Morgunblaðið - 19.10.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991
41
VELVAKANOI
SVARAR í SÍMA
S91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hjól í óskilum
í smáíbúðahverfinu liggur
Montana 20 tommu hjól í óskil-
um. Þeir sem kannast við málið
eru beðnir að hafa samband í
síma 34764.
Moldrok í Grafarvogi
Bjöm, íbúi í Reykjarfold í
Grafarvogi, hringdi og vildi
koma á framfæri fyrirspum til
íþróttafélagsins í hverfinu. Hann
sagði að íbúarnir í Folda- og
Húsahverfinu byggju við stöðugt
moldrok frá íþróttavelli sem fé-
lagið væri að leggja. Ástandið
væri búið að vera óbreytt í
nokkra mánuði og húsin væru
full af ryki. Sett hefði verið eitt-
hvert uppfyllingarefni í völlinn
sem fyki allt í burtu. Bjöm vildi
spyija forráðamenn íþróttafé-
lagsins hvort þetta ætti að vera
svona áfram eða hvort íbúamir
ættu von á einhverri lausn mála.
Sá sem fann töskuna
hringi aftur
Aðfaranótt 8. októbers sl. tap-
aðist svört stór kventaska, að
öllum líkindum á Fógetanum. í
töskunni var seðlaveski með skil-
ríkjum, lyklakippa o.fl. smádót.
Sama kvöld og taskan týndist
hringdi karlmaður heim til eig-
andans, sem þá var ekki kominn
heim, og sagðist hafa töskuna.
Þessi maður hefur svo ekkert
látið í sér heyra en eigandinn
biður hann endilega að hafa sam-
band sem fyrst aftur.
Dýrin hjá Hemma Gunn
Guðrún hringdi og vildi koma
á framfæri athugasemd við þátt-
inn Á tali með Hemma Gunn.
Hún sagði hann vera mjög góðan
en sér fyndist ekki passa að vera
með dýr í lok þáttana. Þau væru
umkomulaus og hrædd í þessum
sterku ljósum og hún sæi ekki
tilganginn að vera með dýr í
svona skemmtiþætti.
Bjami hafði einnig samband
við Velvakanda og vildi mót-
mæla notkun á dýrum í þessum
þáttum. Hann sagði það ekki
viðeigandi að vera með hrædd
dýr í þáttum af þessu tagi.
Prjónaðir vettlingar
Pijónaðir vettlingar töpuðust
föstudaginn 4. október á Lang-
holtsveginum, sennilega við sölu-
turnin við Sunnutorg. Vettling-
arnir eru svartir og hvítir að lit.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 77285.
Köttur í óskilum
Hálfstálpaður köttur er í óskil-
um í Víðigrund í Kópavogi. Þetta
er svartur köttur með hvítan
háls og hvítar loppur. Hann hef-
ur verið í Víðigrundinni í' um
vikutíma. Nánari upplýsingar
eru gefnar í síma 42599.
Poki með sundfötum
Guðrún hringdi og sagðist
hafa fundið poka með sundfötum
á Seljabrautinni. Sundfötin eru
fyrir strák á aldrinum tíu til tólf
ára. Guðrún er í síma 71481.
Hjóli stolið
Svörtu TREK-fjallahjóli var stol-
ið úr kjallaratröppum Baldurs-
götu 31 aðfaranótt laugardags-
ins 5. október. Á hjólinu var lás,
vafinn svörtu einangrunarlím-
bandi. Þeir sem kynnu að hafa
séð slíkt hjól í reiðileysi í Þing-
holtunum eða nágrenni eru beðn-
ir um að láta vita í síma 20118.
Sérstök þjónusta
Kona hringdi og sagði frá því
að sonur hennar hefði keypt sér
fótbolta í versluninni Ástund í
Austurveri. Þetta hefði verið dýr
og fínn bolti og á honum var
ársábyrgð. Þegar sonur hennar
hafði leikið með boltann í svolít-
inn tíma kemur í ljós að hann
lekur og ekkert þýðir að pumpa
í hann. Þau mæðginin fara þá í
verslunina með boltann sem var
orðinn talsvert illa útleikinn.
Málalyktir urðu þær að drengn-
um var afhentur splunkunýr bolti
og harmað að hann hefði fengið
svo lélegan bolta í upphafí og
raun bar vitni. Þau mæðginin
vildu koma á framfæri þakklæti
til verslunarinnar og sögðu þetta
vera einstaka þjónustu.
OKTÓBER TILBOÐ
20—40% stgr. AFSLATTUR
MIKIÐ ÚRVAL
Faxafeni 11, sími 686999
SÉRVERSLUN MEÐ STÖK TEPPI OG MOTTUR
SICLINCASKOLINN
Námskeið
TIL 30 RÚMLESTA
RÉTTINDA
hefst mánudaginn 28. október
og lýkur með prófi
13. desember.
Námskeiðsgjald: 18.000 kr
(námsgögn ekki innifalin).
Semja má um greiðslu.
Hjónaafsláttur: 10%
Kennt er á mánudags-
miðvikudagskvöldum
kl. 7-11.
Námsefni:
Siglingafræði.
Alþjóðasigiingareglur.
Stöðugleiki fiskiskipa.
Fjarskipti og veður.
Siglingatæki (ioran, radar, dýptarmælir).
Skyndihjálp. Öryggis- og björgunarbúnaður,
Eldvarnir og slökkvistarf. Vélin.
Öll námsgögn fást í skólanum.
Innritun
alla daga og kvöld í
símum 689885 og 31092.
SICUNCASKÓUNN^ ÚLA7
- meölimur i Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA
Mikið úrval af leður hvíldarstólum.
Verð frá kr. 29.900,- stgr.
HUSGAGNASYNING
OPIÐ í DAG KL. 10-16
SUNNUDAG KL. 14-16
Ný sending af borðstofuhúsgögnum í svörtu,
hvítu, mahoníog bæsaðri eik. Hagstætt verð.
□□□□□□
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFNARFIRDI SIMI54I00