Morgunblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D
79. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fjaðra-
fokí
París
Umhverfisvernd-
arsinnum og lög-
reglu lenti saman
fyrir utan Grand
Hotel í París í
gær. Ætluðu þeir
fyrrnefndu að
taka á móti Arth-
ur Dunkel, fram-
kvæmdastjóra
GATT, með
skæðadrífu af
fiðri. Höfðu þeir
með sér stórar
viftur til að auð-
velda sér verkið
en tilefni uppá-
komunnar var að
sögn óánægja
umhverfisvernd-
arsinna með af-
stöðu GATT til
vanþróaðra ríkja.
Reuter.
Tjón unnið á sendiráðum í Líbýu:
Oryggisráðið for-
dæmir spellvirkin
Samcinuðu þjóðununi. Reuter.
ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í gær á skyndifundi árás-
ir á erlend sendiráð í Trípóli, höfuðborg Líbýu, og krafðist þess að
stjórnvöld stöðvuðu þær. Segist Líbýustjórn engan þátt hafa átt í mót-
mælunum en haft er eftir hoilenskum sendimanni, að aðgerðirnar hafi
verið vandlega skipulagðar af stjórnvöldum.
Að sögn líbýsku fréttastofunnar
JANA barðist lögreglan við fólk, sem
vildi kveikja í sendiráðum þeirra
ríkja, sem studdu refsiaðgerðir sem
samþykktar voru í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna fyrr í vikunni, og
var sagt, að margir hefðu meiðst.
Sagði einnig, að Muammar Gaddafi,
leiðtogi Líbýu, hefði hvatt lands-.
menn sína til að sýna stillingu og
minnt þá á, að í landinu byggi frið-
samt og siðmenntað fólk, sem ekki
vildi stofna nokkrum manni í hættu.
Haft er eftir erlendum sendi-
manni, að sendiráð Venezúela hafí
Stjórnarskipti í Frakklandi:
Færri ráðherrar og yngri
í ríkisstjóm Beregovoys
Forsætisráðherrann segir glímuna við atvinnuleysi forgangsverkefni stjómarimiar
verið verst leikið og gjöreyðilagt en
fulltrúi Venesúela var forseti örygg-
isráðsins þegar refsiaðgerðirnar
voru samþykktar. Hafa stjórnvöld í
Venezúela kallað heim alla erindreka
sína í landinu í mótmælaskyni. Þá
voru brotnar nokkrar rúður í austur-
ríska sendiráðinu en litlar skemmdir
unnar annars staðar. Hollenskur
sendimaður, Zeno Van Dorth, sagði
í viðtali við breska sjónvarpið í Trí-
pólí, að fólk, sem safnaðist saman
fyrir framan ítalska sendiráðið, hefði
komið þangað í langferðabifreiðum
og mótmælin augljóslega skipulögð
af stjórnvöldum. Hermt er að
slökkviliðsmenn hafí birst í sendiráði
Venezúela áður en nokkuð gerðist
og spurt: „Hvar er eldurinn?"
Thomas Pickering, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sagði í gær, að framferði
Líbýustjórnar væri fáheyrt og útilok-
að annað en að bregðast við því með
einhveijum hætti.
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra Dana, sagði í gær, að
ástæða væri til að óttast, að 15
Dönum, sem enn væru í Líbýu, yrði
haldið þar sem gíslum. Kvað hann
það augljóslega vera stefnu Líbýu-
stjórnar að veita vegabréfsáritanir
seint eða ekki.
París. Reuter.
EDITH Cresson, forsætisráðherra Frakklands, sagði af sér embætti i
gær og var tilkynnt sköminu síðar að við því tæki Pierre Beregovoy,
fjármálaráðherra. Beregovoy tekur formlega við starfinu á laugardag
en í gær kynnti liann ráðherralista sinn. Ráðherrarnir verða færri og
yngri. Tekur Michel Sapin, aðstoðardómsmálaráðherra í fráfarandi
stjórn, við embætti fjármálaráðherra.
Eftir hrikalegt afhroð í héraðs-
ráðakosningum síðustu tvær helgar
var talið óhjákvæmilegt að Cresson
yrði látin víkja. Sósíalistaflokkurinn
fékk einungis 18,3% atkvæða sem
er minnsta fylgi flokksins í kosning-
um um áratuga skeið.
Er þessi slæma niðurstaða rakin
til mikils atvinnuleysis, óánægju með
Francois Mitterrands forseta, sem
setið hefur í embætti síðan 1981,
og ekki síst persónulegra óvinsælda
Cresson. Þrátt fyrir að allir helstu
forystumenn flokksins krefðust af-
sagnar hennar eftir kosningarnar
háði húH harða baráttu fyrir að sitja
áfram og kenndi nánustu samstarfs-
Mafíufor-
ingi dæmdur
Ncw York. Reutcr.
JOHN Gotti, kunnasti bófaforingi
Bandaríkjanna frá því A1 Capone
var og hét, var í gær fundinn sek-
ur um morð og fjárglæfra. _
Gotti er höfuð Gambino-mafíufjöl-
skyldunnar og er þetta í fjórða sinn
sem hann er ákærður fyrir glæpi,
en í fyrri skiptin var hann sýknað-
ur. Gotti, sem er 51 árs, á yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi. Eitt helsta vitn-
ið gegn Gotti var nánasti samstarfs-
maður hans um árabil.
mönnum sínum í ríkisstjórn um
hvernig fór. Mikill biturleiki ein-
kenndi afsagnarbréf Cresson og seg-
ist hún þar aldrei hafa hlotið þann
stuðning flokksins né þá endurnýj-
uðu ríkisstjórn sem hún hafði vænst.
Á fundi með þingmönnum sósíal-
ista sagði Beregovoy að helsta for-
gangsverkefni sitt til að byija með
yrði að beijast gegn atvinnuleysi
með nýjum og djörfum aðgerðum.
Hann sagðist einnig ætla að vinna
að auknu félagslegu réttlæti og ör-
yggi, stefna að auknum evrópskum
samruna og umhverfisvernd. „Ég
lofa hins vegar engum kraftaverkum
eða töfralausnum," bætti hann við.
Beregovoy fækkar ráðherrum úr
30 í 26. Roland Dumas utanríkisráð-
herra og Pierre Joxe varnarmálaráð-
herra halda sínum embættum. Jack
Lang menningarmálaráðherra bætir
menntamálunum við sig og auðkýf-
ingurinn Bernard Tapie verður þétt-
býlisráðherra. '
Forystumenn stjórnarandstöð-
unnar sögðu flestir í háðstóni að
breytingarnar á ríkisstjórninni
myndu litlu breyta um fallandi gengi
sósíalista og margir þeirra kröfðust
þess að gengið yrði til þingkosninga
þegar í stað. Philippe de Villiers,
einn þingmanna miðjuflokksins
UDF, líkti breytingunni við að skipt
hefði verið um skipstjóra á Titanic.
Sjá „Sjálfmenntaði hagspeking-
urinn..." á bls. 27.
Keuter.
Nýr forsætisráðherra Frakklands, Pierre Beregovoy, kemur til
Elysee-hallar til að hitta Francois Mitterrand forseta.
Morðið á Kennedy:
Oswald ekki
einn að verki
Dallas. Reuter.
LÆKNIR sem tók þátt í að reyna
að bjarga lífi Johns F. Kennedys
Bandaríkjaforseta segir að útilok-
að sé að Lee Harvey Oswald hafi
verið eini tilræðismaðurinn.
Charles Crenshaw var aðstoðar-
læknir á Parkland sjúkrahúsinu í
Dallas, 22. nóvember 1963, þegar
komið var með Kennedy. Segist hann
hafa átt þess kost að skoða skotsárin
gaumgæfilega og augljóst hafi verið
að skotin komu úr tveimur til þremur
áttum. Hann segist hafa þagað um
vitneskju sína þar til nú af ótta um
starfsframa sinn.
Friðarviðræður um Miðausturlönd:
Island á óskalista araba
Washington. Reuter.
MARGARET Tutwiler, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, skýrði frá því í gær að fimmta lota viðræðna um frið í Mið-
austurlöndum liæfist 27. apríl næstkomandi í Washington. Sam-
komulag væri um að sjötta lotan yrði á stað nær vettvangi at-
burða. Aðilar að viðræðunum hafa lagt frani óskalista um fundar-
stað og segir heimildarmaður Reuíere-fréttastofunnar að ísland
sé á lista arabanna.
Tutwiler sagðist myndu til-
kynna fundarstað sjöttu lotunnar
áður en fimmta lotan hæfist en
ekki timasetninguna. Gaf hún til
kynna að til væri fundarstaður
sem allir aðilar væru samþykkir.
Iláttsettur arabískur stjórnarer-
indreki segir að á óskalista sinna
manna séu Reykjavík, Róm,
Lissabon, Madrid, ■ Genf og
Lausanne. Talið er að ísraelar
hafi mælt með Kýpur, Ródos, og
nokkrum höfuðborgum í Evrópu,
þ. á m. Róm og Lissabon. Stjórn-
arerindrekinn sagði að liklegustu
fundarstaðirnir væru Róm, Lissa-
bon og Lausanne.