Morgunblaðið - 23.01.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1992
Framhaldsskóli,
íþróttir og heilsa
eftirJanus
Guðlaugsson
Miðvikudaginn 15. janúar sl.
heyrðist þessi hádegisfrétt í ríkis-
útvarpinu: „Hlaup og skokk um
nágrennið verður eina leikfimin
sem nemendur Menntaskólans í
Hamrahlíð eiga kost á eftir næstu
önn. Til að spara hafa yfírvöld
skólans sagt upp samningi um
leigu á íþróttasal. Menntaskólinn
í Hamrahlíð hefur aldrei haft eigin
aðstöðu til leikfimikennslu og síð-
ustu fimm árin hefur skólinn haft
íþróttahús Vals á leigu átta mán-
uði á ári. Sverrir Einarsson kon-
rektor segir að það hafi verið kjör-
inn spamaður að segja upp samn-
ingunum enda hafí húsaleigan
verið há, 500.000 á mánuði. Á
þann veg sparist 4 milljónir króna
á ári. Bókleg líkamsræktarkennsla
flyst þá í eigið húsnæði mennta-
skólans, leikfimikennslan verður
þá gönguferðir og skokk um ná-
grennið. Ekki stendur til að reyna
að fá leigt annað og ódýrara hús-
næði að sögn Sverris.“
Það einkennilegt að jafn dug-
miklir menn og starfa í framhalds-
skólum landsins skuli láta hafa
slíkt eftir sér. Réttast er að minna
á áramótaræðu okkar ágæta for-
seta frú Vigdísar Finnbogadóttur,
en þar segir m.a.:
„í rás aldanna hefur íslensk
þjóð tekist á við margs konar
þrengingar og sigrast á þeim. Við
eigum þolgæði og festu liðinna
kynslóða það að þakka að nú á
dögum eru fáar þjóðir jafn auðug-
ar og við. Því er það undrunarefni
að hinir tímabundnu örðugleikar
sem við eigum nú við að etja skuli
uppvekja slíkan bölmóð sem raun
ber vitni, — jafnvel á ólíklegustu
stöðum. Bölmóður leiðir af sér
doða, doði færir af sér framtaks-
leysi. Bölmóður er háskalegur sál-
arheill bama og unglinga sem
heyra meira en okkur grunar og
trúa öllu sem sagt er. Kvíða þeirra
er ekki eins auðvelt að uppræta
og til hans að sá.“
Kennum komandi kynslóðum
að horfa lengra fram í tímann
þegar við ræðum um sparnað. Það
er erfitt að meta íþróttir að verð-
leikum á líðandi stund. Ef litið er
á málið í samhengi er ljóst að
markvisst íþróttanám í framhalds-
skóla kemur fram í margföldum
sparnaði heilbrigðiskerfisins síðar
meir. í þessu sambandi má minna
Janus Guðlaugsson
„Eigi námið, þekking á
líkama og líkamsrækt
að hafa eitthvert gildi
þarf að tengja það hag-
nýtri reynslu með
áherslu á verklega þátt-
inn.“
á athyglisverðar niðurstöður í
rannsóknum dr. Þórólfs Þórlinds-
sonar þar sem greint er frá já-
kvæðum þáttum íþróttaiðkunar á
böm og unglinga.
Það er sorgleg staðreynd að
Menntaskólinn við Hamrahlíð
skuli ekki hafa eigin íþróttaað-
stöðu. í upphafi skal endinn skoða.
Er nokkru öðru um að kenna en
slakri fyrirhyggju, þ.e. að taka
skólann í notkun án þess að að-
staða til að stunda lögbundnar
greinar væri fyrir hendi? Það er
undarlegt að enn séu skólar settir
á stofn án þess að nægilega vel
sé að þeim búið með markmið
náms í huga. Á þetta jafnt við um
framhaldsskóla sem grannskóla.
Menntaskólinn við Hamrahlíð er
ekki eini skólinn sem hefur ekki
aðgengilega íþróttaaðstöðu, því
skólar höfuðborgarinnar virðist
vera hér í forystuhlutverki. Mennt-
askólinn í Hamrahlíð hefur átt við
þennan vanda að stríða þrátt fyrir
„skóflustungur“ að íþróttahúsi og
er það von mín að fljótlega verði
þar tekið til hendinni áður en ein-
býlishús rísa á skólalóðinni. Lausn
málsins er ekki sú sem kemur fram
í áðurnefndu viðtali.
Öllum þeim sem sinna skólamál-
um í landinu hlýtur að þykja það
mjög miður að óhjákvæmilegt
ATVINNUAUGL ÝSINGAR
Verkamenn
Viljum ráða nokkra vana byggingaverkamenn
til starfa.
Upplýsingar í síma 622700.
ÍSTAK
Heilsustofnunin
N.L.F.Í. Hveragerði
Hjúkrunarfræðingar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga nú
þegar. Um er að ræða vaktavinnu á stofnun,
sem er í örri framþróun. Heilsustofnunin
stendur í fögru umhverfi, með ótal möguleik-
um til útivistar, í 40 km fjarlægð frá höfuð-
borginni. Boðið er upp á náttúrufæði og
húsnæði er á staðnum.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 98-30300 eða 98-30322 kl. 8-16 þriðju-
daga-föstudaga.
ÝMISLEGT
Frá stjórn Orlofssjóðs
Kennarasambands íslands
Kennarasamband Islands óskar að taka góða
sumarbústaði á leigu á sumri komanda.
Sumarbústaðir víðs vegar um land koma til
greina en sérstaklega vantar okkur bústaði
á Vestfjörðum og Snæfellsnesi.
Upplýsingar veitir formaður stjórnar Orlofs-
sjóðs, Sigríður Jóhannesdóttir. Viðtalstími á
skrifstofu K.í. á mánudögum frá kl. 14.30 til
17.00, heimasími 92-12349.
Tilboð, gjarnan með mynd af sumarhúsinu,
sendist til stjórnar Orlofssjóðs K.Í., Grettis-
götu 89, 105 Reykjavík fyrir 10. febrúar.
Stjórn Orlofssjóðs
Kennarasambands íslands.
HÚSNÆÐI íBOÐI'
Skrifstofuaðstaða
Lögfræðiskrifstofa í Reykjavík hefurtil útleigu
1-2 herbergi með aðgangi að tækjum,
þ.á m. símkerfi, myndsendi, tölvukerfi og
Ijósritunarvél. Ennfremur kemur samnýting
starfsfólks til greina. Hentar vel lögfræðing-
um, endurskoðendum, verkfræðingum, arki-
tektum, félagasamtökum o.fl.
Lysthafendur vinsamlegast skili upplýsingum
um nafn og starfsheiti til auglýsingadeildar
Mbl. merktum: „Lög -1992“ fyrir 1. febrúar nk.
Sérleyfi til fólksflutninga
með langferðabifreiðum
Samkvæmt lögum nr. 53/1987 um skipulag
á fólksflutningum með langferðabifreiðum
falla úr gildi hinn 1. mars 1992 öll sérleyfi
til fólksflutninga með langferðabifreiðum.
Ný sérleyfi til fólksflutninga með langferðabif-
reiðum verða veitt frá 1. mars 1992 og skulu
umsóknir um sérleyfi sendar til skipulags-
nefndar fólksflutninga, Vatnsmýrarvegi 10,
101 Reykjavík, eigi síðar en 10. febrúar 1992.
í sérleyfisumsókn skal tilgreina:
1. Þá leið eða leiðir, sem sótt er um sérleyfi
á og fyrirhugaðar ferðaáætlanir.
2. Skrásetningarnúmer, árgerð og sætatölu
þeirra bifreiða, sem nota á til sérleyfis-
ferða.
Ráðuneytið áskilur sér rétt til að gera kröfur
til sérleyfishafa um ferðaáætlanir, ennfremur
til að hlutast til um samræmda viðkomu- og
afgreiðslustaði þar sem leiðir tengjast.
Reykjavík, 22. janúar 1992.
Samgönguráðuneytið.
Faxtæki - tilboð
Slysavarnafélag íslands óskar eftir tilboðum
í 120 myndsenda, telefaxtæki. Tækin þurfa
að vera einföld, en geta tekið á móti sending-
um með sjálfvirkum hætti. Aðeins viður-
kennd gæðatæki koma til greina.
Tilboð þurfa að berast skrifstofu Slysavarna-
félagsins, Grandagarði 14, fyrir 10. febrúar
næstkomandi. Félagið áskilur sér rétt til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Slysavarnafélag íslands.
Veiðifélag Eystri-Rangár
óskar eftir tilboðum í leigu veiðiréttar Eystri-
Rangár frá ósi við Þverá að og með Mó-
bakka. Samningstímabil til 1 árs eða fleiri ára.
Tilboð sendist fyrir 1. febrúar nk. til Einars
Lúðvíkssonar, Norðurgarði 1,860 Hvolsvelli,
símar 98-78602 og 91-17677.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É I. A G S S T A R F
Bæjarmálafundur
Sjálfstæðisfélag Mosfellsbæjar boðar til
opins fundar um bæjarmálefni í Hlégarði
í kvöld, fimmtudaginn 23. janúar 1992,
kl. 20.00.
Kynnt verður fjárhagsáætlun fyrir árið 1992
og rætt almennt um bæjarmálefnin.
Framsögumenn verða Þengill Oddsson og
Páll Guðjónsson.
St.St.59921237 VII
I.O.O.F. 11 = 17301238Vz =
HELGAFELL 59921237 VI 2
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld k. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
I.O.O.F. 5 = 1731238V2 = NK-Sk.
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Majór
Liv Krötö talar. Verið velkomin.
SÍtmhjólp
Samkoma veröur í kapellunni í
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Stefán Baldvinsson.
Samhjálp.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvistin f kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 23. janúar. Byrjum
að spila kl. 20.30 (stundvíslega).
Verið öll velkomin og fjölmennið.
YT=77
KFUM
V
AD KFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta-
vepi. Horft til framtfðar.
NY-UNG annast fundinn.
Kaffi eftir fund. Allir velkomnir.
Skipholti 50b, 2. hæð.
Samkoma f kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.