Morgunblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 17
17 MORGUNESLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992 Eitt fyrir en ann- að eftir kosningar eftir Svavar Gestsson Fyrirsögnin á þessari grein gæti verið slagorð ríkisstjórnarinnar. Það er sama hvar borið er niður. Hún ætlaði ekki að hækka skatta í heild en skattar hafa hækkað. Hún gerði ekki ráð fyrir stórfelld- um niðurskurði í skólamálum og heilbrigðismálum en hún sker nið- ur í skólamálum og heilbrigðismál- um. Það er sjálfsagt að spara þeg- ar erfiðleikar eru í þjóðarbúinu en í stað sparnaðar er um að ræða grófar lokanir og tilræði við vel- ferðarkerfið í heild. Ihaldið lofar öllu fögru! Eitt skýrasta dæmið um ómerki- legan málflutning Sjálfstæðis- flokksins fyrir og eftir kosningar er sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að loka Fæðingarheimili Reykja- víkurborgar sem fæðingarheimili. í rúman áratug hefur Sjálfstæðis- flokkurinn gert rekstur Fæðingar- heimilis Reykjavíkurborgar að bar- áttumáli og aðalmáli í kosningum eftir Guðrúnu Agnarsdóttur í nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem nefnist „Konur heimsins" er að finna margvíslegar tölfræðilegar upplýsingar um þróun í málefnum kvenna frá 1970 til 1990. Þar kemur m.a. fram að þótt konur hafi hvergi átt greiðan að- gang að stefnumótun eða forystu- hlutverkum t.d.- í stjórnmálum eru þær mjög virkar um allan heim í ýmsum grasrótarhreyfingum og fijálsum félagasamtökum. Þar hafa þær oft náð verulegum áhrifum og árangri. Meðal þeirra mála sem konur hafa einna helst beitt sér fyrir eru umhverfis- og friðarmál. Auk þess Sem konur eru fjölmennar í samtökum um slík málefni eru þær oft í fararbroddi við að vekja fólk til vitundar um mikilvægi þeirra. Mjór er mikils vísir Mörg dæmi má nefna um ötula baráttu kvenna gegn mengun og umhverfisspjöllum. Skógræktar- hreyfingar — eins og Græna beltið (Green Belt Movement) í dreifbýli Kenya og Chipko-Andola hreyfing- in á Indlandi — byrjuð með fram- taki nokkurra fátækra sveita- kvenna sem björguðu fáeinum trjám en urðu síðar að áhrifamiklum hagsmunasamtökum. Heimavinn- ándi húsmæður úr röðum verka- fólks knúðu Bandaríkjastjórn til að hreinsa upp hættulega mengunar- staði sem höfðu haft heilsuspillandi áhrif á íbúa nálægt Love Canal. Margir málsvarar umhverfis- verndarhreyfinga eru konur en fáar þeirra eru þekktar eða viðurkennd- ar. Umhverfisverndaráætlun Sam- einuðu þjóðanna hefur veitt 750 viðurkenningar vegna umhverfis- verndarverkefna — aðeins 12 þeirra hafa verið til kvenna. U mhverfismálaráðstef na Þessu skeytingarleysi stjórnvalda gagnvatl sjónarmiðum kvenna una konur illa og í nóvember á sl. ári var haldin alþjóðleg ráðstefna kvenna um umhverfismál (World aftur og aftur. Auðvelt er að rekja ótal ræður Davíðs Oddssonar um þetta mál í borgarstjórn og annars staðar. Fyrir síðustu kosningar voru fyrirheitin enn gefin í löngum blaðagreinum eftir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þeir lofuðu starfsmönnum Fæðingarheimilis- ins því að borgin myndi leggja aukið fjármagn til stofnunarinnar meðal annars með því að gera upp húsnæði heimilisins og með því að ráða þar viðbótarlækni. Hvort tveggja var gert - að öðru leyti en því að borgin borgaði ekki við- gerðirnar á heimilinu heldur rekst- ur Borgarspítalans. Og viðgerðun- um varð ekki lokið - þær voru stöðvaðar á sl. ári þegar aðeins um það bil einnar viku vinna var eftir við viðgerðirnar! Og þá hófst jafnframt nýr kafli. íhaldið svíkur öll fyrirheitin Því Davíð Oddsson var ekki fyrr tekinn við starfi forsætisráðherra en hann ákvað að ganga á bak allra fyrirheitanna sem myndu fylla heilar möppur og þykkar ef Guðrún Agnarsdóttir „íslenskar konur hafa látið umhverfismál sig varða. Geta íslensk stjórnvöld komist af án sjónarmiða kvenna í umhverfismálum? Munu raddir íslenskra kvenna hljóma í Ríó í júní? Hve margar kon- ur verða erindrekar Is- iendinga þar?“ Women’s Congress for a Healthy Planet) í Miami í Flórída. Þangað mættu urn 1.500 konur frá 65 þjóð- löndum og þinguðu í 5 daga um umhverfis- og þróunarmái. Þær skipulögðu réttarhöld þar sem dómarar hlýddu á vitnisburð 15 kvenna víðsvegar að um ýmsa þætti þeirrar vistkreppu sem við okkur blasir. í lok ráðstefnunnar var síðan samin framkvæmdaáætl- un kvenna fyrir 21. öldina (Wom- en’s Action Agenda 21) og á síð- asta degi ráðstefnunnar var hún afhent Maurice Strong, aðalfram- úrklippunum væri safnað saman. Sanrkvæmt fyrirskipun heilbrigðis- ráðherra Davíðs Oddssonar á að loka fæðingarheimilinu frá og með næstu áramótum! Heilbrigðisráðherrann Sighvat- ur Björgvinsson sagði að vísu ekk- ert fyrir kosningar um það hvort fæðingarheimilið ætti að reka áfram eða ekki. En hann sagði það eftir kosningar. Nánar tiltekið í fjárlagaumræðum greindi hann frá því að Fæðingarheimilið yrði starf- rækt áfram. Ekki var fjárlagaafgreiðslunni fyrr lokið en.draugagangur fór af stað í heilbrigðiskerfinu og nienn fréttu af því á skotspónum að Fæðingarheimilinu ætti að loka. Borgarstórnaríhaldið var í vanda. Borgarfulltrúar þess höfðu frum- kvæði að samþykkt tillögu um að óbreyttur rekstur Fæðingarheimil- isins væri skilyrði fyrir því að ríkið yfirtæki stofnunina. En síðan ekki söguna meir og enn var haldið áfram neðanjarðar við að undirbúa yfirtöku ríkisins á Fæðingarheimil- inu jafnframt ákvörðun um að loka því frá og með næstu áramótum. kvæmdastjóra umhverfismálaráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Ríó de Janeiro í júní nk. Hann hrósaði framkvæmda- áætluninni mjög. Sérstök ályktun var samþykkt á kvennaráðstefnunni í Miami og undirrituð af 25 núverandi og fyrr- verandi þingkonum á ýmsum þjóð- þingum. Þar vat' m.a. skorað á þing- menn og ríkisstjórnir allra landa að tryggja það að konur sem bera umhverfis- og þróunarmál fyrir bijósti verði sendar sem erindrekar landa sinna á umhverfismálaráð- stefnu SÞ í Brasilíu. í framkvæmda- áætlun kvennanna er þess krafist að hlutdeild hvors kyns verði ekki meiri en 60% og ekki minni en 40% af sendinefndum aðildarlanda SÞ á ráðstefnunni. Hverjir verða erindrekar Islendinga? Konurnar vitna til samþykkta undirbúningsnefndar umhvet'fis- málaráðstefnu SÞ þar sem rík áhersla er lögð á lykilhlutverk kvenna í sjálfbærri þróun. Mælt er með því að ævinlega verði tekið mið af þessu hlutverki og mikilvæg- is þess verði gætt við umfjöllun á öllum sviðum ráðstefnunnar. Enn- fremur er hvatt til þess að stuðn- ings verði leitað á alþjóðlegum vett- vangi og í heimalðndum til að auð- velda konum þátttöku í ráðstefn- unni. lslendingar eiga eins og aðrar þjóðir mikið í húfi að dregið verði úr hættu á umhverfisspjöllum og takast megi alþjóðlegt samstarf um umhvefisvernd. Nokkurt undirbún- ingsstarf hefur þegar verið unnið hér á landi vegna þátttöku í um- hverfismálaráðstefnunni í Brasilíu og munu stjórnvöld hafa í huga að senda þangað fulltrúa sína. islenskar konur hafa látið um- hverfismál sig varða. Geta íslensk stjórnvöld komist af án sjónarmiða kvenna í umhverfismálum? Munu raddir íslenskra kvenna hljóma í Ríó í júní? Hve margar konur verða erindrekar íslendinga þar? Höftmdur er læknir og fyrrverandi alþingismaður. Svavar Gestsson „Fæðingarheimilið hef- ur verið eitt aðalmál borgarstj órnaríhalds- ins í Reykjavík um ára- tugaskeið. Nú er komið á enda.“ Þó var eins og heilbrigðisráðherr- ann væri feiminn við að kveða upp úr með það. í staðinn ætlaði hann að láta stjórnarnefnd Ríkisspítala fá heimilið til rekstrar - án pen- inga og starfsmanna. Stjórnar- nefndin neitaði því auðvitað í raun með viðbrögðum sínum. Þá flaug fyrir að breytingafé til kvenna- deildarinnar ætti að nota til þess að reka Fæðingarheimilið - sam- tals um 10 millj. kr. Ráðherrann heyktist líka á því. Loksins, 20. mars, skrifaði hann svo bréf þar sem hann stundi því upp að starf- semi Fæðingarheimilis Reykjavík- urborgar ætti að leggja niður frá og með næstu áramótum. Með 12 tíma fyrirvara! í bréfinu segir ráðherrann að breyta eigi húsnæði fæðingadeild- arinnar á Landspítalanum „ til að gera þeirri deild mögulegt að sinna jafnframt þeim fæðingum er fara fram á Fæðingarheimilinu.“ Og: „Ráðuneytið leggur áherslu á að Ríkisspítalar yfiitaki rekstur Fæðingarheimilisins sem fyrst og eigi síðar en 1. apríl.“ Og: Gert er ráð fyrir því að breytingum verði lokið þannig að „hagræðingu (les: starfsemi Fæð- ingarheimilisins) vegna yfirtöku Fæðingarheimilisins verði að fullu náð frá næstu áramótum“! Þar með þarf ekki ftekari vitn- anna við: 1. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur skipað Ríkisspítölunum að yfirtaka rekstur Fæðingarheimilis Reykjavíkurborgar. 2. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur lagt svo fyrir að þar verði ekki um að ræða fæðingaraðstöðu frá og með næstu áramótum. Og stjórnarnefnd Ríkisspítal- anna fékk hálfan sólarhring til þess að framkvæma þessa gerræð- islegu fyrirskipun: Stjórnarnefnd- arfundur var boðaður að morgni 31. mars. Stjórnarnefndin átti að taka við rekstri Fæðingarheimilis- ins frá og með miðnætti 1. apríl, 12 tímum seinna. Tæmandi dæmi og endanlegt Fæðingarheimilið hefur verið eitt aðalmál borgarstjórnaríhalds- ins í Reykjavík um áratugaskeið. Nú er komið á enda. Samfelldur slóði svikinna fyrirheita blasir við. Og fólkið sem starfað hefur á Fæðingarheimilinu ,er selt á fæti ókeypis í hendur stóru-mömmu rík- ísins sem að þessu sinni vill ekki en er neydd til að taka við. Fólkið sem starfað hefur á Fæðingar- heimilinu hefur tekið á móti 500 börnum á ári. Þeirri starfsemi á að loka rétt eins og starfið sé einsk- is virði sem þar hefur verið unnið. Hver var að tala um skort á virðingu fyrir ákvörðunum stjórn- málamanna? Þegar þeir haga sér með þeim hætti sem þeir gera for- sætisráðherra og heilbrigðisráð- herra - er þá nema von að fólki blöskri? Vissulega er Fæðingar- heimilismálið ekki stórt á landsvísu eða heimsvísu en það er skýrt dæmi og tæmandi um óheiðarleg vinnubrögð þeirra manna sem nú stjórna þessu landi. Þjóðin á betra skilið. Höfundur er alþingismaður og á sæti í stjórnarnefnd Ríkisspítala. ÍSLENSKA óperan ---11111 GAMLA BÍÓ INGÓLFSSTRÆTI E!N SÝNING EFTIR! Láttu ekki einn helsta listviðburð ársins framhjá þér fara! Sýning laugardag 4. apríl kl. 20.00. SÍÐASTA SINN. Miðasalan er opin frá kl. 15.00-19.00 daglega og til kl. 20.00 sýningardaga. Grciðslukortaþjónusta. Sími 1 1475. Munu raddir íslenskra kvenna hljóma í Ríó?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.