinni
Opið hús var hjá Flugbjörgun-
arsveitinni á Hellu sunnudag-
inn 6. október í tilefni stofnunar
Landsbjargar, landssambands
björgunarsveita. Að sögn Óskars
Jónssonar, formanns FBS á Hellu,
var þetta gert til að kynna sveitina
og var aðallega reynt að höfða til
yngra fólksins á svæðinu, þar sem
sífellt er þörf fyrir nýja starfskrafta
við hlið þeirra eldri og reyndari.
Aðsókn var ágæt. Hægt var að
skoða á myndbandi ýmsar leit-
arferðir sem farnar haf verið að
undanförnu. Til sýnis voru öll tæki
sveitarinnar, sem þykir ágætlega
búin. í eigu hennar er m.a. fullkom-
inn snjóbíll með lórantæki, sérútbú-
inn Unimog-trukkur og Ford Econ-
oline-hjálparbifreið útbúin hinum
margvíslegu hjálpartækjum. Auk
þess á sveitin 4 snjósleða, þar af
einn með lórantæki.
Að sögn Óskars berast að með-
altali um 20—25 útköll og hjálpar-
beiðnir ár hvert. I ár hefur verið
mest að gera í kringum Heklugosið
sl. vetur en þá bárust fjölmargar
hjálparbeiðnir frá fólki sem hafði
lent í ógöngum við fjallið. Þá var
sveitin kölluð út í tvær ferðir á
Vatnajökul sl. vor.
Framunoan hjá sveitinni, sem er
40 ára um þessar mundir, er fjáröfl-
un vegna fyrirhugaðra kaupa á
svokölluðum GPS-leiðsögutækjum,
en það eru gervihnattamóttakarar
sem munu leysa lórantækin af
hólmi. Til þessara kaupa mun allur
afrakstur hinnar árlegu merkjasölu
sveitarinnar renna, en gengið verð-
ur í hús um allt Suðurland 2. nóv-
ember nk.
- A.H.
TISKA
Vor- og sumar-
tískan í
djarfari kantinum
Þótt vetur sé að ganga í garð,
eru tískuhönnuðirnir beggja
vegna Atlantsála sem óðast að
sýna vor- og sumartískuna. Sýnist
ekki veita af að ylja mönnum er
kólnar í veðri, enda hefur vor- og
sumartískan flest hin síðari ár
verið í anda heits loftslags. Stutta
tískan hefur haldið velli og styst
ef eitthvað er. Þunn, jafn vel
gegnsæ, efni eru áberandi, einnig
skrautlegir litir og mynstur. Um-
fram allt er lögð áhersla á að
kvenvöxturinn njóti sín án þess
þó að að honum sé þrengt um of.
Myndin sem hér birtist er í anda
þessa og undirstrikar að hjá ýms-
um hönnuðum er tískan að þessu
sinni venju frmur djörf. Flíkin sú
arna var sýnd á vor- og sumar-
tískusýningu ítalans Johns Gall-
iano.
Er hönnuðir
sýna vor- og
sumartískuna
erujafnan
sýndar nokkrar
flikur sem
þykja ganga
nokkuð langt...